Morgunblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGUST 1976 13 Frá bindindismótinu f Galtalækjarskógi. haft afskipti af svo fjölmennu móti, sem fór svona vel fram og voru langferðabílstjórar sam- mála henni um það. Gott veður var alla helgina í Húsafelli en þar komu rúmlega 3.000 manns, sagði Gísli Hall- dórsson í Borgarnesi. Ung- mennasamband Borgarfjarðar hélt þetta mót og fór það í alla staði mjög vel fram sagði Gísli og vildi hann þakka mótsgest- um komuna og ungmennafélög- um fyrir aðstoð. Ekki rigndi hjá þeim nema aðeins á sunnudags- morgun og varla sást ölvun á nokkrum manni en í leit lög- reglunnar var eitthvaó af víni gert upptækt, sagði Gísli. Mótið sóttu mikið fjölskyldur og nokkuð af yngra fólki, sagði Gísli Halldórsson að lokum. Skemmtiatriðin f Galtalækjarskógi voru fyrir alla fjölskylduna. Frönsku leiðin í Borgarfirði eystra Borgarfirði eystra. 30. júlí. Og enn líður tíminn allt til árs- ÞAÐ mun hafa verið um 1860, að frönsk fiskiskúta kom hér inn á Borgarfjörð, sem ekki þótti til nein tíðindi, því að í þá daga stunduðu Frakkar mikið fiskveið- ar á seglskútum og þá einkum við Austurland. En í þetta skipti var erindið að fá leyfi til að grafa tvo skipverja, sem látist höfðu í hafi. Leyfið var að sjálfsögðu fengið hjá bóndan- um í Hofsströnd austanmegin fjarðarins, og voru líkin grafin í svonefndri Oddsborgarmýri skammt frá sjó. Svo liðu nokkur ár, þá bar svo til að aftur kom frönsk skúta inn á fjörðinn með látinn mann, og mun í þetta sinn ekki hafa verið haft tal af neinum heimamanna heldur haldið rakleiit að litla grafreitnum og maðurinn grafinn þar, svo að margt þykir benda til þess að hér hafi verið um sömu skútuna að ræða. ins 1882. Þá kemur enn frönsk skúta inn á fjörðinn og enn í sömu erindum að búa félaga hinsta hvílustað. Fylgdi þá sú saga, að hann hefði fallið úr reiða í ofviðri og beðið bana. Skipsfélagar hins látna tegldu til fjóra krossa úr rekaspýtum, en þeir týndu tölunni og hurfu nema einn, sem langst stóð, en er nú að mestu horfinn líka. Þarna hvíla þeir, fjórir nafn- lausir framandi menn, fjarri ætt- landi sínu, gleymdir,' og saga þeirra hvergi á bókum. Leiðin smáhurfu, en þó mótar greinilega fyrir þeim ennþá. Okkur nokkrum Borgfirðingum hefur ekki þótt við hæfi, að þessir „óþekktu hermenn hafsins“ ættu algerlega að gleymast og týnast. Þess vegna tókum við okkur til i sumar, gerðum upp leiðin, girtum grafreitinn og reistum fána- ströng, svo að nú á þjóðhátíðar- degi Frakka, 14. júlf, blakti franski fáninn yfir þessum óþekktu mönnum, sem svo lengi hafa hvílt fjarri ættjörð sinni. Þætti nú mörgum sæma, að franska ríkið léti setja minninga- plötu á hinsta legstað sona sinna, sem um sollin úthöf og svöl vetr- arveður fórnuðu lífi sinu í þágu lands sins og þjóðar og hlutu að launum lág kuml á strönd fram- andi lands. Sverrir Haraldsson. Fyrstir á íslandi ^ (í eista verzlunarhúsnæði Reykjavíkur) Bjóðum nú fyrsta sinni peysuboli áprentaða íslenskum myndum í fjölmörgum litum og úrvali teikninga. Komið og veljið peysubol með íslenskri mynd, pressum myndina í bolinn meðan þið bíðið. T.d. tilvalin afmælisgjöf vinsælasta sendingin til vina og vandamanna erlendis, fyrir sólarlandafara o.fl. o.fl. Flestar stærðir, margir litir, vandaðir íslenskir og danskir bolir. Fyrir t.d. táninga bendum við á stjörnumerkin með íslenskum texta. Innifalið í öllum okkar verðum er ókeypis nafn eftir óskum. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. PEYSUHORMD í GLER OG POSTULÍN, HAFNARSTRÆTI 16 — SÍMI 24338

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.