Morgunblaðið - 04.08.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 1976
37
VELVAKAIMDI
Hringið í sima 10100 kl
10—1 1 frá mánudegi til
föstudags °g biðjið um _es-
endaþjónustu Morgunblaðs-
ins.
% Nýr kapítuli
„Veðrið hefir ofurlítið
skánað i tebollanum. Árgerð 1959
er orðin nokkurn veginn sammála
andmælendum um ýmis veiga-
mikil atriði í trúarbragðasögu nú-
tíma íslendinga. Að prestar nái
ekki til fólksins er að sumu leyti
satt. En orsökin er ekki guðs-
þjónustuformið, heldur andinn
sem gegnsýrir boðun meginhluta
kennendanna. Gamall viðhorfa-
status, sem óx upp af kirkju-
kenningum miðaldanna ólmast í
hverju orði ýmissa stólræðu-
manna. Hvað skyldu sumir segja
þegar við bætist nýja messusöngs-
bókin?
Ekki er mér ljóst með hvaða
orðum ég á að hafa vísað mannin-
um til Vítis. Sem nú ekki er til, í
biblíulegri merkingu. Hann
virðist sjálfur hafa dottið ofanf
eitthvað. Ekki hefir það nú samt
verið mjög djúp skollagjá, því enn
heldur hann sínum hugsunar-
þræði, og öbeinlínis biður prest-
ana að gerast félagsmálaráðgjaf-
ar. En er mönnum yfirleitt ljóst,
við hversu marga Neróa þeir yrðu
að berjast ef til kæmi? Hins vegar
mótmæli ég því að predikanir yfir
unglingunum beri litinn árangur.
Heiiir hópar þeirra virðast nú á
tímum vera fljótir að tileinka sér
alls konar skýringar á Kristi.
Þegar ný kynslóð skammast sín
fyrir að nefna Guð og Jesú, þá er
það aðeins félagslegt stundar-
fyrirbrigði, sem ekki á sér djúpar
rætur, sbr. hárskurð og klæða-
burð. Enginn vill skorast úr leik.
Og ekki eru það nema eðlileg við-
brögð. Mestu máli skiptir að æsk-
unni sé kennd rétt þekking á spá-
mönnum eins og Kristi og sam-
bandi hinna tveggja heima. Til
þess ættu prestarnir að vera fær-
ir. En hér er þá þess að geta, að
enga leiðbeiningu er í því máli
hjá þeim að fá svona flestum.
Þróunarkenningin og sköpunar-
saga Biblíunnar er t.d. ekki tvær
ólíkar staðreyndir. Þróun er að-
ferð sköpunar og þær báðar þvi
eitt og hið sama. Gagnvart þessum
sannleika stendur svo vanrækslan
á að kenna fólki að skilja táknmál
Biblíunnar. Og vanræksian á að
vara fólk við bókstafstrú og ofsa-
trú. Finnst ekki R. Helga V. að
boðskapur Krists hafi verið svo-
lítið annar en kirkjuhöfðingj-
anna?
Samkvæmt þessu get ég vel
fallizt á að prestar hætti að pissa
messum, ef enginn vill hlusta á
þá. Að segja að messurnar séu að
pissa út er ekki rétt orðalag.
Messurnar pissa ekki, þeim er
— Fólk segir svo margt, sagði
hún hirðuleysislega.
Christer ákvað að reyna aðra
aðferð.
— Börn yðar hafa verið sérstak-
lega hreinskilin mcð tilliti til af-
stöðu þeirra til híns látna. Það
væri fróðlegt að heyra um viðhorf
yðar að þvf leyti.
Nú var augljóst að hún hikaði
áður en hún svaraði. En þegar
hún gerði það var svar hennar
jafn eðlilegt og frjálsmannlegt og
fyrri orð hennar.
— Hann var... afburðamaður.
Hann vírtist vera sérkennilegur.
sérvitur, eigingjarn. En innst
inni var hann mildur og góðhjart-
aður maður og ákaflega viðkvæm-
ur. Við urðum að umgangast
hann af stakri gætni, meiri gætni
en fólk gerði sér grein fyrir. Þess
vegna kærði hann sig heidur ekki
um nema takmörkuð samskipti
við fólk utan heimilisins.
— Þér ætluðuð að vera leik-
kona á unga aldri? Hefur Iffið hér
á Hall ekki verið býsna snautt og
fábrevtilegt?
Hún vppti öxium.
— Er maður nokkurn tfma full-
komlega ánægður. Það eru orð að
sönnu að helzt hefði ég kosið að
hafa bæði leikhúsið og Andreas.
pissað. Klámmyndunum i bióun-
um getur enginn nema blindur
maður neitað. Það er ofsagt að
þær komi svo mjög fram i
íslenzka sjónvarpinu, en nærri
liggur þó stundum. Og ekki er það
vegsemd neinni manneskju að
mæla klánti bót, hvorki beinlinis
né óbeinlínis, eins og það sé eitt-
hvert sakleysi að tala ekki um
vissa hluti á skynsaman og
sæmandi hátt.
Hvað aðrir segja fyrir sig veit
ég ekki, en mér er svo sem alveg
sama þó að ég einstaka sinnum að
gamni minu hneyksli fólk. Trúar-
brögðin geta samt sem áður reynt
að bæta heiminn. Tilveran hlýðir
einum einföldum lögum, sem
hægt er að uppgötva. Og því þá að
boða mörg trúarbrögð? Hvernig
hefur það margfeldi hlutanna far-
ið með mannkynið?
S. Kristinn D.
0 Vegið að
gamla fólkinu
Nóg um það í bili. Snúum okkur
þá að gamla fólkinu. Kona
hringdi og sagði að sér fyndist nú
vegið allmjög að gamla fólkinu,
þar sem því væri gert skylt að
greiða svo og svo mikið i opinber
gjöld. Hún sagðist ekki vita annað
en hér væri einhver lagabreyting
á ferðinni og ekkert skilja i þeim
mönnum, sem létu sér detta i hug
að breyta lögum á þann veg að
gamla fólkið, sem hefði yfirleitt
engar tekjur, þyrfti að greiða
meira en áð'ur til hins opinbera.
Sem dæmi nefndi hún að mann-
eskja sem væri komin að fótum
fram þyrfti að greiða til Gjald-
heimtunnar nokkur þúsund krón-
ur nú fyrir áramótin næstu og
sjálf þyrfti hún að greiða tugi
þúsunda. Hún sagði að maður
hennar hefði farið til og athugað
málið í Gjaldheimtunni og fengið
þar þau svör að þetta fengju allir
og þyrftu því allir að greiða.
Búið öldfuðum áhyggjulaust
ævikvöld var slagorð i auglýsingu
og er ekki úr vegi að minna á það
í þessu sambandi. Það er slæmt ef
gamla fólkið þarf að hafa áhyggj-
ur af fjárhagsafkomu sinni þegar
það er komið að fótum fram eins
og konan talar um hér á undan.
En skýringar við álagningu opin-
berra gjalda er að fá á Skattstof-
unni en ekki Gjaldheimtunni.
Frekari umræða um þessi mál
væri æskileg og væntir Velvak-
andi fleiri bréfa þar að lútandi.
HOGNI HREKKVÍSI
,Þetta er áróður á kjörstað, sem er bannað“!
— Hólastaður
Framhald af bls. 27
ing Hólastaðar, er borið getur
nafn með rentu.
Efling Hóla, sem hins fornhelga
sögustaðar, verður aðeins gjörð
með kirkjulegri uppbyggingu og
endurreisn staðarins. Stórt spor í
rétta átt var það, er prestssetur
var flutt heim að Hólum eftir
langa útlegð.
Það kemur manni á óvart, að
hægt skuli vera að tala um „efl-
ingu Hóla, veg þeirra og virð-
ingu“, án þess að minnzt sé einu
orði á það, sem öllu máli skiptir f
því sambandi. Veit ég þó, að gott
eitt vakir fyrir þeim, er skrifuðu
hið umrædda „opna bréf“.
Margir munu vafalaust líta svo
á, að umsvif bændaskólans og
aukin kirkjuleg starfsemi á Hól-
um geti vel farið saman. Nokkuð
er að sjálfsögðu til í því. En þó
mun það mála sannast, að ekki sé
heppilegt að hafa tvo herra yfir
þeim stað.
Bændaskólinn verður því að
hverfa frá Hólum í Hjaltadal, ef
vér viljum hefja þá til þess vegs
og þeirra virðingar, sem hæfir
fornhelgri frægð staðarins. Það er
enginn vandi að finna skólanum
annan stað, og jafnvel betri.
Ef ríkisstjórn Islands vill gera
jafn vel við norðlenzka kristni og
sunnlenzka, ætti hún að afhenda
kirkjunni Hólastað. Það væri
sanngjörn ósk af hálfu vor Norð-
lendinga.
Bjartmar Krist jánsson.
AIGLYSINGA
SÍMINN ER:
Handlyftlvagnar
Lyftigeta: 2000 kg.
Eggert Krlstjánsson & Co. hf.
Sundagörðum 4 Simi 85300.
Hinir fallegu
vönduöu
barnaskór frá
„Arautó” Portúgal
St. 24—38
Millibrúnt
St. 24—38
St. 24—36
Laxabrúnt
St. 24—36'
Brúnn/Grænn tvílitir.
Skóglugginn h.f.
Hverfisgötu 82 Sími 11 788.
Sendum gegn póstkröfu.
&3P SIGGA V/óGA £ ýiLVERAk
W vm % V/E/JST
Nr
'w \fevM/K
/\lVAV) S/]69/}\
(S\££A V/Ó6A.-
Lt\V6A% V/ú A9
SÁ ílN\/vmA
Mb NINÚUp