Morgunblaðið - 19.06.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAC.UR 19. JUNI 197(i
3
t 2000—1500
M 550 - 450 = 35C
CROWN
* TUHIN8
of. vtce
CROWN.
BUÐIRNAR
NÓATÚNI.^-m^,^
SÍMI 23800,
KLAPPARSTÍG 26
SÍMI 19800.
Isetning \
samdægurs
Fylkingin
vill ekkert
við bréfin
kannast
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkvnning frá Fylkingu
byltingarsinnaðra kommún-
ista. Segir þar að hvorki Fylking
in, Rauð verkalýðseining né félag-
ar úr þeim samtökum hafi keypt
fangabréfin, sem gerð voru að
umtalsefni í frétt Mbl. á fimmtu-
daginn. Aftur á móti skýrði pilt-
urinn, sem falsaði bréfin, frá því
við yfirheyrsiur hjá sakadómi
Reykjavíkur, að hann hefði selt
umræddum samtökum bréfin.
Fékk Mbl. upplýsingar um þenn-
an framburð piltsins hjá saka-
dómi.
Margeir
tefliráHM-
unglinga
MARGEIR Pétursson, hinn ungi
skákmaður, mun tefla á heims-
meistaramóti unglinga f skák, 17
ára og yngri, sem fram fer í
Frakklandi dagana 4.—13. júlf
n.k. Þar verða keppendur frá tæp-
iega 30 þjóðum. Asgeir Þór Arna-
son mun verða Margeiri til að-
stoðar ytra. Þá hefur verið ákveð-
ið að aðrir ungir skákmenn, þeir
Helgi Ólafsson og Jónas P.
Erlingsson fari til New York og
taki þar þátt í allsterku skákmóti
sem nefnist „World open". Fer
mótið fram 1.—7. júlí.
Bíll nær
ónýttist
í eldi
Akureyri 18. júnf
RANGE Rover-jeppi brann f gær
á veginum skammt neðan við
Skfðahótelið f Hlfðarfjalli um
klukkan 17. ökumaður og tvö
börn sem voru í bílnum með
honum, komust ósködduð út úr
bflnum en hann varð aielda á
skanimri stund. Eldurinn kom
upp í vélarhúsi hægra megin og
fjöðrin, sem á að opna vélarhúsið,
bráðnaði strax sundur, svo að
vélarhlífinni varð ekki l.vft. Er
skemmst af að segja, að bíllinn
ónýttist fyrir augum eigandans,
sem fékk ekkert að gert.
Norðurlandaráðsnefnd á Húsavík:
Fjallað um fjárlög-
infyrirárið 1978
FUNDUR Menningarmálanefnd-
ar Norðurlandaráðs var haldinn á
Húsavík dagana 14. —18. júnf sl.
Fundinn sóttu þingmenn frá «11-
um Norðurlöndunum en alls
skipa nefndina 17 manns, fjórir
frá hverju hinna Norðurland-
anna, Noregi, Danmörku, Svíþjóð
og Finnlandi, og einn fulltrúi frá
lslandi. Höfuðviðfangsefni fund-
arins voru fjárlög fyrir árið 1978
en heildarupphæð fjárveitingar
til nefndarinnar hefur verið um
1500 milljónir fsl. króna þar sem
stærstu liðirnir eru: Menntamál
175 milljónir, Rannsóknamál 460
millj., Menningarsjóður 180
millj. og almenn menningarstarf-
semi 175 milljónir. Á fundinum á
Húsavfk lögðu fulltrúar áherzlu á
nauðsyn þess að auka fjárveit-
ingu til menningarsjóðsins.
Fulltrúi íslands i nefndinni er
dr. Gylfi Þ. Gíslason alþingismað-
ur og gat hann þess á fundi með
fréttamönnum, að samvinna
Norðurlanda á sviði menningar-
mála ætti sér lengsta sögu í sam-
vinnu þessara landa auk þess sem
hún væri viðtækari en á nokkru
öðru sviði. Núverandi skipulag í
menningarsamvinnu landanna er
grundvallað á sérstökum milli-
ríkjasamningi sem gerður var i
Helsingfors árið 1971 og kveður
sá samningur nákvæmlega á um
hvert markmiðið skuli vera. Er
þar m.a. ákvæði um sameiginleg
fjáriög í menningarmálum og
taldi Gylfi þess engin dæmi í sam-
tímasögunni að 5 sjálfstæð ríki
semdu þannig saméVginleg fjárlög
á þessu ákveðna sviði auk þess
Fratnhald af bls. 3
SVNIN(» t VINNUSTOFU — Þau eiga verk á sí ninuunni: Sij'rún (iuújónsdóltir (f.v. >. (icstur
Þoríjrímssnn «r (íuónv MaRnúsdóttir. Ljósm. Mbl. Frirtþjófur.
Sýning á leirmun-
um í vinnustofu
Sigrúnar og Gests
Útvarpsráð mælti með
Sigrúnu Stefánsdóttur
í starf fréttamanns
Á FUNDI sínum f gær samþykkti
Utvarpsráð að mæla með ráðn-
ingu Sigrúnar Stefánsdóttur, rit-
stjóra Islendings, f starf frétta-
manns á fréttastofu sjónvarps.
Studdu fimm útvarpsráðsmenn
umsókn Sigrúnar, gegn atkvæði
Sigurðar A. Magnússonar og
Stefáns Júlíussonar, fulltrúa
Alþýðuflokksins, sem mæltu með
því, að Einar Karl Haraldsson,
fréttastjóri Þjóðviljans. yrði ráð-
inn í starfið. Aðrir umsækjendur
um stöðina voru Baldur Kristjáns-
son, starfsmaður í landbúnaðar-
ráðuneytinu, og Guðbjörn Björg-
ólfsson kennari.
Á sama fundi mælti útvarpsráð
með ráðningu Arnar Harðarsonar
í stöðu dagskrárgerðarmanns og
Bjarna Felixsonar i stöðu íþrótta-
fréttamanns, beggja við sjónvarp-
ið.
Utvarpsstjöri tekur ákvörðun
um ráðningu í stöður þessar, en
venja er að Utvarpsráð fjalli um
umsóknir áður.
HJÓNIN Sigrún Guðjónsdóttir og
Gestur Þorgrímsson opna f dag
ásamt Guðnýju Magnúsdóttur
sýningu á leirmunum af ýmsu
tagi f vinnustofu þeirra hjóna að
Laugarásvegi 7. Hjónin Sigrún og
Gestur eru fyrir löngu kunn af
listmunagerð sinni og þá ekki sfzt
fvrir ýmsar nýjungar, sem þau
hafa reynt f leirmunagerð. Guðný
lauk námi við Myndlista og hand-
íðaskóla tslands fvrir tveimur ár
um og hefur sfðan haft aðstöðu á
vinnustofu Sigrúnar og Gests.
Auk leirmuna getur á
sýrtingunni að líta öll þau tæki
sem til leirmunagerðar þarf s.s.
ofna. Á annað hundrað verk eru á
sýningunni og má þar nefna vegg-
myndir, vasa og brjóstmyndir. Til
að gefa sýningargestum innsýn í
fjölbreytileika leirmunagerðar
eru á sýningunni verk unnin með
gamalli japanskri brennsluaðferð
og önnur þar sem öskuglerjungur
er notaður sem bætiefni í
glerjungi.
Sýningin verður eins og áður
sagði opnuð í dag og opin til
laugardagsins 2. júlí. Daglega
Loðnuverð miðað
við fituinnihaldið
Verö
25.315
8 rása stereo
verður sýningin opin frá klukkan
14 til 22.
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lág-
marksverð á loðnu veiddri til bræðslu frá og með 16. júní til 31.
desember 1976. Verðið er miðað við fituinnihald loðnunnar sem hér
segir.
Að4% fituinnihald. hvert kg kr. 4.00
4% að6% fituinnihald. hvert kg kr. 4.40
6%að8% fituinnihald. hvert kg kr. 5.10
8% að 10% fituinnihald, hvert kg kr. 5.70
10% að 12% fituinnihald. hvert kg kr. 6.40
12% ogyfir fituinnihald, hvert kg kr. 7.20
Fituinnihald hvers loðnufarms skal ákveðið — með töku sýna — af
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Verðið miðast við loðnuna komna í
löndunartæki verksmiðju. Ekki er hoimilt að nota dælu eða hlanda
vatni eða sjó í loðnuna við löndun.
Verðið er uppsegjanlegt frá og með 1. ágúst og sfðan með viku
fyrirvara.
• St VOL
ot■
l 2000—15B0-------1000 m
M 550=450*50—250=200—m
ff \ \ Verö
9.733