Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976 31 Iðntækni hefur fjöldaframleiðslu á gjaldmælum í leigubíla UM því næst þriggja ára skeið hefur fyrirtækið Iðntækni unnið að undirbúningi á fjöldafram- liðslu á rafeindagjaldmæli fyrir leigubifreiðar. Islenzki gjald- mælirinn er mjög frábrugðinn þeim mælum er til þessa hafa verið notaðir I islenzkum leigu- bflum t.d. má nefna að mjög stuttan tíma tekur að brevta töxt- um. Um þessar mundir er Iðn- tækni að hefja fjöldaframleiðslu á mælinum og af þeim sökum hafði Morgunblaðið samband við framkvæmdastjóra Iðntækni Gunnlaug Jósefsson. 1 upphafi sagði Gunnlaugur að efni í 200 mæla væri komið til landsins og undirbúningur að framleiðslu hafinn hjá Öryrkja- bandalagi Islands. Fyrsti mælir- inn hefði veri hannaður fyrir um það bil þremur árum. Undir- búningsframleiðslan hefði hafizt fyrir hvatningu Ulfs Markús- sonar formanns bifreiðastjóra- félagsins Frama, og stuðning Landsbanka Islands og Iónþróun- arsjóðs. Sagði Gunnlaugur að rafeinda- mælir frá erlendu fyrirtæki væri Lögreglufélagið: Listi stjórn- ar sigraði NYLEGA fór fram stjórnarkosn- ing í Lögreglufélagi Reykjavíkur. Tveir listar voru í kjöri, A-listinn, listi fráfarandi stjórnar með Gisla Guðmundsson sem formannsefni og B-listinn með Guðmund Guð- bergsson sem formannsefni. Urðu úrslitin þau að A-listinn hlaut 100 atkvæði en B-listinn 85 atkvæði. Stjórn félagsins næsta kjörtíma- bil skipa Gisli Guðmundsson, for- maður, Guðmundur Guðjónsson, Magnús Ásgeirsson, Sigurður H. Hrólfsson og Þorsteinn Sigfússon. Jafntefli ISLENDINGAR og Bandarikja- menn gerðu jafntefli, 17—17, í landsleik kvenna í handknattleik sem fram fór í Iþróttahúsinu i Hafnarfirði í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var einnig jöfn, 8—8 en fslenzku stúlkurnar höfðu oftast frumkvæðið í leiknum. Þannig höfðu þær tvö mörk yfir er skammt var tíl leiksloka, en bandarísku stúlkunum tókst að jafna á sfðustu stundu. Markhæst í íslenzka liðinu var Guðrún Sigurþórsdóttir sem skoraði 5 mörk, en markhæst bandarísku stúlknanna var Sandra Leegh, sem skoraði 8 mörk. Liðin mætast að nýju í Iþróttahúsinu á Akra- nesi f dag. ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU AK.LVSINíi \ SIMINN KU: 22480 að koma.á íslenzka markaðinn en islenzki mælirinn væri á margan hátt fullkomnari en hinn erlendr. Sagði hann að í íslenzka mælinum væri t.d. innbyggt minni þannig að við taxtabreytingar þyrfti aðeins að breyta minninu, en í þeim erlenda þyrfti að skipta um stykki, sem gerði allar breytingar dýrari. Þá væri íslenzki mælirinn allur traustari og sérstaklega hannaður fyrir íslenzkar að- stæður. Að sögn Gunnlaugs réðst Iðn- tækni út í smíði gjaldmælanna eftir að íslenzkir leigubílstjórar höfðu margkvartað yfir úreltum erlendum tækjum. Af þeim sökum hefði komizt á samstarf milli Frama og Iðntækni 1973 og í lok ársins 1974 hefðu verið settir 17 mælar í leigubíla til reynslu. Hafa þeir reynzt mjög vel, en vegna þess að leigubílstjórar ósk- uðu eftir nokkrum breytingum var mælirinn fullkomnaður á ýmsan hátt og sér hann á næst- unni dagsins ljós í nýjum búningi. „Þetta hefur verið frjárfrekt fyrirtæki og eitt er vist að ef við hefðum séð alla erfiðleikana fyrir hefðum við aldrei farið út í þetta verkefni,“ sagði Gunnlaugur og bætti við: „Það er von okkar að leigubílstjórar kynnist okkar mæli og sannfærist um að hann stendur öðrum mælum framar bæði með tilliti til gæða og útlits. Það er öruggt að við getum veitt betri viðhaldsþjónustu en önnur fyrirtæki á þessu sviði og í öðru lagi mun íslenzki mælirinn spara gjaldeyri og jafnvel hleypa af stað mikilli fjöldaframleiðslu í nýrri iðngrein á tslandi, rafeindaiðn- aði.“ Fóru í skellinöðru- ferðir fyrir vínið RANNSOKNARLÖGREGLAN i Hafnarfirði hefur nýlega upplýst allmörg innbrot í hús í Hafnar- firði. Voru þar að verki nokkrir 11—15 ára gamlir drengir, sem iðkuðu það að fara inn í íbúðir þegar fólk var að heiman og stálu þeir aðallega peningum, vini og hljómplötum. Ekki neyttu þeir nema lítils hluta af víninu sjálfir, heldur verzluðu með það á þann hátt að láta unga skellinöðrueig- endur fá vínið gegn því að fá að keyra nokkrar ferðir á skellinöðr- unum. Áfrýjar til Hæstaréttar VEGNA fréttar f Morgunblaðinu I gær um dóm yfir fyrrverandi oddvita Svarfaðardalshrepps skal þess getið, að hann hafði greitt féð að fullu áður en ákært var f málinu. Ennfremur hefur hann ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar og hefur óskað eftir því, að Páll S. Pálsson. hrl., verði skipaður verj- andi sinn. — Svíakonungur Framhald af bls. 1 þau opinbera trúlofun sína Silvia svaraði eitt sinn spurn- ingu fréttamanns um samband hennar og konungsins á þá leið, að hún sæi ekki ástæðu til að ræða einkamál sín á opinberum vettvangi og mundi ekki gera það i framtíðinni. Nýleg skoðanakönnun í Svi- Þjóð bendir til þess að meiri- hluti Svía sé þvi fylgjandi, að konungurinn taki sér konu af borgaralegum ættum. Silvia Sommerlath er 33 ára að aldri, en Karl Gústav er 29 ára. Konungurinn lýsti því ný- lega yfir í blaðaviðtali, að hann vildi ógjarna hindra konu í þvi að sinna því starfi, sem hún hefði aflað sér menntunar til, en viðurkenndi jafnframt, að mætti hann velja vildi hann heldur að eiginkona hans væri innan stokks og gætti bús og barna. Afrýjuðu fram- lengingu gæzlu- varðhaldsins MENNIRNIR þrír, sem nýlega hlutu framlengda gæzluvarð- haldsvist, hafa allir áfrýjað þeim úrskurði til hæstaréttar. Búizt er við að sakadómur sendi öll gögn viðkomandi málum þessara manna til hæstaréttar strax eftir helgi, og má þá gera ráð fyrir að hæstiréttur taki afstöðu til áfrýjunarbeiðna þessara í lok næstu viku eða þarnæstu viku. — Sambúð Framhald af bis. 1 Moneim Al-Honi, af dögum eða ræna honum. Hinir tuttugu eru sakaðir um að hafa haft svipaðar ráðagerðir í huga. Af opinberri hálfu í Egypta- landi er ekki talið, að málið muni leiða til stjórnmálaslita milli land- anna, þótt ýmsir hafi velt þeim möguleika fyrir sér. Egypzka dagblaðið Al-Akbar segir frá því í dag, að um helming- ur hinna brottreknu Egypta sé kominn að landamærum Líbýu og Egyptalands, og hafi 350 manna hópur komið þangað í gær. Þar af séu 8 manns nú í sjúkrahúsi vegna pyntinga og líkamsmeið- inga af hálfu Líbýumanna. — 7 ásiglingar Framhald af bls. 32 legum veiðum. Raunar gerði freigátan margar tilraunir til ásiglingar en framan af slapp varðskipið við þær allar eða þar tii um kl. 16.22 er skipin skullu saman. Engar teljandi skemmdir urðu á varðskipinu í það skiptið en varðskipsmenn töldu sig hins vegar jafnvel verða vara við að rifa kom á freigátuna. Siðari atlagan varð öllu hrotta- legri en í henni sigldi Mermaid þrívegis á Þór. Kom freigátan fyrst upp með stjórnborðshlið varðskipsins og beygði hart í bak- borða í veg fyrir og á varðskipið. Skemmdir urðu þá mestar á frei- gátunni sjálfri, þvi að m.a. möl- brotnaði bakborðslífbátur freigát- unnar og fleiri skemmdir urðu. Virtist skipstjóri freigátunnar una þessari útreið illa, því að hann sveigði í hring og kom aftur fram með Þór, snarbeygði síðan fyrir það og varð ekki komið í veg fyrir árekstur. I þriðja sinn lagði Mermaid til atlögu og sigldi nú á varðskipið stjómborðsmegin á móts við herbergi 1. stýrimanns sem er miðsvæðis. Hélt freigátan áfram fram með varðskipinu, tók síðan aftur með bakborðsskrúf- unni meðan hin gekk áfram, og tókst þannig að láta skipin núast saman nokkra stund. Töluverðar skemmdir urðu á Þór — þilið lagðist inn á kafla og þilfarið lyft- ist, neðri brúarvængur bognaði meira en orðið var, dældir komu á bóg og i vélarrúm neðan við sjó- línu. Varð því Þór að halda inn til Seyðisfjarðar eftir þessa viður- eign. Skemmdir urðu einnig á freigátunni og virtist varðskips- mönnum sem stefnið hefði rifnað frá sjólínu upp undir akkeri. Engin meiðsli urðu á varðskips- mönnum. Skipherra á Þór er Þor- valdur Axelsson. — Viðræðufundir Framhald af bls. 32 anna í gær. Hann kvað það helzt hafa gerzt á þessum fundi, að íslenzku fulltrúarnir hefðu komið fram með tilboð til handa Færey- ingum, sem síðan hefðu svarað með gagntilboði. Hann kvað aðila hafa siðan nálgazt nokkuð en sam- komulag hefði ekki tekizt. Ekki væri þó um það að ræða að slitnað hefði upp úr viðræðunum heldur væri stefnt að þvi að viðræðu- nefndirnar hittust aftur eftir um það bil vikutíma Fundarstaður væri hins vegar ekki ákveðinn. Atli Dam vildi ekki á þessu stigi skýra frá þeim atriðum sem helzt væri ágreiningur um milli ís- lenzku og færeysku viðræðufull- trúanna, en tók fram að það væri Færeyingum afar mikilvægt að samkomulag milii landanna fæli í sér langtimalausn en „ekki aðeins til dagsins á morgun“ eins og hann orðaði það. Sendinefnd Færeyinganna er skipuð þremur mönnum, og lögðu þeir á sig verulega fyrirhöfn til að ná hingað til lands á fundinn í gær. Flugvél, sem átti að sækjaþá til Færeyja, bilaði í fyrradag á leið út og varð að snúa við. Þeir voru þá komnir til Voga, og varð að ráði að fá herskipið Ingólf til að sigla með þá til landsins. Kom skipið upp að Islandsströndum árla I gærmorgun, og flaug þá þyrla af skipinu með þremenn- ingana til Egilsstaða, þar sem beið þeirra flugvél frá Flugstöð- inni og flaug með.þá til Reykja- víkur. Færeyingarnir halda utan kl. 2 i dag. r — Asgeir Framhald af bls. 32 knattspyrnumaður heimsins um þessar mundir. Fyrsta árið sem hann var hjá liðinu var það spænskur meistari og hafði mikla yfirburði yfir önnur lið. Barcelona greiddi geypiverð fyrir Gruyff á sínum tíma, eða rúmar 300 milljónir íslenzkar. Er ekki gott að segja hvaða verð félagið greiddi fyr- ir Asgeir ef til kæmi, en ekki er ólíklegt að það yrði 50—100 milljónir króna. Sem fyrr segir hafa fleiri félög boðið Ásgeiri atvinnu- mannasamning, og hefur heyrzt að eitt þeirra sé meist- aralið Belgíu Moleenbek. — Kerfið ekki Framhald af bls. 2 ið gerður rúmlega 8 þúsund launaávísanir, sem fælu i sér hækkun marzlaunanna. Væri fjárhæðin á hverjum launatékk en með þessu móti kæmu kjara- bæturnar strax til skila til laun- þeganna. Höskuldur sagði ennfremur, að þessi skjóta afgreiðsla hefði verið kleif vegna þess að ráðuneytið hefði nýlega endurskoðað allt launavinnslukerfi sitt, og það hefði það í för með sér að sá starfsmannafjöldi, sem væri í launadeildinni alla jafnan, réði við launabreytingu af þessu tagi með mjögskömmum fyrirvara. — Messur Framhald af bls.7 fundur að lokinni messu. Séra Stefán Lárusson. BRAUTARHOLTSKIRKJA. Æskulýðsmessa kl. 2 síðd. Séra Jónas Gíslason prédikar. Tekið verður á móti framlögum til Hjálparstofnunar Þjóðkirkj- unnar. Séra Einar Sigurbjörns- son. AKRANE SKIRKJA. Barna- samkoma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 síðd. Séra Björn Jónsson. LANGHOLTSPRESTAKALL. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Séra Arelíus Níelsson. Guð- þjónusta kl. 2 síðd. Séra Arelius Níelsson. Öskastundin kl. 4 síðd. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Sóknarnefndin. — 30 menn vilja stofna félag um.„ Framhald af bls. 3 Efstahjalla 15, Kópavogi, Guð- mundur S. Júlíusson, stórkaup- maður, Nesvegi 76, Agúst Krist- manns, stórkaupmaður, Hvassa- leiti 45, Marinó Pétursson stór- kaupmaður, Sundaborg, Reykja- vík, SigurðurG. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri, Stórateig 12, Mos- fellssveit, Hanna Ármann, skrif- stofustjóri, Sogavegi 76, Ágúst Ármann, stórkaupmaður, Gilsár- stekk 8, Egill L. Jacobsen, tann- læknir, Bugðulæk 3, Gunnar Þor- leifsson, forstjóri, Fögrubrekku 47, Öskar Jóhannsson, kaupmaó- ur, Austurbrún 27, Valdimar Jónsson verzlunarmaður, Nofður- brún 14, Andrés Guðnason, stór- kaupmaður, Sundlaugavegi 20, Björn Björnsson, framkvæmda- stjóri, Kjartansgötu 2, Jón Júlíus- son kaupmaður, Austurgerði 12, Hreinn Halldórsson, kaupmaður, Melhaga 16, Örn I. S. Isebarn, byggingameistari, Brautarlandi 10, Kristján Benediktsson raf- virkjameistari, Safamýri 45, og Jóhann Ólafsson, stórkaupmaður, Flókagötu 45. Ragnar Ingólfsson sagði i við- tali við Mbl. að stefna félagsins yrði að halda fargjöldum sérstak- lega lágum, en að öðru leyti kvað hann ekki ákveðið, hvernig félag- ið færi af stað, hvort það keypti vélar Air Vikings eða ekki. Allt slíkt myndi stofnfundur ákveða. Ragnar sagði að vitað væri um gífurlega mikinn fjölda manna, sem áhuga hefði á slikri félags- stofnun. Hann kvað ekki gott að segja hve mikla fjármuni félagið þyrfti til þess að fara af stað en hann sagði að gizkað hefði verið á 100 milljónir króna til að byrja með. Kvað Ragnar þá fjárhæð miklu meira en nægilega til þess að kaupa þotu, sem hann kvað ganga á um 55 milljónir króna. Hann kvað ekkert t.d. hafa verið rætt við aðalkröfu i þrotabúi Air- Vikmgs. Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins, sem er einn af stærstu kröfuhöfum i þrotabú Air Vikings, sagði, að sér sýndist sem þessir menn virtust ætla að kaupa flugvélar Air Vikings og halda áfram i nýju félagi þeim rekstri sem Air Viking hefur haft með höndum. Hann kvað yfirtöku á félaginu með sköttum og skyldum óhugsanlega, þar sem engum dytti slíkt í hug, „til þess eru skuldir of miklar og eignir allt of litlar", sagði Vilhjálmur. Vilhjálmur vildi lítið segja um hvað yrði — það færi allt eftir því hvernig færi fyrir félagsstofnun- inni, en hann sagði að sér sýndist um vera að ræða breiðan og stór- an hóp manna, sem fyrir þessu stæði og hann kvaðst ekki nokkr- um vafa um að unnt væri að safna miklu htutafé, ef vel væri að unn- ið. Hann kvað kröfuhafana hafa hugleitt að stofna félag. Vilhjálmur Jónsson sagði að hvað sem gert yrði væri mjög nauðsynlegt að afgreiða málin fljótt og með hliðsjón af því, kvað hann kröfuhafana hafa tilkynnt skiptaráðandanum, að þeir myndu óska eftir því að fá þoturn- ar út úr búinu til þess að geta ráðstafað þeim. Þá tilkynningu hefur skiptaráðandinn þegar fengið. Akvörðun um þetta verður þó ekki tekin fyrr en eftir skiptafund, sem að öllum líkind- um verður um helgina. I þessu efni er ógjörningur að fara þá leið, sem algengust er i meðferð þrotabúa, að biða eftir því að upp- boð geti farið fram, þar sem aug- lýsa þarf eftír ákveðnum reglum nauðungaruppboð og það kvað Vilhjálmur mundu taka allt of langan tima eða allt að þremur mánuðum. Er óhugsandi að láta flugvélarnar liggja og gera ekkert í framtíðarverkefnum á þeim tima. Því hefur skiptaráðandan- um verið tilkynnt þetta, að kröfu- hafar þyrftu að leggja inn tilboð i vélarnar til þess að unnt sé að koma þeim i notkun og gera fyrir þær það sem þarf. Tilboð i vélarnar frá kröfuhöf- um verður lagt fram á mánudag og verður síðan að bíða i viku eftir því að halda skiptafund, þar sem lög gera ráð fyrir því að hann sé auglýstur með þeim fyrirvara. Þetta kvað Vilhjálmur hafa verið ákveðið og ætluðu kröfuhafar jafnframt að nota vikuna til þess að kanna, hvað unnt væri að taka til bragðs. — Stokkseyri Framhald af bls. 3 á netaveiðum frá Stokksevri haft hærri skiptaprósentu en annars staðar tíðkast. Björgvin Sigurðsson, for- maður verkalýðsfélagsins Bjarma á Stokkseyri, sagði i gær, að náðst hefðu samningar um allt að 4.5% hærri skipta- prósentu en gert er ráð fyrir i hinum almennu samningum. Sjómenn á 50—90 tonna neta- bátum frá Stokkseyri fá 33% skiptahlut, en annars staðar er 28.5%, á bátum 91—110 tonn verður skiptaprósentan 31%, á móti 28,5% og á bátum 110—200 tonn 30% f stað 28,2%. ~k' rmrnrrfrrrri'irr * 9 » * «

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.