Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976 15 Stórsvindl kom- útflytjenda USA? Washington 12. marz. — Reuter þessi, Jesse Rosen, 40 ára að aldri, SAMKVÆMT eiðsvörnum vitms- burði fyrrverandi eftirlitsmanns með kornvigtun fyrir undirnefnd bandarísku öldungadeildarinnar, sem fjallar um landbúnaðarmál, eru ólögleg flokkun og vigtun korns næstum því viðtekin venja hjá kornútflutningsfyrirtækjum um gjörvöll Bandarikin. Maður Patty með inflúensu San Francisco 12. mars Reuter RÉTTA RHÖLDUNUM yfir Patriciu Hearst hefur verið frestað þar til á mánudag vegna þess að hún er komin með inflúensu. Farið var með hana úr fangelsinu i gær til sjúkrahúss f San Franciseo, og sagði einn af lögfræðingum hennar, Albert Johnson, að sjúkdómsgreiningin hefði verið inflúensa. Siðan var far- ið með hana aftur i fangaklef- ann. Þess er vænzt, að er réttarhöldin hefjast að nýju muni geðlæknisfræðingur ákæruvaidsins, dr. Harry Kozol, halda áfram að fjalla um hvort Patricia hafi tekið þátt i bankaráni vegna lífláts- hótunar eins og verjendur hennar halda fram. tjáði nefndinni í gær, að háttsett- ir starfsmenn sumra kornfyrir- tækja vissu að þetta athæfi tíðk- aðist til að auka gróða þeirra. Hann kvað starfsmenn, sem ekki vildu taka þátt i leiknum, stund- um eiga á hættu að missa starfið. Þessi óvænti vitnisburður kom í upphafi nýrra yfirheyrslna nefndarinnar um korneftirlits- hneyksli sem leitt hafa til ákæra á hendur meir en 60 eftirlitsmönn- um og fleiri, einkum á New Orleans-svæðinu. Yfirheyrslur þessar kunna að vera undanfari endurbóta á löggjöf um þessi mál sem myndu fela í sér að eftirlit með útflutningnum yrði tekið úr höndum einkafyrirtækja og fengið rikisstofnun. Bandaríkjaþing: Frumvarp um mútu- Washington 12. marz — Reuter WILLIAM Proxmire, öld- ungadeildarþingmaður, sagói í dag að hann hygðist leggja fram frumvarp sem gerói það að glæp að banda- rísk fyrirtæki mútuðu er- lendum embættismönnum. Hann kvaó frumvarp þetta fylgja í kjölfar uppljóstr- ana að undanförnu um aó bandarísk stórfyrirtæki eins og Lockheed, Gulf og Exxon hefðu haft slíka mútustarfsemi í frammi. Ef þetta yrði ekki stöðvað yrði afleiðingin spilling hins bandaríska efnahags- kerfis. Það nýjasta Símamynd AP — Þetta er það nýjasta í bolatízkunni. Símamynd AP Þriggja milljón ára — Dr. Donald Johanson frá nátt- úrufræðisafninu í Cleveland hefur sett höndina á efri myndinni saman úr þriggja milljón ára gömlum bein- um dýra sem líkzt hafa mönnum, en beinin gróf hann upp í Eþíópíu. Á neðri myndinni sést hvernig lítill loftbor er notaður til að höggva stein utan af höfuð- kúpu þriggja til fimm ára gamals barns. Ennókyrrð í gengis- málunum London 12. marz — Reuter BREZKA ríkisstjórnin hefur gripið til harðra ráðstafana til að stemma stigu við gengissigi pundsins og Englandsbanki varði i gær 200 milljónum dollara til að styrkja stöðu þess. Verðgildi punds gagnvart dollara er nú 1,935, sem jafngildir 4,5% verð- rýrnun á einni viku. Hið sameig- inlega „flot“ átta evrópskra gjald- miðla, sem nefnt hefur verið „snákurinn", hefur lent í mestu ógöngum vegna ólgunnar á evrópskum gjaldeyrismörkuðum og frankinn fer enn mjög halloka. Svíar áttu 1800 útibú erlendis SÆNSK fyrírtæki áttu árið 1974 alls um 1800 útibú erlendis, sem samtals veittu um 291.000 manns i viðkomandi löndum atvinnu, áð því er fram kemur í skýrslu Efna- hags- og félagsrannsóknastofn- unarinnar IUI í Stokkhólmi um fjárfestingar Svía erlendis. Er- lendar fjárfestingar jukust á fyrsta helmingi áttunda áratugar- ins og erlendum starfsmönnum sænskra fyrirtækja fjölgaði um 12.500 manns árlega á árunum 1970—74. AIls framleiddu þessi útibú erlendis fyrir 31.655 milljónir sænskra kr. árið 1974. Nixon kennir fyrirrenn- urum um slæmt fordæmi Washington 12. marz — Reuter RICHARD Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseti, segir í eiðsvarinni yfirlýsingu sem birt var í dag að hann hefði samþykkt ólöglegar aðferðir við upplýsinga- öflun bandarískra leyni- þjónustustofnana vegna þess að þær hefðu reynzt árangursríkar í tíð fyrir- rennara hans í forseta- embættinu. í yfirlýsing- unni, sem er 37 bls., svarar Nixon spurningum leyni- þjónustunefndar öldunga- deildarinnar um þetta mál Buenos Aires, 11. marz. Reuter ARGENTlNUSTJÓRN hefur ákveðið að hækka laun verka- manna um 20%, en með öllu er óvíst að vinstrisinnuð verkalýðs- félög sætti sig við þá hækkun, þar sem krafist hefur verið 50% kauphækkunar að minnsta kosti og það án tafar. Verkamenn hafa efnt til verk- falia víða síðustu daga til að fylgja eftir kröfum sínum, meðal annars i Cordoba þar sem mikill vélaiðnaður er. * Allir verkamenn fengu upphaf- lega 12% hækkun i siðustu viku. Ríkisstjórnin hefur hækkað verð á gasi, rafmagni, fargjöldum með járnbrautarlestum og á ýmsum matvæiategundum um allt ao 100%. Tilkynningin um 20% launa- hækkunina var gefin út i gær- kvöldi, skömmu áður en Maria Estela Peron forseti ávarpaði miðstjórnarfund CGT, sem hefur verið einn styrkasta stoð Peronistahreyfingarinnar i land- inu. og afhentu lögfræðingar hans afrit af henni til fjöl- miðla. Nixon segir að að- ferðir þessar hafi verið lög- mætar því að þær voru not- aðar til að gæta þjóðarör- yggis. Frank Church, for- maður nefndarinnar, gagn- rýndi þegar í stað forset- ann fyrrverandi og sagði að þessi rök væru byggð á hættulegum og óraunhæf- um hugmyndum um ríkis- vald. Nixon segir, að hann hafi i for- setatíð sinni komizt að þvi að fyrri ríkisstjórnir hefðu samþykkt að- ferðir eins og simhleranir án heimildar, innbrot án húsleitar- heimildar, og opnun símskeyta til borgara sem lið i upplýsingasöfn- un. Því hefði hann samþykkt þær lika. 1 yfirlýsingu Nixons kemur m.a. einnig fram, að hann man ekki hvort honum hafi verið sagt frá simhlerunum i ísraelska sendiráðinu, þótt það sé ekki úti- lokað; að hann hafi vitað að CIA opnaði póst til og frá Sovétríkj- unum og að hann hafi ekki vitað um innbrot framin á vegurn CIA og FBI. Þá viðurkennir Nixon, að hann hefði samþykkt simhleranir hjá bróður sínum, Donald Nixon, til að komast að þvi hvort hann væri skotspónn tilrauna „ein- staklinga til að koma honum eða sjálfum sér í bobba“. Argentínustjórn hækk- ar laun verkamanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.