Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 3
Verkfræðingadeilan leyst
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. AGUST 1976
3
Þing norrænna stórkaupmanna hófst I Reykjavík í gærmorgun og
lýkur fundum þeirra I kvöld. I gær var rætt um þróun I efnahags-
málum á Noróurlöndum og skipzt á skoðunum um neutendamál.
Olafur Jóhannesson sat hádegisverðarfund með þingfulltrúum og
hélt stutta ræðu, en bauð sfðan til móttöku í Ráðherrabústaðnum.
Þingið fer fram í húsakynnum Vinnuveitendasambandsins og þar
var meðfylgjandi mynd tekin I gær, Jón Magnússon formaður
Félags íslenzkra stórkaupmanna er f forsæti á fundinum.
Báðir aðilar sam-
þykktu 40,1% hækkun
BORGARRÁÐ samþykkti f gær
nýgerða kjarasamninga milli
Reykjavfkurborgar og Stéttarfé-
lags verkfræðinga. Samþykkti
ráðið samningana með 3 atkvæð-
um, en tveir ráðsmenn sátu hjá.
Samningarnir voru teknir fyrir á
félagsfundi meðal verkfræðinga f
fyrrakvöld og þar hlutu þeir sam-
þykki með 12 atkvæðum gegn 5,
en 4 sátu hjá.
Samkvæmt upplýsingum Gunn-
ars H. Gunnarssonar, formanns
samninganefndar verkfræðinga,
eru nýju samningarnir byggðir á
gamla kjarasamningnum með
breytingum á launaíið hans.
Hækkun launaliðarins er f sex
áföngum. Fyrsta hækkunin, 6%
reiknast frá 1. marz 1976. Síðan
koma hækkanir frá 1. júlí 1976,
10% rauða strikið, 2,67%; 1. októ-
ber 1976, 6%; 1. janúar 1977,
3,8%; 1. febrúar 1977, 5%; 1. júlf
1977 4% og samningar standa til
10. júlí 1977. Samtals er því hækk-
un kaupliðarins á samningstíma-
bilinu, ef rauða strikinu er sleppt,
40,1% (kumulativt).
Gunnar H. Gunnarsson sagði, að
þessar niðurstöður samninganna
þýddu að verkfræðingarnir hjá
Reykjavíkurborg hefðu nú náð
upp þeim mismun, sem myndaðist
þegar þeir drógust aftur úr hin-
um almenna vinnumarkaði, verk-
fræðingum á verkfræðistofum
síðla árs 1975. Eftir stendur enn
það bil, sem þá var orðið, en þá
var meðalmunur miðað við starfs-
æfi um 30%.
Gunnar H. Gunnarsson sagði að
það væri mikill léttir fyrir báða
aðila, að þessi deila væri nú leyst.
Hún hefði verið bæði löng og leið-
inleg. Þeir þrír, sem samþykktu
samningana í borgarráði í gær
voru fulltrúar meirihlutans í
borgarstjórn, en þeir sem sátu hjá
voru fulltrúar minnihlutans.
Nýttogbetra
Ultra Brite
Lónið við Sigöldu
orðið 6 m djúpt
BYRJAÐ var að hleypa vatni I
lónið ofan við virkjunina við Sig-
öldu f gærmorgun. t gærkvöldi
var stöðuvatnið, sem þarna
verður, orðið um 6 metra á dýpt,
en áætlað er að það taki um hálf-
an mánuð að fylla lónið. Áætlað
er að það taki um hálfan mánuð
að fylla lónið, en að mánuði liðn-
um verði aftur búið að tæma það.
Nauðsynlegar mælingar verða
gerðar á mannvirkjum við lónið
og stiflugörðum, en i byrjun
nóvember á að „prufukeyra*
rafla orkuversins og þá verður
fyrst framleidd raforka þar efra
Inntaksmannvirkin við virkjun-
ina eru enn ekki tilbúin og verður
lónið því ekki fyllt alveg að þessu
sinni.
Tveir prestar
hafa sótt um
Dómkirkjuna
FYRIR skömmu voru auglýst
laus til umsóknar tvö prestem-
bætti f Reykjavfk, við Dóm-
kirkjuna og Háteigskirkju.
Umsóknarfrestur er ekki úti
fyrr en 27. ágúst n.k. en þrátt
fyrir það er undirbúningur
hafinn fyrir kosningarnar í
Dómkirkjuprestakalli eftir því
sem Morgunblaðið hefur
fregnað, en þar hafa tveir
prestar þegar sótt um, þeir sr.
Hannes Guðmundsson i Fells-
múla og sr. Hjalti Guðmunds-
son í Stykkishólmi. Munu
stuðningsmenn þeirra strax
byrjaðir undirbúning.
Þá hefur Morgunblaðið
fregnað að ein umsókn hafi
borizt um Háteigskirkju, frá
sr. Auði Eir Vilhjálmsdóttur.
Vera kann að fleiri umsóknir
eigi eftir að berast um þessi
tvö embætti og einnig um Hóla
í Hjaltadal, en engin umsókn
hefur borizt um það prestakall
ennþá, samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. aflaði sér. Um-
sóknarfrestur um það rennur
einnig út 27. ágúst n.k.
Þessi mynd er af Þorgeiri Guð-
mundssyni, Digranesvegi 38,
Kópavogi, sem beið bana þegar
vélskófla, sem hann stjórnaði, valt
við Ólafsvfkurenni s.l. laugardags-
kvöld. Þorgeir heitinn var 52 ára.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
tvö börn.
Hirdtng tannanna er
ekki einungis hreinlætis-
og utlisatriði, heldur lika
fjarhagsspursmal.
Nútimafolk gerir auknar kröfur
um hreinl.eti og gott utlit.
Þess vegna nota þeir, sem eiga
dagleg samskipti vidaðra
Ultra Brite með hinu þægilega
hressandi bragði.
Ultra Brite er nu komið á
markaðinn nytt og endur-
bætt með fluor, sem
varnar tannskemmdum.
Ultra Brite
med f luor gerír andar dráttinn ferskan
og brosið bjart og heillandi.