Morgunblaðið - 12.09.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.09.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976 37 — Orkubú Framhald af bls. 33 óeðlilegu ytri aðstæður hafa vald- ið efnahagslífinu í heild. Því legg- ur fundurinn áherzlu á að hin batnandi viðskiptakjör nú verði notuð fyrst og fremst til að bæta fjárhagsstöðuna gagnvart útlönd- um og draga úr verðbólguþróun- inni. Jafnframt telur fundurinn brýna nauðsyn bera til að við gerð fjárlaga og endurskoðum skatta- laga verði þess gætt að hlutfall hins opinbera af þjóðarfram- leiðslunni aukist ekki frá því, sem verið hefur, heldur verði við það miðað að auka ráðstöfunartekjur almennings og treysta fjárhag heimilanna. Endurskoðun skatta- laga verði hagað á þann veg, að gera þau sem einföldust í fram- kvæmd. Skattstigar verði við það miðaðir að ekki verði greiddur tekjuskattur af almennum launa- tekjum verkafólks og að tekju- skattur dragi ekki úr hvöt manna til að afla tekna, enda er dugnað- ur og framtak einstaklinganna forsenda þess að auka framleiðsl- una og bæta lífskjör þjóðarinnar. Fundurinn lýsir sig andvigan aukinni þátttöku rfkissjóðs í at- vinriurekstri fyrir lánsfé frá al- menningi, en leggur þess I stað til að skattalögum og lögum um hlutafélög og verðbréfamarkað verði hagað á þann veg, að al- menningi gefist kostur á beinni eignaraðild að atvinnufyrirtækj- um með möguleikum á viðunandi arðsemi. Telur fundurinn að slíkt fyrir- komulag geti orðið liður í því að sætta vinnu og fjármagn. Lög um stéttarfélög og vinnudeilur verð- ur að endurskoða með það fyrir augum að draga úr þjóðfélagslegu tjóni af verkföllum. 1 orkumálum leggur kjördæmis- ráðið megináherzlu á að Orkubú Vestfjarða samkvæmt nýsettum lögum taki sem fyrst til starfa. Hraðað verði rannsóknum á jarð- varma og virkjanlegu vatnsafli á Vestfjörðum. Kjördæmisráð þakkar skelegga forystu Þorvald- ar Garðars Kristjánssonar, for- manns Orkuráðs, við undirbúning að stofnun Orkubúsins og þær rannsóknir, sem nú fara fram á möguleikum til virkjunar jarð- varma fyrir þéttbýlisstaði á Vest- fjörðum. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU AL'GLYSING.V SÍMIN'N KR: 22480 Fyrsta sölusýning Vél- prjónasambandsins AÐALFUNDUR Vélprjónasam- bands Islands var haldinn nýlega. Akveðið var að sölusýning sam- bandsins skyldi haldin á Hallveig- arstöðum 9. október n.k. Þar verð- ur á boðstólum vélprjónaður fatn- aður, sem unninn er á heimilum þeirra húsmæðra, er hafa prjónað sér til ánægju fyrir heimilisfólk sitt og kunningja. Þar sem þetta er fyrsta sölusýning sambandsins mun hún aðeins standa þennan eina dag. 1 nýskipaðri stjórn eru: Formaður Sigríður Norðkvist, Bolungarvík, til vara Hólmfríður Gestsdóttir, Kópavogi, ritari Erna Helgadóttir, Kópavogi, gjaldkeri Vigdís Magnúsdóttir, Reykjavík, til vara Svanfríður Jónasdóttir, Reykjavik. Endurskoðandi er Guðný Helgadóttir. (Fréttatilkynning). Kjördæmisráðið bendir á nauð- syn þess, að mótuð verði hið fyrsta markviss stefna I byggða- málum, er feli I sér aukið sjálfs- forræði héraðanna í málefnum sínum á sviði menntamála, heil- brigðismála, ýmiss konar félags- málum og annarrar opinberrar þjónustu. Bætt ástand samgöngumála er komi I v'eg fyrir einangrun ein- stakra byggðarlaga innan kjör- dæmisins er forsenda þess, að slik stefna megi takast í reynd. Skal I þessu sambandi bent sérstaklega á, að stórbættar samgöngur á sjó er aðkallandi nauðsynjamál Vest- firðinga." — Eins og mér sýnist Framhald af bls. 25 ina; ekki bókstaflega á ég við en með augnaráðinu og með öllu viðmóti sínu. Callaghan var orðinn sót- svartur í framan þegar þættin- um lauk. en maður hafði þó fengið að hlýða á samtal frem- ur en fyrirlestur. „Þakka yður fyrir spjallið, ráðherra," sagði fréttamaðurinn góðlátlega þeg- ar þeir risu á fætur. og Callag han urraði: „Thanks for noth- ing." sem jaðrar satt að segja við það rétt og slétt að ráðherr- ann hefði hvæst: „Étt' ann sjálfur!" Þetta er semsagt það sem koma skal þegar okkar frétta- menn i okkar sjónvarpi hafa lært réttu tökin á stórlöxunum. Ég efast að visu um að rangsleitnin i skattamálum okkar verði orðin hótinu minni. En það er þó alltaf nokkuð að hlakka til að vita að sá dagur býr i framtiðinni þegar islensk- ir sjónvarpsgestir taka það eft- ir erlendum að hætta að segja ekkert i löngu máli. m Mótatimbur Ofnþurrkað smfðatimbur Gagnvariö timbur ávallt /3?" fyrirliggjandi í stærðum ySSh 19x100m.m.uppí63x225 TIMBUnVERZLUNIN vOlundur hf. KLAPPARSTÍG1© 18430 - SKEIWN19 © 85244 \ I. Pálmason hf. flytur Við erum flutt í nýtt húsnæði að Dugguvegi 23, sími 82466 Elliðavogur Verið velkomin Ný og bætt þjónusta I. PÁLMASON HF. Dugguvogi 23, Reykjavík sími 82466 Dugguvogur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.