Morgunblaðið - 19.06.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.06.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JUNÍ 1976 Ilússein Jórdanfukonungur. Hussein kaupir eldflaugar í Sovét Moskva 18. júni Reuter. HUSSEIN Jórdaníukonungur sem er i heimsókn i Moskvu þessa dagana, ihugar að festa kaup á sovézkum loftvarnaeldflaugum og mun ræða um málið við leiðtoga Sovétríkjanna í dag og mun yfir- maður flotans, Kutakhov mar- skálkur taka þátt i þeim viðræð- um. Hussein kom til Sovétríkj- anna í gær og verður í ellefu daga í landinu. Kutakhov marskálkur var í Jórdaníu fyrir mánuði og munu byrjunarviðræður um vopnakaup Jórdana frá Sovétríkjunum þá hafa hafizt. Jórdanir hafa fram að þessu aðallega treyst á Bandarík- in eða Bretland í vopnabúnaði, en munu þeirrar skoðunar að Hawk- eldflaugakerfið bandaríska sé þeim of dýrt. ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja í allmiklar vatnsveituframkvæmd- ir í Ása- og Holtahreppum nú á næstunni og eru framkvæmdir að hefjast við fyrsta áfanga, en í hann verður vatnið tekið hjá Bjálmholti og leitt um suðurhluta Holtahrepps, og um þéttbýlis- kjarna að Rauðalæk og suður- hluta Ásahrepps í Áshverfi og ef til vill lengra. Víða hefur verið erfitt með vatn á þessum slóðum og bætir þessi vatnsleiðsla úr brýnni þörf. Sjálfrennsli verður um leiðsluna enda hæðarmunur LEIÐRÉTTING I FRÉTT um Winston-skákmótið í Mbl. sagði, að þátttakendur hefðu verið hátt á þriðja hundrað og hálf milljón króna í boði. Þetta er ekki rétt, þátttakendur voru rúm- lega 80 talsins og verðlaunin 250 þúsund krónur. — Fjáröflun Framhald af bls. 2 lýðsstarf, barnastarf, kynningar- kvöld, hljómleikahald og alls kyns sýningar. Þegar á þessu ári er fyrirhugað náið samstarf kirkj- unnar og Æskulýðsráðs Reykja- víkur um starfrækslu sérstakrar félagsmiðstöðvar fyrir hið fjöl- menna hverfi undir sameiginlegri stjórn Reykjavíkurborgar og Bústaðakirkju, en þegar lokið er að fullgera hið nýja félagsheimili eykst öll aðstaða til félagslegrar starfsemi. Forráðamenn Bústaða- kirkju treysta því, að þeir sem fá send umrædd gjafabréf muni taka þeim með vinsemd og skiln- ingi til að takast megi hið fyrst-a að ná hinu langþráða lokamarki. Sóknarprestui' Bústaðakirkju er sr. Ólafur Skúlason, formaður sóknarnefndar er Ásbjörn Björnsson og afnaðarfulltrúi Otto-A. Michí o Gjaldkeri og formaðtir f " arnefndar er Ingvarf Sáðu í verk- smiðjusvæðið á Grundartanga 50 manna hópur úr nær- sveitum Grundartanga kom saman á Grundar- tangasvæðinu síðdegis á 17. júní til þess að mót- mæla byggingu járnblendi- verksmiðjunnar. Fólkið sáði þar grasfræi í nokkurn hluta þess svæðis sem búið er að ryðja og einnig tók það niður skilti með áletrun íslenzka járn- blendifélagsins, en skilti þetta er nokkrir fermetrar á stærð. Rubin loks í ísrael Tel Aviv 18. júní AP. SOVÉZKI andófsmaðurinn Vitalv Rubin kom til ísraels f dag og sagði hann að brottflutningur sovézkra Gyðinga „markaði vfir- vofandi hrun sovézkrar heims- veldisstefnu". Rubin var leyft að fara frá Sovétrfkjunum, eftir að| hann hefur barizt fyrir þvf f fjög-! ur ár að fá að fara úr landi. Rubin var lengi framan af bannað að fara úr landi á þeirri forsendu að hann gegndi þýðingarmiklu starfi og væri því ekki stætt á því að hann, sem hefði hlotið menntun sína i Sovét- rikjunum, flyttist síðan á brott úr landinu. allmikill. Notuð verða plaströr frá Reykjalundi og er verulegur hluti þeirra kominn austur og verður byrjað að sjóða saman rörin á næstunni. Áætlað er að þessi fyrsti áfangi kosti yfir 30 milljón- ir. Gerð hefur verið áætlun um tvær aðrar vatnsveitur í ofanverð- um fyrrnefndum hreppum og verður þá vatnið tekið úr öðrum vatnsbólum. M.G. — Uppreisn svertingja Framhald af bls. 1 misrétti má hvergi eiga sér stað,“ sagði Waldheim. Fjöldamörg blöð fjalla og um málið í leiðurum í dag og for- dæma stjórn Suður-Afríku. Telja þau að stefna stjórnarinnar hafi hoðið þessum uppreisnaraðgerð- um heim og þær aðferðir sem stjórnin hefur skipað að verði beitt til að bæla niður uppreisn- ina séu svo harðneskjulegar að almenningsálitið í heiminum hljóti að sameinast um að for- dæma þær. Fulltrúar Afríkuríkja hjá Sam- einuðu þjóðunum komu saman til skyndifundar i dag til að ræða ástandið í Suður-Afríku og voru fregnir á kreiki um að þeir myndu fara þess á leit að Öryggis- ráðið kæmi saman til aukafundar. Þá er með öllu óvíst hvort af því verður að þeir Vorster og Henry Kissinger, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hittist I Vestur- Þýzkalandi í næstu viku, eins og áformað var. Ætlun þeirra var að ræða sérstaklega Ródesíumálið. Þýzka blaðið Stiddeutsche Zeit- ung sagði í dag, að það væri æski- legra að Vorster léti það vera að koma til Vestur-Þýzkalands, eins og málum væri nú háttað i heima- landi hans. Sjónarvottar í grennd við So weto segja, að ástandið í bænum sé ólýsanlegt. Þar fari ungir svert- Vél af geröinni BRONS — Skipavéla- verksmiðja Framhald af bls. 32 um vélum miðað við það sem er í Hollandi. Utseld vinna hjá okkur er um 1000 kr., en i Hollandi um 3000 kr. Reiknað er með 3000 kl.st. i samsetningu á 1000 ha vél og þetta þýðir 3 millj. kr., en I HoIIandi er þessi kostnaður um 9 millj. ísl. kr. Verð á 750 ha vél er nú um 28 millj. kr. með skipti- og skrúfubúnaði en 57—63 millj. á fullum búnaði 2000 ha vélar en skrúfu- og skiptibúnaður er um 30—35% af verðinu. Það er reiknað með að 1 maður setji saman eina 1000 ha vél á ári.“ Magnús kvað þetta verkefni geysilega spennandi, bæði varðandi atvinnuuppbyggingu og gjaldeyrissparnað. Sömu hlutir passa í þessar vélar á stærðunum frá 700—2000 ha og er það lykillinn að þessari fram- leiðslu, aðeins er munur á stærð vélanna eftir hestaflafjölda Þetta er 5. landið sem Brons- verksmiðjurnar selja ósamsettar vélar til, en hins vegar er sam- vinna á milli framleiðenda í þess- um löndum um sölu vélanna. — Þorlákshöfn Framhald af bls. 14 konan var Guðrún S. Sigurðar- dóttir kennari. Klukkan 16.30 hófst svo handbolti stúlkna á skólavellin- um, tunnuhlaup, boðhlaup, reiptog og fleira. Börn staðar- ins notuðu tækifærið og fóru á hestbak hjá hestamönnum hér á staðnum, sem lánuðu hesta og aðstoðuðu börnin við reið- mennskuna. — Ragnheiður. ingjar um rænandi og ruplandi og kveiki í húsum, bílum og skólum. Séu þeir vopnaðir og ráðist á hvað sem fyrir verði. Lögregla reyndi að einangra Soweto í morgun, en það tókst ekki nema að hluta og réðst þá lögreglan inn í bæinn með skothrið og féllu þá og særð- ust margir til viðbótar þeim sem höfðu látizt í gær og fyrradag. Verulegur ótti hefur gripið um sig meðal hvítra manna og voru langar biðraðir við skotfæra- verzlanir i Jóhannesarborg í morgun og keyptu menn þar skammbyssur og riffla eins og þeir gátu fengið. í fréttum i kvöld sagði að það yki enn á ringulreiðina og hörm- ungarnar að uppreisnarmenn deildu innbyrðis og væri hver höndin upp á móti annarri. Greindi menn á hversu langt skyldi gengið. Þá væri svo komið að uppreisnarmenn hefðu látið greipar sópa um allar áfengisbúð- ir i Soweto og víðar þar sem átök- in hafi blossað upp. Væru margir drukknir og enn trylltari en áður. Um tíma í gær var álitið að óeirðalögreglu hefði tekizt að kæfa óeirðirnar en þegar leið að dögun í morgun var síðan ljóst að svo var ekki. Sögðu sumir svert- ingjar við blaðamenn að þeir hefðu margeflzt í andstöðu sinni vegna þeirra grimmilegu aðgerða sem lögreglan hefði sýnt, og væri ekki hægt að orða það á annan veg en þann, að lif hefði verið murkað úr svertingjunum án til- lits til þess hvort þeir létu að sér kveða i átökunum eða ekki. r — Italía Framhald af bls. 1 eins að einhvers konar samstaða náist við kommúnistaflokkinn um stefnuna. Þessu hafa kristilegir demókratar hafnað og hafa ýmsir orðið til að spá því að úrslit kosninganna gætu leitt til þvílíks þráteflis, að stjórnarmyndun yrði sem næst óframkvæmanleg. Allir flokkarnir hafa farið mjög gætilega í það í kosningabarátt- unni að spá um niðurstöður kosninganna og kommúnistar alveg sérstaklega. Hafa þeir ekki fengizt til að gefa yfirlýsingu um að þeir hefðu trú á að þeir fengju meira nú en þau 32% sem þeir fengu I bæjar- og sveitarstjórnar- kosningunum í landinu á síðast- liðnu sumri. Það.eina sem allir flokkar hafa verið sammála um er að niðurstöður kosninga til ítalska þingsins hafi aldrei verið jafn óvissar og nú. Málgagn Páfagarðsins hvatti í dag til að menn kysu kristilega demókrata og sagði að sá flokkur væri hinn eini sem gæti barizt af einhverri alvöru gegn yfirráðum og áhrifum kommúnista. — Bogatyrov Framhald af bls. 1 Bogatyrov var góður vinur vestur-þýzka rithöfundarins Heinrichs Böll og var um þessar mundir að. vinna að þýðingum á ljóðum Rainer Maria Rilke. Hann hafði lengi fengizt við þýðingar, einkum úr þýzku, og þær aflað honum mikillar viðurkenningar. — Brúðkaupið Framhald af bls. 1 dýrar og merkar gjafir frá mörgum öðrum, megi þó ganga út frá þvf sem nokkurn veginn gefnu að Sylviu hafi þótt niður- staða Gallupskoðanakönnunar bezta brúðargjöfin. Þar kom í ljós að 70% Svía eru ánægð með val Karls Gústafs og binda vonir við drbttningu sína. Aðeins 1% kvaðst ekki hlynnt málinu. Kemur þessi niðurstaða nokkuð á óvart, þar sem andstaða gegn konungdæminu hefur verið talin allveruleg og ef til vill vaxandi í Svíþjóð á allra síðustu árum, eða þar til konungur birti trúlofun sína og Sylviu. í dag var greint frá því að Sylvia sem er þýzk-brasilísk, hefði nú fengið sænskan rikis- borgararétt og var málinu hraðað meira en venja er vegna þess hvernig háttað var málum. — Líbanon Framhald af bls. 1 ástandsins í Líbanon. Sagði full- trúi forsetans, að hann hygðist standa í stöðugu sambandi við sendiráðið í Beirút og hafa hönd í bagga með flutningum banda- riskra borgara þaðan. Hafez Assad, forseti Sýrlands, er í tveggja daga opinberri heim- sókn i París. Hann sagði á fundi með fréttamönnum í dag, að skoð- un sin væri sú, að Arabar væru færir um að binda enda á borgara- styrjöldina í Líbanon, en slíkar málalyktir væru forsenda þess að komið yrði i veg fyrir íhlutun fleiri þjóða í landinu. Assad vildi ekki ræða afstöðu Frakka gagn- vart íhlutun Sýrlendinga I Líbanon, en hann sagðist ekki vita til að sambúð Sýrlendinga við aðrar Arabaþjóðir væri erfiðleik- um bundin. Engin blóðug átök hefðu átt sér stað milli Araba- þjóða. I Líbanon hefði komið til átaka milli ýmissa hópa Pales- tinuaraba, en ekki Sýrlendinga annars vegar og andspyrnuhreyf- ingar Palestinuaraba hins vegar. Valery Giscard d'Estaing Frakklandsforseti fagnaði Assad við komuna til Parisar. Lét hann svo um mælt við fréttamenn, að Frakkar væru enn reiðubúnir til að senda friðargæzlusveitir til Libanons. Ennfremur sagði hann Frakka fúsa til milligöngu í deil- unni, og sagði m.a. koma til greina að Frakkar efndu til leyni- legra viðræðna um málið. Talið er, að í viðræðum sínum við Assad muni Frakklandsforseti fara fram á stuðning hans við slikan viðræðufund. — Norðurlanda- ráðsnefnd Framhald á bls. 18 sem slík samvinna á sviði menn- ingarmála væri einsdæmi i sam- skiptum þjóða. Á vegum Menningarmálanefnd- arinnar eru reknar fjölmargar stofnanir þar af tvær í Reykjavík: Norræna húsið og Eldfjallastöðin. Taldi Gylfi að hlutfallslega fengi Reykjavík því meira út úr sam- vinnunni en nokkur önnur borg á Norðurlöndum. Nefndin hefur lagt áherzlu á að komið yrði upp norrænu húsi i Þórshöfn í Fær- eyjum og hefur fyrsta fjárveiting- in til þeirra framkvæmda verið ákveðin. Þá hefur nefndin beitt sér fyrir uppkomu menningar- miðstöðvar I Finnlandi og komið á fót þýðingarmiðstöð fyrir Norður- lönd þar sem áætlanir fyrir næstu þrjú ár liggja nú þegar fyrir. Er hér um að ræða mikið hagsmuna- mál fyrir bókmenntastarfsemi á Norðurlöndum og er sérstaklega þýðingarmikið fyrir tsland, Fær- eyjar og Finnland. — Stjórnar- myndun Framhald af bls. 11 SKIPTING I DEILDIR ítalska þinginu er skipt i tvær deildir, Fulltrúadeild og Öldunga- deild, og er kosið sérstaklega i hvora deild fyrir sig ( Fulltrúadeild sitja 630 þingmenn kjördæmakosnir, en i Öldungadeild helmingi færri, eða 315, sem ksonir eru í héruðum ítaliu, 20 að tölu, eftir íbúafjölda. Eftir siðustu þingkosningar skipt- ust þingsætin þannig milli flokk- anna: •3 05 í — 3 '5 u. -o Öldun deild Kristilegir demókratar 267 135 Kommúnistar 1 79 80 Sósíalistar 61 33 Sósíaldemókratar 29 1 1 Ný-fasistar og konungssinnar 56 26 Frjálslyndir 20 8 Republikanar 15 5 Suður-Ayrólski flokkurinn 3 2 Aðrir 4 Erfitt er að spá um úrslit itölsku kosninganna. en flestum ber saman um að mjótt verði á mununum milli kristrilegra demókrata og kommún- ista. Er þá Ijóst að stjórnarmyndun verður erfið meðan leiðtogar kristi- legra demókrata neita allri samvinnu við kommúnista, en sósialistar hafna þátttöku i stjórn án kommúnista Eins og Ugo La Malfa, formaður repúblikanaflokksins, sagði ..Við verðum að horfast i augu við það að engin stjórnarmyndun verður mögu- leg.” (Heimildir AP, NTB, Reuter ofl.) — Tónlist fyrir Framhald af bls. 5 kór Reykjavikur það er byggt á joikm- þjóðlagi úr Samabyggðum og er textinn um þorp og bæi á Finnmörku Verk þetta er einnig samið að tilhlutan NOMUS eins og flest hin fyrri. Fyrri hluti tónleikanna á morgun verður i Háteigskirkju en i hléinu verður gengið niður á Kjarvalsstaði og þar fer seinni hluti tónleikanna fram Um verk Gunnars Reynis og flutning leiklistarskólanema á sunnudag er getið sérstaklega i blaðinu i dag. — Ford og Reagan Framhald af bls. 10 kosninganna í febrúar var mjög stór hópur manna i framboði, en þeii hafa nú allir utan einn viðurkennt ósigur sinn fyrir Carter og munu flestir spenntir fyrir þvi að hljóta útnefningu i varaforsetastólinn. Bayh, Bentsen, Harris, Byrd, Jack- son, Sanford, Church, Brown, Shriver, Shapp, Udall og Wallace eru allir i þessum hópi, en Hubert gamli Humphrey er sagður endan- lega úr leik Vatnsveita í Ása- og Holtahreppi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.