Morgunblaðið - 03.07.1976, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JULI 1976
25
Ljónið og lambið
+ „Léku sér að lambi ljón í paradís," segir á sínum stað og eins og sjá má á þessari mvnd er það víðar
en f paradfs sem lambi og ljóni kemur vel saman. Þessi skötuhjú eiga heima f dýragarði f
■San Francisco og ljónið ber það virðulega nafn Samson en lambið heitir Jo.
+ POPPSÖNGVARINN Barry Ryan
ætlar nú að ganga í það heilaga með
prinsessunni Marian af Johore. Þau
hafa nú þekkzt f sex ár en segjast
aldrei hafa haft tíma til að gefa hvort
öðru jáyrði fyrr en nú.
+ NÚ ER
verið að gera
mynd um
hetju þöglu
myndanna,
Rudolph
Valentino, og
er það Ken
Russel sem
stendur að
baki henni.
Ken segist
búast við því
að ballett-
dansarinn
Rudolf
Nureyev
muni fara
með aðal-
hlutverkið.
King Kong leggur upp laupana
+ KVIKMYNDA-
FRAMLEIÐAND-
INN Dino De
Laurentis lenti í
hálfgerðum vand-
ræðum nýlega þeg-
ar til stóð að taka
lokaatriðin f mynd-
inni um King Kong.
Hann setti litla aug-
lýsingu f blað þar
sem hann óskaði eft-
ir fólki til að taka
þátt i hópatriðum
fyrir framan stór-
byggingu eina á
Manhattan. 1 stað
þeirra fimm þús-
unda sem hann átti
von á komu 20.000
manns á vettvang,
sem allir vildu ólmir
sjá King Kong
s.vngja siti sioasta.
Allt gekk þó sam-
kvæmt áætlun þrátt
f.vrir ágang minja-
gripasafnara og að
lokum kvaddi leik-
konan Jessica Lange
sfna hárugu hetju á
hrffandi hátt.
niim.tx.m *'•
timittittitt.m
Góð afkoma hjá
Norðlenzkri
tryggingu h.f.
ÞANN 26. júnf s.l. var haldinn á
Akureyri aðalfundur Norðlenzkr-
ar tryggingar h.f. Formaður
stjórnarinnar, Valdemar Bald-
vinsson, flutti skýrslu stjórnar-
innar og Friðrik Þorvaldsson
framkvæmdastjóri las og skýrði
reikninga félagsins fyrir síðasta
ár, sem var fjórða reikningsár
félagsins.
Þar kom fram, að mikil aukning
varð á árinu, bæði á iðgjöldum og
tjónum, en eftir að búið var að
leggja verulegar upphæðir í ið-
gjalda-, bóta- og áhættusjóð var
hagnaður á rekstrinum kr. 508
þús.
Stjórn félagsins var öll endur-
kosin, en hana skipa: Valdemar
Baldvinsson formaður, Aðal-
steinn Jósepsson, Geir G. Zoéga,
Hreinn Pálsson og Pétur Breið-
fjörð.
— Hrein eign
Framhald af bls. 5
staðizt betur árið 1975 en 1974.
Liklega væri það gjörbreytt fjár-
málastefna Sjálfstæðisflokksins
frá kosningaárinu sem réði
mestu.
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri sagðist sammála því
að æskilegast hefði verið að
skýrsla endurskoðunardeildar
borgarinnar hefði legið frammi
en á því hefðu verið erfiðleikar.
Þeir væru einfaldlega að svo
skammur tími hefði liðið frá því
reikningarnir voru lagðir fram
þar til þeir komu til afgreiðslu, að
skýrsluna hefói ekki verið hægt að
vinna á svo skömmum tima. Áuð-
vitað væri hægt að fresta umræðu
um reikningana fram yfir sumar-
leyfi borgarstjórnar en hann
hefði álitið heppilegra að taka
reikningana nú til umræðu. Birg-
ir ísleifur sagði að enn væri svo
sama gamla platan um einhver
kosningavíxil frá 1974 spiluð. En
hinar miklu aukafjárveitingar
sem þá hefðu verið, hefðu ekki
tilheyrt sem sér fyrirbæri hjá
Reykjavíkurborg- Til að sann-
reyna það gætu menn spurt
flokksbræður sína sem hefðu
stjórn annarra sveitarfélaga und-
ir höndum. Þeir hefðu líklega all-
ir sömu sögu að segja. Verðbólgan
1974 hefði skollið óviðbúið yfir
eins og holskefla, því hefðu erfið-
leikarnir orðið miklir. Ófram-
kvæmanlegt hefði verið fyrir
borgina að fresta framkvæmdum
þegar ljóst var hvert stefndi.
Ástæðan til þess hefði verið að
búið var að gera fjölda verksamn-
inga við fyrirtæki sem borgin
varð að standa við og engu varð
þokað. En 1975 hefðu menn vitað
um vandann fyrirfram og þess
vegna verið hægt að taka mið af
því, Reikningarnir frá 1975 bæru
því vott um það. Birgir ísleifur
sagði að hægt hefði verið að kom-
ast hjá erlendum lántökum t.d.
fyrir RR. En þar hefðu minni-
hlutaflokkarnir verið stór þrösk-
uldur. Þeir hefðu engan veginn,
hV"!’!lÍo •*-*»<«• iwrAí i/PiíA
getað falíizt á tillögur borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins til
bjargar fjárhagsvandanum.
Björgvin Guðmundsson og Sig-
urjón Pétursson tóku báðir aftur
til máls en töluðu stutt. Af-
greiðslu reikninganna hjá
Reykjavíkurborg fyrir 1975 var
síðan víðað til annarrar umræðu.
ALLT MEÐ
EIMSKIF
A NÆSTUNNI
FERMA SKIP V0R
TIL ÍSLANDS
SEM HÉR SEGIR:
ANTWERPEN:
Tungufoss 5. júli
Graundarfoss 12. júli
Urriðafoss 1 9. júli
Tungufoss 26. júli
ROTTERDAM:
Tungufoss 6. júlí
Grundarfoss 13. júlí
Urriðafoss 20. júli
Tungufoss 2 7. júli
FELIXSTOWE:
Dettifoss 6. júli
Mánafoss 1 3. júli
Dettifoss 20. júli
Mánafoss 29. júli
HAMBORG:
Dettifoss 8 júli
Mánafoss 1 5. júli
Dettifoss 22. júlí
Mánafoss 29. júli
PORTSMOUTH:
Brúarfoss 1 2. júli
Bakkafoss 1 2. júli
Selfoss 23. júli
Bakkafoss 2. ágúst
Goðafoss 1 1. ágúst
HALIFAX:
Brúarfoss 1 9. júlí
KAUPMANNAHÖFN
Irafoss 6. júli
Múlafoss 1 3. júli
írafoss 20. júli
Múlafoss 2 7. júlí
GAUTABORG
írafoss 7. júli
Múlafoss 1 4. júli
írafoss 2 1. júlí
Múlafoss 28. júlí
HELSINGBORG:
Álafoss 5. júli
Álafoss 1 9 júli
Álafoss 2. ágúst
KRISTIANSAND:
Álafoss 6. júlí
Álafoss 20. júlí
Álafoss 3. ágúst
ÞRÁNDHEIMUR
„Skip" 28. júli
GDYNIA/GDANSK:
Fjallfoss 7. júli
Reykjafoss 23. júli
VALKOM:
Fjallfoss 6. júlí
Reykjafoss 21. júli
VENTSPILS:
Fjallfoss 4 júli
Reykjafoss 23. júli
WESTON POINT:
Álafoss 1 2. júlí
Kljáfoss 26. júli.
REGLUBUNDNAR
VIKULEGAR HRAÐ-
FERÐIR FRÁ:
ANTWERPEN,
FELIXSTOWE,
G AUTABORG,
HAMBORG,
KAUPMANNAHÖFN,
ROTTERDAM
ALLTMEÐ
.A/3