Morgunblaðið - 12.09.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976
Götumynd frá Reykjavík.
Tito með lifrarsjúkdóm?
Belgrad 11. sept. Reuter.
TILKYNNING var gefin um það I
dag f Beigrad að Tito Júgöslavfu-
forseta hefði verið ráðiagt að hvfl-
ast f nokkrar vikur og taka sér
algert frf frá skyldustörfum sfn-
Lik Sigur-
geirs fundið
FÉLAGAR úr björgunar-
sveitinni Ingólfi í Reykja-
vík fundu í gær lík Sigur-
geirs Runólfssonar bónda í
Skáldabúðum í Gnúpverja-
hreppi og fjallkóngs Gnúp-
verja, en Sigurgeir
drukknaöi eins og skýrt
var frá í blaðinu í gær í
jökullóni við Arnarfell suð-
austan í Hofsjökli um há-
degisbil í fyrradag.
Samkvæmt upplýsingum
Hannesar Hafstein fram-
kvæmdastjóra Slysavarna-
félags Islands, fóru
Ingólfsmenn í fyrrinótt til
leitar og um hádegisbil í
gær höfðu þeir talstöðvar-
samband og tilkynntu lík-
fundinn. Félagar úr björg-
unarsveitinni Tryggva á
Selfossi voru einnig að leit
á svæðinu.
um, meðan hann nyti læknismeð-
ferðar. Hann er sagður sjúkur af
skyndilegum iifrarsjúkdömi. Það
hefur ekki verið staðfest.
Á föstudag var greint frá því að
frestað hefði verið að beiðni Titos
opinberri heimsókn Frakklands-
forseta sem átti senn að koma til
Júgóslavíu, en þá var ekki nánar
frá veikindum Titos sagt. Hann
hefur undanfarna daga verið á
fundum með Ceausescu flokks-
leiðtoga Rúmena og kom sfðast
fram opinberlega á föstudag. Sagt
er að forsetinn, sem er nú 84 ára
að aldri, hafi virzt hress í bragði
þá. Þö er haft fyrir satt að undan-
farið hafi virzt sem hann ætti
erfitt um gang og stundum eins
og hann hafi átt erfitt með mál.
Fjórtánda
umferðin
tefld í dag
FJÓRTÁNDA umferð Reykjavfk
urskákmótsins verður tefld f dag
og hefst kl. 17.30 f Hagaskóla. Þá
tefla saman Haukur og Tuk-
makov, Helgi og Najdorf, Gunnar
og Friðrik, Ingi og Guðmundur,
Margeir og Timman, Vukcevic og
Björn, Westerinen og Antoshin,
Keene og Matera. Biðskákir verða
sfðan tefldar á mánudag.
Börkur með
650 tonn
AÐEINS eitt ioðnuskip til-
kynnti um afla f gær —
Börkur NK, sem var með 650
tonn. Var Börkur einn á
miðunum f fyrrinótt en f gær-
morgun var Hilmir kominn á
miðin og byrjaður veiðar en
auk þess voru sjö skip á útleið.
Viðgerð á
Ver lokið
I GÆR var lokið við að setja
stórt stykki f síðu togarans
Vers fyrir neðan sjólfnu, en
skipta varð um stykkið vegna
skemmda sem urðu á skipinu f
átökum við brezk gæzluskip f
sfðasta þorskastrfði. Að sögn
Jóns Sveinssonar, forstjóra
Stálvfkur, sem annaðist
verkið, var búið að gera við
skipssfðuna ofanverða en
sfðan var smfðað hér einu lagi
um 35 fermetra plata og hún
sett f skipið f gær. Verður
skipið væntanlega málað eftir
helgina en verður sfðan
sjósett.
Innbrot
TVÖ innbrot voru framin f
Reykjavík í fyrrinótt. Farið
var inn í verzlunina Raflux,
Austurstræti 8, og stolið þaðan
útvarpstæki og rafmagnsrak-
vél auk um 5—6 þúsund króna
í peningum. Einnig var brotizt
inn í Vélar & þjónustu f
Smiðjuhöfða og stolið raf-
geymum i dráttarvélar.
700 tunnur
af síld
REKNETABÁTAR, sem landa
í Höfn, höfðu f gærmorgun til-
kynnt um 700 tunnur af síld,
sem fengizt höfðu við Hroll-
augseyjar. Þá komu tveir bátar
til Vestmannaeyja í gærmorg-
un — Sandafell með 150 tunn-
ur og Hrauney með 60 tunnur.
Var verið að frysta og salta
afla hjá Vinnslustöðinni í gær-
morgun.
Ekiðákyrr-
stæða bíla
EKIÐ var í fyrrinótt á ljósgráa
Trabant-bifreið á tfmabilinu
milli klukkan 01,30 og 02, þar
sem hún stóð fyrir framan Sig-
tún 33. Hentist Trabantbifreið-
in marga metra, en tjónvaldur-
inn kom beint framan á hana.
Er bifreiðin stórskemmd, en
tjónvaldurinn stakk af. Vitni
segir að t jónvaldurinn sé
appelsfnurauður Dodge Charg-
er og hafi ökumaður verið í
Ijósum jakka.
Þá hefur lögreglan beðíð um
að Morgunblaðið geti annars
áreksturs sem varð þriðjudag-
inn 7. september. Ekið var á
rauðan Austin, R-48876, sem er
af árgerð 76, þar sem hann
stóð á bifreiðastæði við Skip-
holt 45. Höggvari og festing
skemmdist.
Vitni að þessum árekstrum
eru vinsamlegast beðin að gefa
sig fram.
Úttekt gerð á fjárhags-
stöðu Vestmannaeyja
ÞRIGGJA manna nefnd vinnur
nú á úttekt á fjárhagsstöðu Vest-
mannaeyjakaupstaðar, og að sögn
Ólafs Helgasonar hjá Otvegs-
bankanum, sem sæti á f nefnd-
inni, stefnir nefndin að þvf að
skila skýrslu sinni f lok þessa
mánaðar. Ólafur sagðí þó, að ekki
væri ljóst hvort reikningar bæjar-
sjóðs lægju þá endanlega fyrir en
ef svo væri ekki myndi nefndin
væntanlega skila einhvers konar
bráðabirgðayfirliti.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
er hér um allviðamikla úttekt að
ræða, enda fjárhagsmál bæjar-
sjóðsins margvíslegs eðlis og
spinnast fjárveitingar Viðlaga-
sjóðs töluvert inn í það dæmi, þar
sem angar af fjárhagsvanda
bæjarsjóðsins eiga rætur sínar að
rekja allt til Vestmannaeyjagoss-
ins en siðan einnig til nýfram-
kvæmda sem bærinn hefur ráðizt
f eða áformar að ráðast í.
Ásamt Ólafi eiga sæti í nefnd
þessari Gylfi ísaksson, sem til-
nefndur er af félagsmálaráðu-
neytinu og Þráinn Eggertsson,
hagfræðingur, af hálfu Seðla-
bankans.
Prestkosning í Há-
teigsprestakalli
PRESTKOSNING fer fram í Há-
teigsprestakalli f Reykjavfk
sunnudaginn 10. okt. Þrfr um-
sækjendur eru, sr. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir, fyrrv. sóknarprest-
ur á Suðureyri við Súgandafjörð,
sr. Magnús Guðjónsson prestur
við Frfkirkjuna f Hafnarfirði og
sr. Tómas Sveinsson sóknarprest-
ur á Sauðárkróki. — Sr. Magnús
predikar f Háteigskirkju kl. 2 e.h.
f dag, sr. Tómas sunnudaginn 19.
sept. og sr. Auður sunnudaginn
26. sept.
Sr. Magnús Guðjónsson, sem
flytur messuna f dag, er Skaftfell-
ingur að ætt, fæddur i Reykjavík
26. júní 1926, sonur hjónanna
Guðjóns Jónssonar og Steinunnar
Magnúsdóttur. Hann lauk guð-
fræðiprófi frá Háskóla Islands
1951, stundaði síðan framhalds-
nám við háskólann í Abo i Finn-
landi 1951—1952. Skipaður sókn-
arprestur í Eyrarbakkapresta-
kalli 1953 og þjónaði því um 20
ára skeið. Hefur sfðan starfað hjá
Hinu islenzka Biblfufélagi og
Sambandi fslenzkra samvinnufé-
laga, er nú prestur við Frfkirkj-
una í Hafnarfirði.
Sr. Magnús vann mikið að
æskulýðsmálum í Árnesprófasts-
dæmi. Sat f æskulýðsnefnd pró-
fastsdæmisins og var í stjórn
Prestafélags Suðurlands. Hann
var einn af stofnendum Tónlistar-
skóla Eyrarbakka og sat f stjórn
hans, lengst sem formaður eða f 8
ár og síðan f stjórn Tónlistarskóla
Arnessýslu eftir stofnun hans.
Sr. Magnús hefur ritað nokkuð í
blöð og tfmarit og þýtt bækurnar:
„Biblfuhandbókin þín“, er örn og
örlygur gáfu út og „í fylgd með
Haustsýning-
unni lýkur í dag
Haustsýningu Félags fsl.
myndlistarmanna á Kjarvals-
stöðum lýkur f dag en
sýningartfminn er frá kl.
2—10. Sýningin hefur verið
vel sótt og yfirleitt fengið góða
dóma gagnrýnenda. Myndin
sýnir eitt verka Braga Asgeirs-
sonar á sýningunni.
Sr. Magnús Guðjónsson
Jesú“, er Almenna bókafélagið
gaf út.
Kona Magnúsar er Anna Sigur-
karlsdóttir, kennari, Stefánssonar
menntaskólakennara og eiga þau
3 börn.
Anna hefur unnið mikið að fé-
lagsmálum kvenna austan Fjalls,
verið lengi formaður Kvenfélags
Eyrarbakka og setið 12 ár f stjórn
Sambands sunnlenzkra kvenna.
Guðsþjónustunni í dag verður
útvarpað á miðbylgjum 1412 kíló-
herts eða 212 metrum.
Harður árekstur
á Keflavíkurvegi
MJÖG harður árekstur varð f
fyrrinótt á Reykjanesbraut milli
tveggja bifreiða. Áreksturinn
varð eigi allfjarri Keflavfk og var
ökumaður annars bflsins lagður
inn f sjúkrahúsið f Keflavfk ökla-
brotinn, en farþegi hans höfuð-
kúpubrotinn.
Báðir bflarnir eru stórskemmd-
ir ef ekki ónýtir, enda fóru báðir
út af veginum og annar fór nokkr-
ar veltur. Alls voru 11 manns f
báðum bílunum og voru allir
fluttir til athugunar f sjúkrahúsið
f Keflavfk.
r
Islenzk
föt’76
Síðasti sýningardagur
SYNINGUNNI lslenzk föt ’76 f
Laugardalshöllinni lýkur f
dag. Hún verður opin frá kl.
14—22 en tfzkusýningar verða
kl. 15.30 og 21.00 Á fimmta
þúsund manns höfðu skoðað
sýninguna f gær, en forráða-
menn hennar hafa lagt áherzlu
á að sýningin verður ekki
framlengd.