Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JULl 1976 35 Bandaríkin hafa fengið BANDARlKIN höfðu í gærkvöldi hlotið flesta gullpeninga á Ólympfuleikunum í Montreal, eða alls 8. Austur-Þýzkaland hafði fengið 5, Sovétríkin 3 og Vestur-Þýzkaland eitt gull. Það eru yfirburðir tveggja fyrstnefndu þjóðanna í sund- greinum sem gera það að verkum að þær standa svona framarlega í flokki. í gærkvöldi seint og í nótt átti að keppa til úrslita í fjórum sundgreinum og þá var sem fyrr gull búizt við því að fleiri peningar myndu falla þessum tveimur þjóðum i skaut. Greinarnar eru 100 metra flugsund karla, 100 metra baksund kvenna, 200 metra bringusund kvenna og 4 x 200 metra skriðsund karla. 1 undanrásum 4 x 200 metra skriðsundsins í gær hafði banda- ríska sveitin algera yfirburði og setti nýtt heimsmet 7,30,33 mínút- ur. Mikið hefur mátt út af bregða í nótt ef sveitin hefur ekki hirt gullið. í undanrásum 100 metra flug- sunds kvenna í gær náði hin 15 ára stúika frá Austur-Þýzkalandi, Andrea Pollack, beztum tíma 1,01,43 mínútur. Kornelia Ender á heimsmetið í greininni, 1,00,13. Ender komst áfram í úrslitin og má reikna með því að metið fjúki í úrslitasundinu og einnar mínútu múrinn verði þá rofinn í fyrsta skipti. I undanrásum 200 metra bringusunds kvenna í gær náði rússnesk stúlka, Marona Koshevaia, beztum tíma 2,35,14 mínútum. Hreini aö batna Kastaði 19,70 metra á æfingu Frá Ágústi I. Jónssyni: HREINN Halldórsson er óðum að lagast af meiðslunum í handlegg, sem hafa hrjáð hann að undanförnu. Hreinn kastaði 19.70 metra á æfingunni á þriðjudagskvöld og hafði þá Iftið fundið til meiðslanna. Hreinn á sem kunnugt er að keppa á föstudaginn og til þess að komast áfram í aðai- keppnina þarf hann að kasta 19.40 metra. Hreinn æfði ekk- ert í gær og mun hann alveg hvíla sig fram að átökunum á föstudaginn. Þórdís Gfsladóttir er einnig sern óðast að ná sér af þeim meiðslum, sem hafa hrjáð hana. Nadia vann gullið! I GÆRKVÖLDI fór fram einstak- lingskeppni í fimleikum kvenna á Ólympfuleikunum í Montreal, og sigraði þar rúmenska stúlkan Nadia Comaneci, sem er aðeins 14 ára. Segja má með sanni að Nadia hafi unnið hugi og hjörtu áhorf- enda á leikunum, og f fréttum frá Reuter segir að eftir sigurinn f gær yfir stöllum sfnum frá Sovét- rfkjunurri, þeim Ludmilu Turish- cheva, Olgu Korbut og Nelli Kim, hafi Nadia verið krýnd drottning Ólympíuleikanna við gffurlegan fögnuð allra viðstaddra. Keppt er f fjórum greinum, og fékk Nadia hæstu einkunn, 10, f tveimur greinum. Samtals hlaut hún 79,275 stig af 80 mögulegum. Önnur varð Nelli Kim og Ludmila Turishcheva, sem hlaut gullið í Múnchen 1972, varð f þriðja sæti. Þórunn á mettíma Frá Ágústi I. Jónssyni: ÞÖRUNN Alfreðsdóttir bætti enn einu Islandsmeti f safnið er hún synti 100 metra flugsund á 1,09,63 mfnútum f Ólympfusundlauginni f dag. Eldra metið átti Þórunn sjálf, 1,09,80 mfnútur, sett 17. júnf s.l. Ólympíulágmarkið f greininni var 1,09,0 mfn. 39 stúlkur luku keppni i grein- inni og varð Þórunn númer 37 i keppninni. Austur-þýzka stúlkan Andra Pollack fékk bezta tímann í undanrásunum, 1,01,43 minútur og er það nýtt Ólympíumet. Þórunn var nokkuð ánægð með timann sem hún fékk i 100 metra flugsundinu, en hún hefur nú lok- ið keppni hér á leikunum og sett íslandsmet i báðum greinunum, sem hún tók þátt i. íslenzka sund- fólkið á eftir að keppa i þremur sundgreinum hér i Montreal, Sig- urður Ólafsson og Vilborg Sverr- isdóttir keppa á fimmtudaginn hún i 200 metra skriðsundi og hann i 400 metra skriðsundi. Það eru góðar greinar hjá þeim og reiknað með tveimur islandsmet- um. Á iaugardaginn keppir svo Sigurður i 100 metra skriðsundi. Dýfingar 1 FYRRAKVÖLD lauk keppni i dýfingum kvenna af þriggja metra háum palli. Bandaríska stúlkan Jennifer Candlers hafði mikla yfirburði, hlaut 506,19 stig, næst varð Christa Höhler, Austur- Þýzkalandi meó 469,41 stig. Sænska stúlkan Ulrika Knabe, sem stóð sig svo vel i Múnchen, féll úr i undanrásum. Keppni í dýfingum karla af 3 metra palli áttu að fara fram i gærkvöldi. Útiliðin unnu öll í 2. deild í gærkvöldi BKkamir bundu enda á vonir Víkinganna ÞRlR leikir fóru fram f 2. deild f gærkvöldi og unnu útiliðin í þeim öllum. Einum leik varð að fresta milli Vestmannaeyja og Ar- manns, þvf ekki var hægt að lenda f Eyjum vegna þoku. Hér fara á eftir frásagnir af leikjun- um þremur: Haukar—Þór 1:2 ÞÓR frá Akureyri sigraði Hauka f Kaplakrika f 2. deild f gærkvöldi. Haukar sóttu meira f byrjun, en höfðu ekki árangur sem erfiði, en á 7. mfn. náðu Þórsarar skyndi- sókn og skoraði Sigurður Lárus- son með föstu skoti af 25 m færi. Áfram sóttu Haukar og á 30. mfn. bar sóknin árangur með marki Ólafs Jóhannessonar eftir skeinmtilega samvinnu Arnórs og Lofts. Á 32. mín. var vörn Hauka illa á verði og komst Jón Lárusson frir innfyrir og lék að lokum á Axel markvörð og skoraði. Fyrri hálfleikur var skemmti- legur og vel leikinn oft á tfðum, en síðari hálfleikur var ekki eins íþróttir eru einnig á blaðsíöu 24 góður. Undir lokin færðist nokk- ur harka i leikinn og var þá Aðal- steinn Sigurgeirsson, Þór, BÖkað- ur. Sigur Þórs var sanngjarn, en leikurinn gat eins endað með jafntefli ef miðað er við mark- tækifæri. Eftir þessi úrslit má telja víst að Þórsarar séu öruggir um að fá að leika við neðsta liðið i 1. deild um lausa sætið i 1. deild, en þá verður fjölgað um eitt lið, sem kunnugt er. KA-Völsungur 1:4 ÞAU óvæntu úrslit urðu f leik KA og Völsungs f 2. deild f gærkvöldi, að Völsungar sigruðu 4:l.'Leikið var á Akureyri, og var staðan í hálfleik 1:0 KA f vil. Sigur Völs- ungs var verðskuldaður. KA gerði fyrsta markið strax á 5. mínútu, Sigbjörn Gunnarsson eftir fyrirgjöf Guðjóns Harðar- sonar. Á 20. minútu s.h. jafnaði Hermann Jónasson fyrir Völsung eftir skyndisókn. Á 22. mínútu skoraði Hreinn Elliðason með skalla og á 27. minútu skoraói Hreinn aftur með skalla eftir hornspyrnu. Hreinn skoraði svo sitt þriðja mark með góóu skoti af 20 metra færi einni mfnútu fyrir leikslok. Reynir—Selfoss 1:2 SELFOSS krækti f tvö dýrmæt stig f fallbaráttu 2. deildar þegar liðið sigraði Reyni 2:1 á Arskógs- strandarvelli f gærkvöldi. Leikur- inn var slakur og'voru heima- menn skárri aðilinn, þótt þeir töpuðu leiknum. Sumarliði Guðbjartsson gerði bæði mörk Selfoss. Reynismenn áttu nokkur góó færi i f.h., þar af tvö dauðafæri, Björgvin Gunnlaugsson og Björn Friðþjófsson, en ekki var skorað. Hins vegar tókst Sumarliða Guð- bjartssyni að skora fyrir Selfoss á 43. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0. Á 25. minútu seinni hálfleiks brá Albert Gunnlaugsson Sumar- liða innan vitateigs, og skoraði Sumarliði sjálfur úr vítaspyrn- unni. Eina mark Reynis kom á 30. mínútu s.h. og var það varnarmað- ur Selfoss sem sendi boltann i eigið mark. Staðan í 1. deild Staðan f 1. deild er þessi eftir leikinn f gærkvöldi: Valur 11 7 4 0 34:11 18 Fram 11 7 2 2 17:13 16 Víkingur 11 7 1 4 15:14 13 Akranes 10 5 3 2 14:12 13 Breiðab. 10 4 2 4 12:13 10 KR 11 2 5 4 17:16 9 Keflavfk 11 4 1 6 16:17 9 FH 10 1 4 5 6:17 6 Þróttur 11 0 2 9 7:25 2 Vegna þrengsla verða einkunnir leikmanna úr tveimur sfðustu leikjum að bfða um einn dag f viðbót. BLIKARNIR unnu óvæntan en sanngjarnan sigur yfir baráttu- lausu Vfkingsliði á heimavelli sfnum f gærkvöldi. Vfkingar, sem eru þekktir fyrir mikla baráttu og gugnað, voru algjörlega máttlaus- ir f fyrri hálfleik og kostaði það þá bæði stigin. Blikarnir höfðu undirtökin allan fyrri hálfleikinn og léku oft á tíðum ágætlega. Hinn skemmtilegi leikmaður Blikanna, Gísli Sigurðsson, opnaði markareikninginn á 19. mín., er hann lék glæsilega í gegn- um vörn Vikinga, vinstra megin og sendi knöttinn með þrumu- skoti i netið. Á 20. min. var Ólafur Frióriksson kominn frir innfyrir vörn Víkinga, en skaut beint i fang Diðriks. Min. síðar fékk Vignir Baldurs- son knöttinn út til hægri. Lék hann áleiðis að markinu og skaut og fór knötturinn i Magnús Þor- valdsson og breytti um stefnu, þannig að Diðrik fékk ekki við ráðið, þrátt fyrir góða tilraun. Skömmu fyrir lok hálfleiksins áttu Vikingar tvö góð tækifæri, sem þeim tókst ekki að nýta. Það var allt annaó Víkingslið, sem kom inná í síðari hálfleik og sýndu þeir baráttu, sem einkennt hefur leik þeirra. Héldu þeir uppi nær látlausri sókn allan hálfleik- inn, en uppskeran var ekki nema eitt mar, sem Stefán Halldórsson skoraði með skalla á 56. min. eftir góða sendingu frá hægri. Vörn Blikanna stóð sig nokkuð vel i síðari hálfleik og tókst eftir þetta að bægja hættunni frá, og stöku sinnum tókst þeim að ná skyndisókn, an þess þó að skapa umtalsverða hættu. Á lokaminút- unni náðu þeir einni slíkri sókn, sem endanði með hornspyrnu. Diðrik missti knöttinn klaufa- lega yfir sig og náði Ólafur Frið- riksson að skalla fyrir markið. Sannarlega óvænt og ódýrt mark. í heildina tekið var þetta sæmi- legur leikur, sem sanngjarnt var að endaði með jafntefli. Dómari var Grétar Norðfjörð og dæmdi hann ágætlega. H.dan. Sumarbúðir U.M.F.K. að Laugarvatni Dagana 2.—6. ágúst verður Ungmennafélag Kefla vikur með Sumarbúðir að Laugarvatni. Þátttaka er öllum Suðurnesjamönnum heimil bæði strákum og stelpum sem eru á aldrinum 9 —14 ára. Þátttökugjöld kr. 6000.- Innritun og nánari upplýsingar í Verzluninni Sportvík. U.M.F.K.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.