Morgunblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1976
Minning:
Einar Norðfjörð
húsasmíðameistari
í dag fer fram frá Keflavíkur-
kirkju útför Einars Norðfjörðs
húsasmíðameistara, en hann lézt í
Borfjarspítalanum 13. þ.m., eftir
langt of! mjöf> crfitt sjúkdóms-
stríð.
Einar Norðfjörð var fæddur í
Innri-Njarðvík 23. marz 1915. For-
eldrar hans voru þau hjönin Guð-
rún Einarsdóttir og Jón Jönsson,
or lengi bjó í Stapakoti í Innri-
Njarðvík of> var ávallt við þann
bæ kenndur síðan. Systkini Ein-
ars voru 14, þar var einn albróðir,
Marfít'ir Jónsson, útgerðarmaður
í Kt'flavík. en hann var hálftöðru
ári yngri.
I Stapakoti ólst Einar upp. Þeg-
ar hann var fjögurra ára missti
hann móður sína. En faðir hans
kvæntist aftur, Ragnhildi Helgu
Egilsdóttur, ágætiskonu, sem
gekk honum og albróður hans,
Margt'iri, nú í móður stað.
Um 14 ára aldur fluttist Einar
með fjölskyldu sinni til Kefiavík-
ur, og skömmu síðar vistaðist
hann hjá frænda sínum, Eínari
Guðbergi Sígurðssyni, skipstjöra
og útgerðarmanni, og konu hans
Maríu Guðmundsdóttur. Atti Ein-
ar þar gott heimili þar til hann
stofnaði sitt eigið.
Einar var kvæntur Sólveigu
Guðmundsdóttur frá Löndum á
Miðnesi. Þau gengu í hjónaband
24. ágúst 1940. Bjuggu þau fyrst í
húsinu nr. 45 við Suðurgötu, sem
Kinar hafði byggt. Seinna byggði
hann húsið nr. 5 við Mánagötu og
bjó þar nokkur ár. En síðasta hús-
ið, sem hann byggði og bjó í sjálf-
ur er húsið nr. 1 við Mánagötu.
Þar bjuggu þau hjónin þar til þau
fluttust til Reykjavíkur árið 1965.
Sólveig var samhent manni sín-
um í að gera heimilíð vistlegt og
aðlaðandi. Hún var einnig traust
stoð manns síns í öllum hans sjúk-
dómserfiðleikum og stríði. Þar
átti Einar sannarlega trausta
verndarvætt. sem aldrei þrást,
Þau hjónin eignuðust 3 börn.
Þau eru Einar Guðberg, tækni-
fræðingur, kvæntur Kristínu
Þórðardóttur, eiga 3 börn; Guð-
rún, gift Steinari Arnasyni,
meinatækni, eiga 1 barn; Sigur-
björg gift Þorgeiri Valdimars-
syni, veggföðrara, eiga 1 barn. —
ÖII búa þau í Reykjavík.
Einar höf nám í húsasmíði árið
1936, hjá Skúla heitnum Skúla-
syni trésmið í Keflavík. Iðnskóla-
námi lauk hann í Reykjavík 1939
og tók sveinspróf í húsasmíði
1940. Næstu árin vann hann í
iðngrein sinni. Teiknaði og
byggði þá mörg hús hér í Kefla-
vík. Hann var eftirsóttur bygg-
ingameistari vegna dugnaðar og
vandvirkni.
Þær byggingar allar, sem Einar
stóð fyrir sem meistari, verða
ekki taldar hér, þö vil ég nefna
nokkrar. Við Mánagötu í Keflavfk
eru 6 hús og það vill svo til, að öll
þeirra, nema eitt, hefur Einar
byggt, og hann hefur teknað 3
þeirra. — Hann var bygginga-
meistari við byggingu barnaskóla-
hússins við Sólvallagötu, þegar
það var reist, 1950—52. Þá var
tækni öll skemmra á veg komin
en nú. Eigi var heldur ákvæðis-
vinna við smíðar þekkt hér. —
Það kom í minn hlut að fylgjast
með þessu verki á vegum bæjar-
ins, og þess minnist ég enn eftir
24 ár hve þangað var ávallt
ánægjulegt að koma. Þar var unn-
ið með einum huga og var bygg-
ingameistarinn þar ávallt leið-
andi. Með Einari var gott að
vinna. Hann var sérstakt ljúf-
menni, sem vildi hvers manns
vanda leysa.
Um tíma var Einar bygginga-
fulltrúi í Keflavík og leysti það
starf sem önnur með ágætum.
Aður en Einar hóf húsasmiða-
nám sitt vann hann eins og allir
aðrir, sem unnið gátu, við sjóinn.
Hann vann við vélbátana í landi á
vetrarvertíðinni og var á síld á
sumrin. — Hann var því öllum
hnútum kunnugur, þegar hann
vorið 1946 myndaði útgerðarfélag
með bróður sínum, Ölafi B. Ölafs-
syni skipstjóra, sem nú er nýlát-
inn, og mági sínum, Hreggviði
Guðmundssyni, og keyptu þeir
vélbát frá Sviþjóð. Þeir gáfu bátn-
um nafnið Nonni og gerðu hann
út i nokkur ár.
Fyrir 22 árum hóf Einar störf
hjá Sameinuðum verktökum á
Keflavíkurflugvelli, og hann hélt
þar störfum áfram eftir að Isl.
aðalverktakar tóku þar við. Eigi
ermér kunnugt um hvers konar
störf hann vann þar síðari árin,
en það munu hafa verið eftirlits-
störf með byggingum á vegum Isl.
aðalverktaka.
Nú þegar leiðir skilja um sinn,
er mér, sem þessar fátæklegu lín-
ur rita, efst í huga þakklæti til
hjónanna beggja. og minnist ég
þá sérstaklega löngu liðinna ára.
Með hjartanlegri samúðar-
kveðju okkar hjónanna til eigin-
konu, barna, barnabarna, tengda-
barna, svo og annarra ættingja og
vina.
Ragnar Guðleifsson
í dag verður einn af vormönn-
um Keflavíkur borinn þar til
hinztu hvíldar. Þessi vinur minn
og samstarfsmaður í mörg ár er
Einar Norðfjörð trésmiðameist-
ari. Hann fæddist í Innri-
Njarðvík 23. marz 1915, og á
Suðurnesjum ól hann allan sinn
aldur, aðeins nokkur sfðustu árin
hér i Reykjavík.
Einar missti móður sína aðeins
4 ára að aldri, en ólst eftir það
upp hjá föður sínum og stjúpmóð-
ur til fermingaraldurs, en þá fór
hann til móðurbróður síns, Einars
Guðbergs skipstjóra og útgerðar-
manns í Keflavík, og þar dvelst
hann þangað til hann festir ráð
sitt og giftist 24. ágúst 1940 eftir-
lifandi konu sinni, Sólveigu
Guðmundsdóttur frá Löndum í
Miðnesi. Með þessari ágætis konu
eignaðist hann 3 efnileg og vel
gefin börn, sem nú eru öll gift og
búsett hér í Reykjavík. Þau hafa
líka reynzt móður sinni mikill
styrkur i þessum raunum hennar
og langvarandi veikindum Einars,
en hún hefur setið og vakað við
sjúkrabeð hans svo vikum og jafn-
vel mánuðum skiptir, og þar meó
sýnt í verki það heit sem unnið er
t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi JÓN EINAR JÓNASSON frá Neskaupstað, andaðist að Elliheimilinu Grund 20 júlí. Ragnhildur Jónsdóttir Karl Finnbogason Bragi Jónsson Jónas B. Jónsson , Sigurást Kristjánsdottir barnaborn og barnabarnabörn Faðir okkar GUÐJÓN JÓHANNSSON skósmiður Innra Sæbóli Kópavogi andaðist I Landsspítalanum að morgni 21 þ m Bjarni Guðjónsson, Ragnheiður Guðjónsdóttir, Ágústa Guðjónsdóttir.
f Útför
Útför JÓNÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR. Ránargötu 28, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 22 júlí kl 1 3 30 MARGRÉTAR JÓHANNSDÓTTUR frá Stóru Ásgeirsá, sem andaðist 15. þ m fer fram frá Melstaðarkirkju föstud. 23 júli kl. 14
Aðstandendur. Ólafur Jónsson og dætur.
+ Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför GUNNARS GÍSLASONAR kaupmanns frá Seyðisfirði Sólveig Glsladóttir, Pállna Gunnarsdóttir, Ásgeir Kjartansson, Sólveig Ásgeirsdóttir, Ásgeir Þór Asgeirsson + Innilegar þakkír til allra er auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför EVFEMÍU JÓNSDÓTTUR Austurgötu 4, Hofsósi. Guð blessi ykkur öll. Sigmundur Baldvinsson böm og vandamenn.
t Innileg þökk til allra þeirra er af vináttu minntust okkar við andlát GUÐJÓNS A SIGUROSSONAR frá Gufudal. Þórunn og böm. + ' Innilegt þakklæti færum við öllum sem auðsýndu okkur samúð við fráfall og útför manns mlns, föður og tengdaföður okkar ÞORSTEINS LOFTSSONAR. Sérstaklega vildum við þakka þeim presthjónunum að Kálfafellsstað fyrir þá miklu hjálp og aðstoð er þau veittu á raunastund. Sveiney Guðmundsdóttir Sveinn Þorsteinsson Hjördís Einarsdóttir Sólveig Þorsteinsdóttir Ólafur Þorsteinsson Hólmfrlður Björnsdóttir
+ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför konu minnar og systur okkar ODDBJARGAR SÆMUNDSDÓTTUR Gunnar Vigfússon Ingunn Sæmundsdóttir Valgerður Sæmundsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Guðrún Sæmundsdóttir + Þökkum samúðarkveðjur og vinarhug vegna andláts og útfarar MAGNUSAR Ó. STEPHENSEN Sigurbjörg B. Stephensen, Sigrlður M. Stephensen, Steinunn M. Stephensen. Guðrún Magnúsdóttir, Haraldur Bergþórsson Magnús Þorleifsson. Ida S. Danlelsdóttir og barnaböm.
í upphafi hjúskapar að standa við
hlið maka síns jafnt í bliðu sem
stríðu. Slíkt sem þetta getur sann-
arlega kallast fegurð lífsins.
Snemma hneigðist hugur Ein-
ars að smíðum og byggingarmál-
um enda var hann smiður góður.
Hann lauk sveinsprófi í húsa-
smíði 13. apríl 1940 frá iðnskólan-
um hér í Reykjavík og var þá
hæstur þeirra er þessa prófraun
þreyttu. Meistarabréf í iðn sinni
hlaut hann svo 22. júlí 1943. Að
þessum áfanga loknum vann Ein-
ar mikið að byggingamálum í
Keflavík og víðar um Suðurnes.
Stofnaði meðal annars bygginga-
félag ásamt fleirum. í Keflavík
bera honum gott vitni byggingar
eins og sjúkrahúsið, kvikmynda-
hús og mörg ibúðarhús. Ennfrem-
ur gegndi hann ýmsum opinber-
um trúnaðarstörfum, svo sem í
bygginganefnd í Keflavík. Einnig
hafði hann á hendi kirkjugarðs-
vörzlu þar og formaður þróf-
nefndar í húsasmíði var hann i
nokkur ár. Síðustu tvo áratugi
vann hann sem eftirlitsmaður hjá
Islenzkum aðalverktökum að
byggingaframkvæmdum á Kefla-
víkurflugvelli og var hluthafi í
því félagi.
Á þessu og mörgu fleiru sést
bezt, að hann naut mikils trausts
og virðingar í byggðarlagi sinu og
segir það ef til vill meira en mörg
orð hvaða mannkosti og hæfileika
hann hafði að geyma, enda brást
hann aldrei þessu trausti. Hef ég
aldrei í öll þessi ár heyrt annað en
gott til hans lagt. Hann var líka
eitt af þessum hæglátu prúð-
mennum, sem ekki segja mikið,
en manngæzkan geislar frá til
samferðafólksins, og ekki mun
hann heldur hafa skort karl-
mennskuna þegar svo bar undir.
En um þetta eða annað slíkt spyr
hann aldrei sláttumaðurinn mikli.
sem allir verða að lúta. Hann bara
tekur, og þeim örlögum verðum
við öll að hlíta fyrr eða síðar.
Við sem nú fylgjum þessum
ágæta vini og samstarfsmanni get-
um því aðeins beðið guðsblessun-
ar eftirlifandi konu hans, börn-
um, ættingjum og vinum um leið
og ég, kona mín og vinnufélagar
votta þeim öllum okkar dýpstu
samúð. Ennfremur hef ég verið
beðinn fyrir innilegustu samúðar-
kveðjur til konu hans og aðstand-
enda allra frá íslenzkum aðal-
verktökum.
Daníel Einarsson
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig vefð-
ur grein, sem birtast á f mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
'fnubili.
+
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðarför
EIRÍKS GUÐMUNDSSONAR
frá Dröngum.
Sérstaklega þökkum við
sveitungum og vinum fyrir
norðan frábærar viðtökur og alla
aðstoð
RagnheiSur Pétursdóttir,
böm og tengdabörn.
úllaraskreytlngar
blómouol
Groðurhusið v/Sigtun simi 36770