Morgunblaðið - 13.03.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976
29
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar I síma 10-100
kl- 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags. .......
% Endurskins-
merki á hesta
Hestavinur skrifar:
Mig langar til að koma með smá
tillögu vegna frétta um tið slys á
hestum og reiðmönnum á Vatns-
endavegi. Reiðmenn leggja oft
leið sína um vegi og stiga, sem eru
ekki eða eru illa upplýstir og
getur verið mjög erfitt fyrir
akandi vegfarendur að gæta sín á
þeim.
Hvernig væri að skylda hesta-
menn til að festa „blikkborða"
(tel það betra heiti en endur-
skinsmerki) um fætur hesta
sinna eða á reiðtygin. Þá myndu
þeir öruggiega sjást og slysum
fækka.
0 Lokað
listasafn
Listunnandi skrifar:
Ég er vön að sækja listsýningar
í boi'ginni, þegar eitthvað er á
boðstólum, sem mér finnst fengur
að. Mér þótti aideiiis bera vel i
veiði, þegar Listasafn Islands
setti upp yfirlitssýningu á verk-
um Gunnlaugs Sehevings og
hugsaði ég mér að fara oft og
reika um safnið mér til ánægju og
andlegrar uppbyggingar. Nú hefi
ég reynt hvað eftir annað að fara,
að sjálfsögðu utan vinnutima, þvi
ég fer ekki úr vinnunni til slíks,
en kem alltaf að lokuðum dyrum.
Ég hefi heyrt að þessa merku
sýningu sé aðeins hægt að sjá í
hálfan annan tima eftir hádegið
og ekki nema fjórum sinnum i
viku. Ég reyndi fyrst á kvöidin,
en siðan siðdegis á laugardegi og
sunnudegi, en það gekk ekki. Mér
skilst að þá sé opnað kl. 1.30 og
lokað kl. 4. Hvað ætli yrði sagt ef
sýning Asgríms Jónssonar á
Kjarvalsstöðum væri ekki opin
nema nokkra klukkutíma á viku?
Sú sýning er opnuð kl. 2 e.h. um
helgar og fjögur aðra daga og opið
til kl. 10 á kvöldin, svo maður
getur dvalið þar og notið þess að
skoða verkin i rólegheitum og
fengið sér kaffi á milli. Sýningin
er ókeypis og vönduð sýningar-
skrá líka, og maður getur
skroppið þarna inn þegar hentar
og skoðað nokkur verk i einu.
Þannig þykir mér bezt að skoða
listaverk og geri það oft erlendis.
Það er eins og maður meðtaki
verkin betur, ef ekki er reynt að
skoða of mikið f einu. Þetta er
stórkostlega skemmtileg sýning,
sem gaman er að sækja. Eg held
að báðir þessir listamenn hafi
ætlazt til þess, er þeir gáfu þjóð-
inni verk sin að maður fengi að
skoða þau.
og frændi bvrjaði að vinna hjá
honum á unga aldri.
— Ég get vel imyndað mér að
Paul tregðist við að læra þá grein.
— Auðvitað er hann ekki að því
núna Það fvrirtæki var auðvitað
selt. Það eru einhver fjárfest-
ingarmál sem ég veit ekkert um.
Ég sagði þetta bara svo að þú
mvndir spyrja nánar út í þetta af
því að ég hef gaman af þessu og
ég þoli ekki hræsni og vfirdreps-
skap. Getur þú liðið slfkt?
— Nei, ég játa fúslega að mér
þykir skemmtilegra að vita hvar
ég er.
— En annars skal ég fullvissa
þig unt að kjötið sem hér verður
fram borið er alveg sallagott,
bætti hún striðnislega við.
Það voru eingöngu fjölskvldu-
meðlimir sem sátu til borðs. Auk
Nicole og Paul var nióðir þeirra
einnig viðstödd, mæðuleg og lítt
glaðleg kona og virtist hafa tamið
sér alveg sérstaklega nöldursama
framkomu.
— I)avid, sagði hún þegar hún
var kynnt fyrir honum. — Er það
ekki hebreskt nafn?.
— Æ, láttu ekki svona
Monique, sagði Marcel — þetta er
Það fer ekki fram hjfi neinum, þegar hann Kristjfin Friðriksson kemur
á hestinum sfnum, hvort sem hann er með endurskinsmerki eða ekki.
% Blessað
rafmagnið
Gamall Reykvikingur
skrifar:
Þegar rafmagnið fór um
daginn, rann það upp fyrir mér
hve sjaldan það kemur fyrir nú
orðið. Og hve öruggt rafmagnið er
miðað við það sem áður var eftir
að Búrfellsvirkjun kom i gagnið
og tvær linur að austan. Ég
minnist þess að varla leið sá vetur
áður að ekki brygðist rafmagnið
einhvern tíma vegna bilana eða
óveðurs, isingar og krapa. En
svona er það, maður veitir þvi
ekki athygli fyrr en það hverfur,
eins og varð nú, hve rafmagnið er
komió í gott horf á landsvirkj-
unarsvæðinu. Þá kemur í ljós, að
ekki eru einu sinni kerti til
heima, til að bregða upp ljósi, eða
batterí í útvörpin, hvað þá að til
taks sé eitthvert eldunaráhald, til
að gripa til. Þetta taldi maður
sjálfsagt að hafa við höndina hér
áður. Því vil ég nota tækifærið til
að vekja athygli á þessu og þakka
þeim sem þakkir ber, fyrir hve
vel er áþessum málum haldið.
Varla er hægt að gera ráð fyrir
að báðar línurnar að austan fari í
einu, eins og nú varð. Það er
auðvitað einsdæmi. En ég er
hræddur um að einhvern tima
hefði annar eins veðravítavetur
sett rafmagnið úr skorðum.
Þá má i leiðinni minnast á hita-
veituna, sem var sígilt umkvört-
unarefni hér áður fyrr i skamm-
deginu og aðalásökunarefnið
fyrir hverjar kosningar. En siðan
þau mál komust í eins gott horf og
þau eru nú, þá heyrist ekki stuna
eða hósti. Við erum því vön að
finpast sjálfsagt að allt sé í lagi.
Nú heyrist að fjárhagur þessa
fyrirtækis sé orðinn slikur að
ekki sé hægt að halda sama fram-
kvæmdahraða og því má sjálfsagt
búast við að eitthvað þurfi undan
að láta. Það er mikil skammsýni
að leyfa ekki hitaveitunni að selja
heita vatnið á því verði að hún
geti veitt þessa þjónustu og út-
breitt hitaveituhitun. Það vitum
við öll, sem annaðhvort munum
frumbýlingsár hitaveitunnar, eða
höfum þurft að kynda með öðru
eldsneyti.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Hann hlaut ekki fegurðarverðlaunin, en hlaut
viðurkenningu fyrið alúðlega framkomu.“
Valsmenn
Árshátíð
félagsins verður haldin. laugardaginn 20. marz n.k. að Hófel Loftleið-
um, Víkingasal og hefst hún með borðhaldi kl. 19.00. Miðasala i
Valsheimilinu, frá og með 1 5. marz frá kl. 1 7.00 dag hvern.
Borðapantanir föstudagskvöld 19. marz milli kl. 19.00—21.00 og
laugardag 20. marz milli 13.00 — 16.00 á sama stað.
Þessa helgi:
Óvenju ódýrir blómvendir.
Mikið úrval þurra skreytinga og pottaplantna. Komið
og sjáið sérkennilegustu blómaverzlun landsins.
Breiðholti við Breiðholtsbæinn.
KAMMERSVEIT
REYKJAVÍKUR.
Tónleikar í Hamrahlíðarskóla laugardaginn 13.
mars kl: 1 6.00. Stjórnendur: Páll P. Pálsson og
Atli Heimir Sveinsson.
Efnisskrá:
Karlheinz Stockhausen: „Adieu"
Atli Heimir Sveinsson: „I call it"
Einsöngvari Ruth L. Magnússon.
Niccolo Castiglioni: „Tropi"
Luciano Berio: „Folk Songs"
Einsöngvari Ruth L. Magnússon.
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals 1 Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum
frá klukkan 1 4:00 til 1 6:00 Er þar tekið á
móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend-
ingum og er öllum borgarbúum boðið að
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 13. marz verða til viðtals
Albert Guðmundsson, alþingismaður
Markús Örn Antonsson. borgarfulltrúi
Valgarð Briem, varaborgarfulltrúi
Valgarð
Albert
Markús
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Al (íLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480