Morgunblaðið - 03.07.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1976
Líklegt að Islend-
ingar geti aukið
hrefnuveiðar nú
VIÐR/EÐUR milli Islendinga og
Norðmanna um skiptingu hval-
veiðikvótans, sem Hvalveiðiráðið
ákvað, eru enn ekki hafnar. Hér
er um að ræða hrefnuveiðar, sem
Strætisvagn og
4 bílar í árekstri
AREKSTUR varð siðdegis í gær á
gatnamótum Bankastrætis og
Þingholtsstrætis. Þar var bifreið
ekið inn á akrein strætisvagnanna
í veg fyrir strætisvagn. Kastaði
vaginn bilnum niður Banka-
strætið og lenti hann á öðrum
bílum, þannig að samtals voru 5
bílar í þessum árekstri og
skemmdust allir talsvert og sumir
mikið.
í árekstri þessum rann bensín
út um alla götu og varð slökkvi-
liðið að koma á vettvang og
hreinsa götuna, svo að ekki yrði
hætta á að eldar kviknuðu.
Norðmenn og tslendingar hafai
nær eingöngu stundað á N-
Atlantshafi. tslendingar hafa
undanfarin ár veitt um 100 til 150
hrefnur, en Norðmenn hafa veitt
1700 til 1800 hrefnur.
Samkvæmt upplýsingum Þórð-
ar Ásgeirssonar, skrifstofustjóra í
sjávarútvegsráðuneytinu, er ekki
búizt við því að íslendingar verði
afskiptir í skiptingu kvótans fyrir
árið 1976. Sú breyting hefur orðið
á skipulagi veiðanna frá því í
fyrra, að nú er ekki gert ráð fyrir
einu stóru svæði á Norður-
Atlantshafi, heldur er því skipt
niður i mörg smærri svæði. ís-
lendingar falla inn í svæðið sem
nefnt hefur verið Austur-
Grænland og island. Þórður sagði
að löndin myndu skiptast á upp-
lýsingum um þetta mál og jafnvel
væri búizt við að islendingar
myndu geta aukið veiðar sínar,
þar sem hluti norsku veiðisvæð-
anna hefði nú orðið innan 200
mílna fiskveiðilögsögu islendinga
og því gætu Norðmenn ekki veitt
þar áfram sem áður.
Arangurslaus sáttafund-
ur með verkfræðingum
SÁTTASEMJARí ríkisins átti í
gær fund með samninganefnd
Verkfræðingafélags tslands og
samninganefnd Reykjavíkur-
borgar vegna kjaradeilu verk-
fræðinga við borgina, en undan-
farið hafa tveir verkfræðingar
hjá byggingafulltrúanum í
Reykjavík verið í verkfalli og hef-
ur þar með stöðvazt að mestu öll
afgreiðsla á teikningum frá skrif-
stofu byggingafulltrúans. Eund-
urinn í gær varð árangurslaus og
hefur ekki verið boðað til nýs
fundar með deiluaðilum.
Gunnar H. Gunnarsson, formað-
ur samninganefndar Verk-
fræðingafélagsins, sagði að deilu-
aðilar hefðu setzt að samninga
borðínu hjá sáttasemjara klukkar.
13,30 í gær. Hann kvað verkfræð-
ingana hafa lækkað kröfur sínar
þrisvar, en hins vegar hefði
Reykjavíkurborg lækkað sitt til-
boð. Hann kvað ekki hafa verið
grundvöll til frekari viðræðna um
deiluna, þegar þetta hefði verið
haft í huga og eins þegar báðir
aðilar neituðu að gera nokkuð í
málinu. „Við lítum svo á að
Reykjavíkurborg eigi leikinn,"
sagði Gunnar.
Aðfararnótt þriðjudags munu
verkfræðingar færa út kvíarnar í
verkfallsmálunum og þykir ein-
sýnt eftir fundinn í gær að nú
komi til verkfalls 5 verkfræðinga
til viðbótar áðurnefndan dag. Er
hér um að ræða verkfræðinga hjá
mælingadeild borgarinnar. Gunn-
ar sagði að verkfræðingum reynd-
ist erfitt að skilja afstöðu borgar-
innar og að hún skyldi standa í
verkfallsbrotum — eins og hann
orðaði það. Hann sagði að líkleg-
ast væri þetta í fyrsta sinn, sem
Reykjavíkurborg stæði fyrir
sliku, en áður hefði hún ávallt
viljað hafa vinsamleg samskipti
við stéttarfélög. Reykjavíkurborg
hefði hins vegar í þessu tilfelli
ekki viljað bjóða sömu kjör og
hinn almenni vinnumarkaður.
„Okkar tilfelli er því algjör
undantekning,“ sagði Gunnar H.
Gunnarsson. „Kjör okkar síðast-
liðið haust voru þau að við vorum
með 20% lægri laun en verkfræð-
ingar á almennum vinnumarkaði
og ef við hefðum tekið tilboði
borgarinnar nú myndi munyrinn
verða um 30%.“
Framhald á bls. 31.
Óskilakind
á 300 kr.
Morgunblaðinu barst nýlega
nýtt eintak af Stjórnartiðind-
um. I því er m.a. að finna nýja
gjaldskrá yfir tilkynningar,
sem birtast eiga í Lögbirtinga-
blaðinu, og gildir hún frá og
með 16. ágúst n.k. Einna dýr-
astar verða tilkynningar um
skrásetningu hlutafélaga og
samvinnufélaga, kr. 5.000.00
Dómsbirting mun kosta kr.
2.400.00, uppboðsauglýsing,
þrjár birtingar, kr. 2.200.00, og
ógildingarstefna kr. 2.400.00.
Minnst kostar að auglýsa
óskilafénað, kr. 300.00 fyrir
hverja kind eða hross.
Frá kröfugöngunni í gær.
Vilja sama kaup og sama vinnutíma:
KRAKKAR í UNGLINGA-
VINNUNNI í KRÖFUGÖNGU
UNGIR Kópavogsbúar sem
starfa við unglingavinnuna f
Kópavogi héldu fylktu liði á
bæjarskrifstofuna f gær og af-
hentu þar bréf, þar sem farið er
fram á ýmsar úrbætur á málum
þeirra.
Að sögn Jóns Guðlaugs
Magnússonar, bæjarritara í
Kópavogi, eru það fyrst og
fremst launin sem þau eru
óánægð með. „Ungiinga-
vinnunni er skipt f tvo aldurs-
hópa, börn sem erú fædd ’61 og
’62. Þau yngri hafa 130 kr. á
tímann en þau eldri 145 kr. á
timann og er vinnutími þeirra
lengri. Krakkarnir eru óánægð
með þetta og vilja sama vinnu-
tíma og sama kaup fyrir báða
aldurshópana."
Jón var spurður hvort hann
héldi að hægt væri að koma til
móts við þessar kröfur og sagði
hann þá að kaup í unglinga-
vinnunni í Kópavogi, Reykja-
vík, Hafnarfirði og sennilega
Akureyri væri samræmt og alls
staðar það sama og þvi teldi
hann ekki mikla möguleika á
úrbótum, en hins vegar yrði
bréfið lagt fyrir bæjarráðsfund
á þriðjudag og sjálfsagt væri að
ræða alla möguleika.
Auk þessarar óánægju með
kaupið gerðu krakkarnir
nokkrar kröfur um bætta
aðstöðu.
Lýst eftir ökumanni
á bláum Volkswagen
SLYSARANNSÓKNADEILD lög-
reglunnar f Reykjavík hefur beð-
ið Mbl. að lýsa eftir manni, sem
varð fyrir þvf óhappi að aka á
konu á Nesvegi þriðjudaginn 22.
júnf síðastliðinn. Konan datt f
götuna við áreksturinn, en er öku-
Fálkarnir dafna vel
FÁLKARNIR 5, sem útlendingar
reyndu að smygla út úr landinu,
en heyktust á, er kom að skoðun á
Keflavíkurflugvelli, eru nú f um-
sjá Raunvísindastofnunar Há-
skólans. Magnús Magnússon, pró-
fessor, sagði f viðtali við Mbl. í
gær að fálkarnir döfnuðu vel og
eftir svo sem 2 til 3 vikur kvaðst
hann búast við þvf að farið yrði að
huga að þvf alvarlega að hinir
elztu a.m.k. færu að bjarga sér
sjálfir f náttúrunni.
Komu mennirnir sfðan aftur nið-
ur og óku á brott. Er ekki ljóst,
hvort þeir hafi þarna numið á
brott fálkaunga, en í hreiðrinu
eftir að þeir voru farnir voru 3
ungar. Magnús Magnússon sagði
að ástæða væri til að hvetja fólk
til þess að vera á verði gegn slíku
háttalagi sem þessu.
maður talaði við hana vildi hún
ekki njóta aðsoðar hans og taldi
sig ekki meidda.
Konan, sem er 75 ára gömul,
var að fara yfir Nesveginn, er
dökkbláa Volkswagen-bifreið bar
þar að. Atti konan um það bil 4
metra ófarna yfir götuna, er bif-
reiðin lenti á henni og mun konan
hafa fallið í götuna. Ökumaður
bifreiðarinnar, sem var lágur
vexti, stöðvaði bil sinn og hafði tal
af konunni, sem taldi sig ekki
meidda. Hafnaði hún boði öku-
manns um að aka henni á slysa-
deild Borgarspftalans eða heim til
hennar. Nú hefur komið f ljós að
konan er meidd og er þess vænzt
að ökumaðurinn hafi tal af lög-
reglunni hið fyrsta.
Rannsaka menningarsögu
byggða sunnan Skarðsheiðar
Magnús Magnússon kvað nokk-
uð skiptar skoðanir um það, hvort
nauðsynlegt væri að kenna fugl-
unum að bjarga sér, en hann sagð-
ist sjálfur vera á þeirri skoðun að
nauðsynlegt yrði að aðstoða þá á
einhvern hátt. Nú á næstunni
kvað hann að yrði nauðsynlegt að
koma elztu fálkunum i stærra
húsnæði, svo að þeir geti flögrað
um og styrkt vængvöðvana og
stælt. Þá þurfa þeir og að venjast
því að rífa í sig dauða fugla, en til
þessa hafa þeir aðeins fengið inn-
mat og kjúklinga og annað góð-
gæti. Þá kvað Magnús og nauðsyn-
legt að fálkarnir yrðu ekki um of
hændir að mönnum.
Borizt hafa fréttir úr Vatns-
firði, þar sem fólk segist hafa
orðið þess vart, að fyrir nokkru
stöðvaðist bíll þar á veginum og
hljóp fólk úr honum upp að fálka-
hreiðri, sem þar er. Heyrðist mik-
ill hávaði frá hreiðrinu og virtust
sem hár væri mikió fiaðrafok
NÚ ER hafin rannsókn á
menningarsögu byggða sunnan
Skarðsheiðar, og standa að rann-
sókn þessari nemar og fullnemar
í fornleifafræði, þjóðhátta- og
þjóðfræðum, þjóðfélagsfræðum
og sagnfræðum, alls sex manns.
Athugunin nær tíl minja, svo sem
fornleifa og sögulegra bygginga,
þjóðfræða og þjóðhátta. Reynt
verður að kanna forsendur breyt-
inga 1 atvinnulífi, efnahagsaf-
komu fólks f héraðinu og félags-
legar afleiðingar breyttra at-
vinnuhátta.
Að sögn aðstandenda þessarar
rannsóknar má segja að um
nokkra frumraun þjóðlífsrann-
sókna sé að ræða. Kom fram hjá
þeim, að mjög yfirgripsmikið
verk væri að kanna byggðarsögu
heils byggðarlags eins og nú væri
ætlunin og viðfangsefnið væri
menningarsaga afmarkaðs land-
svæðis, en 1 nágrannalöndunum
hefði sú aðferð svæðiskönnunar
reynzt notadrýgst í mannlifs-
rannsóknum.
í sumar mun einkum unnið að
söfnun gagna um hinn byggðar-
sögulega og minjafræðilega þátt
rannsóknarinnar. Beinist sú
vinna að frumsöfnun ritaðra
heimilda og skipulegri skráningu
þeirra. Hefur verið leitað fanga á
söfnum í Reykjavík, Akranesi og í
Borgarnesi. Þá mun afráðið að
fara í könnunarleiðangur vikuna
3.—9. júli. Reynt verður að afla
upplýsinga um fornar minjar og
aðrar sögulegar leifar, er kunna
að fyrirfinnast á jörðunum. Er
þess vænzt, að með því móti fáist
nokkur mynd af menningarsögu
héraðsins. Jafnframt muni sá
Framhald á bls. 31.