Morgunblaðið - 12.09.1976, Page 13

Morgunblaðið - 12.09.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976 13 himinlifandi, þegar Brezhnev þrýsti hendur hennar og sagðist hafa orðið frá sér numinn af hrifningu af henni í Utflytjend- unum. „En,“ bætir hún við eins og hálfhlæjandi, „ég þakka guði fyrir að ég skuli engin pólitísk áhrif hafa, svo veik sem ég er fyrir gullhömrum." Og að hitta þessa mektarmenn vekur aðeins með henni ígrund- un. Hún fellur ekkert í stafi og hún minnist þess að hún vor- kenndi Nixon af því að farðinn var að leka niður af andlitinu á honum. „Hann hefði verið stór- kostlegur sem manngerð f Bergmansmynd ef hann hefði verið betri leikari." Það sem skiptir hana miklu máli og gengur í gegnum bókina eins og rauður þráður er manneskj- an sjálf. Og kærleikur hennar til dóttur hennar og óttinn við að vanrækja hana vegna þess að hún er ein með hana. „Alla ævi mlna hef ég lesið að móðir skuli og eigi að vera heima hjá barninu slnu. Sekt mln ristir djúpt. Samvizkubit er hluti af hvunndegi mfnum. Ég er svo hrædd um að gera Linn órétt. Samtímis þvl held ég að hún fái meira af sjálfri mér vegna gleði þeirrar sem ég hef af starfi mínu og þeirrar örvunar sem það veitir mér.“ Um stöðu sína sem fræg og rlk leikkona segir hún fjarska hispurslaust: „Ég nýt forréttinda og ég hugsa um það með dálítilli blygðun á hverjum degi. Þegar ég er sótt i leikhúsið — eftir að mér hefur verið færður morgunverður á bakka upp til mín. Svo er hneigt sig fyrir mér þegar ég geng inn I lyftuna og mér er fylgt út I bllinn með regnhlíf yfir mér ef rigning er úti.“ „Ég er forréttindamanneskja. Eða svo myndu margir kalla mig. En það er langt síðan ég varð þess vísari að það bezta við að öðlast frægð er að vita að hún er ekki eftirsóknarverð." t litlum kafla fjallar hún um hversu röng sú hugsun sé að karl og kona eigi að vera I stöð- ugri samkeppni — að annar að- ilinn sé eins konar ógnun við hinn. Báðir aðilar hafa við sln „smávandamál" að stríða. „Ég hef blæðingar og breytinga- aldur og óttann við að fá slöpp brjóst og unga stúlkan sem ég er sést ekki lengur I andliti minu. H ann er hræddur um orðstlr sinn og stöðu og glímir við erf- iðleika I starfi sínu, hræðsluna við að verða sköllóttur og nátt- úrulaus. .. .Við erum ekki hættuleg hvort öðru. A þeirri stundu sem við viðurkennum að við ÞÖRFNUMST hvors ann- ars, karl og kona, liður sú ógn- un frá.“ Fræg forréttindamann- eskja getur leyft sér að vera hispurslaus og gefa hreinskilna lýsingu á sjálfri sér og viður- kenna þann ótta sem fólk hikar við að játa að innra með því búi. En I frásögninni gætir hvergi tilbúinnar hógværðar né upp- gerðar lítillætis. Að mínum dómi gerir þessi bók þann sem hana les — ef ekki ánægðari — þá að minnsta kosti sáttari við sjálfan sig. Og það er ekki lítill fengur. „Hef haft málverk- in til að grípa til” — segir Bjarni Guðjónsson, sem opnar málverkasýningu I GÆÍR laugardag, opnaði Bjarni Guðjónsson málverkasýningu I húsi Málarans að Grensásvegi. Á sýningunni eru 38 myndir, flestar unnar á slðustu árum og er hér bæði um að ræða ollumálverk og pastel. Þessi sýning er nokkurs konar afmælissýning, en Bjarni varð 70 ára I sumar. Bjarni er Hornfirð- ingur, bjó um langt skeið I Vest- mannaeyjum en fluttist til Reykjavlkur fyrir 10 árum. Hann er myndskurðarmaður að mennt og hefur gert mikið af höggmyndum, en „hefur haft málverkin svona með til að grlpa til“, eins og hann sagði sjálfur. Áður hefur hann haldið 10 einkasýningar, þar af 8 I Reykja- vík. Þessi sýning nú, sem er sölu- sýning, verður opin frá 14.00—22.00 fram til 23. septem- ber. Verð myndanna er frá 50 þús. til 185 þús. Bjarni Guðjónsson við eitt verka sinna. Lágu haustfargjöldin okkar lengja sumaríð hjá þér 30% lækkun á fargjöldum býöur upp ásumarauka fyrir okkartil Evrópu á tímabilinu þig í stórborgum Evrópu. 15.september til 31.október, mgfélag loftleibir ISLAJVDS Félög meó eigin skrifstofur í 30 stórborgum erlendis texti: Jóhanna Kristjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.