Morgunblaðið - 03.07.1976, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JULÍ 1976
Fyrsta litmyndin afs tjömimn i Mars
MARS-FLAUGIN Víkingur 1. er nú á braut umhverfis stjörnuna
Mars, og reiknað er með að Mars-ferjan Lander lendi á stjörn-
unni eftir hálfan mánuð, laugardaginn 17. júlí.
Meðfylgjandi mynd er tekin úr Víkingsflauginniaf Mars úr 560
þúsund kílómetra fjarlægð, og er fyrsta litmyndin af Mars, sem
leyfð hefur verið birting á. Greinilega má sjá Tharsis fjöllin, röð
þriggja stórra eldfjalla, sem skaga 20 þúsund metra upp yfir
sléttuna umhverfis þau. Olympus Mons, stærsta eldfjall
stjörnunnar, er efst á myndinni. Norður er í átt að efra horni
hægra megin.
Hringlaga svæði neðst á myndinni er gígur eftir loftstein, sem
nefnist Argyre. Svæðið umhverfis er ljósara, sennilega vegna
myndunar kolsýrings-íss á yfirborðinu. Fyrir vestan syðsta
Tharsis eldfjallið (til vinstri) er óreglulegt hvítt svæði, sem sást
úr Víkingsfarinu tvo daga í röð, og er talið vera frosið vatn eða
þoka. Ógreinilegir, Ijósir, hnykklaðir taumar á neðri hluta
myndarinnar eru sennilega ský.
Styrkveitingar Vísindasjóðs 1976
LOKIÐ er veitingu styrkja
Visindasjóðs fyrir árið 1976,
en þetta er 19. starfsár sjóðs-
ins. Fyrst voru veittir styrkir
úr sjóðnum vorið 1958.
RAUNVÍSINOADEILD
Formaður stjórnar Raunvisindadeild-
ar er dr Guðmundur Pálmason jarð-
eðlisfræðingur, en aðrir stjórnarmenn
eru: dr Guðmundur E Sigvaldason
forstöðumaður Norrænu eldfjallastöðv-
arinnar, Haraldur Ásgeirsson verkfræð-
ingur, Þorbjörn Sigurgeirsson prófess-
or og Þorgeir Þorgeirsson læknir Vara-
formaður, Eyþór Einarsson grasafræð-
ingur, tók einnig að þessu sinni þátt i
styrkúthlutun Ritari deildarstjórnar er
Guðmundur Arnlaugsson rekstor
Alls bárust Raunvisindadeild að
þessu sinni 80 umsóknir. Veittir voru
35 styrkir að heildarfjárhæð 16 millj-
ónir og 460 þúsund krónur.
HUGVÍSINDADEILD
Formaður stjórnar Hugvísindadeild-
ar er dr Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri. Aðrir stjórnarmenn eru Andri
ísaksson prófessor, Arnljótur Björns-
son prófessor, Ólafur Halldórsson
handritafræðingur og Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor. Ritari deildar-
stjórnar er Bjarni Vilhjálmsson þjóð-
skjalavörður
Alls bárust Hugvisindadeild að
þessu sinni 55 umsóknir, en einn
umsækjandi tók umsókn sina aftur.
Veittir voru 24 styrkir að heildarfjár-
hæð 7 milljónir 850 þúsund krónur
Árið 1975 veitti deildin 29 styrki að
heildarfjárhæð 7 milljónir 550 þúsund
krónur,
Úr Vísindasjóði hafa þvi að þessu
sinni verið veittir 59 styrkir að heildar-
fjárhæð 22,01 milljónir króna,
Hér fer á eftir yfirlit um styrkveiting-
ar beggja deilda Visindasjóðs árið
1976
A. RAUNVÍSINDADEILD
Flokkun styrkja eftir fjárhæS:
Fjárhæð Fjöldi styrkja
minna en eða jöfn 200 000 5
200 000— -400 000 1 1
400 000— 600 000 1 1
600 000— 800 000 4
800 000— 1 000 000 4
Samtals 35
Skrá um veitta styrki:
Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræð-
ingur. Vegna kostnaðar við greiningu
burstaorma frá Surtsey 100 þús. kr
Agnar Ingólfsson vistfræðingur.
Framhald rannsóknar á lífriki i fjörum
við ísland 100 þús kr
Alfreð Árnason Iffefnafræðingur.
Rannsókn á vefjaflokkakerfum 500
þús kr.
Árni V. Þórsson læknir. Rannsókn
á hlutverki somatomedins og vaxtar-
hormóns 1 000 þús. kr
Eysteinn Tryggvason jarðeðlis-
fræðingur. Rannsókn á lóðréttum jarð-
skorpuhreyfingum Framhaldsstyrkur
500 þús. kr
Gauti Arnþórsson læknir. Framhald
rannsóknar á könnunar- og notagildi
gastrokamera 250 þús kr
Guðjón Axelsson tannlæknir.
Rannsókn á tönnum Þingeyinga. Þátt-
ur i mannfræðirannsdkn á vegum veg-
um Nordiska humanekologiska
forskargruppen o.fl 300 þús kr
Guðmundur Eggertsson erfðafræð-
ingur. Til rannsóknar á myndun eggja-
hvituefna i lifandi frumum. Ólafur S.
Andrésson og Ragnheiður Ásta
Magnúsdóttir liffræðingar annast rann-
sóknina Framhaldsstyrkur 475 þús.
kr.
Guðný Eiriksdóttir lífefnafræðing-
ur. Framhald rannsókna á eðli lípó-
sóma Verkefnið er unnið við Tilrauna-
stöð háskólans i meinafræði að Keld-
um 400 þús kr
Gylfi Már Guðbergsson landfræð-
ingur. Notkun innrauðra mynda til
könnunar á stærð gróins lands á (s-
landi, kynnisferð til Bandarikjanna
vegna þessarar tækni 900 þús. kr.
Helgi Björnsson jarðeðlisfræðing
ur. Tilraunamælingar með rafsegul-
bylgjum á þykkt islenzkra jökla 1 000
þús kr.
Ingvar Árnason efnafræðingur.
Rannsókn á kisil-kolefnasamböndum
Framhaldsstyrkur 250 þús. kr
Ingvar Birgir Friðleifsson jarðfræð-
ingur. Til rannsókna á áhrifum efna-
samsetningar bergkviku á stærð og
lögun bólstra 200 þús. kr
Raunvisindastofnun háskólans,
Jarðvisindastofa. Rannsókn á vatna-
setum i Fnjóskadal til könnunar á þvi,
hvort íslaus svæði hafi verið á íslandi á
siðasta jökulskeiði Þorleifur Einarsson
jarðfræðingur annast rannsóknina 350
þús kr
Jóhann Pálsson grasafræðingur.
Vegna kostnaðar við rannsókn á ís-
lenzkum sveifgrösum Verkefnið er
unnið víð Uppsalaháskóla 200 þús kr.
Jón Gunnar Halgrimsson læknir.
Ransókn á sjúkdómum pneumothorax
spontaneus (loftrjóst) á íslandi 225
þús kr
Jón Óttar Ragnarsson efnaverk-
fræðingur. Til rannsókna á stöðugleika
ýmissa islenzkra matvæla gagnvart
þránun fitu 620 þús kr
Laufey Steingrímsdóttir liffræð-
ingur. Efnahvörf og afdrif trans-
ómettaðra fitusýra i heila fósturs. Verk-
efni til doktorspróf við Kaliforniu-
háskóla 600 þús kr.
Náttúrugripasafnið á Akuréyri. Til
rannsókna á flóru Suður-
Þingeyjarsýslu Hörður Kristinsson
grasafræðingur annast rannsóknirnar
Framhaldsstyrkur 220 þús. kr
Páll Imsland jarðf ræði.tgur. Til
rannsókna á jarðfræði Jan Mayen
Verkefnið er unnið við Norrænu eld-
fjallastöðina 600 þús kr.
Pétur M. Jónasson dýrafræðingur.
Til að Ijúka rannsókn á lífrikí Mývatns.
Framhaldsstyrkur 300 þús kr
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins. Framhaldsrannsókn á niturnámi
gerla í rótarhnúðum á hvitsmára
Guðni Harðarson liffræðingur annast
rannsóknina undir umsjón Bjarna
Helgasonar jarðvegsfræðings 500
þús kr
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins. Rannsókn á magni og áhrifum
brennisteins, kopars og molybdens i
beitargróðri sauðfjár Ólafur Guð-
mundsson landbúnaðarfræðingur ann-
ast rannsóknina 550 þús kr
Rikharður Kristjánsson verkfræð-
ingur Notkun tölvutækni við útreikn-
inga á styrkleika járnbentra stein-
steypueininga Verkefnið er unnið við
tækniháskólann í Darmstadt 600 þús
kr.
Sigfús Björnsson verkfræðingur.
Raffræðirannsóknir á skynkerfum fiska
500 þús kr.
Sigfús A. Schopka fiskifræðingur.
Fullnaðarúrvinnsla gagna frá árunum
1928—46 um stofnsveiflur islenzka
þorsksins 300 þús kr
Sigurður V. Hallsson efnaverk-
fræðingur. Samanburðarrannsóknir á
vextí klóþangs á íslandi, írlandi, Nor-
egi og Frakklandi 250 þús kr
Sigurður Helgason sýklafræðing-
ur. Til rannsókna á sjúkdómum sjávar-
og ferskvatnsfiska 600 þús kr
Sigurður H. Richter dýrafræðing-
ur. Rannsókn á sníkjudýrum i melting-
arvegi nautgripa Verkefnið er þáttur i
samnorrænni rannsókn og unnið við
Tilraunastöð háskólans i meinafræði
að Keldum 800 þús. kr
Sigurður Steinþórsson jarðfræð-
ingur. Til smiða á háþrýstiofni, er nota
skal til rannsókna á eiginleikum basalt-
kviku 1 000 þús kr
Sigurður Þórarinsson jarðfræðing-
ur. Vegna kostnaðar við aldursákvarð-
anir með c-14 aðferð 100 þús. kr.
Tómas Helgason læknir og fleiri:
Rannsókn á heilsufari og fjölskyldulifi
togarasjómanna
a) Rannsókn á heilsufari og félagsleg-
um aðstæðum togarasjómanna Tómas
Helgason læknir, Gylfi Ásmundsson
sálfræðingur. Þorbjörn Broddason
félagsfræðingur og Haraldur Ólafsson
mannfræðingur annast rannsóknina
41 0 þús. kr
b) Rannsókn á heilsufari eiginkvenna
og barna togarasjómanna. Helga
Hannesdóttir og Jón G Stefánsson
læknar annast rannsóknina. 225 þús.
kr. Sbr. og styrk Hugvisindadeildar.
Valgarður Egilsson læknir. Til rann-
sóknar á áhrífum TAA á erfðastofna i
litberum fruma 500 þús. kr
Framhald á bls. 31.