Morgunblaðið - 10.06.1976, Side 1
32 SÍÐUR
123. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 10. JÚNl 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
5 Arabaríki senda
herlið til Líbanon
Borgarastyrjöldin að
breytast í hernaðar-
átök margra þjóða,
segja Israelsmenn
Beirút —9. júni — Reuter — AP.
HERSVEITIR fimm araba-
ríkja ásamt liði Frelsis-
hreyfingar Palestínuaraba
eru nú á leið til Líbanon í
því skyni að koma á friði í
landinu, að því er fulltrúi
bandalagsins skýrði frá að
loknum fundi utanríkis-
ráðherra aðildarríkja þess
í Kaíró í kvöld. i yfirlýs-
ingunni kom fram, að
Arahabandalagið hefði
myndað friðargæzlusveitir
með þátttöku herliðs frá
Alsír, Saudi-Arabíu, Lí-
býu, Sýrlandi, Súdan og
Frelsishreyfingu Palest-
ínuaraba.
Tillögur Arababanda-
lagsins um leiðir til að
koma á friði í Líbanon
eftir 15 mánaða borgar-
styrjöld hafa verið lagðar
fyrir Hafez Al-Assad, for-
seta Sýrlands, en afstaða
hans til málsins var ekki
ljós þegar síðustu fregnir
bárust.
Opinberar heimildir í Damask-
us greindu frá því í dag að herlið
frá Alsír og Líbýu væri væntan-
legt til Sýrlands mjög bráðlega til
að sameinast sýrlenzkum her-
sveitum, sem freisti þess að binda
enda á ófremdarástandið í Líban-
on.
ísraelsstjórn hefur lýst því yfir,
að borgarastyrjöldin í Líbanon
hafi nú breytzt i alþjóðlega styrj-
öld, og sendiherra hennar hjá
Sameinuðu þjóðunum lét svo um
mælt í dag, að með þátttöku herja
Libýu, Alsírs og íraks í styrjöld-
inni væri ljóst, að málin í Mið-
austurlöndum hefðu tekið mjög
alvarlega og hættulega stefnu.
Þegar þessi yfirlýsing kom var
enn ekki vitað um þátttöku
annarra Arabaríkja.
Kreml-stjórnin birti yfirlýsingu
síðdegis í dag, þar sem einnig
kom fram sú skoðun, að styrjöldin
í Líbanon væri ekki lengur innan-
ríkismál íbúanna þar, og var
vopnahlés krafizt umsvifalaust.
Hin opinbera fréttastofa Sovét-
rikjanna, Tass, lýsti því yfir, að
nærvera sjötta flota Bandaríkj-
anna við strendur Líbanons, og
það, að Frakkar hefðu boðizt til
að senda herlið á vettvang gæfi
ljóslega til kynna hversu ástandið
væri alvarlegt, en i þessu sam-
bandi minntist Tass ekki á skýrsl-
ur ísraelsmanna og Tyrkja um
aukinn flotastyrk Sovétmanna á
Miðjarðarhafi að undanförnu.
Áður en Arababandalagið birti
Framhald á bls. 31.
Sýrlenzkum hersveitum
í Líbanon bætist nú lið-
styrkur eftir fund utan-
ríkisráðherra Araba-
ríkjanna í Kaíró í dag.
Myndin er af sýrlenzk-
um skriðdrekum í Lí-
banon.
Spánn:
Starfsemi stjórn-
málaflokka leyfð
Madrid — 9. júnl — Reuter
SPÆNSKA þingið samþykkti i
dag að lcyfa starfsomi stjórn-
málaflokka I landinu, annarra en
stjórnleysingja, aðskilnaðarsinna
og kommúnista, með því skil.vrði,
að flokkarnir geti fært sönnur á
að flokksmenn séu ekki undir 25
þúsundum að tölu.
Hér var um að ræða stjórnar-
frumvarp og var það samþykkt
með 338 atkvæðum gegn 91, en 24
þingfulltrúar sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Áður en frumvarpið var sam-
þykkt fóru fram mjög harðar um-
ræður um málið í þinginu (Cor-
tes). Þegar Ramiro Cercos Perez
flutti ræðu sína til stuðnings
frumvarpinu gengu tuttugu
hægri sinnaðir fulltrúar út úr
þingsalnum undir forystu for-
ingja síns, José Antonio Girons.
Perez lét svo um mælt, að frum-
varpið væri fyrsta skrefið í átt að
fyrirmyndarþjóðfélagi þar sem
unnt yrði að leiðrétta misrétti og
óréttlæti, sem enn væri að finna á
Spáni, en andstæðingar frum-
varpsins sögðu það brjóta í bága
við stjórnarskrá landsins.
Hin nýju lög eru mikilvægur
þáttur í áætlun ríkisstjórnarinnar
um endurbætur, sem miða að því
að skipa Spáni á bekk með lýð-
ræðisríkjum Vestur-Evrópu.
Ford og Carter taldir
öruggir um útnefningu
Washington 9. júni.
— Reuter.
FORD Bandarfkjaforseti og
Jimmy Carter virtust f dag við lok
hinna umhleypingasömu forkosn-
ingar f Bandarfkjunum of sigur-
stranglegir til að geta orðið af
útnefningu flokka sinna fyrir for-
setakosningarnar f haust. Stjórn-
málaskýrendur voru flestir sam-
mála um það með tilliti til úrslita
forkosninganna f gær f Ohio,
Kalifornfu og New Jersey að bæði
Ford og Carter hefðu fylgi nægi-
lega margra flokksþingsfulltrúa
til að brjóta á bak aftur allar
tilraunir til að koma f veg fyrir
útnefningu þeirra. Carter og
Ford unnu yfirburðasigra f Ohio,
en kosningarnar þar voru þær tvf-
sýnustu af þessum þrem. Sigur
Carters þar vó nokkuð á móti
ósigri hans f Kaliforníu fyrir rfk-
isstjóranum, Edmund „Jerry“
Brown, en þar tapaði Ford fyrir
Ronald Reagan, sem er fyrrver-
andi rfkisstjóri Kalifornfu. Ford
vann einnig auðveldlega í New
Jersey, og Carter hlaut mikið at-
kvæðafylgi, en óháðir kjörmenn,
sem flestir eru hliðhollir Brown
og Hubert Humphrey settu strik í
reikninginn hvað kjörmannafylgi
varðar.
Er atkvæðatalningu i ríkjunum
þremur var að mestu lokið lftur
myndin endanlega þannig út, að
Ford hefur unnið atkvæði a.m.k.
150 kjörmanna í gær, en Reagan
hins vegar 173. Þrátt fyrir þessa
forystu Reagans er heildarfylgi
Framhald á bls. 18
„Járnfrúin” segir að
Bretland sé að verða
JÁRNTJALDSRÍKI
99
Lundúnum — 9. júní — Reuler
MARGARET Thatcher, formaður
breska Ihaldsflokksins, lýsti þvf
yfir á þingi f dag, að Bretland
væri að verða „járntjaldarfki“
undir sósfalistfskri rfkisstjórn.
Hún hefur borið fram vantraust
Kissinger ávítar Chile
fyrir mannréttíndabrot
Santiago 9. júnl — Reuter.
HENRY Kissinger utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna sagði á
fundi 22 utanríkisráðherra Amer-
íkuríkja í Santiago í Chile í gær,
að fréttir um brot stjórnvalda I
Chile á mannréttindum yllu al-
mennum áhyggjum f Bandarfkj-
unum. Kissinger fjallaði um
skýrslu sam-amerfsku mannrétt-
indanefndarinnar á'sjötta þingi
samtaka Amerfkuríkja (OAS)
sem nú stendur yfir f höfuðborg
Chile, en f skýrslunni segir að
stjórnvöld í landinu framfylgi
enn stefnusem feli fsér handtök-
ur fólks af handahófi, ofsóknir og
pyntingar. Kissinger sagði að
skýrslan staðfesti að brot á mann-
réttindum héldu áfram og slíkt
yrði að taka til athugunar, bæði
varðandi tvíhliða viðskipti landa
og á alþjóðavettvangi.
Kissinger sagði að ríkisstjórn
Bandaríkjanna jafnt sem þing og
fjölmiðlar hefðu þungar áhyggjur
af ástandinu í Chile, en þingið
hefði gripið til þess ráðs að setja
sérstakar takmarkanir við banda-
rískri hernaðar- og efnahagsað-
stoð við Chile. Ylti áframhaldandi
aðstoð við Chile, á framgangi
mannréttindamála. Þá gat Kiss-
inger þess að í skýrslunni kæmu
einnig fram brot á mannréttind-
um á Kúbu, og raunar væru all-
mörg lönd í álfunni sem ekki
virtu grundvallarmannréttindi.
Framhald á bls. 18
á ríkisstjórnina, en litlar Ifkur
eru taldar á þvf, að tillagan verði
samþvkkt á þingi. Lfkur benda til
þess að stjórnin standist atlögu
þessa með 20 atkvæða meirihluta.
Margaret Thatcher hefur verið
gagnrýnd fyrir vantrauststillögu
sína, sem þykir ótimabær, þar
sem sterlingspundið hefur nú
styrkt stöðu sina og horfur eru
mun bjartari í efnahagslifi lands-
ins en verið hefur. Meðal þeirra,
sem gagnrýna Thatcher eru máls-
metandi þingmenn Ihaldsflokks-
ins.
t atkvæðagreiðslum Neðri mál-
stofunnar geta tekið þátt 313
þingmenn Verkamannaflokksins
og 276 íhaldsþingmenn. 11 þing-
menn skozka þjóðernissinna-
flokksins og 3 þingmenn þjóðern-
issinna frá Wales hafa lýst þvi
yfir, að þeir muni greiða van-
trauststillögunni atkvæði, en 13
frjálslyndir þingmenn og 10 frá
Uláter segjast ekki munu taka
þátt í atkvæðagreiðslunni. Af-
staða 3 þingmanna er óljós en svo
virðist sem tillaga foringja
Framhald á bls. 31.