Morgunblaðið - 22.07.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLI 1976
11
handtek-
inn í Bonn
FRIEDRICH Schwend, sem eitt
sinn aðstoðaði Adolf Hitler við að
greiða kostnaðinn við njósnakerfi
nasista með þvi að láta falsa
milljónir sterlingspunda i ensk-
um bankaseðlum, var nýlega
handtekinn i Bonn auralaus og
sakaður um að hafa reynt að
hlaupast á brott frá ógreiddum
hótelreikningi.
Schwend var eitt sinn foringi i
SS-sveitum Hitlers, og geivk pá
undir nafninu „peningafalsari
foringjans". Stjórnaði hann þá
prentun eins og fimm punda
seðla, samtals að upphæð um 100
milljónir punda. Nú handtók lög-
reglan í Bonn hann fyrir að
greiða ekki hótelreikning að upp-
hæð sem svarar 12 pundum fyrir
þriggja daga gistingu á ódýru hót-
eli.
Þessi fyrrum nasisti, sem nú er
69 ára, hafði breytt nafni sínu
litilsháctar, og þóttist vera banda-
rískur þegar hann skráði sig til
gistingar. Við handtökuna komst
lögreglan að því rétta, eða að hér
væri um að ræða falsarann mikla,
sem eftirlýstur var í Þýzkalandi
fyrir morð á fanga í útrýmingar-
búðum nasista, og dæmdur hafði
verió til 21 árs fangelsisvistar á
ítalíu að honum fjarstöddum fyr-
ir striðsglæpi.
Á árum siðari heimsstyrjaldar-
innar hafði Schwend yfirráð yfir
140 föngum í Sachsenhausen
fangabúðunum til að framleiða
fölsku seðlana, sem Hitler notaði
svo til að standa undir kostnaði
við njósnanet sitt víða um heim.
Einn þekktasti njósnarinn var
Eliezar Bazna, þjónn brezka
sendiherrans i Tyrklandi, en
hann gekk einnig undir nafninu
„Cicero". Cicero flýði árið 1944 til
Suður-Ameríku með 150 þúsund
pund í farareyri, en komst fljótt
að þvi að fjársjóðurinn var falsað-
ur.
Sjálfur flýði Schwend til Perú,
og var þar i felum þar til i byrjun
mánaðarins að yfirvöldin náðu
honum og settu hanrt um borð i
Flugvél, sem fór til Frankfurt.
Ekki voru þýzk yfirvöld vöruð við
gestinum, en nú verður hann
dreginn fyrir rétt.
Mörg ljón
í veginum
— en bólusetning
gegn inflúensu
ætti að hefjast
eftir mánuð
ÁKVÖRÐUN Geralds Fords
Bandarikjaforseta frá þvf I marz-
mánuði sl. um að láta bólusetja
helzt alla Bandarfkjamenn gegn
svonefndri svfna-inflúensu, á
mjög erfitt uppdráttar. Þó vonast
yfirvöld til að bólusetning geti
hafizt 1. september 1 sfðasta lagi.
Ákvörðun forsetans var mjög vel
tekið í upphafi, og var f þvf tilefni
margsinnis bent á hörmungar
þær, sem fylgdu inflúensufar-
aldrinum mikla 1918—19, sem
varð 548 þúsund manns að bana f
Bandarfkjunum einum. Þingið
veitti þegar 135 milljónir dollara
til að standa undir kostnaði við
þessa allsherjar herferð gegn in-
flúensunni, og hafin var fram-
leiðsla á bóluefni. En mörg ljón
voru f veginum.
Erfiðasta hindrunin var deila
um það, hvenig ætti að vernda
framleiðendur bóluefnisins gegn
hugsanlegum skaðabótakröfum.
Flestir eru sannfærðir um að
bóluefnið sjálft er hættulaust, en
bent er á, að þegar bólusetningin
er svo almenn, sem til er ætlazt,
hljóti einhverjar aukaverkanir að
koma fram einhvers staðar. Aó
sögn eins talsmanns framleiðenda
gilti það sama „ef við bólusettum
alla þjóðina með drykkjarvatni".
Algengt er í Bandaríkjunum að
læknar séu lögsóttir fyrir
minnstu mistök, og nú treysta
tryggingarfélögin sér ekki til að
tryggja framleiðendur bóluefnis
gegn hugsanlegum skaðabóta-
kröfum. Einnig hefur þingið neit-
að að taka á sig ábyrgðina, en er
þó að kanna hugmyndina um að
setja ný lög er takmarki bóta-
greióslur.
Annað ljón í veginum er það
gífurlega magn bóluefnis, sem
,'ramleiða þarf til að bólusetja 200
inilljónir manna, auk þess sem
oent hefur verið á að kostnaður-
nn fari langt yfir þær 135
nilljónir dollara, sem þingið lagði
:ram. Þá eru sumir að draga í efa
lauðsyn bólusetningarinnar þar
æm ekki eitt einasta tilfelli af
svínainflúensu hefur fundizt frá
pví sýklar fundust i hermönnum í
Fort Dix-herbúðunum snemma á
árinu. Það var þá sem þetta af-
brigði inflúensunnar var greint,
og er það mjög lfkt inflúensunni
frá 1918—19.
Bóluefnið hefur verið ræktað
við Mount Sinai-læknaskólann í
New York, og hefur þegar verió
reynt á 5.000 sjálfboðaliðum. I
Ijós kom að það virðist hafa góð
áhrif og engar hliðarverkanir á
þá, sem eru eldri en 23 ára, en
áberandi fjöldi yngri manna fékk
háan hita eftir bólusetningu. Olli
sú niðurstaða nokkrum deilum,
og til dæmis sagði dr. Albert
Sabin, upphafsmaður bólusetn-
ingarefnis gegn lömunarveiki,
Jonas Salk
Bólusetningarefnið ræktað f eggj-
um.
sem við hann er kennt, að tak-
marka ætti inflúensubólusetn-
ingu við þá aðila, sem i mestri
hættu væru, eins og eldra fólk og
sjúklinga. Annar höfundur bólu-
efnis gegn lömunarveiki, dr.
Jonas Salk, er á öndverðum
meiði. Hann segir bóluefnið
hættulaust og bendir á að jafnvel
takmarkaðar ónæmisaðgerðir
dragi úr útbreiðslu sýkingarinn-
ar. „Ónæmisaðgerðir eru bezta
vopn okkar til að héfta útbreiðslu
veirusjúkdóma,“ segir hann.
Yfirvöldin eru sammála Salk að
því er virðist. Benda þau á að
siðast þegar meiriháttar inflú-
ensufaraldur kom upp i Banda-
ríkjunum árin 1968—69, létust
um 30 þúsund manns. Þar var' um
að ræða nýtt afbrigði, sem nefnt
var „Hong Kong A“. Vonast yfir-
völdin til að geta hafið bólusetn-
ingu seint í ágúst.
(Heimild TIME)
Síldveiðar heim-
ilaðar í reknet
SÍLDVEIÐAR með reknetum
hafa nú verið heimilaðar á ný og
er leyfilegt að stunda rekneta-
veiðar fram til 25. nóvember n.k.
á svæðinu frá Eystra-Horni suður
og vestur um að Riti. Sfldveiðar
með herpinót verða hins vegar
ekki leyfðar á ný fyrr en 25. sept-
ember n.k. og til 25. nóvember.
Akveðið er að heimila veiðar á 10
þús. lestum I heprinót og verður
þvf veiðimagni skipt niður á þau
skip, sem veiðileyfi hljóta.
Á sl. ári var alls heimilað að
veiða 10 þús. lestir af sild, þar af
7500 lestir í herpinót, en alls
munu hafa veiðst um 13.600 lest-
ir. I umsögn Hafrannsóknastofn-
unarinnar um síldveiðar á kom-
andi hausti til sjávarútvegsráðu-
neytisins segir að ekki sé talið
heppilegt að veiða meira en 15
þús. lestir. í reglugerð sjávarút-
vegsráðuneytisins segir, að rek-
netaveiðarnar séu ótakmarkaðar
á þeim tíma sem veiði er leyfð og
lágmarksmöskvastærð rekneta
verði 63 mm.
Norskir hrefnuveið-
arar í Siglufirði
Siglufirði. 20. júlí.
ÞRÍR norskir hrefnuveiðarar
komu hér við í dag til .að taka olíu,
en þeir eru á leið til miðanna við
A-Grænland. Skipverjar sögðu að
þeir hefðu séð mikið af hrefnu
austur og norður af islandi á leið
þeirra til Siglufjarðar. mj.
70 þús. krónum
stolið úr íbúð
í SÍÐUSTU viku var 70 þúsund
krónum stolið úr íbúð í blokk f
Seljahverfi í Breiðholti. Þjófur-
inn mun hafa komizt inn um illa
læsta hurð. Fjárhæð þá er stolið
var höfðu húsráðendur ætlað til
nota í sumarfrii.
i fréttatilkynningu frá sjávar-
útvegsráðuneytinu segir, að ráðu-
neytið hafi ákveóiö að takmarka
síldveiðileyfi í herpinót að þessu
sinni við þau skip, sem á þessu ári
stunda síldveiðar í Norðursjó, svo,
og þau skip, sem leyfi fengu til
síldveiða hér við land á s.l. hausti.
Er hér um 52 skip alls að ræða,
þannig að um 200 lestir kæmu þá
í hlut hvers, ef sótt verður um
leyfi fyrir öll þessi skip. Hér ber
þó að athuga, aó þau skip, sem á
s.l. hausti fiskuðu fram yfir síld-
arkvóta sinn, og kærð voru
vegna þess, fánúsemþvf svarar
lægri kvóta.
Þá segir, að ákveðið hafi verið
að allur síldarafli herpinótabáta
Fasteignaviðskipti
Bankastræti 6, 3. hæð
sími 27500
Einbýlishús
Litið einbýlishús við Sogaveg,
Sunnubraut og i Blesugróf.
Parhús
við Sólvallagötu.
Sér hæðir
í Reykjavík
íbúðir
íbúðir af öllgm stærðum i
Reykjavik og Kópavogi.
Fokhelt
einbýlishús \ Mosfellssveit og
raðhús í Seljahverfi og í Kópa-
vogi.
Tilbúið undir tréverk
íbúðir við Engjasel og Furu-
grund.
Lóð
1064 ferm, lóð á Álftanesi.
Björgvin Sigurðsson^hrrl.
Ragnar Guðmundsson sölusimi
kvöld og helgar 71255.
verði ísaður í kassa og lögð verði
áherzla á að allur afli verði veg-
inn við löndun.
Ofangreindar ákvarðanir voru
teknar í samræmi við niðurstöður
funda, sem haldnir voru með full-
trúum þeirra hagsmunasamtaka,
sem málið varðar, eða L.Í.Ú.,
Fiskifélagi íslands, F.F.S.Í.,
S.S.Í., Sfldarútvegsnefnd og svo
Hafrannsóknastofnun og ráóu-
neyti.
Til leigu
Fastur byggingarkrani til leigu vel meðfærilegur, með
góðan radíus. Upplýsingar sendist Morgunblaðinu
merkt: „Hagkvæmt 6288" fyrir mánaðarmót.
SÉRSTAKUR
SUMARBÚSTAÐUR
Þessi glæsilegi
sumarbústaður ásamt 1 '/2
ha lands er til sölu.
Hann er í landi Vaðness í
Grímsnesi, í 67 km fjarlægð
frá Reykjavík.
Sumarbústaðurinn er 60
ferm. að flatarmáli, (4 herb.
eldhús og bað.) með 30
ferm. verönd.
Bústaðnum fylgja öll
húsgögn, rúmstæði og
hreinlætistæki, einnig
veiðiréttur í Hvítá og
réttindi til rafmagns.
Allar frekari upplýsingar
veitir
ALMENNA
FASTEIGHASALAN
LAUGAVEGI49 SÍMAR 21150-21370
L.Þ.V SÓLUM J0HANN ÞÓROARSON H0L