Morgunblaðið - 30.05.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAl 1976
39
Tryggvi Gunnsteins
son — Kveðja
Tryggvi er fallinn frá. Kynni
okkar hófust fyrir 32 árum. Hann
var þá bifreiðastjóri, en vildi
breyta til og tók að sér birgða-
vörzlu og akstur fyrir fyrirtæki
það, sem ég veiti forstöðu. Fyrir
fáum árum, eftir 27 ára þrotlaust
starf, hóf hann aftur fyrri iðju
sína, vegna heilsubrests, sem
meinaði honum erfiðisvinnu. I 32
ár kom hann á hverjum jólum
færandi hendi á heimili mitt okk-
ur hjónunum til óblandinnar
ánægju. Þegar börnunum óx fisk-
ur um hrygg, fengu þau einnig að
njóta vináttu hans. Tryggvi var
óvenjulegur maður. Hann hafði
tígulega en ákveðna framkomu,
sem auðveldaði honum stjórn-
semi. Jafnframt var hann léttur i
lund og opinskár, og því ávann
hann sér vináttu meðbræðranna
og traust. Störf hans voru ekki
unnin með eigin hagsmuni fyrst
og fremst í sjónmáli, heldur vann
hann fyrir fyrirtækið eins og sitt
eigið. Slíkir menn eru enn þá
kallaðir af gamla skólanum. Með
þessum orðum vil ég ekki kasta
rýrð á neinn, en get ekki forðast
þeirri hugsun, að þjóðin missir
við burtför hvers slíks manns án
þess að annar komi í staðinn.
I siðasta sinn, sem við hjónin
nutum samvistar Tryggva, var á
heimili hans daginn sem kona
hans var jörðuð. A heimleiðinni
var okkur tiðrætt um hann og
okkur fannst við geta sett okkur i
hans spor. Honum hafði hlotnast
sú hamingja að eignast ágæta og
ástrika konu, sem varð honum
stoð og stytta í lífinu, gaf honum
indæl börn og skóp honum fagurt
heimili, en nú var konan burt
kölluð og fuglarnir flognir úr
hreiðrinu. Hann var þess meðvit-
andi, að hjartað hafði látið undan
í aflraunum lífsins og hann gekk
ekki lengur heill til skógar. Okk-
ur fannst þess vegna æskilegt, að
aðskilnaður hjónanna þyrfti ekki
að vera langur. Biðin varð aðeins
ein vika, þó fer ekki hjá því, að
söknuðurinn verður þeim nán-
ustu sár og skilur eftir tómarúm
hjá öðrum sem kynntust Tryggva.
K.G.G.
Eins og fram hefir komið (
þættinum fer fram úrslita-
keppni Islandsmótsins f sveita-
keppni um næstu helgi, eða
3.-7. júnf.
Töfluröð sveitanna sem til
úrslita keppa er þessi:
1. Sveit Jóns Baldurssonar
2. Sveit Böðvars Guðmunds-
sonar
3. Sveit Ólafs Gfslasonar
4. Sveit Jóhanns Þóris Jóns-
sonar!
5. Bogga Steins
6. Sveit Ólafs H. Ólafssonsar
7. Sveit Hjalta Elfassonar
8. Sveit Stefáns Guðjohnsen.
Það vekur athygli að ein
sveitanna hefir skipt um fyrir-
liða og nafn.
Dagskrá keppninnar verður
sem hér segir:
Fimmtudagur 3. júní
Fyrsta umferð hefst klukkan
20.
Föstudagur 4. júní.
Önnur umferð hefst klukkan
13.30.
Þriðja umferð hefst klukkan
20.
Laugardagur 5. júní.
Fjórða umferð hefst klukkan
13.30.
Sunnudagur 6. júní.
Fimmta umferð hefst
klukkan 13.30.
Sjötta umferð hefst klukkan
20.
Mánudagur 7. júní, annar f
hvítasunnu.
Sjöunda og síðasta umferð
hefst klukkan 13.30.
1 fyrstu umferð spila saman
sveitir nr. 1 og 8, 7 og 2, 3 og 6, 5
og 4.
1 lok mótsins fer fram verð-
launaafhending fyrir öll mót á
vegum BSl Þá verður verð-
launaafhending til þriggja
efstu fyrirtækjanna í firma-
keppninni f vetur en þau voru:
Slippfélagið í Reykjavík hf.
Steinvör hf.
Brauð hf. Kópavogi.
Keppnisstjóri á mótinu
verður Agnar Jörgensson, en f
mótsstjórn eru: Tryggvi Gisla-
son, Ragnar Björnsson og Björn
Eysteinsson.
Þá má að lokum geta þess
að áhorfendur eru velkomnir
og gert er ráð fyrir að taflan
verði f gangi nema fyrsta kvöld
mótsins.
XXX
Frá Ásunum:
Urslit á fyrsta sumarspila-
kvöldi okkar, síðastliðinn
mánudag, urðu þau, að Armann
J. Lárusson og Vigfús Pálsson
báru sigur úr býtum.
Þátttaka var 16. pör, og var
spilað í einum riðli. Annars
varð röð efstu para þessi:
1. Armann — Vigfús 236 stig.
2. Karl Adolphsson — Ólafur
Haraldsson 230 stig.
3. Jón Páll Sigurjónss. — Odd-
ur Hjaltason 228 stig.
4. Vilhjálmur Þórsson — Sverr-
ir Kristinsson 226 stig.
5. Guðmundur Jónasson —
Ragnar Hansen 222 stig.
Meðalskor var 210 stig.
Keppnisstjórn annaðist Ólafur
Lárusson. Næsta mánudag
verður spiluð ný keppni, og er
öllum heimil þátttaka. Spilað er
f Fél.heim. Kópavogs, og hefst
keppni kl. 20.00.
XXX
Frá Tafl- og bridge-
klúbbnum.
Sex kvölda barometerkeppn-
inni er nú lokið með sigri Sig-
urðar Kristjánssonar og Þor-
steins Kristjánssonar, sem
hlutu 420 stig yfir meðalskor.
Röð efstu manna varð annars
þessi:
Guðjón — Kristján 414
Björn — Þórður 400
Árni — Ingólfur 272
Bernharður — Júlfus 229
Sigurjón — Sigtryggur 225
Gestur — Sverrir 210
Keppni þessi var jafnframt
sfðasta keppnin á þessari
„Vertíð“.
Tafl- og bridgeklúbburinn
mun standa fyrir sumarspila-
mennsku eins og undanfarin
sumur og hefst hún í Domus
Medica 10. júní. Keppnisstjóri
verður Guðmundur Kr.
Sigurðsson.
_____________ A.G.R.
— 5 sýningar
Framhald af bls« 22
Stig er gæddur ágætri formtil-
finningu og ríkri vitund fyrir
efnivið þeim sem náttúran
hefur fært honum upp í
hendurnar. Auðsæ er ást hans
og umhyggja fyrir sérkennum
viðarins og hann skilur það hví-
lík helgispjöll það væru í mörg-
um tilvikum að klína málningu
á viðinn.
Sýning Stig Pettersson f
bókasafni Norræna hússins er
með alskemmtilegustu
sýningum er þar hafa verið
settar upp og slíkir sem þessi
maður eru miklir aufúsugestir
til landsins. Ber að þakka
sýninguna og hvetja sem flesla
til að nálgast hana og skoða
gaumgæfilega...
Sigurjón Jóhannsson hefur
að mig minnir tvisvar áður
gefið okkur tækifæri til að
kynnast vinnubrögðum sinum á
sviði tækifærisljósmyndunar,
en hann var um árabil blaða-
ljósmyndari og menn skulu
varast að rugla honum saman
við leikmyndamálarann með
sama nafni.
Sigurjón sýnir nú nokkrar
mynda sinna á innrömmunar-
verkstæði hins landsfræga
Guðmundar Árnasonar
(Þórarinssonar prests).
Hér er ekki um að ræða list-
rænar stofuljósmyndir, heldur
myndir af þekktum persónu-
leikum og ýmsum atvikum úr
daglega lífinu og eru þær
margar ákaflega skemmtilegar
og vel teknar. Ljósmyndun er
listgrein og undirritaður getur
fjallað um hana sem slíka en
hann skortir fagkunnáttu svo
að meira en æskilegt er að fag-
maður fjalli um þá hlið málsins
hér á síðum blaðsins en ein-
göngu fagið er margra ára nám.
Ég hef áður bent á þetta og
leyfi mér að áretta það enn
einu sinni með því að hér hefur
orðið sú ánægjulega þróun að
ljósmyndásýningar eru orðnar
alltíður viðburður í sýningar-
sölum borgarinnar, kaffistofum
og ýmsum húsakynnum.
Myndin er svo mikið atriði í lífi
nútímamannsins að allt er
þakkarvert sem vel er gert á
því sviði og hér þarf umræða að
koma til á opinberum vettvangi
Anna Concetta Ziskin
Fugaro, sem um þessar mundir
sýnir nokkrar Collage og vatns-
litamyndir á Mokka á Skóla-
vörðustíg er ekki útlenzk eins
og nafnið gæti gefið til kynna
heldur íslenzk i móðurætt og
meira segja frænka Matthíasar
Jochumssonar en faðir hennar
er ítalskur svo sem Concetta og
Fugaro nöfnin bera með sér en
fyrrverandi eiginmaður hennar
var pólskur og hét Ziskin.
Collage-myndir hennar, sem
eru að uppistöðu klippur úr
blöðum og tímaritum með
margvíslegu ívafi sýna vissa
kennd og smekkvísi í niður-
röðun en ofhlæði einkennir þó
sumar þeirra. Hinar einfaldari
myndir á sýningunni eru mun
sterkari og hnitmiðaðari og þar
ber hæst mynd nr. 15. sem er
mögnuð, súrrealistisk i yfir-
bragði og mjög myndræn.
Vatnslitamyndirnar afhjúpa
litla og sennilega alvörulausa
skólun og hér þarf hin unga
kona að ræka garð sinn
betur...
Prentvillupúkinn gerði mér
nokkurn grikk i listdómi um
sýningu Eiriks Smith sl. sunnu-
dag og þá helst í siðasta dálki
þannig að stafabrengl breyttu
merkingu orða. í stað „Hér
gætir hvergi þess ibúðar í lita-
vali átti að sjálfsögðu að vera
fburðar, — neðar í dálkinum
kemur fram — dularfullt yfir-
borð í stað yfirbragð. Eru les-
endur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum sem eru
helsti algeng síðan offset-
tæknin varð allsráðandi.
Vegna fljótfærni gleymdi
undirritaður að geta þess sem
ætlun hans var að listamann-
inum Eiríki Smith hlotnaðist sá
heiður í sambandi við íslenzka
þátttöku á Biennalinum í
Rostock sl. sumar að listahöll
Rostockborgar keypti af honum
málverk á safn sitt af norður-
evrópskri list.
Bragi Asgeirsson.
íþróttaskóli Sigurðar R.
Guðmundssonar
NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
Nám í ungmennadeild er ætluð börnum og unglingum
9— 1 6 ára. Þar eru kenndar frjálsar iþróttir, knattspyrna,
handknattleikur, körfuknattleikur, stökk á fjaðrabretti
(mini-trambolin) og sund. Áhersla er lögð á félagsstarf,
kenndur er dans, mikið sungið og kvöldvökur haldnar
hvert kvöld. Námskeið ungmennadeildar eru jafnt ætluð
drengjum og stúlkum og verða tímabilin sem hér segir:
2. 4.— 10. júní 12—16 ára
3 10.— 16. júní 12—1 6 ára
4.18 —25 júní 9—12ára
5 25 — 2. iúlí g—1 2 ára
6. 2.— 9. júli 9—12 ára
7. 9.—16. júlí 9—16 ára
8 16. — 23. júlí 9—1 6 ára
9.23. — 30 júli 9-12ára
UPPLÝSINGAR
Tekið verður á móti umsóknum og veittar upplýsingar hjá
Sigurði R. Guðmundssyni eða Katrínu Árnadóttur, Leirár-
skóla, síma 93-21 1 1