Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
7
Bjartsýni
í
sjávarútvegi
Blaðið Vesturland, sem
gefið er út af Sjálfstæðis-
mönnum í Vestfjarðakjör-
dæmi, birtir í nýútkomnu
tölublaði forystugrein um
sjávarútvegsmál, þar sem
segir m.a „Fiskveiðimál
íslendinga hafa verið í
brennidepli undanfarna
mánuði, ekki hvað sizt
eftir útkomu hinnar svo-
kölluðu Svörtu skýrslu á
s.l. vetri. Vist er, að fátt
hefur slegið fólk við sjáv-
arsíðuna meira en birting
þessarar skýrslu. Við borð
lá, að mönnum féllust
hendur og að þeir sæju
ekki fram á annað en
betlistafinn við næsta
horn. Síðan sérfræði-
skýrsla þessi kom út, hafa
margir hlutir gerzt, sem
benda til, að ekki verði
dregnar endanlegar álykt
anir af henni einni. Það
verður sífellt Ijósara, að
vel menntaðir sérfræðing-
ar i einni afmarkaðri sér-
grein verða svo fast mót-
aðir af stöðlun sérfræð-
innar, að þeir hreinlega
hætta að meta hið óþekk-
ta á náttúrulega rökrænan
hátt. Niðurstöður þeirra
nálgast sífellt tölvuna,
sem aðeins metur hlutina
á stærðfræðilegan hátt.
Matthías Bjarnason
sjávarútvegsráðherra
skipaði nefnd fljótlega eft-
ir útkomu skýrslunnar ‘til
að fjalla um málefni sjáv-
arútvegsins í Ijósi þessara
nýju viðhorfa. Ekkert skal
fjölyrt hér um niðurstöður
nefndar þessarar, sem i
sátu mætir menn, að öðru
leyti en þvi, að hún hall-
aðist mjög að skýrslu
fiskifræðinganna, án þess
að reynt væri að taka bein
mið af öðrum skyldum
hliðum málsins. Draga át-
ti svo stórlega úr fiskveið-
um, að til álita kom að
leggja öllum islenzka
fiskiskipaflotanum í mar-
ga mánuði. Segja má, að
skýrslan og nefndarálitið
hefði nægt til að beygja
flesta landsmenn endan-
lega. En sjávarútvegsráð-
herra, sem nú fékk málið
til afgreiðslu, tók málið að
venju föstum og áræðnum
tökum. í krafti alhliða
þekkingar sinnar á sjávar-
útvegsmálum og með til-
liti til efnahags- og at-
vinnuástands i landinu,
hafnaði hann niðurstöðu
fiskif ræðinganna að nokk-
ru leyti og beitti jafnframt
ýmsum hagstjórnartækj-
um til að jafna hugsanleg-
an samdrátt. Síðan þetta
gerðist hafa ýmsir hlutir
gerzt, sem sanna, að stef-
na sjávarútvegsráðherra
var rétt i þessu stórmáli."
Óvenjugott
klak
Síðan segir Vesturland:
„Þorskstofninn hefursýnt
sig að vera sterkari en
fiskifræðingar áætluðu og
óvenju gott klak kom
mönnum á óvart. Með til-
færslu i veiðiaðferðum
hefur tekizt að halda öll-
um fiskiskipaflotanum að
veiðum og síðst en ekki
sízt, hefur árangurinn orð-
ið sá, að afurðirnar eru á
góðum vegi með að gera
gjaldey risviðskiptin við
útlönd jákvæð. Ekki ber
að vanþakka heiðarleg og
vel unnin störf vísinda-
manna okkar, en full á-
stæða er að ætla, að vel
hafi að þessari skýrslu
verið unnið. Heldur er á-
stæða til að benda okkar
ágætu og vel menntuðu
sérfræðingum á, að þeir
eru menn ekki óskeikulir
frekar en við hin og þeim
ver að virða ólíkar skoð-
anir annarra manna, jafn-
vel á sérgrein þeirra, því
þær skoðanir hafa ósjald-
an sýnt sig að vera rétt-
ar."
Að
tilefnislausu?
í forystugrein i Alþýðu-
blaðinu i gær, seglr m a
„Sjálfstæðisráðherra hef-
ur að tilefnislaufeu höggv-
ið að réttindum launþega í
landinu — sjómanna. Það
er þvi hluti af stefnu rikis-
stjórnarinnar. Þess vegna
hljóta verkalýðssamtökin
— og sérstaklega sjó-
mannasamtökin — að
bregðast hart við. Laun-
þegarnir, þar á meðal sjó-
menn, tapa sífellt á verð-
bólgunni. Þeirra hagur fer
hnignandi. Þeir verða að
styrkja samtök sín til að
halda uppi mótmælum."
Nú má spyrja: Er það að
tilefnislausu, að Matthias
Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra hefur gert ráð-
stafanir til þess að tryggja
sjómönnum hvar sem er á
landinu sambærileg kjör?
Er það sanngjarnt, réttlátt
eða drengilegt, að sumir
sjómenn á íslandi taki á
sig þær breytingar, sem
voru óhjákvæmileg for-
senda sjóðakerfisbreyt-
ingarinnar, en aðrir ekki?
Það hefur verið almenn
krafa sjómanna, samtaka
þeirra og forystumanna
að sjóðakerfið yrði skorið
mjög veruldga niður og
forystumenn sjómanna
hafa undirritað samninga,
sem voru forsenda þeirrar
breytingar. Ríkisstjómin
lögfesti sjóðakerfisbreyt-
ingu í góðri trú um, að
samstaða væri meðal sjó-
manna um nauðsynlegar
breytingar á kjarasamn-
ingum af þeim sökum. En
svo kemur allt í einu i Ijós,
að sumir forystumenn sjó-
manna eru ekki tilbúnir til
þess að standa við yfirlýs-
ingar, sem þeir hafa skrif-
að nafn sitt undir og öll-
um var Ijóst, að voru alger
forsenda breytinganna á
sjóðakerfinu. Er ekki til
efni til þess að gripa inn i,
þegar svo er komið? Það
er hvatt til þess, að verka-
lýðssamtökin risi gegn
bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar. En er ekki
meiri ástæða til þess, að
verkalýðssamtökin líti Í
eigin barm og spyrji sig
þeirrar spurningar, hvort
það séu farsæl vinnu-
brögð til frambúðar, að
stjórnvöld geti ekki treyst
á drengskap forystu-
manna einstakra laun-
þegafélaga? Hér er fyrst
og fremst um það að
ræða. Sjómenn vildu
breytingar á sjóðakerfi.
Forsenda þess voru
breyttir kjarasamningar.
Forystumenn sjómanna
undirrituðu breytta kjara-
samninga, en allt í einu
skerast sumir úr leik og
eru ekki tilbúnir til þess
að stiga skrefið til fulls.
Vilja verkalýðssamtökin á
íslandi verða þekkt af
slíkum vinnubrögðum i
framtiðinni?
LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER
LLI
<r
LU
>
<
I-
OC
LU
>
<
Œ
LU
>
<
cc
LU
>
<
cc
LU
>
<
UTSALA
aftur UTSALA
Ofsal£é
u
tsala
Komiö — sjáið —
sannfærist!
Öll okkar teppi eru nú á útsölu
Lítið við í Litaveri,
því það hefur ávallt borgað sig
liiiinr
Grensásvegi
m
33
>
<
m
33
>
<
m
33
>
<
m
33
H
>
<
m
00
H
>
<
m
oo
LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER
' "M ...
_Ær , ,
^ jx -- ^
SÉRLEGA HAGSTÆTT
* TIMBURVERZIUNIN
Klapparstíg 1. Skeifan 19
Simar 18430 -- 85244
/-MÁLASKÓLI—26908^
0 Danska, enska, þýzka, franska, spænska
0 ítalska og íslenzka fyrir útlendinga.
0 Innritun daglega.
0 Kennsla hefst 23. sept.
% Skólinn er til húsa að Miðstræti 7.
Q Miðstræti er miðsvæðis.
126908«^—HALLDÓRS
SELJENDUR
FASTEIGNA ATHUGIÐ
Við erum að gefa út nýja og vandaða söluskrá. Ef þér
viljið selja eign yðar, baeði fljótt og vel, er upplagt, að láta
skrá hana hjá okkur Höfum kaupendur að ýmsum
stærðum og tegundum fasteigna.
SÉRTILB0Ð
Fokhelt endaraðhús í Seljahverfi. Mjög
góðir greiðsluskilmálar.
Opið mánudaga til
föstudaga
frá kl. 8—19,
einnig í hádeginu,
laugardaga
frá kl. 8—17.
Kvöld og helgarsími
42633 og 25838.
Finnur Karlsson
sölumaður.
afdrep
Fasteignasala
Garðastræti 42 simi 28644
Valgarður Sigurésson Lögfr.
Hveiti
og strásykur
50 kg. sekkir á
hagstæðu verði
NÝMALBIKAÐUR VEGUR HEIM Á HLAÐ
Kaupgarður
Smiójuvegi 9 Kopavogi