Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JULÍ 1976 Ekkert átt við vamargarðinn á Eyrarbakka — Málið á rölti í kerfinu segir Þór Hagalín sveitarstjóri — KNN IIKFUR ekkerl verirt áll virt sjóvarnarKarrtinn hér, sem slórskemmdist I flóóinu mikla í fvrrahausl. Okkur KyrbekkinKum er þella áhyKKjuefni ok okkur lanKar ekki til aó horfa fram á veturinn án þess aó vióKeró á Karóinum fari fram. Þaó er ábyrKÓarhluti aó láta hjá líóa aó Kera vió Karóinn, sa^ói Þór IlaKa- lín sveitarsljóri á Kyrarhakka í samtali vió MorKunblaóió í Ka*r- Þór IlaKalín saKói, aó um sl. áramót hefði verió Keró áætlun um endurbyKKÍfiKU flóðvarnar- Karósins ok hefói hljóóaó upp ó .‘55 milljónir króna. Ilins veKar hefóu ekki fenKÍzt neina 3 millj. króna á fjárlöKum yfirstandandi árs til verksins. S<*ra Si|íttr|)áll: „Aldrei sagt neilt í þá áif Stíknarnefiidarformaður: „Ræðan olli 9? SKRA Sigurpáll Oskarsson prestur á llofsósi saKÖi í sam- tali við Morgunblaóió I Kær, aó það væri rangt sem haft væri eftir Haraldi Hermannssyni formanni sóknarnefndar I Kljótum og kaupfélagsstjóra I llaganesvík aó séra Sigurpáll hefói sagt, aó hann vildi ekki ferma hörn sem aórir hafa undirbúið. Hann treysti ekki öðrum prestum í prófastsdæm- inu til að uppfræða börnin. „Kg hef aldrei sagt neitt f þá átt,“ sagði séra Sigurpáll. Að öóru leyti kva’ðst hann ekki vilja um þetta mál tala á þessu stigi og þyrfti hann að kynna sér það áður en hann gæfi ein- hverja yfirlýsingu. Mál þetta hefur risið útaf fermingarræðu, sem séra Sigurpáll flutti f kirkjunni að Barði f Kljótum fyrir um það bil mánuði, en sóknarncfndar- Framhald á bls. 20 Sýning á uppdráttum af torfbæjum í Norræna húsinu Hinn 16. júlí sl. var opnuð í Norræna húsinu sýning á teikn- ingum og myndum af torfbæjum í Skagafirði, en islenzkir og dansk- ir nemendur arkitektaskólanna f Árósum og Kaupmannahöfn dvöldust á þessum slóðum sumar- ið 1975 og mældu upp bæina. i fréttatilkynningu frá Norræna húsinu um sýninguna segir, að á þessu sumri hafi verið haldið áfram mælingum í Skaga- firði og Húnavatnssýslu. Árangur þessarar ferðar mun birtast í heildarútgáfu á uppdráttum af ísl. torfbæjum, sem skólarnir hyggjast gefa út á næstunni. Enn- fremur var gerð kvikmynd um ísl. torfbæi á vegum danska sjón- varpsins og Statens Filmcentral í Danmörku, eftir handriti nem- enda arkitektaskóianna. — Málió er nú á röltinu cin- hvers staóar í kerfinu og það er anzi ótryggt aó hafa ekkert hald- betra, en aó vita af þvi þar, sagói hann. Hann sagói, aó um þessar mundir væri unnió aó hafnarbót- um æEyrarbakka. Senn liói aó því aó verkinu lyki, en þaó væri unn- ió meó hlióstæóum tækjum og notuóyróu til aó gera viógaróinn. Því þyrfti aó taka ákvöróun um viógeró á garóinum hió skjótasta til þess aó hægt væri aó nota viókomandi tæki til þess. Tvisvar sinnum frá því aó flóð- hæóin var sem mest á Eyrarbakka í fyrrahaust hefur loftþyngd og flóóhæó verió óhagstæóari en þegar .sjógangurinn álti sér staó. Þaó eina sem á hefur vantað til þess aó leikurinn hafi endurtekið sig, er suóaustan átt. Ef svo hefói verió hefóu afleióingarnar getaó oróió ófyrirsjáanlegar, sagói Þór. Aóspuróur sagói Þór, að þaó væri ekki lögbundið, aó ríkissjóó- ursæi um hleðslu sjóvarnargarða, en á hinn bóginn væri þaó hefó. Þessi lióur væri á fjárveitingum hvers árs og á þessu ári væri 9 ntillj. kr. varió til fyrirhleðslu- framkvæmda, þar af 3 millj. kr. til Eyrarbakka, eins og fyrr segir. — En þaó nær engri átt að ætla sér aó bæta þetta tjón á löngu tímabili. Leikurinn getur svo hæglega endurtekió sig. Skálholts- hátíð á sunnudag SKÁLHOLTSHATlÐIN 1976 verður haldin n.k. sunnudag í Skálholtskirkju. Hátíð þessi er jafnan haldin á Þorláksmessu á sumri og verður með hefð- bundnum hætti. Hátíðin hefst með klukkna- hringingu kl. 13.30 og síðan messu í Skálholtskirkju, þar sem biskup Islands, herra Sig- urbjörn Einarsson, og séra Guðmundur Óli Ólafsson munu þjóna fyrir altari. Sr. Eirikur J. Eiríksson prófastur prédikar og Skálholtskórinn syngur undir stjórn Hauks Guðlaugssonar. Að messu lokinni verður samkoma í kirkjunni kl. 16.30. Þar verður flutt sónata nr. 2 eftir G. Tartini fyrir tvo tromp eta og orgel og einnig verk úr nótnahefti Önnu Magdalenu Bach. Ræðu flytur Jón Sig- urósson, forstjóri Menningar- sjóð, og sr. (Jlfar Guðmunds- son sér um ritningarlestur og bæn. Þá verður almennur söngur. Flytjendur tónlistar á hátíðinni verða Ágústa Agústs- dóttir sópran, Jón Sigurósson trompet, Sæbjörn Jónsson trompet, Pétur Þorvaldsson cello, Helga Ingólfsdóttir semball, Glúmur Gylíason org- el og Haukur Guðlaugsson org- el. Helzt hefði þetta þurft að vera litmynd, en gaflinn á þessu húsi við Bræðraborgarstfg er einskonar veðurfarsmynd Islenzk, sunnlenzk að minnsta kosti í svipinn. Grunnurinn er heiðblár og sólarnefnan uppi undir þakbrúninni hressilega gul. Og svo eru skýin, sem sýnilega eru að ganga fvrir þá gulu, mjallhvít. Ljósm.: Rax. Sfc'Beðið eftir grænu ljósi frá stjórnvöldum MIKLAR endurbætur hafa verið gerðar að undanförnu á flugstöðv- arbyggingunni á Keflavíkurflug- velli, eins og komið hefur fram, og byggingin jafnframt verið stækkuð allveruga. í tilefni af þessu hafði Morgunblaðið sam- eand við Pál Ásgeir Tryggvason hjá varnarmáladeild utanrlkis- ráðuneytisins, og spurði hann hvað liði byggingaráformum varðandi nýju flugstöðvarbygg- inguna á Keflavfkurflugvelli. Páll sagði, að sú bygging hefði nú verið alllengi á döfinni, og kvaðst hann raunar ætla að þær væru ófáar byggingarnar hér á landi, sem í hefði verið lögð jafn- mikil undirbúningsvinna, og hver þáttur þessarar framkvæmda hefði verið kannaður gaumgæfi- lega. Nú væri svo komíð, að ékk- ert væri að vanbúnaði að hefja þessar framkvæmdir um leið og stjórnvöld gæfu heimild til þess, en þar vægj aftur spurningin um fjárveitingar til framkvæmdanna og flestir vissu að ekki áraði vel i þeim efnum núna. Páll kvað það hafa verið stefnu stjórnvalda allt frá upphafi, að allar tekjur af hinum margvislega rekstri á Keflavíkurflugvelli rynnu beint i ríkissjóð, og flug- vallarreksturinn væri þannig al- gjörlega háður fjárveitingum frá ríki til allra framkvæmda. Páll kvað þó rétt, að fram kæmi, að flugvöllurinn hefði jafnan fengið töluverðar fjárveitingar til endur- bóta og til að gera nauðsynlegar viðbætur á ýmsum öryggisbúnaði varðandi flugvöllinn, öðrum en þeim er Bandaríkjamenn sæu um. Páll sagði hins vegar, að Kefla- Valtýr sýnir í Þrastarlundi VALTVk Pétursson listmálari opnaði málverkasýningu I veit- ingaskálanum Þrastarlundi sl. sunnudag. Þar sýnir Valtýr 50 litl- ar oiíumyndir. — Myndirnar verða allar að teljast nýjar að minnsta kosti hefur engin þeirra komið fyrir almenningssjónir áð- ur, sagði Valtýr í samtali við Morgunblaðið. Þetta er í þriðja sinn á þrem árum, sem Valtýr heldur sýningu I Þrastarlundi, og segist hann kunna mjög vel við að sýna þar og forráðamenn staðarins hafi verið með margar skínandi málverka- sýningar þar. Sýning Valtýs verður opin næstu tvær til þrjár vikurnar. víkurflugvöllur hefði þannig ekk- ert eigið fjármagn til að verja til framkvæmda af þessu tagi. Þó hefði það komið fram hjá erlend- um aðilum, sem um málið hefðu fjallað, að forráðamenn flugvall- arins ættu vafalaust greiðan að- gang að erlendum lánum með því að veðsetja i tekjum af rekstri flugvallarins. Að sögn Páls eru þessar tekjur miklar, t.d. í lend- ingagjöldum og rekstri frihafnar, og þessar tekjur eru einnig að miklu leyti í erlendum gjaldeyri, þannig að þau,.erlendu lán sem tekin kynnu aó verða, yrðu þann- ig óháð gengisbreytingum innan- lands. Páll sagði ennfremur, að núver- andi flugstöðvarbygging með þeim viðbótum er verið væri að gera, væri nú farin að nálgast þá stærð sem gert hefði verið ráð fyrir sem fyrsta áfanga nýju flug- stöðvarbyggingarinnar og um leið komin töluvert út fyrir þau mörk sem eldvarnasamþykktir gerðu ráð fyrir. Þessi stækkun hefði engu að síður verið óhjákvæmi- leg, ekki sízt eftir að íslenzku flugfélögin sameinuðust. Samfara þvi hefðu þau farið að samræma komu- og brottfarartima flugvéla sinna að morgni og kvöldi og við »það hefði myndazt slíkt álag í flu> það hefði myndazt slíkt álag i flugstöðinni á þessum tilteknu hlutum dagsins, að umferðin hefði sprengt utan af sér eldri húsakynnin. Siglufjörður: Ófremdarástand í löndunarmálum segir skipstjórinn á Gullbergi VE 20 loðnuskip komin á miðin — HKR RlKIR hið mesta ófremd- arástand f löndunamálum. Aðeins er hægt að landa með einu lönd- unartæki. Við áGullbergi komum hingað kl. 5.30 I gærmorgun og þá voru þrír bátar á undan okkur með slatta, en engu að sfður verð- um við að bíða eftir löndun þar til kl. 10—11 f kvöld, sagði Guðjón Pálsson, skipstjóri á Gullbergi frá Vestmannaeyjum, er hann hafði samband við Morgunblaðið í gær- kvöldi frá Siglufirði. Guðjón sagði, að skipstjórum og sjómönnum á loðnubátunum fyndist það afkáralegt af stjórn- endum SR að fara þess á leit við sjómenn að koma inn til löndunar sem allra fyrst með loðnuna, þó svo að bátarnir væru aðeins með slatta, þegar ekkert gengi að losa aflann. — Þetta er ekki sagt þeim, er f verksmiðjunni vinna til lasts, heldur miklu fremur þeim, er fjarstýra verksmiðju SR á Siglu- firði að sunnan, sagði Guðjón, og bætti við að það væri eindregin ósk sjómanna að ððru löndunar- tæki yrði bætt við hjá verksmiðju SR á Siglufirði. Eftir samtal Guðjóns reyndi Morgunblaðið að ná tali af Jóni Reyni Magnússyni framkvæmda- stjóra SR, en til hans náðist ekki. Að sögn Hjálmars Vilhjálms- sonar fiskifræðings og leiðangurs- stjóra á Bjarna Sæmundssyni eru um 20 loðnuskip komin á miðin úti fyrir Norðurlandi. Hjálmar sagði að i fyrrinótt hefðu aðeins 5 loðnuskip verið á miðunum og þau kastað nokkuð tæpar 80 mílur NNA af Horni. Þar væri mikið af loðnu og góðar torfur fundizt, en þær staðið djúpt og í þokkabót hefði loðnan verið ljónstygg. Afl- inn var því sáratregur hjá bátun- um en eitt og eitt 50 tonna kast fékkst. Nokkrir bátar héldu til lands í fyrrakvöld og f gær. Börkur hélt til Neskaupstaðar með 500 lestir og Guðmundur til Siglufjarðar með 300 lestir, — aðrir bStar voru með minni afla. Hans áfram ráðunaut- ur í hafréttarmálum EINS OG frá var skýrt í Mbl. í gær afhenti Hans G. Andersen Gerald Ford Bandarikjaforseta trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands i Washington. í fréttatilkynningu frá utanrík- isráðuneytinu, sem Morgunblað- inu barst í gær, segir, að Hans G. Andersen hafi verið falið að gegna áfram starfi sem ráðunaut- ur í hafréttarmálum og sem for- maður islenzku sendinefndarinn- ar á hafréttarráðstefnu Samein- uðu þjóðanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.