Morgunblaðið - 10.06.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNl 1976
19
í DAG á áttræðisafmæli Rannveig
Jónsdóttir, til heimilis að Hval-
eyrarbraut 5 í Hafnarfirði. Á slík-
um tyllidegi er mér séríega Ijúft
og skylt að setja fáein orð á blað,
Rðnku til heiðurs.
Ranka fæddist að Efri-
Brúnavöllum á Skeiðum hinn 10.
júní 1896 og ólst upp á Ar-
hrauni í sömu sveit. Liðlega
tvítug aó aldri rést hún til starfa
að Stór-Núpi i Gnúpverjahreppi
og var þar í fimmtán ár. Haustið
1931 réðst hún til hjónanna i
Skaftaholti, Steinunnar og Hall-
dórs, og var hjá þeim uns þau
brugðu búi vorið 1955. Fluttist
hún þá með þeim til Reykjavíkur,
og var hjá þeim þar í nokkur ár.
Flutti hún síðan suður i Hafnar-
fjörð til Sigurjóns bróður sína og
Rannveig Jónsdóttir
Hafnarfirði áttræð
henni þá tíðlitið út um norður-
gluggann til að skyggnast eftir
litlum pilti, sem var væntanlegur
niður Nökkvavog.
Mætti á sama hátt nefna ótal
atvik frá liðnum árum. Ég hygg,
að Rönku sé það þvert um geð, að
sliku sé á loft haldið. Nefna verð
ég þó dygga þjónustu hennar i
þágu Skaftaholtsfólksins, bæði
fyrr i Skaftaholti og síðar í
Nökkvavoginum. Held ég, að trú-
mennska hennar verði seint of-
metin og að fullu launuð.
Sjálfur fæ ég ekki þakkað
Rönku til fulls vináttu hennar og
tryggð, sem hún sýndi mér ung-
um og sýnir enn. Einnig alla þá
ánægju og þann fróðleik, sem hún
hefur veitt mér á liðnum árum.
Minnist ég þá margra samveru-
stunda, meðal annars með spil i
hönd. Einnig allra bókanna, sem
orðið hafa mér til gleði og gagns.
Og ekki sist samtalanna. með
fróðleik um liðinn tima, sem ég
t>ekkti ella lítið eða ekki. Kann að
vera að kynslóðabilið minnki eða
hverfi við slík kynni.
Þegar ég þakka Rönku góð
kynni öll þessi ár, veit ég, að
ég mæli fyrir munn hinna fjöl-
mörgu vina hennar, ekki sfst
þeirra sem ungir að árum öðluð-
ust vináttu hennar. Lýk ég þess-
um línum á afmælisdeginum með
hugheilum óskum um heillaríka
daga.
Halldór B. Jónsson.
Vilborgar konu hans. A hún þar
heimili gott, eins og vænta má.
Á merkisdögum í lífi fólks er
við hæfi að líta um öxl og minnast
góðra kynna. Þó æviskeið mitt sé
nú aðeins þriðjungur af ævi
Rönku, eru kynni okkar löng frá
mínum bæjardyrum séð. Allt mitt
líf hef ég notið góðvildar hennar
og umhyggju. Þá umhyggju fann
ég ekki síst, þegar skólaganga
mín hófst í Reykjavík. Hefur
Rönku sennilega fundist leiðin í
skólann fulllöng svo ungum pilti i
hinni stóru borg, eins og Reykja-
vik var vafalaust í augum okkar
aðflutta sveitafólksins. Varð
ALGLYSINGA-
SÍMINN ER:
Bátur til sölu
Til sölu er 30 tonna plankabyggður eikarbátur
Byggður 1975 í sérflokki hvað snertir gæði og
búnað. Tilbúinn til veiða.
Uppl. gefur Guðmundur Ásgeirsson, sími 97-
7177 Neskaupstað
Kjörinn heiðurs-
félagi í F.I.D.
Á AÐALFUNDI Dansk-fslenzka
félagsins sem haldinn var f Nor-
ræna húsinu f aprílmánuði urðu
nokkrar breytingar á stjórn fé-
lagsins. Ludvig Storr, aðalræðis-
maður, sem átt hefur sæti f stjórn
félagsins undanfarin 37 ár, baðst
undan endurkosningu. Sam-
þvkkti aðalfundur að gera Ludvig
Storr að heiðursfélaga fyrir langt
og gott starf fyrir félagið.
Thorben Friðriksson, forstjóri,
sem verið hefur formaður félags-
ins undanfarin 4 ár, gaf ekki leng-
ur kost á sér til formennsku, og
var Páll Sigurjónsson verkfræð-
ingur, kjörinn formaður í hans
stað. Stjórnin er nú þannig skip-
uð:
Páll Sigurjónsson, verkfræðing-
ur, Jón Olafssbn, húsgagnaarki-
tekt, Sigurbjarni Guðnason, bygg-
ingafræðingur, Gurli Doltrup,
námsstjóri, Július Sólnes, prófess-
or.
Hópferðir þær, sem félagið hef-
ur gengizt fyrir undanfarin ár,
féllu niður á liðnu ári vegna
ónógrar þátttöku. Nú hefur verið
ákveðið að taka þessa þjónustu
við félagsmenn upp að nýju og
hafa nú verið ákveðnar þrjár
Kaupmannahafnarferðir, sú
fyrsta i þessum mánuði, hin
næsta í júlí og þriðja í ágústmán-
uði. Ferðaskrifstofan Útsýn sér
eins og undanfarin ár um allar
ferðir félagsins.
Skrifstofa félagsins er í Iþrótta-
miðstöðinni i Laugardal (inn-
gangur næst Reykjavegi) í
Reykjavík og er opin tvisvar i
viku á mánudögum og miðviku-
dögum síðdegis. Sfminn er 81932.
Félagsmenn D.Í.F. eru nú rúm-
lega 900.'
Ludvig Storr aðalræðismaður.
Vísir að vinnubúð-
um fyrir unglinga
Á VEGUM æskulýðsstarfs
þjóðkirkjunnar er nú verið
að koma upp vísi að vinnu-
búðum yfir sumartímann
fyrir unglinga og er fyrsti
drengjahópurinn nýkom-
inn eftir átta daga dvöl í
Skaftafelli.
Voru það einkum piltar fimmt-
án ára gamlir og unnu þeir við að
taka til í þjóðgarðinum og prýða
þar og snyrta. Unnið var sex tima
á degi hverjum, en einnig farið i
göngu og skoðunarferðir undir
leiðsögn fararstjórans, sem var
frá þjóðkirkjunni. Þjóðgarðurinn
lagði til verkstjóra, fæði og tjöld
fyrir piltana. Aformað er að halda
þessu áfram í sumar og í næsta
mánuði koma unglingar frá Kan-
ada sem verða við þessi störf m.a.
í Skaftafelli ásamt islenzkum ung-
mennum.
Húsið tekur
stakkaskiptum
Hvort sem mála þarf úti eða inni.
Að mála hús sitt með Hörpusilki er auðveld og
ódýr aðferð til þess að fegra umhverfið
og vernda eignir sínar gegn harðleikinni veðráttu.
Með réttri undirvinnu stenzt Hörpu málning
hin tíðu veðrabrigði.
Fagleg vinnubrögð og góð málning tryggja
langa endingu.
Látið Hörpu gefa tóninn.
HARPA
SKÚLAGÖTU 42