Morgunblaðið - 03.07.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JULÍ 1976
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
húsnæöi
í boöi <
ajcA
A—r>—
Til leigu forstofu-
herbergi á Langeyrarvegi 13,
Hafnarf . Til sýnis kl, 7 —10
á kvoldin.
Gróðrastöðin Græna-
hlið
v/ Bústaðaveg
Höfum mikið úrval af
dahlium, petúnium, sumar-
blómum, fjölærum plöntum
og kálplöntum á hagstæðu
verði næstu daga. Simi
34122.
íbúð til leigu
á Kjalarnesi. Uppl. í síma
20032 og 30195.
Verðlistinn, auglýsir
Munið sérverzlunina með
ódýran fatnað. Verðlistinn,
Laugarnesvegi 82, sérverzl-
un. ími 31 330.
Til sölu
240 ha GM bátamótor með
tilh. 6 tonna vökvaspil,
bómuspil, línuspil með dæl-
um. Uppl. í síma 99-319 7.
-yvv
tiikynningar
Blindraiðn
er að Ingólfsstræti 16, s.
12165.
Lán
Get lánað 1 millj. kr. i 6
mánuði gegn öruggu fast-
eignaveði. Tilboð sendist
Mbl. fyrir 7. júlí merkt:
Skyndilán — 2971.
SÍMAR. 11798 OG 19533.
Laugardagur 3. júlí
kl. 13.00
Ferð á strönd Flóans. Komið
m.a. að Eyrarbakka. Stokks-
eyri, Knarraósvita og rjóma-
búinu á Baugstöðum. Farar-
stjóri: Sturla Jónsson. Verð
kr. 1 500 gr. v/bílinn.
Sunnudagur 4. júlí
1. Kl. 9.30 Gönguferð á
Hengil og í Marardal.
Fararstjóri: Hjálmar Guð-
mundsson. Verð kr. 800 gr.
v/ bílinn.
2. Kl. 13.00 Gönguferð um
Innstadal og nágrenni.
Fararstjóri: Valdimar Helga-
son. Verð kr. 800 gr. v/bil-
inn.
Lagt af stað frá umferðamið-
stöðinni (að austanverðu).
Ferðafélag íslands.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins-
götu 6a á morgun kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn —
Sunnudag
kl. 1 1 helgunarsamkoma. Kl.
16 útisamkoma á Lækjar-
torgi. Kl. 20.30 fagnaðar-
samkoma fyrir laut. Óskar
Óskarsson verðandi leiðtoga
á ísafirði. Fjölskyldan Eide frá
Noregi tekur þátt i samkom-
unni. Kapt. Daniel Óskarsson
stjórnar.
Verið velkomin.
ÁRMENN
Framvegis verða veiðileyfi i
HLÍÐARVATNI, KÁLFÁ og
LAXÁ i S.-Þing. seld i verzl.
Sport, Laugavegi 1 5.
K.F.U.M.
Almenn samkoma í húsi fé-
lagsins við Amtmannsstig
2B, sunnudagskvöld kl. 8.30
e. h. Björgvin Jörgenson
kennari talar.
Fórnarsamkoma.
Allir velkomnir.
Fíladelfía
Tjaldsamkomurnar við Mela-
skóla byrja i kvöld kl. 20.30.
Mikil vigsluhátíð. Ræðumað-
ur Georg Johannsson. Fjöl-
breyttur söngur.
Fíladelfía Keflavík
Samkoma verður i dag kl. 2.
Allir eru velkomnir.
UTIVISTARFERÐIR
Laugard. 3/7 kl. 13
Kringum Elliðavatn.
Fararstj. Einar Þ. Guðjohn-
sen. Verð 500 kr
Sunnud 4/7 kl. 13
Helgafell — Vala-
hnúkar, einnig létt ganga
kringum fellið. Fararstj. Einar
Þ Guðjohnsen. Verð 500 kr.
Útivist.
-y—y
Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu
í Morgunblaðinu þann: ..................
“y—v~
■v----y
‘ Athugið
Skrifið með prentstöfum og <
setjið aðeins 1 staf í hvern reit.
Aríðandi er að nafn, heimili
og simi fylgi.
-A___k.
“V----
r-v—v
-i—v—
—~Vv
■VV
,7r/,4 A£/St/
ÖS.X.t/H SM TAJr.A X. .UE./S.U
&TA Ss/tiA /y,gr '
/ S//Mt 9/f.e.oÁ ,
■a A 4,
-/t..A ,/L
i i I I l
J l-----1--L_I----L_J----L_J Fyrirsögn
180 Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
J I I L
J L
J I I I I I I L
I I I L
J L
J I L
J I I I I L
J___I_I__I_I__I__I_I 360
J___I_I__I_I__I__I_I 540
REYKJAVIK:
II l
J I I I L
J I I I I I I L
J I I L
J I I L
J L
J I I I I I I I I L
KJÖTMIÐSTÖOIN, Laugalæk 2,
J 720 SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Háaleitisbraut 68,
HAFNARFJÖRÐUR:
LJÓSMYNDA-
OG GJAFAVÖRUR
Reykjavíkurvegi 64,
J 900
KJÖTBÚO SUOURVERS, Stigahlíð 45—47, VERZLUN
► I____I____I____I___L
1
I I I I I I I I I I I I
I I I L 1 .1 I I I I I I I I I I I i L-l—1—J i I I I 1 1260
* Hver lína kostar kr. 1 ðO Meðfylgjandi er greiðsla kr.......
NAFN: .......................................
HEIMILI: ....................................SÍMI: ..........
J 1080 HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2—6
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Álfheimum 74,
ÁRBÆJARKJÖR,
Rofabæ 9,
ÞÓROAR ÞÓROARSONAR. <
Suðurgötu 36,
KÓPAVOGUR
ÁSGEIRSBÚÐ, Hjallabrekku 2"
BORGARBÚÐIN, Hófgerði 30
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
-/1 A A A -A A A
-^v—___A..../V-
A A a.
Sverrir Runólfsson:
Athugasemd við „Beina línu”
Ég óska eftir aö koma á fram-
færi eftirfarandi athugasemd
vegna þáttarins „Beinnar línu“ í
Utvarpinu 2. maí s.l. þar sem
Halldór E. Sigurðsson samgöngu-
ráðherra sat fyrir svörum. Stjórn-
endur þáttarins voru þeir Kári
Jónasson og Vilhelm G. Kristins-
son. Ég hef valið þann kostinn að
taka upp samtal þeirra um mig og
vegagerð mína og skjóta inn í
athugasemdum mfnum eins og ég
hefói verið á staðnum og tekið
þátt i umræðunum.
Vilhelm: „En ráðherra, talandi
um áætlanir og kostnað og pen-
ingaleysi. Hvað hefur tilrauna-
vegagerð Sverris Runólfssonar á
Kjalarnesi kostað skattgreiðend-
ur?“
Halldór: „Sko, dæmið um Sverri
Runólfsson er að mörgu leyti gott
dæmi um það, þegar menn eins og
hann koma og tala eins og þeir
hafa öll heimsins ráð i hendi sér,
og ástæðan til þess að það var
farið inn á þessa braut, að gefa
honum þessa tilraun, var kannski
vegna þess, að menn töldu það, að
hann mundi geta haft möguleika
til að sýna ódýrari vegagerð held-
ur en Vegagerðin gæti sjálf og
þeir sem um þetta hafa fjallað.“
Sverrir: Það væri fróðlegt að
vita hvað þú meinar, þegar þú
segir „menn eins og hann“. Ert
þú að láta skína í það að ég sé
glæpamaður, góður maður.heimsk
ingi, kjáni eða hvað? Sem betur
fer er enginn fullkominn, en ég
tel mig góðan mann aö mestu
leyti, en þó kannski trúgjarnan
kjána, því að ég var svo vitlaus að
álita, að þeir menn, sem ég var að
ræða við um hugsjónir minar i
vegagerð, hefðu áhuga á að vinna
að því að finna leiðir til að gera
ódýra, góða vegi hér á landi. Það
efast nú ekki margir um að
Bandaríkjamenn séu fremstir í
vegagerð, og þegar maður hefur
stuðnings orð tveggja Vestur-
íslendinga, sem vinna að vega-
gerð í Kanada, og annar þeirra
hefur fengið æðstu orðu Kanada
fyrir það að gera vegi inn í
óbyggðum til Indíánanna þar í
landi, þá er maður nú ekki mikið
hræddur um endanlega útkomu
þessa máls.
Ráðherra, þegar þú taiar um
tilraun, þá verðurðu að taka það
fram að aðeins burðarlagið og slit-
lagið sé tilraun, því ræsin og
undirbyggingin var gerð á „hefð-
bundinn hátt“ eftir bókum Vega-
gerðarinnar.
Nú álít ég, að þú hafir ekkert
skilið af því sem ég var að segja,
þegar ég kom á skrifstofu þína
til að útskýra blöndun-
á-staðnum-aðferðina. Ég man það
nú, að þú sýndist þreyttur þarna
við skrifborð þitt, en ég var svo
vitlaus, að ég var að kenna í brjóst
um þig, því að ég hélt að þú hefðir
kannski haft langa nótt á Alþingi
við að ræða um áriðandi mál eins
og z-una, en þreytan var víst að-
eins frá áhugaleysi, og sýndi að
þú hafðir ekki mikið álit á því,
sem ég var að segja.
Halldór: „Ég hafði sjálfur ekki
trú á þessu, en vildí samt ekki
koma í veg fyrir aö þessi tilraun
yrói gerð. Kostnaður við þetta
mun vera að mig minnir orðinn
svona upp undir tuttugu milljón-
ir. Nú hafa Sverri verið send, sett,
endanleg takmörk og hann á að
skila veginum ákveðinn dag í
júní-mánuði, og ef það verður (
ekki, þá verður hann tekinn af
honura, og það verður fylgt eftir
með þeim hætti, að það verður
farið á staðinn og vegurinn tekinn
út, og þá sjá menn reynsluna af
því að trúa því, þó að maður komi,
sem hefur dvalið lengi í Ameríku
og þykist geta bjargað heiminum,
þá held ég að það muni reynast
svo að hann geti það ekki.“
Sverrir: Ég vildi óska að þú
hefðir sagt mér, þegar ég kom til
þin, að þú hefðir ekki trú á þessu,
því að þá hafði ég heimtað að
peningarnir fyrir ræsin, undir-
bygginguna og frágang, hefði
verið borgað, þá þegar til baka í
tilraunasjóð, eins og mér hafði
verið sagt að yrði gert eftir að
verkinu væri lokið. Ég vil ítreka
það, að þú mátt ekki blanda
saman því sem er ekki tilraun og
því sem er tilraun, þegar þú talar
um tuttugu milljónir. Það var nú
timi til kominn að timatakmark
væri sett á þetta, því þá lætur
maður kannski ekki draga sig á
asnaeyrunum með rabbi og lof-
orðum einum saman. Tilrauna-
hluturinn í þessu er undir fjórum
milljónum til þessa. Mér finnst
það einkennilegt að hvorki ég né
verkfræðingur minn vorum hafð-
ir í ráðum, þegar þetta timatak-
mark var sett, þvf enginn getur,
nema Guð, tryggt þurra daga á
sunnudögum. Þú sem æðsti
maður ættir að vita að ég fæ efni
og tækin aðeins á sunnudögum.
Ég vil taka það fram að ég hef
aldrei þótzt geta bjargað heimin-
um, enda engan áhuga á því að
reyna, en að bjarga okkar litla
stóra íslandi, það skal ég reyna að
gera, því landinu hefur verið
stjórnað illa allt of lengi. Sérð þú
nokkurn betri til þess en ÞING-
EYING, nema kannski þig?
Kári: „En þú (Halldór) sagðir
að það kostaði um tuttugu
milljónir og hvað er þetta langur
spotti, kílómetri, eða innan við
kílómetra, eða hvað?“
Halldór: „Ég held að það sé nú
svona nálægt kílómetra, eða tæp-
lega það, en ég man það nú ekki
nákvæmlega, en ég held að það
hafi verið reiknað með að þetta
kostaði svona átta til tíu milljónir
og hann er orðinn helmingi dýrari
að minnsta kosti."
Sverrir: Mér finnst það bara
hlakka i þér, þegar þú ert að
nefna tuttugu milljónir. Upphaf-
lega var samningur gerður fyrir
tólf hundruð metra en sfðan var
mörgu breytt og bætt við t.d.
afleggjara að Saurbæ og ræsum.
Ef þú heldur að þessir ágætu
menn við Vegagerðina hefðu leyft
þessar aukningar, ef þeir vissu
ekki að það var verið að fram-
kvæma þetta eins og háttur er
hafður hér á, þá hefur þú minna
álit á þessum mönnum en ég. En
ég viðurkenni það, aó þetta fór
fram úr því sem ég átti von á og
hef átt að venjast. En það er of
löng saga til að rekja hér.
Kári: „Þannig að þetta er æði
dýr vegagerð.“
Halldór: „Þetta er miklu dýrari
vegagerð heldur en nokkuð annað
við svipaðar aðstæður, það er ég
alveg viss um, að ég fer með rétt
mál, þegar ég segi það."
Sverrir: Þetta er kallað hrað
braut og það hefur aldrei, að
mínu viti, verið byggð hraðbraut
af neinum hér nema að hafa haft
að minnsta kosti ellefu kílómetra
til að vinna, nema níu hundruð
metra kaflinn með tveimur
akreinum hvora leið, sem gerður
var á Ártúnshöfða fyrir yfir tíu
árum og mér er sagt að hafi
kostað um þrjátiu milljónir. Ég
kom ekki heim til að „kasta ryki i
augu neins" og flestir, sem ég hef
talað við og útskýrt hluti fyrir,
hafa skiliö hvaö ég var aó fara,
stutt mig, eggjað mig til baráttu
og gera það vonandi áfram. Enda
hef ég aðeins reynt að benda á að
okkur vantar lítið nema tæknina.
T.d. þurfti sjö menn upp á Kjalar-
nesi við það sem einn maður gerir
i Kaliforníu, og Kanada, vegna
aðeins eins tækis, við sömu
aðstæður. Ég vona bara að þjóðin
fari að sjá nauðsynina á þvi að
kjósa ráðamenn sina beinum per-
sónubundnum kosningum, þar á
meðal ráðherrana. Ég álít nefni-
lega að Kalifornía sé bezt stjórn-
aða land i heimi, þar sem flestir
ef ekki allir ráðamenn eru þannig
kosnir. Það er tími til kominn að
við förum að læra frá þeim sem
bezt gera. Ég mun fyrirgefa það
sem niðrandi hefur verið sagt hér
til mín, þvi ég hef gleymt meiru
heldur en, sérfræðingar okkar
vita, er ég þá að tala um sérfræð-
inga ökkar í því að bjarga
heiminum.
Því miður höfum við ekki tíma
til að rekja alla þá óþarfa erfið-
leika, sem ég hef rekið mig á við
þessa framkvæmd. Rétti timinn
til þess kemur seinna. Eg hef
beðið Morgunblaðið að birta
þetta, vegna þess að Utvarpið
neitaði að taka það.