Morgunblaðið - 12.09.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976
31
Fimmtugur:
Magnús E. Guðjónsson
Mánudaginn 13. september nær
Magnús E. Guðjónsson, lögfræð-
ingur, þeim áfanga, sem við ýmsir
höfum gengið, þ.e. að verða hálfr-
ar aldar gamall.
1 mínu ungdæmi var það siður,
að vikublaðið birti myndir af
mönnum jafnvel i tilefni af
fertugsafmælum, hvað þá meiri
afmælum. Svo lagðist þessi góði
siður niður, og má vera, að það
hafi orðið blaðinu af aldurtila.
En stendur ekki einhvers stað-
ar í helgri bók: „Ef þessir þegðu,
mundu steinarnir hrópa.“
Ég þykist þess viss, að islenzkir
sveitarstjórnarmenn teldu það af-
glöp — ekki lítil, ef ekki yrði
getið um merkisafmæli merkis-
manns.
Magnús er fæddur á Hólmavik
og er Vestfirðingur i allar ættir
eftir því sem ég bezt veit, þótt
eitthvað megi rekja til Húna-
vatnssýsiu. Að honum standa því
sterkir stofnar.
Hann lauk stúdentsprófi frá
V.R. 1974 og lögfræðiprófi 1953.
Hvorutveggja með miklum ágæt-
um. Eftir próf var Magnús full-
trúi lögreglustjóra á Keflavíkur-
flugvelli og lenti þar oft í því að
dæma i ýmiss konar vandræða-
málum. Sú saga er oft höfð á lofti,
sem nú skal greina, en ekki hef ég
borið hana undir Magnús sjálfan.
Fýrir honum var flutt mál, langt
og leiðinlegt. Þegar lögmönnun-
um hafði loks tekizt að ljúka sér
af, fór Magnús ofan í skrifborðs-
skúffu sína og tók upp og rétti
aðilum vandaðan, vélritaðan dóm
sinn og sagði um leið: „Þið breytt-
uð engu.“ Hans réttlætiskennd
varð ekki haggað.
Árið 1958 varð Magnús bæjar-
stjóri á Akureyri og gegndi þvi
starfi til 1967 með mikilli prýði.
Þegar ég tók við formennsku í
Sambandi íslenzkra sveitarfélaga
1967, varð það að ráði, að skrif-
stofuhald þess, Bjargráðasjóðs og
Lánasjóðs sveitarfélaga yrði sam-
einað. Það þótti ekki lítið happ,
þegar slíkur maður og Magnús
fékkst til að stýra þessu öllu. Sið-
ar bættist við ekki vinsælasta
stofnun landsins, Innheimtu-
stofnun sveitarfélaga.
En svo hefur Magnúsi tekizt að
rækja sin störf, að ég minnist þess
ekki I mínu starfi, að nokkur úr
hópi sveitarstjórnarmanna hafi
lagt nema lofsyrði um þau störf.
Væri betur, ef við hinir fengjum
slikan vitnisburð.
Magnús er nú staddur erlendis
ásamt öldu, sinni góðu konu, I
verðskulduðu orlofi.
Þegar ég sendi þeim kvejur frá
mér og minu fólki, veit ég, að allir
sveitarstjórnarmenn á tslandi
taka undir og það hressilega.
PðU Lindal.
Skrifstofuþjátfun
Mímis
(Einkaritaraskólinn)
@ veitir nýliðum starfsþjálfun og öryggi
@ endurhæfir húsmæður til starfa á skrifstofum
@ stuðlar að betri afköstum, hraðari afgreiðslu
@ sparar yfirmonnum vinnu við að kenna nýliðum
@ tryggir vinnuveitendum hæfari starfskrafta
@
@
tryggir nemendum hærri laun, betri starfsskilyrði
sparar námskostnað og erlendan gjaldeyri
Mímir,
Brautarholti 4
sími 10004
(kl. 1 —7 e.h.)
ENSKAN
Kennslan í hinum vinsælu enskunámskeiðum
fyrir fullorðna hefst fimmtudag 23. september
BYRJENDAFLOKKAR
FRAMHALDSFLOKKAR
SAMTALSFLOKKAR HJÁ ENGLENDINGUM
FERÐALÖG
SMÁSÖGUR
BYGGING MÁLSINS
VERZLUNARENSKA
Síðdegistímar — kvöldtímar
Símar 10004 og 11109
(kl. 1—7 e.h.)
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4
MEKKA
Stórglæsileg ný
skápasamstæða
með höfðingjasvip
f / \ HIINiiAIiNAVKKZI.IIN
vfCf} KKISTIÁNS SHiiiFIKSSONAR HF.
ýa0/ Lauflavefli i:i Rcykjavik simi 25870
Sígildar sögur
eftir
fiUtrDtsNEV
ömuwsm