Morgunblaðið - 19.06.1976, Síða 31

Morgunblaðið - 19.06.1976, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JUNI 1976 31 NN REVIE AICTOIUR ÍSLENZKA LAMISLIIIID — ÉG hafði mjög mikið gagn af þvi að fara til Finnlands og sjá Finna leika gegn Englendingum siðasta laugardag. sagði Tony Knapp landsliðsþjálfari er Morgunblaðið ræddi við hann I gær. — Auk þess sem ég komst að mörgu merkilegu I sambandi við leik Finnanna, þá ræddi ég lengi við Don Revie enska lands- liðseinvaldinn og fékk þá punkta sem hann hafði tekið niður um leik þeirra. Hann ætlar einnig að senda mér upplýsingar um Hol- lendinga. en Revie sá þá leika gegn Tékkum á miðvikudaginn. Þá er ekki óliklegt að enski lands- liðseinvaldurinn komi hingað til lands f haust og sjái okkur leika gegn Hollendingum á Laugardals- vellinum, sagði Knapp. — Finnarnir eru með mjög sterkt lið og þeir voru óheppnir að tapa 4:1 fyrir Englendingum, þær tölur gefa ekki rétta mynd af leiknum. Finnska liðið er mun sterkara en það norska og það verður erfitt að mæta þeim á hin- um glæsilega Iþróttaleikvangi i Helsinki þann 14. júli. Finnska liðið er skipað leikmönnum. sem eru tæknilega svipaðir Norðmönn- um. en þeir eru miklu sterkari Ifkamlega, hélt Knapp áfram. Aðspurður um leik islenzka landsliðsins -“gn Færeyingum á miðvikudaginn sagði Knapp að hann væri ánægður með útkom- una úr þeim leik. Fimm leikmenn léku þá sinn fyrsta landsleik, þeir Viðar Halldórsson og Ólafur Danivalsson úr FH og Vals- mennimir Guðmundur Þorbjöms- son, Atli Eðvaldsson og Vilhjálmur Kjartansson. Léku þvi allir þeir leikmenn sem fóru til Færeyja. að Þorsteini Ólafssyni undanskildum. Eins og frá var greint I Morgun- blaðinu á fimmtudaginn endaði leikurinn með 6:1 sigri fslenzka liðsins og skoruðu þeir Matthlas Hallgrfmsson, Teitur Þórðarson. Jón Gunnlaugsson. Ólafur Danfvalsson og Guðmundur Þor- bjömsson (2) mörk íslenzka liðs- ins, þeir tveir síðastnefndu ! sfn- um fyrsta landsleik. j leikhléi var staðan 1:1 og hafði fyrri hálfleikurinn einkennzt af mikilli baráttu og nokkuð jöfn- um leik i seinni hálfleik breytti fslenzka liðið um leikaðferð. úr 4-3-3 f 4-4-2, og gekk það ólfkt betur. Liðið skoraði þá 5 mörk og átti mörg góð tækifæri, sem ekki nýttust. Sagði Tony Knapp f við- talinu f gær að færeyska liðið hef ði sýnt miklar framfarir frá þvf f fyrra og hann hef ði þurft að byrsta sig hressilega f leikhléi til að fá fslenzku leikmennina til að taka virkilega á. Það er athyglisvert að f fslenzka landsliðshópnum sem lék I Færeyjum, eru 11 ný andlit frá leiknum við Færeyinga 1974. Þá má einnig geta þess, að siðan Tony Knapp tók við landsliðinu 1974 hafa 40 leikmenn verið valdir ! landsliðshópinn. í blaðagrein f vikunni var vikið af þvf að sá tfmi sem framundan væri yrði þægilegt sumarfrf fyrir Tony Knapp þar sem engir a- landsleikir væru á næstunni nema leikurinn við Finna. Tony Knapp var spurður að þvf i gær hvað hann vildi segja um þetta. — Þetta er eins og hver önnur vitleysa og sá tfmi sem I hönd fer verður sennilega erfiðasti tlminn á árinu fyrir mig, sagði Knapp. Ef við tökum fyrst a-landsliðið þá þarf að undirbúa það fyrir leikinn við Finna og þó svo að við fáum ef til vill ekki margar æfingar fyrir leikinn þé þarf að fylgjast með leikjum þvl margir leikmenn koma Tony Knapp: Sumir nota að- stöðuna hjá fjölmiðlum til að ota sfnum tota. til greina og auk þess eru atvinnu- mennimir okkar ekki I þjálfun þannig að ég er meira en fús til að þjálfa þá fyrir leikinn, þvf ekki fara þeir f hann æfingalausir. — Unglingalandsliðið 16—18 ára tekur þátt f Evrópukeppninni I ár eins og undanfarið og fara fyrstu leikirnir fram f október. Þetta lið þarf að velja og æfa og byggja þar upp alveg nýtt landslið þvf piltamir sem léku f Ungverja- landi em flestir orðnir of gamlir. i byrjun ágúst fer fram hér á landi norræn unglingakeppni pilta yngri en 16 ára og þetta lið þarf að sjálfsögðu að undirbúa fyrir keppnina. — Þá er Ijóst að ég fer bæði austur á land og vestur á Firði til að halda þjálfaranámskeið og ræða við knattspyrnumenn og þetta tekur sinn tfma, sem menn virðast ekki gera sér grein fyrir. Auk þess er enn von um að við fáum leik fyrir a landslið hér á landi I ágúst, e.t.v. gegn Luxem- bourg, Pólverjum eða Rússum. — Ég er þegar búinn að horfa á fleiri fótboltaleiki I sumar til að reyna að sjá út væntanlega lands- liðsmenn heldur en f fyrra og hitt- eðfyrra. Þetta sýnir sig kannski bezt með þvl að fleiri leikmenn hafa nú fengið tækifæri með landsliðinu en áður. Það eru ekki bara leikir f 1. deildinni sem þarf að fylgjast með. heldur einnig ! 2. deild sem hefur marga góða leik- menn, og 2. og 3. flokki vegna unglingaliðanna. Það má hver kalla þetta sumarfrf sem vill, en I samningum mfnum við KSÍ var talað um að ég fengi tfma til að fara á „senior" þjálfaranámskeið f Englandi f næstu viku. en þvf mið- ur fæ ég ekki séð hvernig ég á að komast þangað. Að lokum var Knapp spurður hvað hann viidi segja um ummæli Bjama Felixsonar f sjónvarpi sfð- astliðinn mánudag en þar sagði Bjami að Knapp hefði frekar átt að hafa æfingar fyrir landsliðið um helgina en aðfara til Finnlands til að sjá Finna leika varnarleik gegn Englendingum. Um þetta hafði Knapp eftirfarandi að segja: Sumt fólk virðist mér nota aðstöðu sfna hjá fjölmiðlum til að ota sfnum tota. Hvernig í ósköpunum átti að vera mögulegt að hafa landsliðs- æfingar um sfðustu helgi? Leikir i 1. deildinni voru á föstudegi, laug ardegi, sunnudegi og þriðjudegi og þó ég hefði feginn viljað fá landsliðsæfingu þá sá ég mér ekki tært að koma henni fyrir, þv! mið- ur. — áij. WÚÐVERJAR WRll VÖRJI í SÚKN EKKERT virðist geta komið vestur- þýzku heimsmeisturunum i knatt- spyrnu úr jafnvægi í fyrradag unnu þeir það frækilega afrek I undanúrslita- leik sfnum við Júgóslava I Evrópu- bikarkeppninni í knattspyrnu að vinna upp tveggja marka forskot Júgóslavanna og sigra síðan með tveggja marka mun eftir framlenging- una Verða það þvf Vestur-Þjóðverjar og Tékkar sem leika til úrslita um Evrópumeistaratitilinn. en flestir höfðu búizt við því að úrslitaliðin i slðustu heimsmeistarakeppni, Þjóðverjar og Hollendingar. myndu kljást um titilinn En eins og skýrt hefur verið frá f Morgunbtaðinu töpuðu Hollendingar fyrir Tékkum I undanúrslitaleik 1 — 3, þannig að draumur þeirra um hefndir fyrir ósigurinn f sfðustu heimsmeistara- keppni rætist ekki hjá þeim að sinni Leikur Vestur-Þýzkalands og Júgóslavfu fór fram I Belgrad og voru áhorfendur þar um 70 þúsund og létu mjög til sfn taka til hjálpar heimaliðinu Ætlaði allt vitlaust að verða á áhorf- endapöllunum þegar Júgóslavar náðu tveggja marka forystu i fyrri hálfleik með mörkum Danilo Popivoda og Dragan Dzajic sern komu á 19. og 31. minútu Allan fyrri hálfleikinn var Júgóslavneska liðið miklu atkvæða- meira en heimsmeistararnir og máttu þeir reyndar þakka fyrir að fá ekki fleiri mörk á sig i hálfleiknum. í upphafi seinni hálfleiksins var leik- urinn mjög svipaður og I fyrri hálfleik, eða allt fram á 65. mfnútu er Þjóðverj- um tókst að skora heppnismark sem mun bókast á Beer Þegar 6 mfnútur yoru til leiksloka skipti þjálfari Þjóðverjanna Wimmer út af og setti Dieter Múller inn á i hans stað. Átti þessi breyting á liðinu eftir að valda straumhvörfum, þar sem Múller var ekki búinn að vera inn á nema eina minútu er hann sendi knöttinn i mark Júgóslavanna og jafnaði 2—2. i fram- lengingunni skoruðu Þjóðverjar svo tvö mörk til viðbótar og gerði Múller annað þeirra. Úrslitakeppnin fer fram nú um helgina. í dag leika Hollendíngar og Júgóslavar um þriðja sætið I keppninni og á morgun leika Vestur-Þjóðverjar og Tékkar til úrslita. Keppt um titla og að Ólympíulágmörkum AÐALHLUTI Sundmeistaramóts tslands fer fram f Laugardals- sundlauginni nú um helgina, og hefst keppni kl. 15.00 ( dag og verður sfðan fram haldið á sama tíma á morgun. Allt bezta sundfólk landsins verður meðal þátttakenda ( mótinu, og reynir við Ólymp(ulágmörkin ( greinum sfnum. Að undanförnu hafa tvær stúlkur, Þórunn Alfreðsdóttir og Vilborg Sverrisdóttir, aðeins verið hársbreidd frá þvf að ná lágmörkunum, og er ekki ótrúlegt að þær nái settu marki á mótinu nú um helgina. Hingað til hefur aðeins einit'' sundmaður, Sigurður Ölafsson úr Ægi, náð .Ólympíulágmarkinu. Vilborg Sverrisdóttir — fær gott tækifæri til að ná Ol.vmpíulágmark- inu á sundmeistaramótinu um helgina. Vilborg var aðeins 4/10 nr sekúndo frá Úlympínláparkinu VILBORG Sverrisdóttir SH, var aðeins 4/10 úr sekúndu frá Olvmpúulágmarkinu f 200 metra skriðsundi, er hún svnti á 2:15,4 mfn. á Islandsmeistaramótinu f sundi sem hófst í Laugardals- sundlauginni á miðvikudags- kvöldið. Bætti hún eldra lslands- metið f greininni verulega. en það var 2:16,7 mfn. Er Vilborg greini- lega f mjög góðu formi um þessar mundir og Ifkleg til afreka á næstunni. Þórunn Alfreðsdóttir var einnig skammt frá Olympíu- lágmarkinu f 200 metra flugsundi á miðvikudagskvöldið. en það synu hún á 2:30,1 mfn., en lág- markið er 2:29,0 mfn. I meistaramótsgreinunum þremur sem keppt var I á miðviku dagskvöldið urðu úrslit þau, að Sigurður Ólafsson, Æ, varð Is- landsmeistari í 1500 metra skrið- sundi á ágætum tfma, 17:41,0 mín. Annar f sundinu varð Axel Alfreðsson, Æ, á 18:02,0 mín., Brynjólfur Björnsson .4, varó* þriðji 18:12,8 og Arni Evþórsson varð fjórði á 18:13,8 mfn. I 800 metra skriðsundi kvenna sigraði Bára Ólafsdóttir, A, á 10:15,8 mín. Hrefna Rúnarsdóttir Æ, var önnur á 10:45,3 mfn. og Sonja Hreiðarsdöttir, IBK, varð þriðja á 11:33,9 mfn. 1 400 metra bringusundi karla sigraði sundmaður sem lítið hefur hevrst frá áður. Sá heitir Hreinn Jakobsson og keppir fyrir Armann. S.vnti hann á 5:55,8 mín. Annar í sundinu varð Hermann Alfreðsson, Æ, á 5:56,3 mfn. og Sigmar Björnsson, IBK, varð þriðji á 6:05,9 mín. Þórunn Alfreðsdóttir — setti ágætt Islandsmet f 200 metra flugsund- inu. ÞÓRllW SETTIMET í 200 M FLHDI EITT Islandmet leit dagsins ljós á þjóðhátfðarmótinu f sundi, sem fram fór f Laugardalslauginni f fyrradag. Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi, setti nýtt met f 100 metra flugsundi kvenna, sem hún synti á 1:09,8 mfn. Sjálf átti hún eldra metið og var það 1:10,0 mfn. Skortir Þórunni nú aðeins herzlu- muninn á að ná Olympfulág- marki, og má ætla að henni takist að ná þvf á Islandsmótinu f sundi sem fram fer nú um helgina. Þórunn fékk mjög ákjósanlega keppni í flugsundinu, þar sem Bára Ólafsdóttir, Á, kom á óvart meö því að fylgja henni mjög vel eftir, unz skammt var í markið. Synti Bára á 1:11,8 min. Vilborg Sverrisdóttir, SH, var ekki langt frá Islandsmetinu í 100 metra skriðsundi kvenna, sem hún synti á 1:03,6 mín. í þvf sundi varð Bára önnur á ágætum tfma 1:05,4 mfn. og Þórunn Alfreðs- dóttir varð þriðja á 1:06,6 min. í 100 metra skriðsundi karla varð Sigurður Ólafsson, Ægi, hinn öruggi sigurvegari, synti á 57,2 sek. Annar varð Axel Alfreðsson, Æ, á 59,2 sek. og Árni Eyþórsson, Á varð þriðji á 59,7 sek. í 100 metra flugsundi bar Axel Alfreðsson svo sigur úr být- um, synti á 1:05,2 min. Annar varð Árni Eyþórsson á 1:06,2 mín., Sigurður Ólafsson varð þriðji á 1:07,1 mín. og fjórði á sama tima varð Brynjólfur Björnsson, Á.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.