Morgunblaðið - 04.08.1976, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 1976
17
Stórkostleg hátíð gleði, lita og Ijósa er
XXI Úlympíuleilainum var sJrtið í Montreal
Frá Ágústi I. Jónssyni í
Montreal:
Lokaathöfn Ólympfuleikanna I
Montreal á sunnudagskvöldið
hlýtur að verða öllum ógleym-
anleg stund sem þar voru við-
staddir á aðalleikvanginum.
Stórkostlegri sýningu fær
maður vart hugsað sér, né stór-
brotnara samspil ljóss og lita.
Gleðin sat f fyrirrúmi og löngu
eftir að Ólympfuleikunum var
formlega slitið að þessu sinni
héldu keppendur áfram að
dansa á leikvanginum.
Kanadamann helguðu þessa
lokaathöfn að verulegu leyti
Indfánunum og áttu öll brot
Indíánaþjóðflokka sem lifðu
eða lifa í Kanada þarna sfna
fulltrúa. Leiddu Indíánarnir
sex keppendur frá hverri þátt-
tökuþjóð inn á völlinn á hátíð-
legan og líflegan hátt. Fulltrú-
ar Islands í þessari athöfn voru
pau Guðmundur Sigurðsson,
Sigurður Ólafsson, Gísli Þor-
steinsson, Ágúst Ásgeirsson,
Lilja Guðmundsdóttir, Þórdfs
Gásladóttir og að sjálfsögðu
Óskar Jakobsson, fánaberi.
Gekk Óskar reyndar ekki inn
með þeim sex, heldur með öðr-
um fánaberum á undan aðal-
hópnum. Þeir keppendur aðrir
sem ekki tóku þátt í athöfninni
sjálfri inni á vellinum stóðu við
enda vallarins og fylgdust
þaðan með því sem gerðist þar
til að lokaathöfninni sjálfri var
lokið. Þá leystist hópurinn upp
og allir tóku þátt f gleðidansin-
um á leikvanginum.
Lokaathöfnin hófst með því
að ýipis fyrirmenni tóku sér
sæti í heiðursstúkunni, þeirra á
meðal Killanin lávarður, for-
maður Alþjóðlegu Ólympíu-
nefndarinnar og Roger
Rousseau, formaður kanadfsku
Ólympíunefndarinnar. Ljósin
voru dempruð og 500 kana-
dískar stúlkur gengu inn á
völlinn í alhvítum klæðum.
Hófu þær síðan að dansa á
vellinum og mynduðu í lokin
Ólympíuhringina á leikvangin-
um. Höfðu klæði þeirra breytt
um lit, einn hringurinn var gul-
ur, annar rauður, sá þriðji blár,
sá fjórði svartur og sá fimmti
grænn.
Óvænt innskot
1 miðjum dansi stúlknanna
gerðist það að maður einn
hoppaði yfir grindverkið úr
áhorfendastúkunum og inn á
völlinn. Berháttaði hann sig
þar í miðjum stúlknahópnum
og hoppaði um meðal þeirra
nokkra stund. Tókst lögreglu-
mönnum þá loks að handsama
kauða og var hann borinn af
vellinum af fimm fjlefldum lag-
anna vörðum.
Vakti þetta atriði litla kátínu
meðal áhorfenda sem óspart
púuðu á stríparann, en
stúlkurnar héldu óáreittar
áfram fallegum dansi sfnum.
Ekki þarf að orðlengja að hvert
sæti var skipað á Ólympfuleik-
vanginum og komust færri að
en vildu. Auk þess fylgdist
síðan á að gizka milljarður sjón-
varpsáhorfenda úti um allan
heim með þessari athöfn. Eru
Ólympíuleikarnir í Kanada sá
atburður í sögunni sem flestir
hafa átt kost á að fylgjast með,
en viðstaddir einn eða fleiri lið
þéssarar. miklu fþróttahátíðar
voru um þrjár milljónir áhorf-
enda, á ýmsum stöðum f
Montreal og nágrenni, þar sem
einhver keppni fór fram.
Indíánatjöld á
miðjum leikvanginum
Var nú komið að því að full-
trúar þátttökuþjóðanna gengu
inn á leikvanginn ásamt fjöðr-
um skrýddum Indfánum. Komu
fánaberarnir fyrstir og stilltu
sér upp meðfram hliðarlínunni
fyrir framan heiðursstúkuna
ásamt kanadískum stúlkum
sem báru skilti þátttökuþjóð-
anna, eins og við setningarat-
höfnina. Hluti Indíánanna fór
þegar inn I hringina sem
stúlkurnár höfðu myndað og
áður en nokkurn varði höfðu
þeir reist fimm indíánatjöld
inni á sjálfum leikvanginum,
þar sem aðeins tæpum tveimur
tímum áður hafði lokið keppni í
síðustu keppnisgreininni,
hindrunarhlaupi hesta. Höfðu
fyrir þá grein verið komið upp
ýmiss konar hindrunum,
girðingum og vatnstorfærum,
auk þess sem trjágróður og lit-
skrúðug blóm höfðu skreytt
leikvanginn þá. Þetta var nú
allt búið að f jarlægja og var það
reyndar undrunarvert hversu
fljótt og skipulega Kanada-
mönnum tókst að hreinsa
völlinn og gera allt tilbúið fyrir
lokaathöfnina. S:gði einhver að
það verk hefði einkennzt af
þýzkri nákvæmni og amerísk-
um hraða.
Indfánatjöldin fimm voru í
gulum, rauðum, grænum, blá-
um og hvítum lit, þannig að allt
lagðist á eitt um að gera þessa
athöfn sem litskrúðugasta, og
sjálfsagt hefur það verið lítið
verra að fylgjast með þessu öllu
saman í litsjónvarpstækjum
víða um heim.
Leikunum slitið
Er hér var komið sögu gekk
Killanin lávarður að ræðustóln-
um fyrir framan heiðursstúk-
una og snéri sér í átt að
Ólympíufánanum við enda
vallarins. Var nú gríski þjóð-
söngurinn leikinn og gríski
fáninn dreginn að hún. Síðan
var kanadfski fáninn dreginn
upp meðan kanadíski þjóð-
söngurinn „O Kanada'1 var
leikinn. Þriðji fáninn sem dreg-
inn var að hún var sá sovézki,
og sovézki þjóðsöngurinn var
leikinn, en næstu Ólympíu-
leikar verða sem kunnugt er
haldnir i Moskvu árið 1980.
Killanin sleit nú 21. Ólympíu-
leikunum og sagði m.a. „Ég lýsi
21. Ólympíuleikunum lokið og
skora á æsku heims að safnast
saman eftir fjögur ár i Moskvu
til að gleðjast og taka þar þátt í
22. Ólympíuleikunum." Var nú
Ólympfufáninn dreginn niður
og 40 manna kór söng Ólympiu-
sálminn. 8 fþróttamenn báru
siðan fánann út af leikvangin-
um. Ólympiueldurinn dó nú
hægt og rólega út, dauðaþögn
rikti á vellinum, utan hvað
trompetleikari lék á hljóðfæri
sitt.
Sjáumst í Moskvu
Indíánarnir gáfu nú öllum
keppendunum inni á
leikvanginum litla gjöf til
minningar um þessa athöfn,
fjöður eða eitthvað f þá áttina.
Áhorfendur höfðu allir fengið
kerti við innganginn og veifuðu
þeim óspart til hópsins á leik-
vanginum sem söng, dansaði,
Framhald á bls. 29