Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLl 1976 13 Á heiðinni skortir ekki neitt. Þar hafa þau búsáhaldadeild, Bíla- og varahlutadeild. . . og þannig mætti lengi telja. Hildur, Elín og Björk virtust hressar yfir lífinu og tilverunni Hópurinn hans Atla var að búa sig til heimferðar og settist augnablik niður fyrir myndatöku, en stuttu seinna kútveltust allir hver um annan í „góðlátlegum slag", eins og einhver sagði. önnum kafnar við vinnu sina. ,,Við skerum niður börðin," sögðu þær," og röðum þeim siðan upp aftur svo þau blási ekki meira upp ” Þeim fannst veðrið ekki hafa verið nógu gott í sumar og hvísluðu því að okkur að þær hefðu nú sofnað i matartímanum. ,,Það var svo notalegt að sofa við suðið i gastækinu," sögðu þær Sigur- veig, Guðrún, Sigrún og Ásta að lokum. Nú bættist i hópinn þriðji verl<stjórinn, Haukur ísfeld að nafni. Hann sagðist hafa unnið sem verkstjóri nokkur undan- farin sumur, en tók fram að þarna á heiðinni væri alveg sérlega skemmtilegur andi, allir væri ánægðir og mikil sam- staða ríkti. Nokkru lengra hittum við þær Hildi, Elinu og Björk. Þær sögðu okkur skemmtilega sögu af þvi að lamb hefði ..ráðist á þær" og siðan elt þær á rönd- um hvert sem þær fóru. Það elti þær m.a.s. í kaffi og fékk að smakka á nestinu þeirra — ,,og þvi fannst kindakæfan bezt," sagði Björk og hló við. Þarna rétt hjá okkur voru Guðný og Erla að vinna, en þær eru báðar verkstjórar á staðnum ,,Það er gott að vinna hér," sagði Guðný ,,og ég vona bara að þetta starf beri árangur. ,,Það er algjör nauðsyn að eiga alla vega vinnuföt," sögðu þær, ,,því sama daginn getum við skipzt á að vera i bikini, stuttbuxum, lopapeysu og regngalla uppúrog niðrúr." i þeirra flokki eru aðeins stelpur — „og þær gefa strák- unum ekkert eftir," sögðu þær og þá skaut Haukur þvi a§ að þær ynnu öðru vísi „Strákarnir hamast kannski af meiri krafti, en stelpurnar. duga betur og eru vandvirkari," sagði hann Við áttum enn eftir að heim- sækja einn flokkirfn og vorum alveg á siðasta snúningi, þvi klukkan var að verða 4 og krakkarnir voru farnir að búa sig til heimferðar. Við náðum þó að smella einni hópmynd af krökkunum með flokksstjóran- um sínum, sem er Atli Eðvalds- son knattspyrnukappi á.rós. Búðír opnar að nýju GISTI- og veitingastaðurinn að Búðum á Snæfellsnesi, sem lokað- ur hefur verið tvö undanfarin ár, var opnaður aftur núna i sumar. Hjónin Guðrún Sigurðardóttir og Auðunn Jónsson bryti tóku hann á leigu og starfrækja. Gistiaðstaða er fyrir 40 — 50 manns að Búðum, en auk þess eru þar leigð út svefnpokapláss og tjaldstæði. Upphaflega var hótelið að Búð- um endurreist sem sumardvalar- hótel af áhugamönnum úr Snæfellingafélaginu og 10 manna hópur vann þar um tíma s.l. sum- miðaði að því að gera alla aðstöðu ar að endurbótum á staðnum, sem þar sem bezta. Sumarfatnaður á fjölskylduna Vatteraðar nælon mittisúlpur frá @ Stærðir: 6—16 Litir: rautt — brúnt — dökkblátt — grænt. Verð frá kr. 3.400,- Ermalausir rúllu- kragabolir (einlitir) Litir: rautt — hvftt. Stærðir: S — M — L. Verð kr. 954.-. Einlitir sportbolir m/ stuttum ermum Litir: dökkblátt — hvltt. Stærðir: S—M—L—XL. Verð kr. 954,- Barnastærðir: 2—12. Litir: grænt — blátt — rautt. Verð kr. 792,- Röndóttir sportbolir Stærðir: S — M ■ Verð kr. 862,- Fótboltaskór Stærðir og verð: 32—34 kr. 1298,- 35—39 kr. 1382,- 40—45 kr. 1468,- Sundfatnaður kvenna í yfirstærðum Munstraðir sundbolir kr. 3.815.- Munstruð bikin m/háum buxum kr. 3.815.- Einlitir sundbolir kr. 4.226.- Rúllukragabolir frá <S> Margir litir Verð frá kr. 1.290.- Opið til kl. 10 á föstudögum. Lokað á laugardögum í sumar. IMkgn ■ ISKEIFUNNI 15llsÍMI 86566

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.