Morgunblaðið - 04.08.1976, Page 32
\r<t!.YSIN(»ASl.YIIXN KH:
22480
Jfl*r£>tinl)I«btíi
t DAG er gert ráð fyrir sunnan-
og suðvestanátt um allt land. Að
sögn Knúts Knudsens veðurfræð-
ings verður rigning og siðan
skúraveður á Vesturlandi, en á
austanverðu landinu á að rigna
eitthvað fyrst, en létta sfðan til.
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGUST 1976
Stálvík með
110 lestir
Siglufirði, 3. ágúst.
STÁLVÍK kom hingað í dag með
110 lestir af góðum fiski. íslenzku
togararnir hafa að undanförnu
haldið sig í Djúpálnum og s.l. sól-
arhring fengu skmir togaranna
allt að 50 lestum í botnvörpu.
mj.
Þessi mynd var tekin af Karli
prinsi þegar hann kvaddi Vopn-
firðiuga á flugvellinum f
Vopnafirði er hann hafði lokið
veiði - f Hofsá á ^ síðastliðnH
sumri.
KARL Bretaprins hóf laxveiði í
Hofsá f Vopnafirði á mánudags-
morgun. A fyrsta klukkutfman-
um fékk Karl fjóra laxa, en alls
fékk hann sex laxa og var hann
að vonum ánægður með veiði
fyrsta dagsins. Samkvæmt upp-
lýsingum Brians Holt aðal-
ræðismanns verður Karl f eina
viku við laxveiði f Hofsá að
þessu sinni, en hann veiddi f
fjóra daga f þessari sömu á f
fyrra. Með Karli prinsi f för-
inni eru nokkrir kunningjar
hans.
„Karl prins er ákaflega ljúf-
ur og lítillátur maður, og hann
er algjör mótsögn við allan
þann snobblýð, sem maður hitt-
ir alls staðar," sagði Gunnar
Valdimarsson á Teigi í Vopna-
firði í samtali við Morgunblaðið
í gær, en hann fylgist vel með
Karli við Hofsá. „Prinsinn læt-
ur engan þjóna:sér og gerir ailt
sjálfur."
Karl prins kom fljúgandi til
Egilsstaða með einkavél
snemma á mánudagsmorgun. A
flugvellinum var mikill viðbún-
aður þegar flugvél prinsins
lenti, m.a. var slökkviliðið,
læknir og lögregla f viðbragðs-
stöðu. Fékk enginn óviðkom-
andi að koma nálægt prinsin-
um.
Frá Egilsstöðum ók Karl
ásamt 'föruneyti og fýfgdaélíði *
Framhald á bls. 33
Innbrot á Patreksfirði:
Á 3. hundrað þús
und kr. stolið úr
mjólkurstöðinni
Ijósm. Mbl.: Brynjólfur.
EINS OG I MONTREAL — Sovéska fimleikafólkið sýndi fimi sína í fyrsta sinn í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi fyrir fullu húsi áhorfenda, sem áttu vart orð til að lýsa hrifningu sinni. A þessari mynd sést
hin smávaxna Maria Filatova í æfingum á tvfslá, en hún vakti sem kunnugt er mjög mikla athygli á
nýafstöðnum Ólympíuleikum í Montreal.
Stöðvast bræðslurnar
vegna svartolíuskorts
Sovézkt olíuskip langt á eftir áætlun
i’atieksfirði, 3. ágúst.
INNBROT var framiö í mjólkur-
stöðina á Patreksfirði aðfararnótl
Kom upp með
gleraugun af
6 metra dýpi
Siglufirði, 3. ágúst
ÞAÐ BAR hér við skömmu eftir
hádegi, er dýpkunarskipið,
Björninn var við vinnu hér í
höfninni, að stór krani á skip-
inu brotnaði og féll í sjóinn.
Starfsmaður á Birni Aage Jo-
hansen lenti niður með kranan-
um, en kom upp ómeiddur
skömmu síðar.
Aage sagði í samtali við
fréttaritara Mbl., að hann hefði
fundið þegar rúlla undir kran-
anum brotnaði, og vitað að
hann myndi fara í sjóinn. „Ef
ég hefði farið út úr krananum,
hefði ég átt á hættu að lenda
Undir honum, þess vegna var ég
rólegur og lét mig fara í sjóinn
með krananum, niður á sex
metra dýpi. Mér gekk vel að
komast út úr krananum og upp
komst ég fljótt. Var meira að
segja enn með gleraugun á
mér,“ sagði hann. mj
Stálu bát í
uppsveitum
r
Arnessýslu
SÁ óvenjulegi atburður gerð-
ist í uppsveitum Árnessýslu í
gær, að báti var stolið. Göngu-
menn, sem þar voru á ferð,
gerðu sér lítið fyrir og stálu
báti bóndans á Ármóti við
Hvítá. Tóku þeir bátinn og
reru á honum yfir Hvítá. Bónd-
inn gat hins vegar ekki nálgast
bátinn á ný, nema fara yfir
brúna á fljótinu.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi voru þeir sem stálu bátn-
um heppnir að sleppa ómeidd-
ir yfir ána, þar sem flúðir eru í
ánni rétt hjá þeim stað þar sem
þeir fóru yfir hana.
mánudagsins, og þaðan stolið
nokkuð á þriðja hundraö þúsund
! krónum í peningum og ávísunum.
Ungur maður, 22 ára gamall,
viðurkenndi við yfirheyrslur hjá
sakadómi Barðastrandarsýslu í
dag, að vera valdur að þjófnaðin-
um. Vfsaði maðurinn á pening-
ana, þar sem hann geymdi þá í
sorptunnu við hús sitt, en ávfsan-
irnar hafði hann brennt.
Að sögn Jóhannesar Arnasonar
sýslumanns, sem stjórnaði rann-
sókn málsins, voru verðmælin
tekin úr læstri skúffu á skrifstofu
mjólkurstöðvarinnar. Voru
nokkrar skemmdir unnar á skrif-
stofunni, en engar á tækjum eöa
vélum í stöðinni. Þjófurinn tók
140 þúsund krónur í reiðufé og
um 100 þúsund krónur í ávísun
um, en hann snerti ekki við 1300
þúsund króna ávfsun frá Fram-
Framhald á hls. 38
1050 manns
í skoð-
unarferðir
GRlSKA skemmtiferðaskipið
Britanis er væntanlegt hingað í
dag með um 1100 farþega. Kemur
skipið hingað á vegum Berg
Hansen f Osló, en Ferðaskrifstofa
Clfars Jakobsen sér um af-
greiðslu skipsins.
Það vekur athygli, að af 1100
farþegum sem eru með skipinu
pöntuðu 1050 manns skoðunar-
ferðir i landi. Að sögn Njáls
Simonarsonar framkvæmdastjóra
ferðaskrifstofu Úlfars Jakobsens
fara flestir farþeganna í ferð til
Grindavíkur og Krfsuvfkur og
margir fara i skoðunarferð um
Reykjavfk. Til þess að flytja far-
þegana þarf 18 stóra Iangferða-
bila.
Njáll sagði, að meirihluti far-
þeganna kæmi frá Þýzkalandi,
Frakklandi, Bretlandi og Italíu.
Britanis er fyrsta skemmti-
ferðaskipið, sem Ferðaskrifstofa
Úlfars Jakobsens tekur á móti.
Hins vegar er afráðið að ferða-
skrifstofan annist móttöku á 5 til
6 skemmtiferðaskipum fyrir Berg
Hansen á næsta ári.
SVO getur farið, ef sæmileg
loðnuveiði verður í þessari viku
að einhverjar loðnuverksmiðjur
stöðvist vegna skorts á svartolíu f
landinu. Síldar- og loðnuverk-
smiðjur nota geysimikið af svart-
olíu við upphitun á kötlum meðan
á bræðslu stendur, en 500 tonna
I verksmiðja notar 35—40 tonn af
svartolfu á sólarhring. Þá nota
einnig nokkrir skuttogarar lands-
manna svartolfu, en það magn
sem þeir nota er sáralítið miðað
við það sem verksmiðjurnar nota.
Olfuskip með svartolfu mun vera
væntanlegt til landsins næstkom-
andi laugardag, en hætt er við að
sumar verksmiðjanna hafi þá
stöðvast eða verði um það bil að
stöðvast.
Önundur Ásgeirsson, forstjóri
Olíuverzlunar Islands, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að það væri rétt með farið
að svartolía væri af mjög skorn-
um skammti í landinu. Ástæðan
fyrir því væri, að olíuskip sem nú
vær: á leið til landsins með 18000
lestir af svartolíu væri langt á
eftir áætlun. Skipið, sem kemur
með olíuna frá Rússlandi, átti að
vera komið fyrir hálfum mánuði,
— en einhverra hluta vegna hef-
ur skipið tafizt, sagði önundur.
Hann sagði ennfremur að nú
væri verið að reyna að jafna þeim
svartolfubirgðum, sem til væru, á
þær verksmiðjur, sem minnsta
ættu olíuna og menn vonuðu í
lengstu lög að olfan dygði fram
Framhald á bls. 33
Karl prins fékk 4 laxa fyrsta klukkutímann:
„Mótsögn við þann snobb-
lýð sem alls staðar er”
— segir Gunnar Valdimarsson á Teigi