Morgunblaðið - 04.08.1976, Side 40

Morgunblaðið - 04.08.1976, Side 40
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGUST 1976 Kytfingar á íslandsmóti ISLANDSMÖT kylfinga er árleg hátlð ( þeirra hópi og tilhlökkun- arefni. Þá koma saman golfmenn úr öllum golfklúbbum landsins og heyja fjögurra daga baráttu, þar sem keppt er I flokkum eftir getu, og mönnum þar að auki raðað saman eftir árangri hvern dag. Það tryggir, að jafnir menn lenda saman. I fyrra fór landsmót fram á hinum nýja Jaðarsvelli við Akur- eyri. Oftast var prýðisgott veður, en „Stóri boli“ er aðeins 9 holur og þessvegna þurfti að nota dag- inn vel og byrja í rauðabýti á morgnana. Nú fer íslandsmótið fram í Grafarholti og þarf þá varla að ræsa menn eins snemma út. Hvert íslandsmót er vettvangur gleði og vonbrigða. Sumir hafa æft af kappi og ætlað sér mikið, en árangurinn verður kannski ekki eftir því. Öðrum finnst, að þeir hafi haft óheppnina með sér allan tímann; þeir komu aldrei stuttu pútti niður og þá er það auðvitað allt vellinum að kenna. Þeir þurftu að taka víti í hvert einasta sinn sem þeir lentu út af og það var yfirhöfuð mjög sorg- legt, hvað golfgæfan hafði snúið gersamlega við þeim bakinu. Aftur á móti brosir golfgæfan þeim mun blfðar við einhverjum öðrum, sem alltaf hittir naglann á höfuðið; er alltaf sláanlegur, hvar sem hann liggur og laumar niður löngum púttum. Annars virðist golfgæfan afleit með að níðast á þeim, sem lakari eru; það er eins og góður golfleikari sé oft hepp- inn líka. Og heppnin er vissulega þáttur í golfinu, sem taka verður tillit til. Magnús Hjörleifsson prentari og ágætur kylfingur úr Keili tók meðfylgjandi myndir á landsmót- inu á Akureyri f fyrra. Þær eru frá keppninni f meistaraflokki síðasta daginn og gefa hugmynd um stemninguna, sem jafnan rík- ir í síðasta hring mótsins. Núna hefst einstaklingskeppn- in á Islandsmótinu á miðvikudag og lýkur mótinu á laugardag. Bú- ast má við geysilega harðri keppni og þótt flestir veðji ugg- laust á íslandsmeistarann, Björg- vin Þorsteinsson frá Akureyri, eru fleiri harðir, sem gætu reynzt honum erfiðir. Þeir sem hafa hug á að fylgjast með mótinu, geta komið upp í Grafarholt og fylgt keppendum eftir. Eirfkur Þ. Jónsson. Ovænt úrslit í Ambassador- keppninni AMBASSADOR golfkeppnin fór fram hjá Golfklúbbi Ness um helgina. Þátttakendur voru 88, og er það óvenjumikil þátttaka. Meðal þátttakenda voru flestir beztu golfmenn landsins, svo sem íslandsmeistarinn Björgvin Þorsteinsson. Þau óvæntu úrslit urðu í keppn- inni, að 1 6 ára piltur úr GR, Eirikur Þ Jónsson, sigraði í keppni án forgjafar á 70 höggum, sem er jafnt vallarmeti Lék Eirikur braut- ina á 34 og 36 höggum og hefði þætt vallarmetið ef hann hefði ekki verið svo óheppinn að fara síðustu holuna á 6 höggum eða tveimur yfir pari Eiríkur varð unglinga- meistari í fyrra og hann er bráðefni- legur, eins og árangur hans ber með sér Annar i keppninni varð Col Lind- erman af Keflavíkurflugvelli með 77 högg, en á 78 höggum voru þeir Sigurður Thorarensen, Ágúst Svavarsson og Július R. Júlíusson, allir úr GK í keppni með forgjöf sigraði Ragnar Magnússon NK á 65 högg- um nettó Íslenzk-ameríska hf gaf verðlaun til keppninnar Fylgzt með viðureígnínní. Maðurinn á priksætinu er Eirfkur Smith, listmálari. Hann keppir f 1. flokki. NORÐURLANDAMOT UNGLINGA í KNATTSPYRNU HEFST í KVÖLD - ísland leikur við Finna í Laugardalnum 1 KVÖLD hefst á Laugardalsvell- inum f Reykjavfk Norðurlanda- mót drengja i knattspyrnu og mun það standa fram til næsta sunnudags, 8. ágúst. Eru það lið sem skipuð eru piltum 14—16 ára sem þarna reyna með sér, og koma hingað lið frá öllum Norðurlöndum, auk liðs Vestur- Þýzkalands sem tekur þátt f mót- inu sem gestur. Þetta er í annað skiptið sem slíkt Norðurlandamót er haldið en I fyrra fór það fram f Finn- landi og voru þátttakendur þá frá sömu þjóðum. Þá urðu Danir sigurvegarar, Finnar í öðru sæti, en síðan komu Vestur-Þjóðverjar, íslendingar, Norðmenn og Svíar sem ráku lestina. Erlendu þátttökuliðin komu hingað til lands í gær og fyrradag, og sem fyrr segir fara fyrstu leik- ir mótsins fram í kvöld. Hefur liðunum verið skipað í tvo riðla og er keppnisfyrirkomulagið þannig að þau lið sem sigra í riðlunum keppa saman um Norðurlanda- meistaratitilinn, en þau lið sem verða í öðru sæti f riðlunum keppa um þriðja sætið og þau lið sem verða neðst keppa um fimmta sætið. Þegar þetta er skrifað hafði ekki verið gengið endanlega frá vali íslenzka liðsins, sem æft hef- ur ágætlega að undanförnu undir stjórn landsliðsþjálfarans, Tony Knapp, sem jafnframt mun svo velja liðið. Honum til aðstoðar eru þeir Lárus Loftsson og Gísli Már Ólafsson, sem eiga sæti í ungl- inganefnd KSÍ. Riðlaskipting í mótinu er sú, að í 1. riðli leika lið Danmerkur, Vestur-Þýzkalands og Svíþjóðar, en í 2. riðli leika Finnland, Noreg- ur og ísland. Fyrstu tveir leikirnir verða í kvöld og hefjast þeir báðir kl. 19.00.1 Keflavík reyna Danir og Vestur-Þjóðverjar með sér, en á Laugardalsvellinum leika íslend- ingar og Finnar. Á morgun hefst keppnin einnig kl. 19.00. Þá leika f Kópavogi lið Svíþjóðar og Danmerkur og á Akranesi leika Noregur og Finn- land. Á föstudagskvöldið leika Vestur-Þýzkaland og Svíþjóð f Hafnarfirði kl. 19.00. og tsland og Noregur á Laugardalnum á sama tíma. N.k. sunnudag verður svo keppt til úrslita. Þá verður leikið um 5.—6. sætið f Hafnarfirði kl. 14.00 og 3.—4. sætið í Keflavík kl. 14.00. Sjálfur úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvellinum kl. 18.30. Ætla má, að íslenzka unglinga- liðið hafi nokkra sigurmöguleika f keppninni að þessu sinni. Heima- völlur hefur alltaf sitt að segja, og er vonandi að áhorfendur fjöl- menni á völlinn til þess að hvetja strákana. Þeir eiga það skilíð, þar sem þeir hafa sýnt mikla ástund- un og elju við æfingar sfnar. Björgvin Þorsteinsson, tslandsmeistari f golfi, slær af teig á landsmót- inu f fyrra. Björgvin er f senn högglangur og beinskeyttur enda er tækni hans með þvf bezta sem hér þekkist og staðan á myndinni, þegar hann hittir boltann, gæti verið upp úr kennslubók f golfi. Ragnar Ölafsson úr Golfklúbbi Reykjavfkur verður án efa einn þeirra, sem blanda sér I barðttuna um Islandsmeistaratitilinn. Nú verður Ragnar á heimavelli, þar sem hann hefur leikið bezt. Til dæmis lék hann sfðari daginn f Coca Cola-mótinu á 72 höggum. Islandsmeistarar frá upphafi EFTIRTALDIR hafa orðið íslands- meistarar í golfi frá þvi að fyrst var farið að keppa um titilinn árið 1942: 1942: Gfsli Ólafsson, GR 1943: Glsli Ólafsson, GR 1944: Gfsli Ólafsson, GR 1945: Þorvaldur Ásgeirsson, GR 1946: Sigtryggur Júllusson, GA 1947: Ewald Bemdsen, GR 1948: Jóhannes G. Helgason, GR 1 949: Jón Egilsson, GA 1950: Þorvaldur Ásgeirsson, GR 1951: Þorvaldur Ásgeirsson, GR 1952: Birgir Sigurðsson, GA 1953: Ewald Berndsen, GR 1954: ÓlafurÁg. Ólafsson, GR 1955: Hermann Ingimarsson, GA 1956: ÓlafurÁq. Ólafsson GR 1957: Sveinn Ársælsson, GV 1958: Magnús Guðmundsson, GA 1959: Sveinn Ársælsson. GV 1960: Jóhann Eyjólfsson, GR 1961: Gunnar Sólnes, GA 1962: Óttar Yngvason. GR 1963: Magnús Guðmundsson, GA 1964: Magnús Guðmundsson, GA 1965:Magnús Guðmundsson, GA 1 966Magnús Guðmunsson G.A. 1967: Gunnar Sólnes, GA 1968: Þorbjörn Kjærbo, GS 1969: Þorbjörn Kjærbo, GS 1970: Þorbjörn Kjærbo. GS 1971: Björgvin Þorsteinsson, GA 1972: Loftur Ólafsson, NK 1973: Björgvin Þorsteinsson, GA 1974: Björgvin Þorsteinsson, GA 1975: Björgvin Þorsteinsson. GA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.