Morgunblaðið - 04.08.1976, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1976
mmm
19
Fimleika-
sniflingar
áferð
RÚSSNESKT fimleikafólk kom hing-
að til landsins á sunnudaginn beint
frá Montreal, og heldur það hér þrjár
sýningar. Sú fyrsta var í gærkvoldi,
önnur sýningin verður í kvöld klukk-
an 20.30 í Laugardalshöll og sú
þriðja og síðasta verður á föstudag-
inn á sama stað og sama tíma.
Eins og fram kom fyrir helgina, er í
hópnum fimleikafólk, sem aflaði sér
heimsfrægðar á nýloknum Ólympíu-
leikum. Má þar nefna stúlkurnar Nelli
Kim, Mariu Filatovu, Elviru Saadi og
Svetlönu Grozdovu en þær voru allar í
gullverðlaunasveit Sovétríkjanna i
sveitakeppni í fimleikum kvenna. Nelli
Kim fékk auk þess gullverðlaun í
tveimur einstaklingsgreinum. Enginn,
sem sá til stúlknanna í sjónvarpi um
helgina efast um að þarna eru snilling-
ar á ferð
Auk stúlknanna fjögurra er í hópn-
um fremsta nútímafimleikakona heims,
Irine Devina og þrír fimleikamenn úr
silfurverðlaunsveit Sovétmanna á
Ólympíuleikunum Hins vegar komu
akrobatarnir tveir ekki til landsins, því
annar þeirra veiktist rétt áður en leggja
átti af stað í ferðina til íslands
NýtaSÞ
Ólympíu-
hallirnar
í Montreal?
AÐSÖKN að Ólympfuleikunum l
Montreal var mun meiri en jafn-
vel hinir bjartsýnustu höfðu von-
að, og þar. af leiðandi voru tekjur
af leikunum langt fram úr áætl-
un. Eigi að sfður er langt frá þvf
að þær nægi til þess að standa
straum af hinum gffurlega dýru
mannvirkjum sem reist voru
vegna leikanna.
Kanadamenn telja lfklegt að
endar hefðu náðst saman, ef ekki
hefði komið til hið óeðlilega
ástand sem rfkti nær allan tfm-
ann er verið var að reisa mann-
virkin, þ.e. verkalýðsfélög notuðu
þessa framkvæmd til þess sem
Kanadamenn kalla „fjárkúgun-
ar“. Núer álitið að það taki fbúa
Quebeck-fylkis mörg ár að borga
brúsann, og að fylkið muni ekki
hafa nema takmörkuð not af hin-
um glæsilegu mannvirkjum sem
eftir standa. Til tals hefur komið
að Sameinuðu-þjóðirnar færi ein-
hvern hluta starfsemi sinnar til
Montreal og nýti umrædd mann-
virki, og væri það vitanlega mik-
ill fengur fyrir Kanadabúa ef af
þvf gæti orðið.
Síðasta keppni Niki Lauda ?
- Slasaðist alvarlega í keppni í Niirburgring
HEIMSMEISTARINN f kapp-
akstri, Niki Lauda frá Austurrfki,
fór út af á ofsahraða á Ferrari-bfl
sfnum f Grand Prix keppni Þýzka-
lands s.l. sunnudag.
Lauda slasaðist mjög alvarlega
og er enn talinn í lífshættu. Slysið
varð á öðrum hring keppninnar á
Nurburgring, sem er talin ein
erfiðasta og hættulegasta Grand
Prix brautin núna.
Keppnin hófst í bleytu, en strax
eftir fyrsta hringinn, sem raunar
er yfir 20 km langur þurftu menn
að stoppa til að fá önnur dekk þar
eð brautin var tekin að þorna.
Bretinn Guy Edwards var næst-
ur á eftir Lauda þegar slysið varð.
Hann kvað ekki rétt, sem sumir
sögðu, að annað afturhjólið hefði
dottið undan Ferrari-bíl Lauda
fyrir slysið. Edwards sagðist hafa
verið rétt á eftir Lauda þegar þeir
komu á blautan kafla á 190
km/klst. hraða og byrjuðu að
hægja á sér í beygjianni. „Allt í
einu þaut hann beínt áfram gegn-
um næstu varnargirðingar út að
bakkanum, sem er meðfram
brautinni, siðan rann hann til
baka inn á brautina," sagði
Edwards um Lauda. Edwards
rakst síðan á bil Lauda þegar
hann reyndi að sleppa framhjá.
Tveir bflar, sem á eftir komu
keyrðu beint á Lauda á mikilli
ferð. Það kviknaði í bíl Lauda og
Edwards ásamt hinum tveim, sem
keyrðu á Lauda, tóku að reyna að
losa hann úr flaki Ferrari-bílsins.
Þeim gekk illa að losa öryggisbelt-
Framhald á bls. 23
SKIPTINGVu.. jna
ALLS hiutu 41 þjóð ein eða fleiri verðlaun á olvmpfuleikunum f
Montreal. Hlutur Sovétmanna f kapphlaupinu um góðmálmana
var greinilega mestur, þar sem þeir hlutu samtals 125 verðlaun,
þar af 47 guilverðlaun. Bandarfkjamenn hlutu næst flest verð-
laun, eða 94 talsins, og voru 34 þeirra úr gulli. Austur-Þjóðverjar
hlutu svo 90 verðlaun samtals, þar af 40 gullverðiaun og verður
slfkt að teljast með óifkindum, þegar tekið er tillit til þess að f
Austur-Þýzkalandi eru aðeins um 17 milljónir fbúa. Þær þrjár
þjóðir sem hér hafa verið nefndar skáru sig algjörtega úr, þar
sem sú, er varð f fjórða sætl, Vestur-Þýzkaland. hiaut samtals 39
verðlaun.
Skipting verðlauna milli þátttökuþjóðanna varð sem hér segir:
GullSilfurBrons Alls
Sovétrfkin 47 43 35 125
Austur-Þýzkaland 40 25 ■28 90
Bandarfkin 34 35 25 94
Vestur-Þýzkaland 10 12 17 39
Japan 9 6 10 25
Pólland 8 6 11 25
Búlgarfa 7 8 9 24
Kúba 6 4 3 13
Rúmenfa 4 9 14 27
Ungverjaland 4 5 12 21
Finnland 4 2 0 6
Svfþjóð 4 1 0 5
Bretland 3 5 5 13
Italfa 2 7 4 13
Júgóslavfa 2 3 3 8
Frakkland 2 2 5 9
Tékkóslóvakfa 2 2 4 8
Nýja-Sjáland 2 1 1 4
Suður-Körea 1 1 4 6
Sviss 1 1 2 4
Jamaica 1 I 0 2
Noregur 1 1 0 2
Norður-Kórea 1 I 0 2
Danmörk 1 0 2 3
Mexikó 1 0 1 2
Trinidad og Tobago 1 0 0 1
Kanada 0 5 6 11
Belgfa 0 3 3 6
Holland 0 2 3 5
Portúgal 0 2 0 2
Spánn 0 2 0 2
Astralfa 0 1 4 5
Iran 0 1 1 2
Venesúela 0 1 0 1
Mongólfa 0 1 0 1
Brasilfa 0 0 2 2
Austurrfki 0 0 1 1
Bermuda 0 0 1 1
Puerto Rico 0 0 1 1
Pakistan 0 0 1 1
Thailand 0 0 1 1
tsland hlaut tvö stig f hinni óopinberu stigakeppni Olympfu-
ieikanna í Montreal — og var það Guðmundur Sigurðsson
lyftingamaður sem vann til þeirra með hinni ágætu frammistöðu
sinni. Hafa tslendingar ekki hlotið stig á Ólympfuieikunum fyrr
að árunum 1956 og 1960 undanskildum, er Vilhjálmur Einarsson
var meðal fremstu manna f þrfstökkskeppni ieikanna.
Sovétmenn sigruðu f stigakeppninni að þessu sfnni og hlutu
alls 748 stig, rösklega 100 stigum meira en þeir sem næstir
komu, en það voru Austur-Þjóðverjar. Stigin féllu þannig:
Sovétrfkin 748
Austur-Þýzkaiand 632
Bandarfkín 599
Vestur-Þýzkaland 298
Rúmenfa 177
PÓIIand 175
Japan 173
Búlgarfa 165
Ungverjaland 148
Kanada 111
Kúba 96
italfa 93
Bretland 91
Tékkósióvakfa 74
Frakkland 58
Júgóslavfa 55
Svfþjóð 54
Finnland 54
Astraifa 50
Holland 40
Nýja-SJáland 36
Belgfa 31
Suður-Kórea 30
Brasilfa 25
Sviss 23
Spðnn 20
Danmörk 18
Noregur 18
Norður-Kórea 18
Mongóifa 18
Jamaíca 15
lran 13
Portúgal 12
Mexikó 12
Trinidad 8
trland 7
Austurrfki 6
Puerto Rico 6
Venesúela 5
Pakistan 4
tsrael 3
Bermuda 3
Tyrkland 3
Thaiiand 3
Panama 2
tsland 2
Argentfna 1
Grikkland 1
Kolombfa > 1
Guatemala 1