Morgunblaðið - 21.05.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAt 1976
29
fclk f
fréttum
+ tSLENZKU Iandsliðsmenn-
irnir f knattspyrnu unnu það
ágæta afrek fyrir tveimur dög-
um að sigra Norðmenn á
heimavelli þeirra með einu
marki gegn engu. Ekki er að
efa að úrslitin hafa yljað mörg-
um um hjartarætur þo að þau
hafi ekki þótt marka nein tfma-
mót f tslandssögunni. Frænd-
um okkar Dönum er öðru
vfsi farið. Þeir virðast vera
haldnir ólæknandi minni-
máttarkennd gagnvart stóra
bróður f austri, Svfum, og
þvf var það á dögunum
þegar danska landsliðinu
tókst að sigra það sænska með
tveimur mörkum gegn einu í
Gautaborg, að mikil fagnaðar-
alda fór um alla Danmörk.
Engu var lfkara en landið væri
laust úr álögum enda hefur
Dönum ekki tekizt f 39 ár að
bera sigurorð af Svíum á úti-
velli. Gleðitfðindin skreyttu
forsfður dagblaðanna og til
gamans birtum við mynd af for-
sfðufyrirsögn danska blaðsins
B.T. sem öll var helguð lands-
leiknum.
Ungir
elskendur
+Sæljónin f sædýra-
safninu f Orlando f
Flórfda eru 1 miklurn
ham þessa dagana enda
er vorið gengið f garð og
með vorkomunni kviknar
ástin í brjóstum þeirra.
Elskendurnir ungu hér á
myndinni, sem syngja
hér saman tvfraddaðan
ástarsöng, heita þeim
skrýtnu nöfnum Jarðar-
ber og Sport. Umsjónar-
menn sædýrasafnsins
segja að brátt muni söng-
ur þeirra taka á sig mynd
vögguvfsunnar og þess
vegna hafa þeir komið á
fót eins konar mæðra-
heimili þar sem verðandi
sela- og sæljónamæður
munu njóta hinnar beztu
umönnunar.
+ A þessari mynd sést þegar
ungur áhugamaður um „svif-
flug“ svífur yfir Miklagljúfri f
Arizona f Bandarfkjunum en
hann ásamt fjórum félögum
sfnum úr klúbbi áhugamanna
um þessa fþrótt fengu leyfi hjá
yfirvöldum til að fara þessa
glæfraferð. Þeir hófu flugið f
3000 feta hæð og f 15 mfnútur
hnituðu þeir hringi f gljúfrinu
eða þar til gljúfurbotni var
náð.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAURVAL
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488
NÝ SENDING AF
SÆNSKUM LÖMPUM
í GÖMLUM STÍL
Við afgreiðum
litmyndir
yðar á 3 dögum
Þér notiö Kodak filmu, við
gerum myndir yðar á Kodak
Ektacoior-pappír og myndgæðin
verða frábær
Umboðsmenn um land allt
— ávallt feti framar
h&ns psrsssr:;
Bankastræti - S. 20313 Glæsibæ - S. 82590