Morgunblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1976
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Aðalstræti 6, simi 10100
Aðalstræti 6. sími 22480.
hf. Árvakur. Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen.
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Askriftargjald 1000.00 kr. á mánuði innanlands
í lausasölu 50,00 kr. eintakið.
Sá alþjóólegi kreppu-
vottur, sem undan-
farin ár hefur sett svip
sinn á efnahagsmál hins
vestræna heims, er víðast í
hjöðnun og mál að þróast í
öruggari skorður. Engu að
síður rikir enn víðtækt og
ógnvekjandi atvinnuleysi í
flestum iðnþróuöum ríkj-
um Evrópu. C.ildir þar
einu, hvers konar ríkis-
stjórnir halda um stjórn-
völ. Atvinnuleysið virðist
þó hvað umfangsmest þar
sem jafnaðarmenn eóa
sósíaldemókratar ráða
ferð, eins og i Englandi,
Vestur-Þýzkalandi og Dan-
mörku, svo dæmi séu
nefnd. Þessi riki hafa hins
vegar náð meiri árangri i
baráttunni gegn verðbólg-
unni en stjórnvöld hér á
landi, þó einnig hafi dregið
verulega úr veróbólguvext-
inum hér tvö síöustu
misserin.
Verkalýðsmálaráðuneyti
brezku jafnaðarmanna-
stjórnarinnar skýrði frá
því í byrjun vikunnar, að
þar í landi væru nú ein
milljón fjögur hundruð
sextiu og þrjú þúsund at-
vinnuleysingjar og hefði
þeim fjölgað um eitthundr-
að og þrjátíu þúsundir frá
þvi í júnímánuði sl. Sér-
stök athygli var vakin á
vandamálum ungs fólks,
sem hvergi fær vinnu, að
loknu námi og sérhæfingu
til margvíslegra starfa.
Langskólagengnir atvinnu-
leysingjar eru nú taldir í
tugum og jafnvel hundruð-
um þúsunda.
Þessar tölur verkalýðs-
málaráðuneytisins brezka
koma i kjölfar yfirlýsinga
Denis Healey, brezka
fjármálaráðherrans, þess
efnis, að gera megi ráð fyr-
ir um eitt þúsund milljóna
sterlingspunda samdrætti í
útgjöldum brezka ríkisins,
en það svarar til um 330
þúsund milljón íslenzkra
króna. Svo verulegur
niðurskurður ríkisútgjalda
hlýtur að segja til sín í enn
frekari atvinnusamdrætti,
enda hefur hann mætt um-
talsverðri andstöðu verka-
lýðsforystunnar þar í
landi.
Áhrif hinnar alþjóðlegu
efnahagskreppu hafa
vissulega sagt til sín hér á
landi sem annars staðar
með margvíslegum hætti.
Við erum meira að segja
þeim mun næmari fyrir
alþjóðlegum efnahags-
sveiflum sem atvinnuvegir
okkar og útflutningur eru
einhæfari og háðari afla-
brögðum en atvinnulíf
annarra landa. Og við
þurftum að mæta inn-
fluttri verðbólgu, bæði
olíuverðshækkunum og
öðrum, með lækkandi verði
útflutningsafurða okkar,
og þar af leiðandi lækkandi
kaupmætti útflutnings-
tekna okkar, sem nam allt
að þriðjung á rúmu ári.
Þetta sagði að sjálfsögðu til
sín í rýrnun rauntekna
hverrar fjölskyldu, skert-
um kaupmætti launa. Hins
vegar í mun minni atvinnu-
samdrætti en reikna mátti
með — þann veg, að segja
má að tekizt hafi að tryggja
atvinnu — og af-
komuöryggi fólks um gjör-
vallt landið.
Mótaðgerðir stjórnvalda
gegn verðbólgu hafa verið
við það miðaðar, að þær
stuðluðu hvergi að at-
vinnuleysi. Nauðsynlegt og
óhjákvæmilegt var að
gripa til allverulegra
aðhaldsaðgerða i rikisfjár-
málum og stjórnun
peningamála almennt, til
að hamla gegn verðbólgu
og þeim viöskiptahalla út á
við, sem var bein afleiðing
versnandi viðskiptakjara.
En hér þurfti að sigla á
milli skers og báru. Draga
varð verulega úr verðbólg-
unni, sökum þess, að ekk-
ert þjóðfélag þolir til
lengdar þann veröbólgu-
vöxt, sem hér hefur ríkt
frá tímum síðari vinstri
stjórnarinnar. Með honum
var stefnt í rekstarstöðvun
atvinnuvega okkar, víð-
tæku atvinnuleysi og e.t.v.
langvarandi og veikari
stöðu þjóðarbúsins út á við
á allan hátt. í annan stað
mátti ekki grípa til það rót-
tækra mótaðgerða, að þær
leiddu til hliðstæðs at-
vinnuleysis og raun hefur
á orðið í flestum öðrum
löndum álfunnar og Bret-
land hefur verið nefnt sem
dæmi um. Hér hefur verið
farin millileið meó þeim
árangri sem alþjóð þekkir.
Verðbólguvöxtur var hér
yfirleitt 10 til 12% að árs-
meðaltali á árum viðreisn-
arstjórnarinnar — og þótti
meiri en góðu hófu gegndi.
Hann óx í yfir 50% á
siðustu misserum vinstri
stjórnarinnar eða langt
yfir hættumark. Hann var
kominn niður í um 25% á
síðustu mánuðum liðins árs
— og stefnt er að því, að
hann verði ekki meiri á
líðandi ári. Þó hér hafi
vissulega mióaó i rétta átt
er verðbölguvöxturinn þó
mun meiri en í markaðs-
löndum okkar. Því þarf
enn að spyrna vió fótum.
Mikilsvert er i þessari við-
leitni að skila hallalausum
ríkisbúskap. Horfur eru á
að það takist í ár, eftir
öfugþróun síðustu ára.
Margháttaðar aðhaldsað-
gerðir fjármálaráðherra í
ríkisbúskapnum eru þegar
farnar að sýna umtalsverð-
an árangur.
Ríkisstjórnin hefur þeg-
ar framfylgt tveimur
helztu stefnuákvæðum
stjórnarsáttmálans. Að við-
halda fullri atvinnu í land-
inu, sem er umtalsvert af-
rek, miðað við aðstæður, og
í samanburði við atvinnu-
ástandið í nágrannaríkjum
okkar, og að færa fiskveiði-
landhelgina út í 200 sjómíl-
ur sem var forsenda fisk-
verndar og efnahagslegs
sjálfstæðis okkar. Baráttan
við viðskiptahallann og
verðbólguna hefur einnig
sýnt nokkurn árangur. Þar
er þó enn ófarinn drjúgur
spölur að settu marki.
Atvinnu- og
afkomuöryggi
Frá skákmótinu í Amsterdam:
Jafntefli og tap í 12. umferð
Eins og lesendur munu hafa orðið
varir við. hefur Margeir Pétursson
skákmeistari. sem staddur' er i
Amsterdam, sent blaðinu fréttir af
IBM-mótinu að undanförnu Upp-
haflega var ætlunin að Margeir
sendi fréttir þessar fullbúnar til
blaðsins. en þar sem skeytin eru
send um fjarrita hefur ýmislegt farið
bagalega úrskeiðis og hefur undirrit-
aður þvi farið i gegnum nokkrar
skákir úr siðustu umferðum og mun
gera svo við þær skákir. sem enn
eiga eftir að berast Ef Margeir send-
ir athugasemdir með skákum munu
þær auðkenndar (M P ), en geri ég
athugasemdirnar verða þær auð-
kenndar (J.Þ.Þ ) og þurfum við þá
ekki að taka ábyrgð á orðum hvors
annars Vona ég að lesendur geti
notið skákanna hér eftir sem hingað
til.
Þá er að skýra frá 12 umferð, en
hún var tefld á þriðjudag Friðrik
Ólafsson tefldi þá við stórmeistar-
ann Gipslis. sem virðist á góðri leið
með að slá oll jafnteflismet Friðrik
fékk góða vinningsmöguleika i byrj-
un, en missti af strætisvagninum og
tókst ekki að knýja fram vinning
þrátt fyrir góðar tilraunir Skákin fer
hér á eftir
Hvítt: FriSrik Ólafsson
Svart: A. Gipslis
Enskur leikur
1 Rf3 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. Rc3
— e6, 4. d4 — cxd4, 5. Rxd4 —
Bb4, 6. g3 — Re4
(Óneitanlega glæfralegur leikur Ör
uggara var 6. -— 0 0 eða 6 — d5)
7. Dd3 — Da5, 8 Rc2!
(Knýr fram hagstæð uppskipti)
8. — Bxc3 + , 9. bxc3— d5,
(Svartur hagnast ekki á 9. — Dxc3,
10 Dxc3 — Rxc3, 11 Bb2 og
siðan Bxg7).
10. Bg2 — 0-0, 11.0-0— Rc6,
(Auðvitað ekki 11 — Dxc3, 12
Bxe4).
12. cxd5 — exd5, 13. c4!
(Nú kemst svartur ekki hjá peðstapi)
13. — Rc5. 14. Da3 — Re4, 15.
Dxa5 — Rxa5, 16. cxd5 — He8,
17. Re4 — Bd7, 18. f3 — Rd6,
19. e4 — f 5,
(Svartur verður að leita eftir mótspili
á miðborðinu).
20. Bf4 — Rac4, 21 Hfel —
fxe4, 22. fxe4 — Rf7,
(Svartur mátti alls ekki leyfa e5).
23. Hac 1 — Hac8. 24. Rf3 —
Bg4, 25. Rd2 — Rce5, 26 Bf1(?)
(Hér virðist mér Friðrik glata tæki-
færinu, eftir 26. h3 á svartur þriggja
kosta völ: a) 26 — Hxc1, 27. Hxcl
— Bh5, 28 Hc7 og hvitur stendur
betur
b) 26 — Bh5, 27 Hxc8 — Hxc8,
28 g4 — Bg6, 29 Rf3 og hvitur
stendur betur.
c) 26. — Bd7, 27 Hxc8 — 8xc8.
28 Rf3 — Rxf3, 29 Bxf3 —
Bxh3, 30 g4 og hvitur stendur
betur)
26. — g5!
(Ekki veit ég hvort Friðrik hefur
yfirsézt þessi leikur, en nú skiptist
skákin upp i jafntefli)
27 Be3 — Hxc1, 28. Hxcl —
Rf3 +, 29 Rxf3 — Bxf3, 30.
Bxa7 — Bxe4, 31. Hel — Ha8,
32. Hxe4 — Hxa7. 33 a4 —
Ha5, 34. Bg2 — Kf8, 35. Hb4 —
Rd6. 36 h4 — h6, 37 hxg5 —
hxg5, 38. Kh2 — Ke7. 39. Kh3
b5, 40. axb5 — Hxb5. 41. Ha4
— Hb3, 42. Kg4 — Kf6, 43. Ha6
— Ke5, 44. Ha8 — Kf6, 45. Ha6
— Ke5, 46. Bf3 — Hc3, 47. Ha2
— He3, 48. Hh2 — Rf7. 49. Hf2
— Kf2, 50. Be4+ — Kg7, 51.
Bc2 — Rh6 +, 52 Kh3 — Rf7,
54. Kg4 — Rh6+, 55. Kh3 —
Framhald á bls. 20
Tvö róleg jafntefli í 13. umferð
í 1 3. umferð IBM mótsins i Amst-
erdam lauk báðum skákum islenzku
stórmeistaranna með jafntefli Guð-
mundur tefldi við Donner og Friðrik
við Ivkov Ekki verður sagt að mikil
spenna fiafi verið i skákunum Þær
fylc/du báðar hefðbundnum leiðum
framan af og enginn virtist þora að
leggja út i hættulegar vinningstil-
raunir Skákirnar birtast nú báðar,
en ekki sé ég ástæðu til þess að gera
athugasemdir við þær
Hvitt: J H. Donner
Svart: Guðmundur Sigurjónsson
Kóngsindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3 g3
— Bg7, 4 Bg2 — 0—0, 5 Rc3
— d6. 6 Rf3 —Rbd7. 7 0—0
— e5. 8 e4 — c6, 9 h3 — Db6,
10 d5 — Rc5, 11. Hel — Bd7,
12. Bf 1 — a5. 13 b3 — Hfc8,
14 Hb1 — Dd8, 15. Rd2 —
Hcb8, 16. a3 — cxd5, 17. cxd5
— b5, 18. b4 — axb4, 19. axb4
— Ra4, 20 Rxa4 — Hxa4, 21.
Hb3 — Dc8, 22 Kh2 — Bh6, 23
Bb2 — Rh5, 24 Rb1 — Dd8, 25.
Bcl — Bxcl, 26. Dxc1 — Db6,
27 De3 — Dxe3, 28 Hexe3 —
Kf8, 29. Hec3 — Ke7, 30 Bd3
— f5, 31 f3 — Hb7, 32 Hc2 —
f4, 33. g4 — Rg7, 34 Rc3 —
Haa7, jafntefli.
Hvítt: B. Ivkov
Svart: Friðrik Ólafsson
Drottningarbragð (Ragozin af
brigðið)
1 d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3 Rf3
— d5, 4 Rc3 — Bb4, 5. cxd5 —
exd5. 6. Bg5 — h6, 7. Bxf6 —
Dxf6, 8 Da4+ — Rc6, 9. Re5 —
Bd7, 10. Rxc6 — a5, 11. e3 —
0—0, 12 Be2 — Bxc6, 13. Dc2
— Bd7, 14 a3 — Bf5, 15 Bd3
— Bcx3, 16. Dxc3 — Bxd3. 17.
Dxd3 — c6, 1 8 0—0 — a4, 19
Hab1 — ha6, 20 Hfc1 — De7,
21. Hc3 — g6, 22 h3 — Kg7,
23. h3 jafntefli.
Vinningsskák Friðriksgegn Korts-
noj úr 11 umferð brenglaðist illi-
lega í blaðinu á þriðjudaginn Hún
birtist nú aftur og vonandi rétt:
Hvitt: Friðrik Ólafsson
Svart: Viktor Kortsnoj
Vængtafl
1 Rf3 — Rf6, 2 g3 — d5, 3. c4
— dxc4, 4. Da4+ — Rc6, 5.
Dxc4 — e5, 6. Bg2 — Be6, 7.
Da4 — Rd7, 8 d3 — Rb6, 9
Ddl — Be7, 10 Rc3 — f5, 11
Be3 — g5, 12. Rd2 — f4, 13.
Bxb6 — axb6, 14. a3 — 0—0,
1 5. 0—0 — g4, 16 Be4 — Hf6,
17 Rc4 — Hh6, 18. Kg2 — De8,
19. Rd5 — Bc5, 20. h4 — gxh3
frhj.hl.. 21. Kh2 — Df7, 22 Rb4
— Kh8, 23. e3 — Dg7, 24. Rxc6
— bxc6, 25. b4 — Hg8, 26 Hgl
— fxe3, 27. fxe3 — Bxc4, 28.
bxc5 — Bd5, 29. cxb6 — cxb6,
30. Bxd5 — cxd5, 31. Ha2 —
Hg6, 32. Df3 — e4, 33 dxe4 —
dxe4, 34. Df4 — hg4, 35 Dd6 —
h5, 36 Dd4 — Dxd4, 37 exd4
— e3, 38. He2 — He8, 39 d5 —
Hd4, 40. Hgel og hér fór Kortsnoj
yfir timamörkin.
En vikjum nú aftur að 1 3 umferð
Þar urðu úrslit sem hér segir i skák-
um ánnarra keppenda Gipslis —
Kortsnoj jafntefli, Velimirovic —
Kurajica jafntefli, Sax vann Lange-
weg, Farago vann Szabó. Ree vann
Ligerink, Böhm — Miles biðskák
Staðan að loknum 13 umferðum
er þá þessi: 1. Kortsnoj 8,5 v., 2.
Sax 8v., 3. Miles 7,5 v. og biðsk.,
4 Faragó 7,5 v , 5 — 6 Velimiro-
vic og Szabó 7 v., 7 — 10 Friðrik,
Guðmundur, Kurajica og Gipslis
6.5 v , 11 Böhm 6 v og biðsk ,
12 Ivkov 6 v , 13 Ree 5,5 v. og
biðsk . 1 4. Donner 4,5 v og biðsk .
15 Ligterink 4,5 v . 16 Langeweg
4 v
Eins og þessi upptalning ber með
sér er mjög mjótt á mununum og
hiklaust má fullyrða, að 6 efstu
menn hafi enn möguleika á sigri
Verður því vafalasut hart barizt i
lokaumferðunum