Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976 Minning: Jón Sveinsson verzlunarmaður Fæddur 17. júní 1918. Dáinn 6. marz 1976. 1 dag fer fram í Dómkirkjunni útför Jóns Sveinssonar verzlunar- manns. Hraunteiííi 10, Reykjavík. Foreldrar hans voru Sigríður Elíasdóttir og Sveinn Jónsson skipstjóri frá Gauksstöðum í Garði. A unga aldri missti hann for- eldra sína, og frá þeím tíma ólst hann upp hjá móðursystur sinni, Kristjiinu Eliasdóttur, og dætrum hennar, Elínu og Halldóru Hall- dórsdætrum, sem alla tfð tóku honum sem ástríkum syni og hróður. Erla Sveinsdóttir, eina al- systir Jóns, ólst ppp á Þingeyri hjá Natanael Mósessyni og Björgu Jónsdöttur. Jón höf stiirf hjá Haraldi Arna- syni kaupntanni 14 ára gamall. Þar vann hann alla sína ævi af stakri samvisku.se mi og trú- mennsku. Atti hann rnargar góðar ntinningar frá gömlu góðu Haraldarhúð og húshændum sem þar hafa verið’ og slarfsfélögum. Jón var sérstakur (iðlingsmaður, sikátur o>* gamansamur en þó alltaf sama prúðmennið. Aldrei heyrðist hann segja hnjóðsyrði um nokkurn ntann. I rösemi og kærleika skal þinn styrkur vera. það var lífsskoðun hans. Hann var allra manna skemmtilegastur og kátastur i vinahöpi. En undir niðri var Jón núkill alvörumaður. Hann kvæntist Halldöru Haf- liðadöttur Baldvínssonar fisksala í Rvik. 12. maí 1945, fráhærri myndarkonu, sem reyndist hon- um hin ágætasta eiginkona. Eignuðust þau eina döttur, Krístjönu, l<>gfræðing, sem hefur veriö sólargeisli á heintili þeirra. Jón var mikill heimilisfaðir og hoimili þeirra var til mikillar fyrirmyndar, alltaf reiðuhúinn til að gera oðrum greiða <>g ekki síst þeini er minna máttu sín, og þurftu einhvers með i 1 ífsharátt- unni. Jóti Sveinsson hafði marga hæfileika til að vera vinsæll, enda held ég að hann sé einn þeirra er allir sjá eftir. Ilann var hvers manns hugljúfi í umgengni hvers- dagslega. ylaöur og h'ress o g gamansamur. þvi hlaut iillum að verða hlýtt til hans sem kynntust honunt náið. Við þökkum allar ánægju- stundirnar á Hraunteigi 10. Voru þau hjónin samhent um að gera það heimili fagurt og aðlaðandi af smekkvisi sinni og þau höfðu yndi af að fagna góðum gestum. Méð .Jóni SveinsSyni er horfinn af sjönarsviðinu mikill mann- dómsmaður. hugþekkur og góður drengur. Vinir hiðja honum hlessunar út á eilífðardjúþið, og þakka honum margar ögleymanlegar gleði- stundir ér hann átti með þeim. Slikúm mönnum sem Jóni farnast vel tiæði þessa heims og annars. Eftirlífandi eiginkonu og dóttur hiðjum við Guðs hlessunar um ókomin ár. A.K.G. Kveðja til fra*ntla Jón frændi er dáinn. Við syst- kinin fengum fyrir hjartað, þegar við heyrðum að Jón frændi væri dáinn. Þessi góði og kærleiksrikí frændi, sem alltaf yar kátur og hress, gladdi alla í kringum sig. Hann var okkur systkinunum sem annar pahhi, og við kölluöum hann alltaf Jón frænda þótt hann væri kvæntur möðursystur okkar. Hann var svo Iipur og snar. Hann taldi aldrei eftir sér að vinna og hjálpaöðrum. Jón létti undirlífið hjá þeint sem kynntust honum og kom með gleði. Þeir sem kynntust honum muna Jón einungis sem góðan ojí kærleiksrikan mann. Aldrei heyrðum við hann mæla styggðaryrði. Við systkinin mun- unt ekki eftir honum nenia með hros á vör og glaðhlakkalegum. Börn hændust að honum, því að HITASTIG sjávar við Suður- og Vesturland hefur aldrei mælst lægra en í nýafstöðnum sjórannsókna- og loðnuleitarleiðangri rannsóknar- skipsins Bjama Sæmundssonar. Reyndist hitastigið vera 1—2° undir meðallagi. I frétt frá Hafrannsóknastofnun- inni segir, að leiðangur Bjarna Sæmundssonar hafi staðið frá 17. febrúar til 8. marz. Hafi sjórann- sóknirnar beinst að hitastigi og seltu sjávar, m.a með tilliti til hugsanlegr- hann var svo barngöður og börn eru beztu sálfræðingar, þau finna hvar einlægni ój» sannur trúnaður er. Oy þar er Jóni vel lýst. Drott- inn gefur og Drottinn tekur. Við þökkum góðum Guði fyrir hvað hann var okkur góður og kær- leiksríkur að leyfa okkur sem kynntumst Jóni að njóta sam- fylgdar hans. Við biðjum Guð að blessa og varðveita Dóru frænku og Kristjönu dóttur þeirra. Guð mun hugga þá sem syrpja. Við kveðjum, Jón frænda og þökkum honum fyrir allt sem hann veitti okkur systkinunum. Svslkinin Rauðalæk 57. Nú héðan á burt í friði ég fer 0, Faðir að vilja þínum, 5 hug er mér rótt og hjartað er af harminum læknað sínum Sem hést þú mér drottin ha-gan hlund Eg hlýt nú í dauða mínum. (M. I.uther) Með þessum sálmi kveð ég Jón frænda og þakka honum fyrir hvað hann var mér alltaf góður. Astríður Linda ar nýismyndunar I kalda sjónum djúpt úti af Norðurlandi. Þá segir, að hitastig sjávar á land- grunnSSvæðinu umhverfis landið hafi reynst fremur lágt miðað við fyrri mælingar á sama árstima. Á Selvogs- banka, úti af Faxaflóa og Breiðafirði og á djúpmiðum fyrir Vestfjörð- um að Djúpál hafi það verið 4,5—5 gráður, út af Kögri 1,5—3,5 gráður, á Hornbanka, Húna- flóa og Skagafirðí 2-r-3 gráður, úti af Siglunesi 0—2 gráður og þá kaldast við botn i Eyjafjarðarái Á friðaða svæðinu úti af Norðurlandi og úti fyrir Austfjörðum var hitastigið 0,5— 1,5 gráður, og um 6 gráður fyrir sunnan skilin við Suðausturland á gönguleið loðnu allt vestur undir Vest- mannaeyjar í lok leiðangursins var endurtekin mæling á einum stað á Selvogsbanka og hafði hitastig þar hækkað um 1 gráðu á þriggja vikna skeiðí leiðangursins umhverfis landið Gefur þetta visbendingu um að hlýi sjórinn hafi sótt fram á miðunum á þessum slóðum án þess þó að unnt sé að fullyrða neitt um frekari dreifingu hans norður á bóginn I leiðangrinum varð vart við hafis u þ b 60 sjómilur norður af Kögri, en ekki annars staðar, og var isinn a m k 120 sjómilur norður af Siglunesi Djúpt úti af Norðausturlandi, i Austur- Islandsstraumnum reyndist selta sjávar vera tiltölulega há og getur þvi eins og nú er ástatt ekki orðið um nýismyndun þar Samkvæmt upplýsingum frá veðurtunglum mun i vetur vera tiltölu- lega litill is i hafinu norðan íslands og Jan Mayen Eitt sér gæti það bent til að hafisinn muni berast suður um Grænlandssund i vor og sumar og ekki inn á landgrunnssvæðið norðanlands Að lokum segir, að með þessar að- stæður í huga verði að álykta að hafís- inn muni halda sér frá ströndum landsins i vor og sumar, þótt hin óvenju veika fyrirstaða hlýsjávarins að sunnan geti e.t.v. breytt þar um vegna óhagstæðra vinda, en varla i mjög ríkum mæli Leiðangursstjóri i þessari ferð var Svend-Aage Malmberg haffræðingur, en einnig var Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur i ferðinni, en eins og fyrr segir var reynt að leita luðnu i ferðinni Gaf sú leit litla raun, fyrst og fremst vegna óhagstæðs veðurs + Dóttir min, RAGNHILDUR, andaðist i Bandarikjunum. 9 marz Sveinn Sigurjónsson, Austurbrún 4. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar og móður okkar UNU HALLGRjMSDÓTTUR, Leifsgötu 8. Þorkell Einarsson, Hildur Guðmundsdóttir. Hrefna Guðmundsdóttir Lilja Guðmundsdóttir, Rúnar Guðmundsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför, eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa, BJARNA GUÐMUNDSSONAR, frá Stóra-Nýjabæ, Garðsstig 3, Hafnarfirði, Sigrlður Helgadóttir, Halldór Bjarnason, Kristfn Bjarnadóttir, Þórarinn Bjarnason, Guðrún Bjarnadóttir. Birna H. Bjarnadóttir, Auður Bjarnadóttir, Guðmundur Heimir Rögnvaldsson, Kristln Stefánsdóttir. Þorvaldur G. Jónsson, Þorsteinn Erlingsson, og barnabörn. Hitastíg sjávar við Suðurland 1-2 stígum undir meðallagi Sigríður G. Fríðriks- dóttir—Minning Fædd 10. október 1879. Dáin 24. febrúar 1976. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Eg er ekki fær um að skrifa minningargreinar og vona, að mér færari menn geri það. En einhver innri rödd skipar mér það nú. Líf Sigriðar G. Friðriksdóttur einkenndist af glaðværð og fórn- fýsi án þess að krefjast nokkurs hlutar sjálfri sér til handa. 1 bernsku minni kynntist ég fyrst þessai'i fögru lyndiseinkunn hennar. þegar hún gaf mér Róbinson Crúsó, verðlauna- bók frá prestinum fyrir góða kunnáttu. Eg var 10 árum yngri en hún, hafði ekki vit á að afþakka svona gjöf, sem var henni dýrmæt, Þá voru ekki barnaskólar aðrir, (almennt) en fermingarundir- búningur. Þegar hann lærðist vel, má segja ,,Þann arf vér bestan fengum". Þaðan fékk hún ljós og krafta á skólagöngu lífsins, sem oft hlýtur að hafa verið erfið. Sigríður giftist ung, eignaðist 15 vel gefin börn, eins og for- eldrarnir voru. Flest þeirra ólust upp heima í sárri fátækt, þá voru ekki styrkveitingar. Eftir að hún hætti að búa, var ég ein af þeim konum, sem fékk að njóta hennar góðu hjálpar oft um lengri eða skemmri tíma. Þá hafði hún með sér yngstu dótturina, sem var börnum mínum eins kærkomin og hún var mér. Aldrei gátum við hjónin fullþakkað henni hjálpina á heimilinu, þegar ég lá á Land- spítalanum vorið 1933. Siðust-u æviárin dvaldi Sigríður á Elliheimílinu Grund. A hverju ári hef ég getað heimsótt hana. Alltaf hefur hún verið glöð og hress, ánægð og þakklát, rétt eins og hún hefði alltaf getað sagt: „Himneskt er að lifa." Lengi vel voru prjónarnir og blöð eða bækur dægrastytting hennar, eins og svo margra. Ogleymanlega stund átti ég frá síðastliðnu sumri hjá þeim her- bergissystrum. Hin konan, Kristin, er orðin blind en er enn skýr í hugsun. — Víst skal... Framhald af bls. 19 skoðunarmenn, sem búsettir yrðu á Reykjavíkursvæðinu, verða við skyndiskoðun öryggis- búnaðar eingöngu, eða verða sér- þjálfaðir í skoðun þeirra atriða, sem mikilvægast er að verði full- komnuð skoðun á nú. Ferða- kostnaður og dvalarkostnaður vegna aukinna ferðalaga yrði að sjálfsögðu óhjákvæmilegur. V. Lokaorð. Eins og fram hefur komið, þá er ég þakklátur formanni fjárveit- inganefndar fyrir það, að hann í grein sinni staðfestir þá stað- reynd, að siglingamálastjóri hafi sannarlega ár eftir ár gert tillög- ur um fjölgun á fastráðnum skipaskoðunarmönnum við stofn- unina. Þá er það og rétt sem segir í grein formanns f járveitinga- nefndar, að við lokaafgreiðslu fjárlaga ársins 1975 bætti nefndin við heimild til að fastráða tvo skyndiskipaskoðunarmenn við Siglingamálastofnun ríkisins, en niður voru felldir m.a. fjórir sér- þjálfaðir skipaskoðunarmenn ut- an Reykjavíkursvæðisins úr til- lögum Siglingamálastofnunar. Svo óhönduglega tókst þó til, að hvorki samgönguráðuneytið né siglingamálastjóri höfðu hug- mynd um þetta fyrr en á hausti 1975, þegar fjárveitinganefnd var byrjuð að vinna að fjárlögum árs- ins 1976. Nú er þess vænzt að samgönguráðuneytið fái fljótlega heimild til að auglýsa tvær stöður skipaskoðunarmanna lausar til umsóknar svo og að lausn fáist um leið á þeim atriðum öðrum sem stofnunina varða mest nú. Það er og rétt frá skýrt í grein formanns fjárveitinganefndar, Nú er ekkert hægt að aðhafast, aðeins að biðja og biða. Sigríður reis upp og þekkti mig strax, þó minnið væri orðið lítið. Föla fallega andlitið ljómaði af gleði, hún faðmaði mig og sagðist ekki vilja sleppa mér. (Eg vil segja við alla, sem eiga ættingja og vini á Elliheimilum: Gleymið ekki að líta til þeirra sem oftast á meðan Guð gefurykkur heilsu.) Mér datt i hug að minnast á barnasálma Valdimars Briem. Sigríður mundi eftir þeim og þá lifnaði nú aðeins yfir Kristínu, hún dáðist mikið að sálmaskáld- inu góða. Hann hafði líka skírt hana og fermt. Svo byrjaði hún að syngja með furðu góðir rödd og við Sigriður tókum undir og 2 sálma sungúm við. Gleði okkar allra var best lýs't með þessu versi: ,,Eg finn Guðs djúpa frið í sálu minni, sá friður huggun veit- ir minni önd þá bylgja dauðans brotnar hinsta sinni, sem ber mig heim að ljóssins fögru strönd". Já, það var sannarleg sælustund, sem ég hefði síst viljað missa. Eg hefði viljað dvelja lengur hjá þeim en „Hver unaðsstund á vængjum flýr“. Ég þakka Guði fyrir samfylgd- ina með Sigriði á lífsleið minni. Blessuð sé minning hennar. Steinunn Guðmundsdóttir. að á fundi í nefndinni haustið 1975 fór formaður þess á leit við mig að ég kæmi því opinberlega á framfæri, að fjárveitinganefnd hefði heimilað ráðningu þessara tveggja skyndiskoðunarmanna, en þess var að sjálfsögðu ekki getið f grein minni „Öryggi á sjó og fjárveitingar", þvi að þegar sú grein var rituð hafði ég ekki hug- mynd um þessa heimild, eins og skýrt hefur verið nánar hér að framan. Á þessum fundi nefndar- innar sagðist ég fúslega gera það, en taldi að eðlilegt væri að for- maður fjárveitinganefndar stað- festi fyrst opinberlega, að það væri rangt eftír fjárveitinga- nefnd haft að engar sérstakar ábendingar eða tillögur í sam- bandi við aukið eftirlit með skip- um hefðu komið frá Siglingamála- stofnunni. Þá hefur bæði í hans grein og i þessari grein komið fram, að fjár- veitinganefnd heimilaði ráðningu tveggja skyndiskoðunarmanna á búnaði skipa, sem vonazt er til að breyta megi þannig, að hægt verði að ráða menn sem sérþjálfa má í þeim greinum öryggis skipa, sem mest eru aðkallandi nú. Þar með tel ég að komið hafi fram það, sem sannast er og rétt- ast í þessum málum öllum, og fæ ég ekki betur séð en að alger samstaða sé um að hafa það er sannara reynist. Reykjavík 22. febrúar 1976,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.