Morgunblaðið - 19.06.1976, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.06.1976, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JUNI 1976 SPARISKÍRTEININ GANGA HÆGT ÚT Treglegagengur hjá Gjald- heirntunni að losna við spariskírteinin, sem liðlega 4000 framteljendur eiga þar inni, að verðmæti um 200 millj. kr. í gær höfðu aðeins liðlega 300 sótt skírteini sín, en þau eru nú afgreidd daglega hjá Gjald- heimtunni á venjulegum skrifstofutíma milli kl. 9 og 5. 8 skipherrar landhelgis- gæzlunnar sæmdir ridd- arakrossi ásamt 9 öðrum FORSETI íslands hefur hinn 17. júní sæmt eftirtalda lslendinga riddarakrossi hinnar fslenzku fálkaorðu: Frú Önnu Þorsteinsdóttur, for- mann Kvenfélagsins Líknar i Vestmannaeyjum, fyrir störf að líknar- og félagsmálum. Frk. Bjarney Samúelsdóttir hjúkrunarkonu fyrir líknar- og hjúkrunarstörf. Finn Frímann Kristjánsson kaupfélagsstjóra, Húsavík, fyrir atvinnu- og félagsmálastörf. Séra Guðmund Sveinsson skóla- meistara Fjölbrautarskólans fyrir uppeldis- og fræðslustörf. Guðjón Ármann bónda á Skorrastað í Norðfjarðarsveit fyr- ir störf að búskapar- og félagsmál- um. Hafstein Guðmundsson bókaút- gefanda og fv. prentsmiðjustjóra fyrir menningarstarf á sviði bóka- útgáfu. Hannes Pálsson fv. forstjóra Hampiðjunnar h.f. fyrir störf að uppbyggingu veiðarfæraiðnaðar á Islandi. Jónas Jónsson framkvæmda- Valtýr seldi 14 myndir fyrsta daginn MJÖG góð aðsókn var að sýningu Valtýs Péturssonar á „Loftinu" við Skólavörðustíg fyrsta sýningardaginn, þ.e. 17. júní. Seldust 14 myndir þann dag. Sýningin verður opin kl. 14—18 bæði í dag og á morgun, en annars er hún opin á venju- legum verzlunartíma. stjóra Síldar- og fiskimjölsverk- smiðjunnar h.f. fyrir störf að sjávarútvegsmálum. Séra Þorgrím V. Sigurðsson fv. prófast á Staðarstað fyrir embættis- og fræðslustörf. Ennfremur eftirtalda skipherra landhelgisgæzlunnar, alla riddarakrossi, fyrir landhelgis- störf: Guðmund Kærnested Gunnar H. Ólafsson Sigurð Þ. Árnason Þröst Sigtryggsson Helga Hallvarðsson Bjarna Ö. Helgason Sigurjón Hannesson Höskuld Skarphéðinsson. Skipað í stjórn launasjóðs rithöfunda HINN 9. þ.m. var staðfest í menntamálaráðuneytinu reglu- gerð um launasjóð rithöfunda. Samkvæmt reglugerðinni skipar menntamálaráðherra ( stjórn launasjóðs rithöfunda til þriggja ára I senn þrjá menn utan Rithöf- undasambands Islands tilnefnda af stjórn þess. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Menntamálaráðherra hefur hinn 11. þ.m. samkvæmt tillögu stjórnar Rithöfundasambandsins skipað eftirtalda menn í stjórn sjóðsins: Bjarna Vilhjálmsson þjóð- skjalavörð, dr. Guðrúnu P. Helgadóttur skólastjóra og Véstein Ólafsson lektor. Sjóðstjórn annast úthlutun úr launasjóði rithöfunda og skal að þessu sinni hafa iokið störfum fyrir 15. ágúst n.k. Fjáröflun í Bústaðasókn A VEGUM Bústaðasóknar eru nú í undirbúningi fjáröflunaráform f því skvni að fullgera félags- heimili Bústaðakirkju, en loka- átakið er skammt undan. Þegar þvf er lokið skapast innan vé- banda kirkjunnar ein fullkomn- asta félagsaðstaða er hér þekkist, sem mun gegna hinu mikilvæg- asta hlutverki fyrir alla félags- starfsemi í Bústaðasókn. Verður öllum fbúum f Bústaðasókn gef- inn kostur á þvf innan skamms að leggja sitt lóð á vogarskálina á þann hátt, að inn á öll heimili f sókninni verða send gjafabréf þar sem málið er skýrt og kynnt sú aðstaða er fyrir hendi verður f hinni nýju félagsmiðstöð hverfis- ins um leið og mönnum er gefinn kostur á þvf að inna af hendi framlög eftir ástæðum hvers og eins á næstu tólf mánuðum f þremur áföngum. Ekki eru nema rúm 10 ár sfðan byggingarframkvæmdir hófust við Bústaðakirkju og félagsheim- ili hennar og í nóvember 1971 var kirkjan vígð. Á þessum 10 árum hafa verið lagðir fram tugir millj- óna króna í gjöfum, sjálfboða- vinnu og á annan hátt frá ótöldum fjölda einstaklinga, stofnana og fyrirtækja. Forráðamenn Bústaðakirkju benda á, að nú vantar aðeins herzlumuninn til að fullgera þetta veglega hús, sem mun þjóna hinum margvfslegustu hlutverkum. Hið nýja félagsheim- ili býður upp á mjög fjölþætta starfsemi, m.a. alls konar æsku- Framhald á bls. 18 Bíll útaf Akureyri 18. júnf. BRONCO-jeppi valt um klukkan 9,50 í morgun á veginum skammt sunnan við Bægisá í öxnadal. Bfllinn lenti í hvarfi og valt heila veltu á veginum en fór aldrei út af honum. Fimm manns voru í bílnum, þrennt fullorðið og tvö börn, og köstuðust allir út úr bíln- um við veltuna, en meiddust þó aðeins lítilsháttar og annað barn- ið slapp alveg ómeitt. Yfirbygging bílsins er mjög mikið skemmd. —Sv. P. Tengi- leiðslum stolið í Sigöldu RAFMAGNSKAPLI, nokk- ur hundruð metra löngum, mjög sverum, var stolið fyrir skömmu í Sigöldu, en einn starfsmaður þar hef- ur nú játað að hafa tekið leiðslurnar, sem eru metn- ar á 1 millj. kr. Hefur mað- urinn skilað þýfinu, en i yfirheyrslum um málið kvaðst hann hafa talið að hér væri um ónýtt drasl að ræða. Kaplar þessir, sem eru 2—3 sm sverir, voru notaðir til tengingar í tæki sem þrýstiprófuðu varnar- garða í stíflum Sigölduvirkjunar og skar maðurinn leiðslurnar frá tækjunum þegar hann tók þær, samkvæmt upplýsingum Sveins ísleifssonar, lögregluþjóns á Hvolsvelli. Steypu- styrkt- arjárn 1 gegnum lærið 11 ÁRA gamall drengur úr Hafn- arfirði, Hjörtur Jónsson, Haga- braut 6, varð fyrir því óhappi í gær að detta á steypustyrktarjárn með þeim afleiðingum að það gekk i gegnum lærið. Drengurinn missti mikið blóð, en á skurðdeild Borgarspítalans var gerð á honum aðgerð i gærkvöldi og tókst hún vel. Hver hefur séð skinnjakkann? AÐFARARNÓTT 18. júní kom til stimpinga fyrir utan veitingastað- inn Óðal. Einn þátttakenda brá sér úr jakkanum rétt á meðan hann var með í leiknum, og afhenti hann stúlku. Þegar allt var afstaðið, var stúlkan horfin með jakkann og hefur hann ekki fundizt. Þetta er ljósbrúnn, tvihnepptur skinnjakki og var veski mannsins í honum, þannig að jakkanum er hægt að skila beint til eiganda eða til lögregl- unnar. Á myndinni er Karl B. Guðmundsson að afhenda 1. verðlaun til verðlaunahafa. Ljósmynd Mbl. ÖI.K.M. Á hinni myndinni sést uppdráttur af verðlaunahugmyndinni. „Framúrskarandi tillögur að Sel- tjarnarnesbyggð Á þjóðhátfðardaginn, 17. júnf, voru afhent verðlaun á Sel- tjarnarnesi í samkeppni þeirri sem bærinn efndi til um endur- skoðun á aðalskipulagi. Sam- kvæmt upplýsingum Sigurgeirs Sigurðssonar bæjarstjóra bárust 12 framúrskarandi skemmtilegar tillögur en veitt voru þrenn verðlaun. Fyrstu verðlaun, 550 þús. kr., hlaut tillaga arkitektanna Ormars Þórs Guðmundssonar, örnólfs Hall, Magnúsar Baldurssonar og Gunnars G. Einarssonar inn- anhússarkitekts en ráðgjafi höfunda var Jóhann Gunnars- son skýrsluvélafræðingur. 2. verðlaun 400 þús. kr., hlutu Gestur Ólafsson, Hilmar Þór Björnsson og Örn Sigurðsson, allir arkitektar og þriðju verð- laun hlaut hugmynd arki- tektanna Gylfa Guðjónssonar og Sturlu Sighvatssonar en samstarfsmenn þeirra voru Björn Gústafsson verk- fræðingur og Sigurþór Aðal- steinsson arkitekt. Samkeppnin stóð yfir frá 15. nóv. — 30. apríl, en sfðan hefur dómnefnd kannað úrlausnir, en hún er skipuð Karli B. Guðmundssyni, Njáli Þorsteins- syni, Steindóri Haarde, Sigur- geir Sigurðssyni, Guðrúnu Jónsdóttur, Pálmar Ólasyni, og Stefáni Benediktssyni. Samkvæmt upplýsingum Sig- urgeirs bæjarstjóra kemst verð- launatillagan næst því sem samkvæmt mati dómnefndar var verið að leita eftir, en hvort af framkvæmdum verður eða hvernig þeim verður háttað í þessu sambandi á eftir að ræða í bæjarstjórn Seltjarnarness.. Sigurður Bjama- son til London SIGURÐUR Bjarnason, sendi- herra Islands f Lundúnum, heldur utan f dag til þess að taka við sendiherrastörfum. Sigurður Bjarnason hefur dval- izt á tslandi undanfarna mán- uði, meðan stjórnmálasamband var ekki millí Iandanna. 1 sam- taii við Morgunblaðið f gær sagði Sigurður Bjarnason m.a.: „Ég mun gera mitt bezta til þess að gæta hagsmuna tslands f Bretlandi og stuðla að góðri sambúð tslendinga og Breta. Ég hygg gott til starfs okkar Ölafar f London og þykist þess fullviss, að okkur verði þar vel tekið.“ Sigurður Bjarnason var sendiherra f Danmörku f 6 ár og jafnframt gegndí hann sendiherrastörfum f Tyrklandi og trlandi. Hann var fyrsti sendiherra tslands f Kfna á ár- unum 1973 — 1976.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.