Morgunblaðið - 04.08.1976, Síða 15
Árni Helgason, Stykkishólmi
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1976
15
Flókalundur —
Bjarkarlundur
Oft hafði mér komið í hug und-
anfarin ár að heimsækja Flóka-
lund í Vatnsfirði en svo kallar h.f.
Gestur, sem rekur þarna myndar-
legan veitingastað og gistingu,
þetta veglega heimili. Ég hafði
einnig heyrt um hversu gott væri
að koma þangað, hvernig gestgjaf-
ar væru þarna réttir menn á rétt-
um stað þar sem þau Heba Olafs-
son og maður hennar Páll hafa
haldið þarna merkinu á lofti I 10
ár, enda segja árin sína sögu.
svona stað rekur enginn í langan
tíma sem ekki kann skil á þjón-
ustu. Og víst er um það að enga
hefi ég heyrt verða fyrir von-
brigðum.
Þvf var það laugardaginn 10.
júlí að þessi löngun min rættist. I
sambandi við aðalfund Baldurs
h.f. var okkur nokkrum boðið í
skemmtiferð með bátnum um eyj-
ar á Breiðafirði og til Brjánslækj-
ar. Við fórum þessa ferð hjónin
og tvö börn okkar, en mikill fjöldi
var með f ferðinni eins og vana-
lega með Baldri á þessum tima
árs. Guðbjartur Egilsson sem
„Opið hús”
í Norræna
I KVÖLD er „opið hús“ í Norr-
æna húsinu. Kl. 20.30 flytur próf.
dr. Jónas Kristjánsson erindi um
fslenzk handrit og sýnir skugga-
myndir efninu til skýringar. Er-
indið er flutt á dönsku.
Kl. 22.00 sýna félagar úr Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur islenska
þjóðdansa.
SUMARSÝNINGIN í sýningar-
sölunum í kjallara verður opin til
15. ágúst og- i bókasafni stendur
nú yfir sýning á bókum um Is-
land. Ennfremur eru þar vatns-
litamyndir eftir Dagmar Mártas
frá Svíþjóð. I anddyri hússins er
enn sýning á uppdráttum af göml-
um torfbæjum f Skagafirði.
lengst hefir verið aðalkrafturinn
á bak við þessa starfsemi var og
með f förinni og var það ekki
verra að hafa þennan góða og
skemmtilega ferðafélaga með sér.
Við mættum til ferðar klukkan 9
um morguninn og var enginn
vandi að taka undir með söngvar-
anum í gamla daga, sól úti sól
inni, sól f hjarta sól í sinni, sól
bara sól. Við komum til Brjáns-
lækjar kl. 13.30 og þar var fyrir
bifreið til að fara með okkur
þennan stutta spöl og auðvitað
var þar Páll við stýrið. Haldið var
til Flókalundar og ég verð að
segja það að strax í varpanum
varð ég undrandi yfir þeim breyt-
ingum, sem þarna höfðu átt sér
stað síðan ég var þarna á ferð
fyrir u.þ.b. 6 árum.
Ég minntist þess að þegar ég fór
þarna eitt sinn um var þarna lítill
skáli sem var brautryðjendastarf
f þessu fallega umhverfi. Þetta
hefir orðið eins og snjóboltinn,
hlaðið utan á sig og annað meira,
það hefir fylgst með kröfum tím-
ans og getur nú boðið upp á þjón-
ustu sem er f öndvegi annarsstað-
ar. Þarna er hinn vistlegasti mat-
salur, seturstofur og falleg, rúm-
góð og snyrtileg íbúðarherbergi,
20 talsins, þar af 16 í nýju bygg-
ingunni. Snyrtiaðstaða er þarna
eins og best verður á kosið.
Okkur var boðið að skoða stað-
inn og einnig í þennan glæsilega
mat og var þetta mikil ánægja
fyrir okkur í alla staði. Hefðum
viljað hafa þarna lengri dvöl því
nóg er að skoða þarna og þá ekki
sfður umhverfið kjarri vaxið og
hinn fagra fjörð og fjöllin sem
hann speglar, en timinn var
skammtaður.
Eins og ég sagði áður er þetta
10. árið, sem þau Heba og Páll
veita þessum glæsilega gististað
forstöðu. Vegasambandið er batn-
andi og á sumrin eru það ferðir
Baldurs sem hafa þarna mikil
áhrif. Ég sá strax að það myndi
kosta mikið að halda uppi svona
Framhald á bls. 29
100 umferðaróhöpp
á Akranesi það
sem af er árinu
Akranesi 3. ágúst
FYRSTU sjö mánuði ársins 1976
hafa um 100 umferðaróhöpp átt
sér stað á umráðasvæði Akranes-
lögreglunnar. Þar af voru 80 inn-
anbæjar. Mikið tjón hefur orðið á
bifreiðum vegna árekstra, en slys
á fólki hafa ekki orðið alvarleg.
Vonandi dregur úr umferðar-
óhöppum í framtíðinni, þar sem
Iögreglunni hefur bætzt nýr
starfskraftur. Hraði og hávaði f
umferðinni hefur lagast töluvert
á síðustu tfmum, en mörgum
finnst þó að betur mætti gera f
eftirlitinu og einnig f að skipu-
leggja aksturinn, m.a. með þvf að
setja upp fleiri umferðar- og að-
vörunarmerki, t.d. við götur nær-
liggjandi sjúkrahúsinu, og telja
þessar framkvæmdir bráðnauð-
synlegar.
Akurnesingar eiga nú milli
1400 og 1500 bifreiðar og umferð
hér hefur stóraukist, þar sem
Akraborgin er hlaðin bifreiðum í
hverri ferð til og frá Reykjavfk.
Júlfus
Skipstjórinn á Þórunni
Sveinsdóttur dæmdur
í 650 þús. kr. sekt
Á LAUGARDAGINN var kveðinn
upp í Vestmannaeyjum dómur i
máli skipstjórans á Þórunni
Sveinsdóttur VE, en báturinn var
staðinn að ólöglegum veiðum
langt innan fiskveiðimarkanna
við Ingólfshöfða s.l. fimmtudags-
kvöld. Var skipstjórinn dæmdur
til að greiða kr. 650 þúsund til
Landhelgissjóðs og aflinn, 7 tonn,
og veiðarfæri gert upptækt.Vara-
refsing er 45 daga varðhald.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
skipstjórinn á Þóriyini Sveins-
dóttur er staðinn áð ólöglegum
veiðum og miðaðist dómur í mál-
inu við það.
Frá Flókalundi í Vatnsfirði.
^/w\
LAZY
SUITS
frá MELKA