Morgunblaðið - 21.05.1976, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAI 1976
35
Lands-
leikurínn
í sjón-
varpinu
á morgun
LANDSLEIKUR Islands og
Noregs f Ullevál I fyrrakvöld
verður sýndur f heild sinni f
fþróttaþætti sjónvarpsins á
morgun. Jens Sumarliðason
formaður landsliðsnefndar
mun hafa tekið að sér að halda
á filmunni með leiknum undir
hendinni á leiðinni heim, svo
að fslenzkir sjónvarpsáhorf-
endur fengju að sjá þennan
ánægjulega leik sem allra
fyrst.
Eins og áður sagði verður
leikurinn sýndur allur, en f
norska sjónvarpinu í fyrra-
kvöld voru aðeins sýndir vald-
ir kaflar úr leiknum og tók
sending Norðmannanna um.40
mfnútur.
400 m urðu
að 3000 m
FRA þvi var skýrt f blaðinu á
þriðjudaginn að fyrsti hluti
meistaramótsins í frjálsum íþrótt-
um fari fram 29. mai n.k. Þá var
sömuleiðis skýrt frá í hvaða
greinum verður keppt, en eitt-
hvað munu keppnisgreinar
kvenna hafa skolazt til f frásögn
blaðsins. Sagt var að keppt yrði i
400 metra hlaupi 29. mai an hið
rétta er að þá verður keppt í 3000
m hlaupi kvenna.
lieims-
met
Stúlkumar
að nálgast
7 metrana
AUSTUR-þýzka stúlkan Sigrun
Siegel-Thon setti glæsilegt
heimsmet í langstökki er hún
stökk 6.99 m og þess verður
örugglega ekki langt að bfða að
stúkurnar rjúfi 7 metra múrinn f
langstökkinu. Eldra metið f lang-
stökkinu átti landa Sigrunar,
Angela Voigt, sem setti met sitt
fyrir aðeins viku síðan á sama
fþróttaleikvangi f Dresden.
Sá sterkasti
bœtir sig enn
SOVÉTMAÐURINN Vasily Alex-
eyev, sem oft hefur verið kallaður
sterkasti maður heims, endur-
heimti heimsmet sitt f yfir-
þungavigt á lyftingameistaramóti
Sovétrfkjanna nýlega. Lyfti hann
samtals 435 kg og bætti met Búlg-
arans Plackov um 2.5 kg.
Hann er vfgalegur ásýndum Strandamaðurinn sterki og varpaði kúl- Ingunn Einarsdóttir kemur f mark sem öruggur sigurvegari f 100
unni 18.47 m f gærkvöldi. metra hlaupinu á undan Ernu Guðmundsdóttur (Ljósm. Friðþjófur)
Kalsaveður kom í veg fyrir
góðan árangur á Vormóti ÍR
ARANGURINN á Vormóti IR f frjálsum fþróttum í gærkvöldi varð
ekki eins góður og vonast hafði verið til. Astæðan var þessi sfgilda:
veðrið var óhagstætt. Rok var á Melavellinum og hitagráðurnar fáar.
Hreinn Halldórsson náði sér til að mynda ekki á strik f kúluvarpinu og
kastaði „aðeins" 18,47 m. Það var helzt Ingunn Einarsdóttir, sem ekki
lét veðrið á sig fá. Hún hljóp 100 metra hlaupið á 12 sekúndum sléttum
og er það tveimur brotum undir Islandsmeti hennar sjálfrar, en að
sjálfsögðu var meðvindurinn of mikill til að árangurin væri löglegur.
I fyrstu grein mótsins 110 m
grindahlaupinu, sigraði Valbjörn
Þorláksson örugglega og virðist
hann ekkert gefa eftir þó
aldurinn færist yfir hann. I 100
metra hlaupinu sigraði Þing-
eyringurinn Magnús Jónasson, en
ekki var hann ánægður með tíma
sinn, 11 sek og sagði að með svo
mikinn vind i bakið hefði hann
átt að fá mun betri tíma. I 1000
metra hlaupi sigraði Jón Diðriks-
son örugglega en hart var barist
um annað sætið. Það var dæmt
Gunnari Þór Sigurðssyni og er
þar bráðefnilegur hlaupari á
ferðinni.
í langstökki karla var Friðrik
Þór Óskarsson öruggur sigurveg-
ari og sömu sögu er að segja um
Hrein i kúluvarpinu. I kringlu-
kastinu sigraði Óskar Jakobsson
hins vegar og er hann líklegur til
afreka i sumar.
Af kvennagreinunum er rétt að
nefna 100 metra hlaup Ingunnar
sem áður er getið og Ingunn
sigraði sömuleiðis i 400 metra
hlaupinu keppnislaust.
Helztu úrslit á mótinu urðu sem
hér segir:
100 m grindahlaup:
Valbjörn Þorláksson KR 15.1
Elías Sveinsson KR 15.2
Hafsteinn Jóhannesson UBK 16.5
100 m hlaup karla:
Magnús Jónasson A 11.1
Björn Blöndal KR 11.2
Elias Sveinsson KR 11.3
100 m hlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir IR 12.0
Erna Guðmundsdóttir A 12.2
Margrét Grétarsdóttir Á 12.8
1000 m hlaup:
Jón Diðriksson UMSB 2:39.5
Gunnar Þór Sigurðsson FH 2:43.8
Sigurður P. Sigmundsson FH
2:43.8.
Kúluvarp:
Hreinn Halldórsson 18.47
Óskar Jokobsson IR 17.16
Elías Sveinsson KR 14.67
400 m hlaup karla:
Þorvaldur Þórisson UMSS 53.0
Jón Sævar Þórðarson lR 53.6
Björn Blöndal KR 55.2
400 m hlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir ÍR 63,2
Björk Gunnarsdóttir Á 71.4
Brynja Bjarnadóttir Leikni 72.5
Langstökk:
Friðrik Þór Öskarsson IR 7.03
Jóhann Pétursson UMSS 6.52
Helgi Hauksson UBK 6.32
3000 m hlaup:
Agúst Þorsteinsson UMSB 9:40.2
Halldór Matthiasson 9:45.5
Spjótkast:
Svanbjörg Pálsdóttir KR 31.98
Björk Eiriksdóttir ÍR 31.15
Katrín Atladóttir KR 20.20
Hástökk:
Þórdis Gísladóttir 1.62
Erna Guðmundsdóttir Á 1.58
Anna Alfreðsdóttir 1.50
Allir nema einn
í 1. deildinni
UNGLINGALANDSLIÐSPILTARNIR sem taka þátt f úrslitum
Evrópukeppni unglingalandsliða f Ungverjalandi f lok þessa mánaðar
eru allir leikmenn liða f 1. deildinni, að Fylkismanninum Agúst
Karlssyni undanskildum. Flestir eru piltarnir fastamenn f meistara-
flokkum félaga sinna og segir það nokkuð um styrkleika þeirra.
Liðið sem fer til Ungverjalands
verður skipað eftirtöldum leik-
mönnum:
Jóni Þorbjörnssyni
Þrótti, Halldóri Pálssyni KR,
Róbert Agnarssyni Víkingi,
Haraldi Haraldssyni Vfkingi, Þor-
gils Arasyni Víkingi, Halldóri
Arasyni Þrótti, Þorvaldi Þor-
valdssyni Þrótti, Stefáni Stefáns-
syni Þrótti, Albert Guðmundssyni
Val, Guðmundi Kjartanssyni Val,
Börk Ingvarssyni KR, Ágúst
Karlssyni Fylki, Valdimar
Valdimarssyni Breiðabliki, Pétri
Ormslev Fram, Sigurði Björgvins-
syni Keflavík og Pétri Péturssyni
Akranesi.
Leikir Islands i ferðinni verða
gegn Sviss 28. maí, Tyrklandi 30.
maí og Spánverjum 1. júní. Verði
íslenzka liðið i 1. eða 2. sæti í
þessum riðli — sem alls ekki er
ósennilegt fer liðið f 8-liða úrslit.
„Hlakka til að hefia
— ÉG var ekki í vafa um að þetta
yrði gott og lærdómsrfkt nám-
skeið þegar ég innritaði mig, en
það fór samt sem áður langt fram
úr vonum mínum og ég hlakka til
að hefja störf. Þessi orð mælti
einn af okkar gömlu góðu knatt
spyrnumönnum að loknu fyrsta
stigs námskeiðs knattspyrnuþjálf-
ara sem lauk fyrir nokkru síðan.
Sóttu 24 þjálfarar þetta nám-
skeið, sem haldið var á vegum
Knattspyrnuskóla KSI.
Kennarar á námskeiði þessu
voru þeir Karl Guðmundsson,
Guðni Kjartansson, Reynir Karls-
son, Hilmar Björnsson, Guðmund-
ur Helgason og Róbert Jónsson.
Er annað svona nú i gangi á Akur-
eyri og eru kennarar þar þeir
Magnús Jónatansson, Hilmar
störf”
Björnsson og Reynir Karlsson.
Meðfylgjandi mynd er tekin að
loknum þjálfaranámskeiðinu,
sem haldið var i Reykjavík. Auk
nemenda og kennara er Ellert
Schram formaður KSI með á
myndinni.