Morgunblaðið - 10.06.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNl 1976
13
ara væri á næstu grösum. En
ekki virðist nein hreyfing I þá
átt, og er því ánægjulegt, að
Listasafn A.S.L skuli hafa for-
göngu með þetta framtak, sem
að vísu er hvergi nægjanlegt.
Allt eru það úrvalsverk, sem
sýnd eru eftir Þorvald, og þau
spanna timabilið 1942 til 1966.
Þorvaldur Skúlason er mjög af-
kastamikill listamaður, og þvi
verður að segja eins og er, að
þessar fáu myndir gefa ekki
nægilega hugmynd um þau um-
brot sem áttu sér stað í list
Þorvalds á þessum tíma. Ég
held, að allir viti, hvert álit mitt
er á Þorvaldi Skúlasyni sem
málara. Þvi verð ég fáorður, en
stenst samt ekki mátið að segja
einu sinni enn, að fáir af lista-
mönnum okkar í dag hafa náð
slíkum árangri sem Þorvaldur
Skúlason. Þessi sýning er enn
ein sönnun þess.
Portrettin á þessari sýningu
eru flest kunn áður og hafa
verið oft á sýningum og sum
prentuð á íslenskar bækur, ef
ég man rétt. Það er þvi hægt að
segja með sanni í örfáum orð-
um, að þarna er sérstakt úrval á
ferð, sem ekki á sér hliðstæðu í
islenskri myndlist.
Þorvaldur
Skúlason
Gul
Komposition.
Trygging h.f.
25 ára:
Gefur 500
þúsund til
Styrktarfélags
vangefinna
TRYGGING h.f. hélt aðalfund
sinn þann 26. maí sl. en félagið er
25 ára um þessar mundir. I tilefni
af þessum tímamótum félagsins
ákvað stjórn þess að færa Styrkt-
arfélagi vangefinna 500 þúsund
krónur að gjöf til styrktar starf-
semi sinni. Á aðalfundinum kom
fram, að þrátt fyrir erfitt árferði,
varð afkoma félagsins góð á sl.
ári. Iðgjöld ársins námu 994,2
milljónum og er það 86% aukning
frá árinu áður. Um það bil helm-
ingur iðgjalda félagsins er vegna
erlendra endurtrygginga en það
eru þær, sem fyrst og fremst
renna stoðum undir hagnað fé-
lagsins á áyinu.
Arið var mjög tjónaþungt og
námu tjón ársins greidd og áætl-
uð kr. 1275 miljónum, eða 28%
hærri upphæð en heildariðgjöld-
um nemur. Af einstökum tjónum
vegur flugskýlisbruninn á
Reykjavikurflugvelli mest, en
heildartjón félagsins vegna hans
nam tæpl. 500 milljónum króna.
Þrátt fyrir þetta reyndist
hagnaður af reglulegri starfsemi
kr. 16.679.317, en þar frá dragast
opinber gjöld fyrra árs vegna
breyttrar aðferðar við reiknings-
skil, svo og tekjuskattur af skatt-
skyldum tekjum ársins, þannig að
til ráðstöfunar verður hagnaður
að upphæð kr. 5.478.964.
Á árinu voru gefin út jöfnunar-
hlutabréf að upphæð 20 milljónir
króna. Hlutafé nemur nú 40
milljónum króna. Eigið fé í árslok
nam kr. 56 milljónum, auk skatta-
legs varasjóðs að upphæð kr. 17,5
milljónir.
Stjórn félagsins skipa: Geir
Zoéga jr, formaður, Othar Elling-
sen, varaformaður, Eirikur
Ásgeirsson, ritari, Óskar Svein-
björnsson, fulltrúi vátryggingar-
taka i stjórn og Þorsteinn Bern-
harðsson, meðstjórnandi.
Framkvæmdastjórar Trygg-
ingar h.f. eru Árni Þorvaldsson
og Hannes O. Johnson.
Unglingasveit TR vann
Austfirðinga í skákkeppni
UNGLINGASVEIT Tafl-
félags Reykjavíkur fór til
Austf jarða um hvítasunnu-
helgina. Keppti sveitin við
lið Austfirðinga bæði í
hraðskák og lengri skák-
um. Auk þess tefldu sterk-
ustu menn unglingasveitar
TR fjöltefli á nokkrum
stöðum, en í þeim hópi
voru m.a. Helgi Ólafsson,
Margeir Pétursson, Ómar
Jónsson, Jónas P. Erlings-
son og Ásgeir Þ. Árnason.
1 hraðskákkeppninni sigraði
unglingasveitin með 207 vinning-
um gegn 107 og í lengri skákun-
um með 12M vinningi gegn 5V4
vinningi, en teflt var á 18 borðum.
Unnu unglingarnir 9 skákir,
Austfirðingarnir 2 skákir en 7
skákir enduðu með jafntefli. I
hraðskákinni hlaut Helgi Ólafs-
son flesta vinninga, eða 18 af 18
mögulegum, en Trausti Björnsson
hlaut flesta vinninga af Austfirð-
ingunum, 15 vinninga af 18. Róm-
uðu TaflfélagsmennJdlar móttök-
ur Austfirðinga.
Ltstahátíð í Reykjavik
Þetta er á
listahátíð
í dag
KJARVALSSTAÐIR:
Kl. 20.30: Grænlenzki Mik
flokkurinn með dans og söng
frá Grænlandi.
Kl. 14—22: Þrjár sýningar
opnar, þ.e. verk franska mál
arans Geralds Schneiders, yfir-
litsýning á íslenzkri grafik og
sýning arkitekta, „Loftkastal-
ar og skýjaborgir“.
NORRÆNA HIJSIÐ:
Kl. 14—22: Sýning á islenzkri
'nytjalist og verkum finnsku
gestanna Vuokko og Anti
Nurmesniemi.
Kl. 8.30: Tizkusýning á fatnaði
frá Vuokko.
LISTASAFN ÍSLANDS:
KI. 1.30—22: Sýning á verkum
austurríska málarans
Hundertwassers og í Bogasal
sýning á verkum Dunganons.
Útihöggmyndasýning opin í
Austurstræti.
Sjálfstæðis-
félag stofnað
í Mosfellssveit
SJÁLFSTÆÐISMENN í Mosfells-
hreppi hafa nýlega stofnað sjálf-
stæðisfélag og hlaut það nafnið
Sjálfstæðisfélag Mosfellinga. í
fréttatilkynningu frá hinu ný-
stofnaða félagi segir, að vegna
mikillar ibúafjölgunar í hreppn-
um á undanförnum árum hafi
verið talið timabært að stofna þar
sérstakt sjálfstæðisfélag við hlið
Sjálfstæðisfélagsins Þorsteins
Ingólfssonar, sem framvegis
starfar í Kjalarnes- og Kjósar-
hreppum.
Á fjölmennum stofnfundi fé-
lagsins, sem haldinn var i Hlé-
garði 3. júní sl., var kjörin stjórn.
Formaður var kjörinn Magnús
Sigsteinsson, en aðrir í stjórn
voru kjörnir: Guðrún Hafsteins-
dóttir, Jón Ásbjörnsson, Salóme
Þorkelsdóttir, Sigurður Frí-
mannsson, Sveinn Guðmundsson
og Örn Kjærnested.
I Jón úr Vör:
Hvaða erindi ætti
Solsénitsín hingað?
3. þ.m. birtist grein í Morgun-
blaðinu eftir Jóhann Hjálmars-
son, þar sem hann segir nokkur
tíðindi af aðalfundi Rithöf-
undasambandsins, sem nýlega
var haldinn. Aðalefni greinar-
innar eru þó hugleiðingar hans
um stöðu og deilur rithöfunda.
Hér koma tilvitnanir: „Á
fyrrnefndum fundi stóð upp
eitt af kunnustu ljóðskáldum
þjóðarinnar og lýsti því yfir að
Alexander Solsénitsin væri
stríðsæsingamaður." Síðar seg-
ir: „Nei, hingað átti Solsénitsin
litið erindi. Kannski gæti hann
styggt vinstri menn á íslandi?
En hvaða vinstri menn hérlend-
is eru það sem enn hafa ekki
gert sér grein fyrir því hvernig
farið er með rithöfunda í Sovét-
ríkjunum? Má ekki segja sann-
leikann um það? Kannski gæti
það veikt baráttuna „gegnherf-
landi“?“
A framhaldsaðalfundi Rithöf-
undasambandsins, sem haldinn
var nokkrum dögum eftir hinn
fyrri, var lesin upp og sam-
þykkt mótatkvæðalaust fundar-
gerð þess hluta fundaríns, sem
Jóhann er að tala um. Hana
hafði ritað Rannveig Ágústs-
dóttir starfsmaður sambands-
ins. Nær allir þeir, er sóttu síð-
ari fundinn, höfðu verið á þeim
fyrri. Til samanburðar við
fréttamennsku og hugleiðingar
Jóhanns, leyfi ég mér að birta
orðréttan kafla úr fundargerð-
inni um þau atriði, er hann
ræðir um:
„Jón úr Vör sagðist þá vilja
láta í ljós að hann væri ósam-
mála flestu sem Rithöfundaráð
hefði gert. Sér fyndist t.d. að
rithöfundar ættu ekki að taka
skýlausa afstöðu gegn lögbanni.
Rithöfundar hefðu engan rétt
fram yfir aðra menn í landinu
til að móðga menn í ritum sín-
um. Illa dulbúin skáldrit, byggð
á atvikum, sem almenningi eru
kunn, eig ekki skýlausan rétt á
sér.
Þá vék Jón að heimboði R.L
til Solchenytsin. Hann taldi
vafasamt að Rithöfundaráð
hefði peningaráð eða heimild
til að hjóða erlendum rithöf-
undum til landsins án heimild-
ar Rithöfundasambandsins. Þá
taldi það sérlega illa til fallið
hjá rithöfundum að bjóða
Solchenytsin hingað, — að vísu
hefði hann samúð með baráttu
Nöbclskáldsins i heimalandi
sfnu, en svo illa hefði verið
farið með hann af rússneskum
yfirvöldum, að hann væri orð-
inn bæði bitur og öfgafullur.
svo að vafi leikur á hvort stefna
hans sé góð fyrir heiminn og
má segja að hann sé einn mesti
stríðsæsingamaðurinn í heimin-
um. Jón vill benda alvarlega á
það að þetta kalli á möguleika
til að hingað yrði boðið mönn-
um, sem t.d. hægri menn teldu
hættulega. Rithöfundaráð væri
algjör vanskapnaður og ætti
alls ekki rétt á sér.“
En það er fleira í grein Jó-
hanns en það sem viðkemur
mínum tnálflutningi. Hann tal-
ar um „atlögu nokkurra rithöf-
unda að Degi Sigurðssyni", án
þess að geta um hverjir að
henni stóðu. Ókunnugir gætu
ætlað að það væru þeir sömu.
sem Jóhann er vanur að senda
illmælgisskeyti. En í þetta sinn
var nú forustan hjá þeim, sem
Jóhann er vanastur að eiga
samstöðu nteð. Eg tel að sam-
blástur þessi sé sérlega
ósmekklegur, en tek ekki hér
afstöðu til þess, hvort gagnrýni
á úthlutunina er réttmæt eða
röng.
En það er margt óskýrt hugs-
að og mælt i þessari stuttu
grein Jóhanns. Þar stendur
m.a. þetta: „Ef málefni rithöf-
unda eiga ekki að verða einn
allsherjar skrípaleikur. held ég
að einhverjir sæmilega viti
bornir menn þurfi að taka í
taumana." Hvað á Jóhann við'.’
Ætli það sé ekki fremur eitt-
hvað annað en vit, sem forystu-
menn rithöfunda skortir. Ætli
við höfum ekki í röðum okkar
of mikið af pólitíkusum. sem
nota vilja samtökin í þjónustu
öfgastefna, stundum til hægri,
stundum til vinstri. Og úr því
Jóhann fór að ræða um heim-
boðsmál Rithöfundaráðs, hvers-
vegna skýrir hann þá ekki um-
búðalaust frá afstöðu sinni? Eg
þykist vita, að Jóhann dái Sols-
énitsín vegna baráttu hans
gegn rússneskri kúgunar-
stefnu. En hefur Jóhann rofið
þögnina, sem ríkir um nöfn
frægra og óþekktra rithöfunda
og mannréttindamanna í fas-
istalöndunum? Jóhann hefur
dvalist um tíma á Spáni. Það
var fyrir nokkrum árum. Hann
kom þaöan með heldur minni
birtu í augum en var þar þegar
hann fór. Það mætti leggja
margar spurningar fyrir þá for-
ystumenn rithöfunda, sem
leggja blessun sína yfir það fvr-
irtæki, sem búið er að mynda
um hinn fræga og sjúka útlaga
frá Rússlandi Líf þessa manns
er vissulega mikil harmsaga
Jón úr Vör.
Bifreiðaeigendur
Eigum mikiö úrval af sóluöum
hjólböröum á góöu veröi.
Einnig nýja hjólbaröa í flestum stærðum.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
FLJÓT AFGREIÐSLA
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Gúmmívinnustofan
Skipholti 35 — Simar 31055 og 30360