Morgunblaðið - 21.05.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. M Al 1976
33
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Þakkir og
aðfinnslur
Kona með nafnnúmer
5780—6184 hafði samband við
Velvakanda og bað fyrir kærar
þakkir til Eiríks Jónssonar, sem
hefur skrifað nokkrar greinar í
Lesbók Morgunblaðsins varðandi
föng Halldórs Laxness að köflum
i nokkrum skáldverka hans. Sagði
hún það sitt mat að þessar greinar
væru stórfróðlegar og næsta
furðulegt hversu mjög hefði farið
framhjá bókmenntafræðingum
sem hvað mest hafa skrifað um
skáldverk Laxness, hvar hann
hefði leitað fanga.
Þá sagðist konan hafa verið að
hlusta á þátt í umsjá Árna Gunn-
arssonar um áfengismál. Sér
hefði komið mjög á óvart, þegar
Árni tilkynnti að þetta yrði síðasti
þátturinn, þar sem leggja ætti
hann niður. Hún sagðist mótmæla
því, þar sem þátturinn hefði verið
mjög þarfur.
Loks ræddi konan um hina nýju
popp-þætti, sem Sjónvarpið hefur
látið gera og sýnt. Finnast henni
þeir fyrir neðan allar hellur. Sér-
staklega hinar stanzlausu síga-
rettureykingar, varla svo að
skemmtikraftarnir taki sígarett-
urnar út úr sér, þegar þeir hefja
söng sinn. Þá sagði hún að fróð-
legt væri að fá að vita, hvað þátt-
urinn með Galdrakörlum hefði
kostað. Öskar hún eftir því að
sjónvarpið upplýsi það.
0 Breytilegur
vinnutími
Hér í dálkunum hefur verið
rætt um breytilegan vinnutíma í
skrifstofum og kom þá í ljós að sú
tilhögun er hjá Skeljungi h.f. Nú
hefur Velvakandi einnig frétt að
þessi tilhögun sé í bæjarskrifstof-
unum í Kópavogi og gefist þar
vel. Hver veit nema fleiri fylgi á
eftir?
0 Tóbaksverð
lendis, óskuðum eftir þvf við við-
komandi yfirvöld, að fá kjúklinga
með okkur, sem af okkur voru
teknir sl. haust er við komum úr
Norðursjónum. — Svarið sem
fékkst var þvert nei!
Vitað er að yfirvöld hafa geymt
kjúklingana í nokkra mánuði í
frystihúsi og brátt líður að því að
henda þarf kjúklingunum. Því
þykir okkur forvitnilegt að vita
hvað yfirvöld ætla sér að gera við
kjúklingana. — Okkur hefði
fundizt gott að fá að hafa kjúkl-
ingana með til matar, þar sem
efnahagur manna er ekki of góð-
ur, — og um leið hefðum við gert
yfirvöldum greiða með því að
hirða þá og losa þau við ómakið
við að koma þeim út af frystihús-
inu.
Okkur sjómönnum á fiskiskip-
unum finnst það einkennilegt, að
við megum ekki taka kjúklinga
um borð erlendis til neyzlu. Það
fá sjómenn á kaupskipaflotanum
að gera og finnst öllum sjálfsagt.
— Er ekki verið að mismuna
mönnum með þessu?
Dómsmálaráðherra sagði i
Beinni línu um kjúklinga, að toll-
verðir yrðu að lita raunhæft á
hlutina. Væri ekki rétt að þeir
litu raunhæft á þetta?
0 Kettlingar
án samþykkis
Kattavinafélagið hefur
beðið Velvakanda fyrir þá áskor-
un til fólks að gefa börnum ekki
kettlinga án samþykkis foreldra
þeirra.
Börnin eru skiljanlega himinlif-
andi yfir því að eignast kettling
— líta á hann sem hvert annað
leikfang — en svo kemur babb í
bátinn, þegar heim er komið og
engin aðstaða til að hafa þar kött.
Og það er ekkert gamanmál, þeg-
ar barnið verður að skila kettl-
ingnum aftur eða getur alls ekki
skilað honum, fyrri eigendur vilja
ekkert meó hann hafa, fegnir að
losna við hann. Allir hljóta að sjá,
hvaða afleiðingar þetta getur
haft, bæði fyrir barnið og vesa-
lings dýrið.
Nauta-Roast-Beef ... kr. 1040 kg
Nauta grillsteikur ... kr. 555 kg
Nauta bógsteikur ... kr. 555 kg
Nauta T-Bone . .. kr. 840 •<g
Nauta innanlærisvöðvi ... kr. 1100 kg
Nauta fille mörbrá ... kr. 1480 kg
Kálfalæri ... kr. 370 kg
Kálfa grillkótilettur ... kr. 370 kg
Kálfahryggur Ódýr matarkaup ... kr. 300 kg
Nýtt hvalkjöt ... kr. 219 kg
Nautahamborgari . . . kr. 50 stk
Nýr Svartfugl .. . kr. 140 stk
Nautahakk ... kr. 590 kg.
Nautahakk 1 0 kg ... kr. 530
Lambahakk ... kr. 495 kg
Saltkjötshakk ... kr. 495 •<g
Kálfahakk \ ... kr. 460 kg
ATH:
Lambasúpukjöt —
Lambasaltkjöt
ennþá á gamla verðinu og ódýru rúllupylsurnar
saltaðar og reyktar 458 og 498 kr. kg.
Pípureykingamaður kom að
máli við Velvakanda og spyr að
því, hvort verzlunum sé heimilt
að leggja á piputóbak að vild
sinni. Hann kvaðst vita um þrjú
mismunandi verð á tóbaki því
sem hann notaði. Öhugsandi væri
að um mismunandi innkaup væri
að ræða, þar sem Tóbakseinka-
salan er eini innflytjandinn. Vildi
hann gjarnan fá skýringu á þessu.
0 Embættismenn
og kjúklingar
Sjómaður skrifar:
Við skipverjar á báti, sem er að
fara í 4—6 mánaða úthald er-
— Auðvitað er það hættulegt,
sagði David. — Meðal annars þess
vegna vil ég ekki að þú komir
með. Gerðu það fvrir mig að vera
héreftir.
Hún átti ekki annarra kosta völ.
Hún leit á þau þrjú, Anya og
Miles óþolinmóð en kurteis og
David I sérkennilegu ástandi,
eins og hann hafði lýst fáeinum
andartökum áður. Hún vissi hún
myndi verða Ifflaus af hræðslu á
meðan hann væri I burtu, en hún
gat hvorki stöðvað hann sé hjálp-
að honum. Hún gerði sér grein
fyrir að hún var einskis megnug
og þá var bezt að taka þvf með
brosi á vör.
Hún leit því á hann, brosti heldur
óburðuglega og sagði:
— Ég skal gera hvaðeina sem
þú vilt að ég geri.
David kyssti hana innilega að
skilnaði og sfðan var haldið af
stað. Anya fór á undan. Hún gekk
niður stigann, ieit f allar áttir og
gaf þeim merki um að koma á
eftir sér.
— Allt f lagi, sagði hún. — Þeir
eru farnir úr stiganum. Mennirn-
ír tveir eru við móttökuborðið.
Eigandinn sést hvergi. Hann hef-
ur vcrið kvaddur brott.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Vertu áhyggjulaus! — Við fáum bezta lögfræð-
inginn!“
s_____________________________________________________)
Fapenn
að verki
Kjötiðnaðarmenn
okkar
sjá ykkur fyrir
útvals steikum.
csttD(o5=umin®@cir(ö)CDnRí]
Laugalæk 2, REYKJAVIK. simi 3 5o 2o