Morgunblaðið - 12.09.1976, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 12.09.1976, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976 Katrín Sigurjónsdóttir Hafnarfirði—Minning Á morgun, mánudaginn 13. september, verður jarðsett frá Frikirkjunni I Hafnarfirði Katrín Sigurjónsdóttir. Hún lézt á Landakotsspitala 4. þ.m. Katrín fæddist 23. ágúst 1905 f Reykjavík. Foreldrar hennar, Steinþóra Þorsteinsdóttir og Sigurjón Arnlaugsson, áttu þar heima þá, en fluttust nokkru sfðar suður f Garð og bjuggu þar um skeið. Þaðan flytjast þau svo til Hafnarfjarðar 1920, með sína stóru fjölskyldu. Þeim fæddust tólf börn. Dóu fjögur þeirra í bernsku og fjögur af þeim, sem upp komust, eru nú dáin: Lilja, Júlíus, Arnlaugur, og sú sem nú er kvödd. Eftirlifandi eru: Soffia, Jónina, Kristinn og Einar. Sigurjón var strax og til Hafnarfjarðar kom ráðinn verk- stjóri hjá Flygenringsbræðrum og síðar á Geirsstöðinni svonefndri. En ekki var það á þeim vettvangi sem ég kynntist Sigurjóni og fjöl- skyldu hans, heldur þar sem t Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur minn, ASGEIR MAGNÚSSON, framkvæmdastjóri, Hrauntúni, Garðabæ, andaðist á Landsspitalanum að morgni, föstudagsins 1 0 sept Guðfinna Ingvarsdóttir, Dóra Ásgeirsdóttir, Ingvar Ásgeirssson, Pálína Ása Ásgeirsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir. Faðir minn KRISTÞÓR ALEXANDERSSON, forstjóri, Suðurgotu 3, sem andaðist 8 september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudagmn 1 3 september kl 10 30árdegis Fyrir mina hönd og annarra vandamanna Sveinbjorg Kristþórsdóttir. Útför eiginmanns míns. + JÓNS HINRIKS JÓNSSONAR, vélstjóra, Álfheimum 64, fer fram frá Fossvogskirkju mánudagmn 1 3 september kl 1 3 30 Fyrir hond vandamanna. Ragnheiður Jóhannsdóttir. t Utfor systur okkar KATRÍNAR SIGURJÓNSDÓTTUR Hellisgotu 22, Hafnarfirði verður gerð frá Frikirkjunni i Hafnarfirði mánudaginn 1 3 sept '76. kl 2 e h Soffía Sigurjónsdóttir Jónína Sigurjónsdóttir Kristinn Sigurjónsson Einar Sigurjónsson Útfor móður okkar JÓNÍNU JÓHANNSDÓTTUR Barónsstig 63, fer fram frá Fossvogskirkju mánudagmn 1 3 september kl 3 e h Margrét Gunnarsdóttir, Guðmundur Kristmundsson, Jóna Kristmundsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Jóhann Kristmundsson, Árni Kristmundsson, tengdabörn og barnabörn. t Inmlegar þakkir tíl allra þeirra sem sýndu okkur samúð við fráfall og /arðarför eiginmanns mins, föður, fósturföður, tengdaföður og afa ÞORGRÍMS JÚLÍUSAR SIGURÐSSONAR, Nóatúni 24. Jarðarform hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna Sérstakar þakkir færum við starfsmannafélagi Bæjarleiða h.f. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Maria Sigurðardóttir. hann, kona hans og börn þeirra, gerðust, nær samtímis og ég, félagar i stúkunni Morgunstjörn- unni. Þar og þá, fyrir um 55 árum, byrjuðu, í góðum félagsanda, mér hugljúf kynni við þetta ágæta fólk. Og lengst og nánast má með sanni segja að kynni hafi haldizt við Katrínu. Ekki var hún heilsusterk, sízt hin síðari ár, en vel fórust henni störfin I stúkunni okkar og fundi sótti hún svo sem bezt mátti verða. Við Morgunstjörnufélagar hljótum nú að kveðja þessa félagssystur með miklum sökn- uði, en ljúfri þökk fyrir allt. Ég get ekki annað en minnzt þess nú, hve eftirminnilega athafnasamur faðir Katrínar var, fljótt eftir inngöngu sina í stúk- una. Þá stofnaði hann, æfði og stjórnaði innan hennar fjölmenn- um blönduðum kór, sem kom fram bæði heima og heiman — og m.a. I útvarpi. Ég minnist hæfi- ieikamannsins, sjálfmenntaða tónskáldsins Sigurjóns Arnlaugs- sonar, og hinnar söngglöðu fjöl- skyldu hans. Henni hefir löngum verið „tónaregnið táramjúkt" sem gróðurgjafi og lifsfylling. Við vonum og biðjum að félags- systur okkar veitist meiri fögnuð- ur á landi lifenda en tjáð verði með þessum fátæklegu orðum. Eftirlifandi systkinum og öðrum ættmennum vottum við innileg- ustu samúð. J. H. við gluggann eftirsr. Arelíus Níelsson Safnaðar- vitund FYRIR nokkrum árum var mikið rætt um safnaðarvitund I Reykja- vík. Nýir söfnuðir urðu til árlega. Þetta voru hópar ókunnugs fólks sem áttu að vinna saman að vissu takmarki. Það takmark er eitt hið æðsta í samfélagi hverrar þjóðar: Kristi- leg menning. Fyrst var að koma sér upp einhverjum samastað fyr- ir samstarfið: Safnaðarheimili, kirkju, menningarmiðstöð. Hér eru ný prestaköll stofnuð bókstaf- lega undirbúningslaust út i blá- inn, á götunni. Einhverjum reglum, settum i barnalegri óskhyggju um fjölda I söfnuðum borgarinnar, skal full- nægt. Dregin eru strik af frómum safnaðarmönnum og ráðandi prestum, kannski með prófast eða biskup að baki og svo reglugerð- ina um fjöldann. Síðan eru vissar götur látnar skipta og skapað nýtt prestakall, efnt til kosninga, búið til embætti, starfsvettvangur, án kirkju, án prestsseturs, án svo mikið sem stofu fyrir skrifborð eða hillu handa kirkjubókunum. Nú kostar öll slík aðstaða margar tugmilljónir. Það er hverjum ein- staklingi litlu meira en eitt smjör- liki kostar í búðinni. Og það merkilegasta er, að þennan skatt má hver einstakur söfnuður ekki hækka þótt allir samþykki. Sem sagt kirkjur og kristilegt starf skal byggt upp af engu og á engu. Þar skal ríkja sú aðstaða, sem var i upphafi, auðn og tóm — og myrkur yfir djúpinu. Safnaðarstarf, kirkjubygging- ar, störf kirkjukóra, organista og safnaðarstarfsfólks má því að mestu teljast kraftaverk hér í borg. Og satt bezt að segja, þá byggist þetta mest á frjálsum framlögum, gjöfum einstaklinga í fyrstu ásamt litlu framlagi borgarsjóðs til að byrja á kirkju- byggingu og svo eru prestar laun- aðir úr ríkissjóði. Framhaldið á sér svo aðeins hornsteina og grunn, sem einu nafni nefnast hinu hálfgleymda orði: Safnaðarvitund. Sannfæring um að eiga sameiginlega hugsjón til að vinna að, undir forystu prestsins, sem helzt þarf að vera snillingur I fjársöfnun (eins og það er nú vinsælt). Einingartákn (eins og það er nú I framkvæmd, þegar söfnúur stækkar og öðrum presti er bætt i kirkjulausan söfn- uð) og svo náttúrlega allra þjónn á öllum tfmum. Og satt að segja gerist krafta- verkið, uppbyggingin kemur hægt og hægt, þar sem safnaðar- vitundin lifir. Hún byggist fyrst og fremst á samstarfi og samveru, kynningu og vináttu einstaklinga, trausti þeirra til prests slns og forystu- manna og því sem slðast en ekki sízt nefnist guðstraust og bæna- samband við æðstu hugsjón mannssálar og svo kærleiksþjón- ustu utan kirkju og innan. I þessu samstarfi eru safnaðar- félög hinir mikilsverðustu þættir. Fjögur félög eru mikilsverðust, eiginlega hornsteinar, sem allt verður að byggjast á: Kvenfélag, kirkjukór, bræðra- félag og æskulýðsfélag. Ekkert þeirra má vanta, ef vel á að vera. Sé þeim vel stjórnað af vökulum hug og trúmennsku sem aldrei hvikar frá stefnu né gleymir veg- inum, þá skapa þau þá kynningu og kraft, sem safnaðarvitundin nærist á. Söfnuðurinn er hið mikla fljót i timanna hafi. Safnaðarfélögin kraftstöðvarnar í fljótinu. Þær framleiða ljós þekkingar og við- sýni, varma vináttu og fórnar en umfram allt þann kraft kærleika og trausts sem knýr til athafna og vöku. Þessi félagsstarfsemi safn- aða má ekki dofna. Það væri sama og eyðing virkjunar, sem ætti að veita borginni varma og birtu í vetrarmyrkri. Engin kirkjudeild kristinsdóms er betur virk en söfnuðir meþód- ista. Kirkjudeildir ættu einmitt að læra sem mest hver af annarri, í stað alls konar ýfinga og ill- kvittni í annarra garð, sem er sannarlega af hinu vonda. Fátt er mér meiri fögnuður en sú stað- reynd að fyrstu átök til uppbygg- ingar safnaðarheimilis og kirkju hér I Langholtinu í Reykjavik, voru framkvæmd af samstarfandi æsku úr sjö löndum og frá sjö mismunandi kirkjudeildum, sem gleymdi öllum ágreiningi. Þar var hin fullkomna safnaðarvitund að verki. Nýlega barst mér i hendur blað, með nokkrum starfsreglum meþódistasafnaðar i samstarfi, þær eru svona: Safnaðarvitund birtist I þeirri aðstöðu einstaklings að telja jafn- vel aurana sína tilheyra safnaðar- starfinu, ef á þarf að halda að einhverjum hluta. Þannig gefur margur ef hann vinnur I happ- drætti eða nýtur heppni í við- skiptum á annan hátt. Safnaðarvitund birtist f fús- leika til að rétta hjálparhönd hverjum þeim sem er í vanda staddur, vitja sjúkra og einstæð- inga og hlynna að starfsemi fyrir alkóhólista og utangarðsfólk. Safnaðarvitund birtist i þvi að sækja hvern fund f safnaðarfélagi sinu sé þess nokkur kostur og telja skyldu sína að fylgjast með starfsemi, ferðalögum og áhuga- málum. Safnaðarvitund kemur fram í vinsamlegri umgengni og greiða- semi við granna og sambýlisfólk og þeirri viðleitni að gefa því gott fordæmi og láta þvl í té hvatningu með orðum og athöfnum til að taka þátt i safnaðarstarfinu. Safnaðarvitund eflist við þátt- töku I fræðslu og á fundum með forystufólki safnaðarins við upp- byggingu menningarseturs í safn- aðarheimili. Safnaðarvitund eflist þó bezt með góðri kirkjusókn hvern helg- an dag og virkri þátttöku i safnaðarfélögunum. Reykjavík 8/9. 1976 ÁreKus Nfelsson 5VAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Þegar faðir minn andaðist og eftirlét móður minní allan arfinn, fylltist ég ágirnd og öfund. Ég tók erfðaskrá föður mfns, og með hjálp og hjástoð lögfræðings sölsaði ég undir mig allt féð og skildi móður mfna eftir slyppa og snauða, svo og systur minar Getið þér sagt mér, hvernig ég get unnið bug á þessari ágirnd? Það fyrsta, sem yður ber að gera, er að bæta fyrir það, sem þér hafið gert. Afhendið móóur yðar og systrum það, sem þeim ber réttilega — þó að þér verðið að rýja yður inn að skyrtunni. Biblían segir: ,,Ef þú því ert að bera gáfu (gjöf) þína fram á altarið og þú minnist þess þar, að bróðir þinn (eða systir) hefur eitthvað á móti þér, þá skil gáfu þína þar eftir fyrir framan altarið og far burt, sætzt fyrst við bróður þinn og kom síðan og ber fram gáfu þína“. (Matt. 5,23,24) Þér hafið framið alvarlegan glæp og refsiverðan að lögum. En hér á að byrja á því, sem Kristur segir, að sé upphafið: að bæta fyrir brot sitt. Ég er viss um, að móðir yðar og systur taka ekki hart á yður, þegar þær komast að þessu. En þér ættuð einnig að vera fús til að greiða það, sem lögin heimta af yður, ef nauðsyn krefur, á sama hátt og þér gjaldið ástvinum yðar. Þér verðið að bæta að fullu fyrir þessa óhæfu. Þá fyrst getið þér vænzt þess að öðlast frið við Guð og við ættingja yðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.