Morgunblaðið - 01.06.1976, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.06.1976, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1976 Sigurður Guðmundsson Selfossi — Minning Fædd 26. nóvember 1878. Dáin 22. maí 1976. Hinn 22. þ.m. andaóist Sigurður Guðmundsson, frv. bankaritari á Selfossi. 97 V< árs. Með honum er gengínn einhver besti og hugljúfasti heiðursmað- ur. sem ég hefi kynnst á langri ævi. Og þau kynni spanna meira en hálfa öld. Sigurður var i blóma aldurs sins þegar ég gerðist barnakennari á E.vrabakka haust- ið 1920. Þar vann ég svo nær áratug. Sigurður var þá mikils metinn borgari staðarins, átti allt- af börn i skólanum og var stund- um í skólanefnd. Hann var þvi einn þeirra sem ég kynntist fyrst á hinum nýja stað. Það vita allir kunnugir, að við barnakennararnir á Eyrabakka vorum að brölta við að koma á ýmsum nýjungum í skólastarfinu, sem við töldum vera til góðs. Nýj- ungar þessar vöktu athygli og andmæli, eins og eðlilegt er um allt nýtt og óþekkt Má þar til- nefna félagsskap meðal barn- anna. ferðalög, skemmtanahald, ,,litlu jölin", sýningar á vinnu barnanna á vorin o.fl. Allt þetta þ.vkir sjálfsagt nú, en var litt eða ekki þekkt fyrir hálfri öld. En því nefni ég þetta hér, að Sigurður Guðmundsson var svo víðsýnn og frjálslyndur. að hann skildi þessa viðleitni okkar kennaranna og studdí hana með ráðum og dáð. Sama var að segja um hina elsku- legu konu hans. Börn þeirra voru líka hinir bestu skölaþegnar, sem tóku þátt í starfinu af lífi og sál. Þessi fjölskylda var okkur kenn- urunum ómetanleg og ögleyman- leg stoð í erfiðu starfi. Mér þvkir v;ent um að segja þetta hér og þakka hinum látna heiðursmanni og fjölskyldu hans þessi löngu liðnu ár, fyrir mína hönd og fé- laga minna, enda þótt þau séu nú horfin yfir móðuna miklu. Vegna þessara gömlu kynna er mér þvi Ijúft að verða við þeirri ósk að minnast Sigurðar Guð- mundssonar með nokkrum orðum nú að honum látnum enda þótt ég finni vanmátt minn til þess. Minnugur er ég og þess, að vin- áttu tengsl voru mikil milli tengdafólks míns og fjölskyldunn- ar í Stighúsi, tengdaforeldra Sig- urðar, svo og konu minnar og Stíghússystra. Voru þær allar meðal hennar kærustu vina. Sigurður Guðmundsson var fæddur á Eyrarbakka 26. nóvem- ber 1878. Foreldrar hans voru Guðmundur bóksali, Guðmunds- son, bókbindara Péturssonar að Minna-Hofi á Rangárvöllum og konu hans Ingigerðar Olafsdöttur frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöll- um. Mé>ðir Sigurðar og fyrri kona Guðmundar bóksala var Ast- riður Guðmundsdóttir bónda á Sámsstöðum í Fljótshlíð Steins- sonar. Um Guðmund bóksala segir svo í Isl. æviskrám: ,,Var skrifari hjá Hermanni sýslumanni Jónssyni á Velli 1874 — 79, barnakennari á Eyrarbakka, síðan bókhaldari í verslun Lefoliis þar og jafnframt böksali. Vel að sér og hagmæltur. Var riðinn við flest menningar- mál á Eyrarbakka á sínum tíma," Astriður, móðir Sigurðar, var og mikils metin kona, sem tók þátt í menningarmálum staðarins ásamt manni sínum. Hún andaðist 1904, sextug að aldri. Stofnaður var sjóður til minningar um hana. sem ber nafnið Ástriðarminning. Alsystkini Sigurðar voru: (iuð- mundur kaupmaður á Selfossi, Asta, Halldóra, Ástmundur og Hans. Þau eru nú öll látin. Hálf- bræður Sigurðar eru Sveinn for- stjóri í Héðni og Ástmundur full- trúi hjá Stálsmiðjunni. Móðir þeirra og siðari kona Guðmundar bóksala var Snjólaug Sveinsdóttir bónda í Bjarnastaðahlíð i Skaga- firði. Sigurður hlaut ágætt uppeldi hjá ástrikum foreldrum. Hann nam fyrst í barnaskóla Eyrar- bakka en síðan hóf hann nám í Lærða skólanum i Reykjavík ásamt yngri bróður sinum, Hans Bogöe. En hvíti dauðinn herjaði þá í algleymingi á æskulýð ís- lands og hjó stórt skarð í þessa fjölskyldu. Þeir bræður veiktust báðir áður en námi var lokið. Yngsti bróðirinn, Ástmundur, tók einnig veikina og andaðist árið 1900, tæplega 16 ára, Hans dó 1902 tæplega tvítugur, en Sigurð- ur var sendur á heilsuhæli í Dan- mörk. Þar dvaldi hann alllengi og náði sæmilegri heilsu með því að halda stranglega þær reglur, sem slíkum sjúklingum voru settar. En Sigurður hafði bæði vit og viljaþrek til að halda þær reglur og þess vegna gat hann von bráð- ur hafið störf á ný. En nú snéri hann sér að verslunarstörfum. Hann mun hafa tekið við bóksölu og póstafgreiðslustörfum af föður sínum en aðalstarf Sigurðar varð við Sparisjóð Arnessýslu, er þá starfaði á Eyrabakka. Sá sjóður sameinaðist útibúi Landsbankans á Selfossi 1929 Eftir það gegndi Sigurður bank aritarastarfi á Sel- fossi fram yfir sjötugt. Sigurður i'væntist 16. júní 1905 ungri og fallegri stúlku. Sigriði, elstu dóttur Ólafs trésmiðs Bjarnasonar i Stíghúsi á Eyrar- bakka og konu hans Ingibjargar + Systir mín, AÐALHEIÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR frá Hvammi, lézt á Bispebjerg Hospital 26 april s I Jarðarförin hefur farið fram Fyrir hönd vandamanna, Theodóra Hallgrimsdóttir. + INGIMUNDUR Þ INGIMUNDARSSON frá Hólmavík. andaðíst i Landspítalanum 30. mai Jarðarförin auglýst síðar Bórnin Pálsdóttur. Ólafur var Skaftfell- ingur að ætt. Áttu þau hjón mörg börn og myndarleg og heimili þeirra í fremstu röð. Ég veit að Sigurður mun hafa talið sitt mesta gæfuspor, þegar hann kvæntist Sigríði. Hjónaband þeirra varð líka með afbrigðum farsælt og stóð lengur en dæmi eru til, þar sem þau gátu haldið upp á 70 ára brúðkaupsafmæli fyrir tæpu ári. Þau voru bæði samhuga og samhent um uppeldi barna sinna og um öll menningar- mál er til heilla horfðu í þjóðfé- laginu. Þau voru unnendur kirkju og kristindóms, ágætir starfs- menn Góðtemplarareglunnar og studdu með ráðum og dáð uppeld- ismál og hollan félagsskap ung- menna, sem fyrr er sagt. Þessi eru börn þeirra hjóna tal- in í aldursröð: Baldur, járnsmiður, f. 1906, kvæntur Ingibjörgu Heiðdal. Guð- mundur, járnsmiður, kvæntur Ástu Hjálmtýsdóttur. Ástríður, gift Lúðvík Guðnasyni, kaup- manni, sem nú er látinn. Hlíf, gift Guðmundi Böðvarssyni, kaup- manni. Ólafur matreiðslumaður, fyrr kvæntur Soffíu Þorkelsdótt- ur. Páll, verslunarmaður, kvænt- ur Ingigerði Þorsteinsdóttur. Geirmundur, járnsmiður, kvænt- ur Fanneyju Ófeigsdóttur. Garð- ar, rafvirki, kvæntur Ingu Bene- diktsdóttur. Ingibjörg, gift Guð- jóni Karlssyni bílstjóra. Sólrún, f. 1926, gift Sigurði Ásbjörnssyni, kaupmanni. Dæturnaf eru búsettar á Sel- fossi, nema Ingibjörg. Hún og bræðurnir allir eru búsett i Reykjavik. Barnabörn eru 30 allt og í þriðja lið eru komin 29 börn, alls 69 afkomendur. Allt er þetta hraust fólk og myndarlegt. Það vekur eftirtekt, að allir afkom- endur Sigurðar eru á lifi. Það mun sjaldgæft að ættfaðirinn sjálfur hnigi fyrstur í valinn, af svo stórum hópi, nær tiræður að aldri. Það orkar ekki tvímælis, að þjóðfélagið stendur í mikilli þakkarskuld við umrædd hjón, sem ala upp svona marga og ágæta þegna og skapa fyrirmynd- ar heimili, því að góð heimili, eru jafnan traustustu stoðir hvers þjóðfélags, hvað sem öllum nýjum kenningum líður. En þegar heim- ili þessara hjóna er nefnt veit ég að fjölskyldan vill ekki að gleymt sé Ásu yngri, systur Sigríðar sem alla tið hefir dvalið á heimil- inu og verið önnur hönd systur sinnar, elskuð og virt af allri fjöl- skyldunni. Og nú veitir hún heim- ilinu forstöðu þrátt fyrir háan aldur. Sigurður var mjög vel gefinn maður, viljasterkur, virðulegur og háttprúður i allri framgöngu, vinsæll og vel metinn, eins og sagt var um föður hans. Félagslyndur var hann og komst þvi ekki hjá að vera i forystu i sveit sinni, þó hér verði ekki allt talið. Hann var lengi í stjórn Sparisjóðs Árnes- sýslu, i skólanefnd, hreppsnefnd o.fl. o.fl. Póstafgreiðslumaður var hann á Eyrarbakka frá þvi í byrj- un aldarinnar og þar til póstur og sími voru sameinaðir árið 1942. Smáverslun hafði hann og nokkur ár. Heimili þeirra hjóna var á + Hjartkær sonur okkur og bróðlr RAGNAR FRANKLÍN GUÐMUNDSSON lézt af slysförum, föstudaginn 28 ma! Guðmundur Frankllnsson EIFsabet Kristófersdóttir GuSný Helga Órvar. Bróðir okkar + GUÐNI ÓLAFSSON apótekari Lynghaga 6, Reykjavik lézt að heimih sinu sunnudaginrr 30 mai s I Systkinin + Eigmmaður mmn. faðir okkar. tengdafaðir og afi ALFREÐ GÍSLASON fyrrv. bæjarfógeti i Keflavík andaðist 30 þ m Vigdís Jakobsdóttir Gisli Alfreðsson Anna Jóhanna Alfreðsdóttir Guðný Árdal Finnur Björgvinsson Elfa Gisladóttir + Móðir okkar. tengdamóðir og amma INGIBJORG JÓNSDÓTTIR Grettisgötu 94, verður jarðsungm frá Fríkirkjunm i Reykjavik i dag, þriðjudagmn 1 júni kl 3 Guðlaugur Ólafsson Hrafnhildur Kristjánsdóttir Jón K Ólafsson Hanna Bachmann Þóra Runólfsdóttir og barnaböm. Æt* * + ~ Hjartkær móðir okkar og stjúpmóðir MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR, Þjórsárgötu 6, verður jarðsungin frá Dómkirkjunní í Reykjavík miðvikudaginn 2 júní kl 13 30e h Ingibjörg Hjálmarsdóttir, GuSrún Hjálmarsdóttir Waage, Kristín Helga Hjálmarsdóttir, Egill Hjálmarsson, Ólöf Hjálmarsdóttir. Halldór Hjálmarsson, Hörður Hjálmarsson, Margrét Hjálmarsdótt'r, Þorsteinn Hjálmarsson, Lokað í dag, þriðjudag kl 14.30 — 16.30 vegna jarðarfarar Ingi- bjargar Jónsdóttur Gluggatjöld Laugavegi 66. Eyrarbakka þar til 1947, að þau fluttust að Selfossi. Þar bjuggu þau í sama húsi og Astriður dóttir þeirra og hennar fjölskylda. Var þeim það bæði til gagns og gleði þar sem þau voru orðin aldur- hnigin. Og ekkert er dýrmætara öldruðu fólki en dvelja í skjóli góðra barna. En nú dregur að sögulokum. Eg hygg að Sigurður hafi átt friðsæla ellidaga, við hlið ástkærrar eigin- konu og umvafinn ástúð annarra ástvina. Hann hélt andlegu þreki til hins síðasta. Ég vil enda þessar línur með því að senda frú Sigríði og ástvin- um hennar öllum innilegar sam- úðarkveðjur og þakka fyrir ævi- langa vináttu og tryggð. Sigurður Guðmundsson gleym- ist aldrei þeim, er náðu að kynn- ast honum. Blessuð sé minning hans. Ingimar H. Jóhannesson. Að liðnum meðgöngutíma Það hefur löngum verið ljóst, að sósíalistar eða hinn róttækari armur þess, sem almenningur i daglegu tali kallar kommúnista hefur um áraraðir gengið með vopnbeitingar hugmyndina og nú er meðgöngutíminn liðinn og stofnaður hefur verið kommúnistaflokkur íslands með það í huga að sameina verkamenn og smábændur. Já og í þeim til- gangi að gera byltingu með vopnavaldi. Nú er að þeirra dómi kominn tími til vopnaburðar að mati þessara vina íslands, enda víst ekki seinna vænna þar eð vopnaburður á íslandi hefur ekki að marki verið tíðkaður síðan á Sturlungaöld. Já, vopnaburður á íslandi. Skyldi ekki einhverjum smábóndanum og verkamannin- um þykja vá fyrir dyrum? Það er ég alveg viss um, að þeir verða stirðir í taumi að eiga að stunda vopnaburð i hjáverkum. Því að varla getur verið að hermennskan verði aðalstarf svo að þetta hefur verið eins og mér hefur alltaf dottið í hug. En það er nú kannski öðru máli að gegna hjá ykkur. Þetta á sem sagt að framkvæmast að Chilenskri fyrirmynd. Það sennilega hentar vel hér á islandi. Leyfist mér að spyrja einnar spurningar. Er máistaður- inn eða stefnan svo slæm að vopn þurfi til að koma stefnumálum flokksins fram. Það er næsta furðulegt hvaða höfuðóra sumir menn geta gengið með. Að ætla sér að hervæða islenska alþýðu. Nei, en slíkt gerist ekki hér á islandi i dag. Alþýða þessa lands mótmælir öllu vopnaskaki. Hún mótmælir kommunistaflokknum. Hún mótmælir öllum falsspá- mönnum og kallar landvætti sér til varnar. islensk alþýða ann landi og þjóð en fordæmir land- níðinga. Gjör rétt. Þol ei órétt. Ólafur Vigfússon, Hávallagötu 17 Reykjavlk. útfarasKreytlngar Groóurbusió v/Sigtun simi 36770 S. Helgason hf. STEINIOJA llnholti 4 Slmar 24477 og 14254

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.