Morgunblaðið - 04.08.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGUST 1976
„Fannst hluturinn
springa í lítilli
hæð yfir höfninni”
— segir Áslaug Alfreðsdóttir í Grímsey
„ÞAÐ var um kl. 22.30 á sunnu-
dagskvöldið, að ég sá skyndi-
lega sterkt Ijós á himni, sem
ifktist einna helzt skipaeld-
flaug og þaut þetta fyrirbæri
áfram af miklum hraða og á
eftir fylgdi reykhali eins og eft-
ir þrýstiloftseldflaug. Mér kom
ekkert sérstakt til hugar fyrst í
stað, en fylgdist með þessu þar
til eldhnötturinn eða hvað sem
þetta var sprakk og hvarf I vest-
urátt. Þegar hluturinn sprakk,
fannst mér hann vera rétt fyrir
höfninni og f tiltölulega lftilli
hæð,“ sagði Áslaug Alfreðsdótt-
ir f Grfmsey, en hún var ein
þeirra manna, sem sá cinkenni-
legan lýsandi furðuhlut á
himni s.l. sunnudagskvöld.
Hlutur þessi sást vfða á l'and-
inu, og virðist hann hafa
sprungið f loftlögum norður af
landinu.
Aslaug sagði þegar Morgun-
blaðið ræddi við hana, að sér
hefði fyrst dottið í hug neyðar-
blys er hún sá fyrirbærið, en
fljótlega séð að svo var ekki.
„Það er afskaplega furðulegt að
sjá svona nokkuð, en ég hugsaði
samt lítið um þetta fyrr en eftir
á.“
Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélags
Islands, sagði, að um kl. 22.40 á
sunnudagskvöldið hefði verið
haft samband við Slysavarna-
félagið og tilkynnt, að eitthvað
sem líktist neyðarblysi sæist
NA af Horni. Þessi tilkynning
kom frá vitaverðinum á Horn-
bjargsvita gegnum Siglu-
fjarðarradíó. Nokkru síðar kom
tilkynning um neyðarblys frá
fólki, sem var í úteyjum í Vest-
mannaeyjum, og sagt var að frá
blysinu kæmi mikill reykur. Á
svipuðum tíma kom einnig til-
kynning sama eðlis frá bónda í
Miklaholtshreppi í Hnappadals-
sýslu og ennfremur frá tal-
stöðvarbil við Arnarstapa.
Sagði Hannes að samband
hefði verið haft við flugstjórn
og einnig hefði verið haft sam-
band við flugvél, sem var að
koma frá Færeyjum. Ennfrem-
ur hefði varðskip við Suður-
ströndina og bátar lagt af stað
og svipast um. Meðan á þessu
Framhald á bls. 38
og lengra vatnsfalli, ekki sízt
þegar það er haft í huga að
aðeins er veitt á eina stöng og
aðeins hálfan daginn.
Meðalfellsvatn
Silungsveiðin var ljómandi
góð allt þar til laxinn kom í
vatnið í síðasta mánuði, en þá
dró verulega úr henni. Ekki er
ólíklegt að skýringin sé sú að
eftir það hafi veiðarfæri manna
verið valin með það fyrir aug-
um að setja i lax en síður sil-
ugn. Allmikill lax er nú í vatn-
inu og hefur einhver reytingur
þegar veiðzt. Öll veiðileyfi eru
uppseld um helgar, en enn er
hægt að fá leyfi aðra daga og
kosta þau 900 krónur fyrir hálf-
an daginn. í fyrra var mjög góð
veiði í Meðalfellsvatni, vel á
annað hundrað laxar veiddust
og silungsveiðin var einnig
stórgóð.
Re.vkjadalsá
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem þættinum tókst að afla
sér um helgina, voru á sunnu-
daginn komnir rúmlega 40 lax-
ar á land úr Reykjadalsánni og
er það miklu betra en á sama
tíma í fyrra. Þess ber þó að
geta, að veiðin fór óvenjulega
hægt af stað í fyrra og mátti
heita að áin væri steindauð
fram að mánaðamótum júli-
ágúst. Um miðjan síðasta mán-
uð kom góð ganga í ána og er nú
lax upp um alla á þó að mest
veiðist hann enn í neðri helm-
Framhald á bls. 38
Frá setningu norra-na hiskupafundarins í gær.
Norrænn biskupafundur
IIINtiAf) til lands eru nú komnir
32 erlendir hiskupar (il ráð-
stefnuhalds. Fr þaó norra-nn
hiskupafundur sem nú et haldinn
í 18. sinn og í fyrsta skipti á
tslandi. Riskup Islands, herra
Sigurhjiirn Finarsson, setti fund-
inn í hátíðasai lláskóla Islands í
ga‘r og stendur hann fram á
fimmtudag. Fins og fvrr segir
kontu hingað 32 erlendir hiskup-
ar og eru fleslir þeirra með konur
sínar með sér. Frá tslandi sitja
fundinn auk hiskups, vígsluhisk-
uparnir sr. Pétur Sigurgeirsson
og'sr. Sigurður Pálsson, en þessir
SÆMILEG loðnuveiði var um
helgina um 90 mílur norður af
Horni og frá þvf á laugardag þar
til um hádegi f gær höfðu 25 skip
tilkynnt um afia samtals 9100
lestir. Heildarloðnuaflinn f sum-
ar er nú kominn yfir 30 þúsund
lestir og gera menn sér vonir um
að hægt verði að halda veiðunum
áfram fram í september.
Islenzkir fiskifræðingar hafa
fundir eru haldnir þriðja hvert
ár.
Miirg mál verða til umræðu og
má m.a. nefna helgisiði kirkna á
Norðurliindum, skírn, Irú og upp-
fræðslu og' r;ett verður um gagn-
kvæntan rétt presta til þjónustu á
Norðurlöndunum. Verða þessi
ntál tekin fyrir í umræðuhópum
og flutt verða framsöguerindi um
þau. Þá er og fjallað um samband-
ið milli ríkis og kirkju en þau mál
eru nú ofarlega á baugi m.a. í
Sviþjóð og Noregi.
1 dag tekur forseti Islands á
móti biskupunum á Bessastöðum
lengi haldið því fram, að hægt
væri að veiða loðnu i nót yfir
sumartímann útí fyrir Norður-
landi og árið 1969 var t.d. gerð
tilraun til þeirra veiða á Hafrúnu
frá Bolungavík. Sú tilraun gafst
ekki vel fyrst og fremst vegna
þess hve loðnunót skipsins var
lítil. Síðan þá hafa öðru hverju
verið gerðar tilraunir til, síðast í
Framhald á bls. 38
og í kvöld er síðan guðsþjónusta í
IJór.ikirkjunni sem er opin al-
menningi. Norræna biskupafund-
inum lýkur á fimmtudag en á
föstudag fara þeir austur fyrir
fjall og verður snæddur hádegis-
verður á Þingvöllum í boði
kirkjumálaráðherra og farið verð-
ur einnig að Skálholti.
Eru
þeir að
fá 'ann
■
V
Milli vatna í Svínadal
Veiðin í árstúfunum milli
Svínadalsvatnanna hefur verið
góð undanfarnar tvær vikur og
er laxinn sem þar veiðist sam-
stofna laxinum í Laxá í Leir. Er
þarna því um allvænan lax að
ræða. Erfitt er að segja til um
hve margir fiskar hafi verið
dregnir, þar sem engin veiði-
bók er i gangi fyrir þetta veiða-
svæði, en á sunnudaginn veidd-
ust t.d. 4 laxar í Selósnum, þ.e.
læknum milli Þórisstaðavatns
og Eyrarvatns. Verður það að
teljast ágæt veiði í ekki stærra
Loðnan:
9000 lestir feng-
ust um helgína
r
verzlunar-
Arnþór Ingólfsson
lögregluvarðstjóri:
„Umferðar-
mennineunni
hefur fleygt
r 99
tram
mannahelgi
UMFERÐIN um verzlunar-
mannahclgina var mjög mikil, að
sögn þeirra sem með henni fylgd-
ust, en hún var dreifðari en oft
áður. Ekki er vitað um, nein
meiriháttar óhöpp eða skakkaföll
og má segja með sanni að þetta
hafi verið þvf sem næst slysalaus
verzlunarmannahelgi. Leiðbein-
ingum var útvarpað til fólks alla
helgina og hafa ýmsir haft á orði,
að það hafi ekki átt sfstan þátt f
þvf hvernig til tókst. Morgunblað-
ið ræddi í gær við nokkra af þeim,
jsem stóðu f eldlfnunni um helg-
ina ög áttu þátt f þvf að greiða
fyrir umferðinni. Fara samtölin
hér á eftir:
„ÞAÐ HEFUR orðið geysileg
breyting á umferðinni um verzl-
unarmannahelgina á undanförn-
um árum, hún er miklu dreifðari
og jafnari en hún var áður,“ sagði
Arnþór Ingólfsson lögregluvarð-
stjóri f samtali við Mbl. f gær.
Arnþór talar þarna af eigin
reynzlu, þvf hann hefur unnið við
umferðarþjónustu um þessar
helgar allar götur frá árinu 1966.
Arnþór sagðí að fyrir 6—7 ár-
um hefði mannskapurinn safnast
á örfáa staði, kannski 10—15 þús-
und manns i Húsafell og þjappað-
ist umferðin á sömu vegina á
sama tíma. „Nú er umferðin
miklu dreifðari og viðráðanlegri
og svo er hitt, að umferðarmenn-
ingu okkar íslendinga hefur
fleygt fram. Um helgina var það
áberandi að fólk notaði ljósin í
Arnþór Ingólfsson
ryki og sól og langflestir voru með
bílbeltin og glannar sáust varla,
heldur var ekið á jöfnum og góð-
um ferðahraða. Þetta þakka ég
mest umferðarfræðslu og áróðri í
fjölmiðlum og umferðarútvarp-
inu,“ sagði Arnþór.
Að sögn Arnþórs hafði lögregl-
an 6 eftirlitsbíla úti á þjóðvegun-
um um helgina og auk þess voru
nokkrir lögreglubílar á vegunum
út frá Reykjavík, á Þingvallavegi,
Vesturlandsvegi upp í Hvalfjörð
og Suðurlandsvegi allt austur á
Rangárvelli. Þá fóru lögreglu-
menn á þyrlu að kanna umferðina
á mánudaginn. Sagði hann að
samvinna þeirra, sem unnu að þvi
að greiða úr umferð hefði á allan
hátt verið til fyrirmyndar og væri
hann öllum þessum aðilum þakk-
látur fyrir það hve vel allt starfið
gekk um helgina og árangurinn
varð góður.
r
Jón Múli Arnason
útvarpsþulur:
„Þetta var
skemmtileg
helgi”
JÓN Múli Árnason var þulur I
umferðarútvarpinu alla verzl-
unarmannahelgina og var það
mál manna, að hann hefði staðið
sig þar eins og hetja.
„Þetta var ansi skemmtileg
helgi,“ sagði Jón Múli þegar Mbl.
ræddi við hann í gær. „Þetta var
allt öðru vísi en ég hef áður unnið
við, en fólkið sem vann með mér
var gott og skemmtilegt og gaman
var að vinna með því. Það var
bara verst að ég var alltaf að
ruglast á nöfnunum, ég er svo
skrambi gleyminn á nöfn svo ég
tali nú ekki um titlana á lögreglu-
mönnunum, en þeir eru i fjöl-
breyttu úrvali hjá lögreglunni.“
Jón Múli sagðist viss um að
gagn væri að svona útvarpi. „Við
vorum nú að monta okkur af því
að við hlytum að eiga einhvern
þátt f því að engin stórslys urðu
eða önnur meiriháttar skakkaföll
í umferðinni. Það hringdu víst