Morgunblaðið - 18.08.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGUST 1976
15
Handtökum haldið
áfram vegna óeirð-
anna í S-Afríku
SVONA lítur stórfljótið Thames út um þessar mundir. Til vinstri er eyjan
Isleworth, en til hægri við sprænuna er höfn. Isleworth er í nágrenni Lundúna en
vegna þurrkanna er vatnið í Thames aðeins fjórðungur þess, sem það er
venjulega. Myndin er tekin um háfjöru. (AP-mynd).
Gas- og olíulindir í
Syðra-Straumsfirði?
Mun blása lífi í umræður um sjálfstæði Grænlands
Jóhannesarborg, Port Elizabeth
17. ágúst NTB-AP
ÖRYGGISLÖGREGLAN í
Suður-Afríku hélt í gær
áfram að handtaka fólk
sem grunað er um aðild að
óeirðunum í hverfum
blökkumanna f Jóhannes-
Seiðmagn
frosinna
kjúklinga
Leeds 17. ágúst — Reuter.
ARTHUR Atkinson, fyrrum
liðsmanni brezkrar hand-
sprengjusveitar, er ekki sjálf-
rátt, Ef hann rekur augun I
frystan kjúkling, eða jafnvel
frystan kalkún, þá hnuplar
hann honum. Þessi árátta hef-
ur valdið þvf að Arthur aum-
inginn hefur komið sjö sinn-
um fyrir rétt nú þegar og I gær
var hann mættur enn einu
sinni I réttarsalnum ákærður
fyrir alifuglastuld. Þetta er
þeim mun dapurlegra þegar
tekið er tillit til þess að aðeins
tfu dagar voru liðnir frá þvf
hann var laus úr fangelsi eftir
15 mánaða vist fyrir kjúkl-
ingaþjðfnað.
Arthur, sem er 56 ára aó
aldri, kvaðst sekur um stuld á
fimm kjúklingum frá verzlun
einni í Leeds. Þegar hann var
handtekinn sagði hann lög-
reglumönnunum: „Ég bara
gekk þarna að og tók fimm
stykki. Þetta er allt of auð-
velt.“ Jafnvel lögfræðingur
hans hefur enga skýringu á
hinni skringilegu áráttu: „Hið
furðulega er,“ segir hann, „að
honum þykja kjúklingar ekk-
ert sérstaklega bragðgóðir, og
fjöldi þeirra sem hann stal
núna bendir ekki til þess að
hann hafi stolið þeim vegna
hungurs." Enn er því ráðgátan
um kjúklingasýki Arthur
Atkinsons óleyst.
NEIL DIAMOND
FYRIR RÉTT
Los Angeles 16. ág. AP.
SÖNGVARINN Neil Diamond
verður leiddur fyrir rétt i næsta
mánuði og ákærður fyrir að hafa
haft marihuana í fórum sinum.
Lögreglan sfegir að við húsleit
þann 30. júni á heimili Diamonds
hafi fundizt þar ein únsa af efni
þessu.
arborg í fyrri viku. Yfir-
maður lögreglunnar sagði
að refsingar gegn þeim
sem fundnir yrðu sekir
yrðu mjög harðar. Lögregl-
an beitti í dag táragasi til
að dreifa meira en 500
blökkum stúdentum sem
gengu út úr kennslustof-
um sfnum f Kwazakele-
hverfinu í Port Elizabeth
til að efna til mótmælasetu
á rugbyleikvangi í grend-
inni, og í öðrum skóla
skammt frá héldu 400 stúd-
entar mótmælafund gegn
stefnu stjórnvalda.
Stjórnvöld I Suður-Afríku hafa
haldið þvi fram að sömu baráttu-
samtökin hafi staðið fyrir öllum
kynþáttaóeirðunum I landinu frá
þvi þær hófust með átökunum I
Soweto i júní, en hafa ekki til-
greint þau samtök frekar. Hins
vegar segja fulltrúar hinna út-
lægu þjóðernishreyfinga Afriku,
Afríska þjóðarráðsins, ANC, að
mótmælaaðgerðirnar hafi orðið
til á stað og stund án nokkurrar
skipulagningar fyrirfram. Þær
hafi breiðzt út með miklum hraða
vegna þess að öll hin afríska þjóð
verði fyrir sama óréttlætinu.
Vararáðherrann, sem stjórnar
blökkumannasvæðunum, sagði í
gær að blakkir stjórnmálamenn
sem hygðust notfæra sér ólguna í
landinu í pólitísku skyni hefðu
ekki árangur sem erfiði. Hann
sagði að stjórnvöld hygðust ræða
við fulltrúa blökkumanna en var-
aði við þvi að menn reyndu að
notfæra sér það ástand sem nú
ríkti.
Colombo 17. ágúst — NTB.
VIETNAMAR eru reiðubúnir til
að koma sambandi landsins við
Bandartkin f eðlilegra horf ef
Bandarfkjamenn gegna þeirri
skyldu sinni að aðstoða við upp-
bygginguna f landinu f kjölfar
strfðsins, að þvf er forsætisrðð-
herra landsins, Pham Van Dong,
sagði f ræðu sinni á fimmta leið-
togafundi óháðra rfkja í Colombo
f Sri Lanka f dag, en fundurinn,
sem 85 rfki sækja, hófst f gær.
Þá lagði Titó, Júgóslavíuforseti,
til í sinni ræðu að kalla allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna saman
til sérstaks fundar til að ræða
Kaupmannahófn 17. ágúst.
Frá fréttaritara Morgunblaðsins,
Lars Olsen:
FUNDIZT hafa merki olfu og
gass f Syðra-Straumsfirði á Græn-
landi, að þvf er fulltrúi franska
olfufélagsins Total, sem tekur
þátt f rannsóknum á þessu sviði
við Grænland, upplýsir. Það var
rannsóknarskip félagsins Pelican
aðgerðir til að takmarka vígbún-
aðarkapphlaupið. Hann hvatti öll
þátttökurikin til að vinna að slök-
un spennu í alþjóðamálum og af-
vopnun, og sagði að öll lönd við
Miðjarðarhaf yrðu að leggjast á
eitt um að reyna að gera þetta
svæði að fyrirmynd friðsamlegrar
sambúðar. Hann kvað friði á
þessu svæði stafa alvarlegust ógn
af „útþenslustefnu ísraels".
Öháðu ríkin, sem telja rúman
helming jarðarbúa, eru ríki sem
ekki eru innan hernaðarbanda-
laga og telja sig hvorki háð
Bandarikjunum né Sovétrikjun-
um. Ráðstefnan stendur i viku-
tima.
sem komst að þessu, en enn sem
komið er hefur félagið verið afar
varkárt við að gefa upplýsingar
um olfu- og gasfund þennan, svo
og að meta hann. Danska rfkið
hefur falið rannsóknina sam-
steypunni TGA-Grepco, sem
danskir, franskir og kanadfskir
aðilar standa að.
Þrátt fyrir það að sæmilega
mikil olfa og gas finnist er engan
veginn öruggt að lagt verði út i að
hefja nýtingu þessara auðlinda.
Vinnsluaðstæður yrðu alla vega
þær erfiðustu í heimi. Um
100.000.000 teningsmetrar af gasi
og 350.000 tunnur af oliu árlega
þarf til að 20 milljarða d.kr. fjár-
festing í vinnslunni borgaði sig.
Tvö atriði skipta mestu um
hugsanlega nýtingu auðlinda á
þessu svæði. í fyrsta lagi ’ haa
OPEC-löndin gert kunnugt að á
fundi sinum i desember muni þau
krefjast hækkunar oliuverðs. Slík
ákvörðun hvetti mjög til þessarar
vinnslu. 1 öðru lagi er sú krafa,
sem einkum kemur frá ungum
Grænlendingum, um að ágóðinn
af vinnslu hráefna á Grænlandi
verði Grænlendinga en ekki
danska rfkisins. Þetta vandamál
er enn óleyst og það getur hugsan-
lega haft áhrif á það hvenær unnt
yrði að hefjast handa um oliu-
vinnsluna. Alla véga leikur ekki
efi á því að hugsanleg auðæfi i
formi oliu- og gaslinda á hafsbotn-
inum umhverfis Grænland munu.
hleypa auknu lífi í umræðurnar
um sjálfstæði Grænlands.
Tanaka sleppt
gegn tryggingu
Tókýó 1 7. ágúst — NTB.
KAKUEI Tanaka, fyrrum forsætis-
ráðherra Japans, sem komið hef-
ur fyrir rétt þar I landi ákærður
fyrir að hafa þegið mútur af Lock-
heedf lugvélasmiðjunum, var i
dag látinn laus úr haldi gegn
trY99'n9u sem nemur um 130
milljónum ísl. króna. H: nn var í
gær formlega ákærður fyrir að
hafa þegið um 1,6 milljónir doil-
ara af Lockheed fyrir að auka
sölu á flugvélum fyrirtækisins I
Japan. Níu öðrum sakborningum
I málinu var einnig sleppt gegn
tryggingu.
Skýrslan um
Bemharð ekki
birt strax
Haag, 13. ág. AP.
HOLLENZKA stjórnin sagði i
dag að hún hefði fengið I hendur
niðurstöður opinberrar rannsókn-
ar á ásökunum á hendur Bern-
harði prins þess efnis að hann
hefði þegið 1.1 milljón dollara í
mútur frá Lockheedfyrirtækinu.
I tilkynningu stjórnarinnar var
sagt að niðurstöðurnar yrðu ekki
birtar að svo stöddu. Myndi
stjórnin kanna skýrsluna gaum-
gæfilega og skýra síðan þinginu
frá skýrslunni.
TVEIR FÓRUST
Á N-ÍRLANDI
Belfast 17. Sgúst—NTB.
TVEIR menn biðu bana og að
minnsta kosti 17 særðust er
sprengja sprakk I bifreið seint í
gærkvöldi fyrir utan ölkrá í South
Armagh, að því er lögreglan upp-
lýsti. Þetta var aðeins átta kíló-
metra frá landamærum írska lýð-
veldisins. Sprengutilræði þetta er
ein versta árás hermdarverka
manna á Norður-írlandi í margai
vikur.
Ófrjósemisaðgerðir með valdbeit-
ingu lögleiddar í indversku ríki
RlKIÐ Maharastra á Indlandi,
þar sem um 50 milljónir manna
búa, hefur nú orðið fyrst I
heimi til þess að lögleiða nauð-
ungarófrjósemisaðgerðir til að
takmarka fólksfjölgun, að þvf
er fram kemur f frétt I Inter-
national Herald Tribune ný-
lega. Báðar deildir þings rfkis-
ins samþykktu aðgerðir þessar
f sfðasta mánuði, en þær þurfa
sfðan einnig samþykki
stjórnarinnar f Nýju Delhf.
Talið er að Fakhruddin Ali
Ahmed, forseti Indlands, muni
samþykkja lögin samkvæmt til-
mælum Indiru Gandhi, for-
sætisráðherra, sem þó hefur
áður verið efins um réttmæti
nauðungaraðgerða af þessu
tagi. (Jrslitum mun ráða að son-
ur hennar, Sanjay Gandhi, er
eindreginn fylgismaður þeírra.
Aðgerðir þessar fela i sér að
karlmenn að 55 ára aldri og
konur að 45 ára aldri verða
gerð ófrjó innan (80 daga frá
fæðingu þriðja frarns þeirra.
Nær þetta einkum og sérilagi
til karlmanna og tekur aðeins
til kvenna ef eiginmenn þeirra
eru undanþegnir aðgerðinni á
þeim forsendum að hún kynni
að stofna lífi þeirra í hættu. Ef
menn láta undir höfuð leggjast
að gangast undir ófrjósemisað-
gerðina eiga þeir yfir höfði sér
allt að tveggja ára fangelsisvist,
en í framkvæmd er þó búizt við
því að látið verði nægja að gera
sökudólga ófrjóa og láta þá sið-
an lausa.
Lagafrumvarpið um aðgerðir
þessar hefur valdið miklum
deilum og ótta, og einkúm
stafar hinum ómenntuðu ibú-
um bæja og sveita mikil ógn af
þvi. Karlar óttast að missa kyn-
getu sína og víða er sú trú jafn-
framt við lýði að stórar fjöl-
skyldur, einkum mörg svein-
börn, séu til blessunar og gæfu.
Þá eru aðrir, sérstaklega meðal
múhameðstrúarmanna, sem
eru 60 milljónir talsins, sem
sporna gegn frumvarpinu af
trúarástæðum.
Leiðtogafundur óháðra ríkja:
Víetnam vill bæta
sambandið við USA