Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLl 1976 Morgunblaðsmenn í heimsókn á Hólmsheiðinni „Þetta er sko vinkona mín," sagði Ingibjörg (t.v). „Hún heitir Erla og ég vil hafa hana með á myndinni." Þetta barð er stolt þeirra Sigurveigar, Guðrúnar, Sigrúnar og Ástu. Takið eftir hve bakkinn er vandvirknislega hlaðinn. j baksýn má sjá fúnar trönur og annað drasl, sem á að brenna. „Þessar eru klárar." sagði Gísli. Hér má sjá hvernig þær stinga framan af börðunum og síðan raða þær þeim upp aftur. Að afloknum vinnudegi þustu krakkarnir upp I strætisvagninn, sem flytur þau í bæinn. Ljósm. RAX. Hann Stefán (lenst til hægri) var ekkert fyrir svona blaðaumstang. Það er ekkert vandamál að flytja bækistöðvarnar!! Nokkrir verkstjóranna: f.v. Halldór Þórðarson, Haukur ísfeld, Gísli Kristjánsson, Guðný og Erla. Þau voru sammála um að þessi starfsemi hefði borið mikinn og góðan árangur og töldu að búið væri að ná yfirhöndinni í baráttunni við eyðingaröflin. Þar eru engin unglingavandamál Á SÍÐUSTU árum hefur verið gert mikið átak á sviði umhverfismála og má segja að mikið hafi áunnizt í þeim efnum. Það eru ekki aðeins græn svæði inn í borg- inni, sem hér er um að ræða, heldur hefur m.a. verið hafizt handa við að rækta heiðalöndin í ná- grenni Reykjavikur. Á Hólmsheiðinni við Rauðavatn hefur á und- anförnum tveim árum verið unnið mikið starf við að stöðva þau miklu landspjöll, sem upp- blástur og fok hafa vald- ið. í sumar starfa þar um 100 ungmenni á vegum Reykjavíkurborgar og einn góðviðrisdag fyrir skömmu brugðum við undir okkur betri fætin- um og fórum í heimsókn upp á heiði. Við hittum fyrst að máli þá Gísla Kristjánsson, sem hefur umsjón með starfinu, og Hall- dór Þórðarson verkstjóra. ' Hér vinna um 100 unglingar," sögðu þeir. „Þeim er skipti i fjóra hópa og í hverjum hópi eru frá 1 7—30 manns og einn flokksstjóri. Aðalstarfið felst i því, að stinga niður rofabörð til að hefta uppblástur og einnig höfum við borið áburð á mel- ana og sáð i Það hefur þó verið nokkrum erfiðleikum háð að sá, vegna þess að veðurguð- irnir hafa verið okkur heldur andsnúnir En krakkarnir hafa verið alveg sérstaklega dugleg- ir og ekki látið veðrið á sig fá. Einnig höfum við verið að hreinsa heiðina af lls konar rulsi, bilhræjum, eldavélum, ís- skápum og fúnum trönum svo eitthvað sé nefnt." Þetta er geysistórt sváeði og sagði Gísli okkur að allt svæðið væri u þ.b. 300 ha., en af þvi hefði verið unnið við u.þ b. 200 ha. og sáð í mikinn hluta þess. Við röltum nú um svæðið i fylgd verkstjóranna og kom- um þar sem eitthveð mikið var um að vera Það kom i Ijós að einn flokkurinn stóð þarna í búferlaflutningum. „Þetta eru bækistoðvarnar, sem þau eru að flytja," sagði Björn Þráinsson flokksstjóri. Það kom okkur dálitið spánskt fyrir sjónir að sjá krakkana þramma þarna með „bæki- stöðvarnar", sem eru tjöld, en Gísli sagði að þetta váeri al- vanalegt „Hver flokkur hefur 2 — 3 tjöld," sagði hann „og þau eru útbúin á þannig grind að auð- velt er að flytja þau í heilu lagi þegar þörf er á. í tjöldunum er gashitabúnaður og þarna borða þau og drekka." Við tókum tali tvær kampa- kátar vinkonur, sem sögðust heita Ingibjörg og Erla. „Þetta er annað sumarið, sem ég vinn hérna," sagði Ingibjörg, „og það er alveg stórfint. „Við erum aðallega að hreinsa svæðið og vernda jarðveginn Þetta eru allt hressir krakkar og Bjössi er finn verkstjóri," og var greini- legt að þarna talaði hún fyrir munn alls hópsins. Við vorum að velta því fyrir okkur hvort þarna væru engin klósett eða snyrtiaðstaða og höfðum orð á því Svarið kom strax og var stutt og laggott: „Þess þarf ekki, það er miklu betra að pissa bak við þúfurn- ar." Þarna var myndarpiltur i gulri regnkápu, sem sagðist heita Stefán og við spurðum hann hvernig honum likaði þarna. „Þetta er ágætt," sagði hann, „maður þarf bara að vera vel klæddur" Annars sagðist hann ekkert vera fyrir svona lagað og átti þá við myndatök- una og spurningar blaða- mannsins. Við röltum því áfram og hitt- um fjórar stúlkur, sem voru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.