Morgunblaðið - 16.09.1976, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
—Sii
y
Sást yfir merk
íslenzk frímerki
Fidel Castro
Fyrstu 1 * TZ r Losn tingar
aKub U1 1 7 ar
• Til allrar hamingju fyrir
eigandann og safnara sem
áhuga hafa á islenzkum frf-
merkjum og siðast en ekki sízt
fyrir dönsku frimerkjasýning-
una Hafnia 76, var innbrots-
þjðfur sá, sem brauzt inn á
heimili ekkju einnar, ekki sér-
lega lánsamur. I skrifborðs-
skúffu einni sást honum sem sé
yfir 18 frímerki Islenzk, að
verðgildi 6 aurar, af 1891 útgáf-
unni. Ef svo hefði ekki farið,
má lesa í dönskum blöðum,
hefði frímerkjasýningin svip-
minni en ella.
Frimerkin sem eru álfmd og
stimpluð eru mjög vel farin.
Þau hafa verið á bréfi, sem sent
var f ábyrgðarpósti frá Reykja-
vfk þann 13. maí 1891. Vafi
HAFNIA76
im
DANMARK
leikur ekki á þvf að hér sé um
að ræða útgáfuna frá 1891, þvf
að pappfrinn sem þau eru
prentuð á tekur af öll tvfmæli
um það.
Merkið er ekki verðlagt sér-
staklega hátt, en fram að þessu
hefur lftið verið um að blokk
fyndist með þessum merkjum.
Nú má ætla að frfmerkjaskrár
taki til við að meta þessa blokk
og gæti það orðið býsna ævin-
týraleg upphæð.
Fogh nokkur Nielsen fann
bréfsnifsið með frfmerkjunum
á meðal eigna föður sfns að
honum látnum. Þegar faðirinn
lézt hafði sonurinn þó tak-
markaðan áhuga á frfmerkja-
safni föðurins og það var ekki
fyrr en eftir að þjófur hafði
brotizt inn á heimili móður
Fogh Nielsen og haft á brott
með sér nokkur frfmerkjaal-
búm að áhugi sonarins vaknaði.
Fór hann að leita betur og fann
þá nefnd 6 aura frfmerki og
hafa þau fyrir nokkru verið til
sýnis á Hafnia 76 við einna
mesta athygli gestanna.
KOSNINGAR i kommúnista-
löndunum þykja yfirleitt lítið
eftirtektarverðar á Vesturlönd-
um, nema ef vera skyldi til að
fylgjast með þvf hvort fram-
bjóðandi kommúnistanna fær
99.98% atkvæða eða nær því að
fá 99.99%. En hvað sem þessu
líður þá fara nú senn í hönd
kosningar á Kúbu og það sem
er merkilegt við þær er i raun
aðeins að þær eru hinar fyrstu
sem eru f landinu í sautján ár
— eða siðan Fidel Castro komst
til valda.
Og hefur nú verið tekið til
höndunum, því að ekki á aðeins
að kjósa til þings, heldur og í
bæjar- og sveitarstjórnir, svo að
Kúbanir fá nóg að gera við að
kjósa, enda þótt valkostir séu
takmarkaðir við einn. Fyrstu
kosningarnar verða til bæjar-
stjórna þann 10 okt. og sfðan
verður hápunktuinn þann 2.
desember þegar kosið verður til
þings, en þá verða 20 ár liðin
síðan Cstro gekk á land á Kúbu
til að hefja skæruhernað sinn.
Verður þennan dag einnig kjör-
ið sérstakt þjóðarráð og þjóð-
höfðingi landsins og þarf ekki
að vænta annars en Castro sé
sæmilega öruggur um að ná
kjöri.
JÖHANNES HELGI:
Heyrt
& séð
Maður hlýtur að virða það við
Guðjón Styrkársson lögfræðing að
hann skyldi undirgangast yfirheyrslu
þa um skattamál sin og einkamál sem
sjónvarpsmenn létu hann sæta
Honum var svo sannarlega ekki hlift
— og bað ekki um það En ég átti von
á að hann benti á alþingi og segði
Áfellist þingið Það saumar ekki betur
en svo að á eru þessi stóru göt sem
hægur vandi er að smjúga Litið í eigin
barm Virðist ykkur ekki að menn þurfi
að hafa allar klær úti í þessu verð
bólguþjóðfélagi til að fara ekki á
vonarvöl?
Ég er ekki að mæla með skatt-
svikum, en það verður að gera þá kröfu
til löggjafans að skattelöggjöfin sé ekki
eins og gauðrifm loðnunót Og úr því
að Guðjón er manna naskastur á veilur
i skattalöggjöfinni virðist manni liggja
bemt við að löggjafinn ráði hann fyrir
ærna borgun til að staga í götin
JÓNAS KEMUR MANNI
í OPPNA SKJÖLDU
Stóra samkoman um skattamál, sú
sem Eiður Guðnason gekkst svo fyrir í
sjónvarpssal, hefur trúlega verið það
sjónvarpsefni sem mesta athygli hefur
vakið í háa herrans tíð Það á svo eftir
að sýna sig hver áhrif sá fundur hefur á
löggjafarsamkomuna Það er. aðal
kosturinn við svona fundi að þing-
mönrium gefst kostur á að mæla
óánægju manna — og þegar hún
nálgast suðumark er fyrst breytinga til
bóta að vænta Mér fannst fyrrverandi
skattrannsóknastjóri gangast fullmikið
upp v.ð gullhamra Jónasar Haralz —
og ekki næg einurð í svari hans þegar
hann var spurður hvort hann hefði haft
nægum mannafla á að skipa þann tíma
sem hann stýrði skattrannsóknadeild-
inni Jónas kemur manni stundum
alveg í opna skjöldu þegar hann fer að
fílósófera eins og um árið þegar hann
sagði öll góð ár jafnframt vond ár og
öll vond ár jafnframt góð ár, sem er
raunar rétt út frá einhverju almættis-
sjónarmiði en okkur sem stöndum á
jörðinni þykja hlutföll góðs og ills
nokkuð breytileg, og þar er handfest-
una að hafa En Jónas hélt sig alveg
við jörðina í þessum þætti og styrkti
fremur en hitt traust manna á banka-
stofnunum landsins; maður skynjaði
einhvernvegin öll seðlabúnt bankans í
myndugleik hans, öllu fasi hans Og
sannleikurinn er sá að bankastofnanir
landsins eru áreiðanlega ærlegustu
þættir opmberrar stjórnsýslu
Bankarnir í Reykjavík hafa til dæmis
fjármagnað samantekt svo til allra bóka
minna Ég minnist þess ekki að nokkur
mannvera hafi nokkru sinni hallmælt
aðalbönkunum í Reykjavík í mín eyru.
Þeir hafa reynst lifakkeri tugþúsunda
manna, sem hafa verið að koma sér
upp þaki yfir höfuðið og oft sýnt
virðingarverðan umburð þegar um
tímabundið greiðsluþrot hefur verið að
ræða — og þau tilvik eru víst orðin
heilt legíó á undanförnum áratug
SNOTUR SAGA
Flutningur Kristbjargar Kjeld á
Maríumynd Guðmundar Steinssonar
var jafn snotur og sagan Ef mig mis-
minnir ekki hét sagan í fyrstu gerð
sinni Kristófer Kolumbus og birtist sem
smásaga í Stefni. Hún var síðan tekin í
slipp, lengd þó nokkuð og endurskírð
Guðmundur er snyrtilegur höfundur
og á til fína drætti Ljóð Jóns frá
Pálmíiolti voru mjög áheyrileg og
flutningurinn óaðfinnanlegur Jón
kann að nota þagnirnar, þannig að
maður hefur ekki á tilfinningunni að
verið sé að kaffæra mann þegar hann
les Hann talar ekki á innsoginu
HAUSTSKAUPIÐ
— NÁMSMANNAÞÁTTUR
Haustskaupið lét ekki á sér standa,
námsmannaþátturinn, þekkingar-
víxillinn Ég missti af kynningu þáttar-
ins og hélt þegar stjórnandinn birtist á
skjánum að það væri upphaf myndar
um Biafra-hermenn, þegar mest
þrengdi að þeim og hugsjónamaðurinn
Obuto var flúinn með hvíta kádiljákinn
sinn í síðustu flutningavél hersins. En
svo opinberaði linsa myndavélarinnar
fólkið sitt til hvorrar handar stjórn
andanum og íslenzk vesæld birtist í
allri sinni dýrð Það var kostulegt að
virða fyrir sér augun i fjármálaráðherra
meðan námsmannastjórinn var að yfir-
heyra hann. Ég sá ekki betur en að i
augum ráðherrans væri á sveimi þessi
góðlátlega spurnmg Ætli þeir séu
alveg normal? Menntamálaráðherra
svaraði með tilvitnun í ílandsklukkuna,
nokkuð langa, og fór létt með hana, að
hér hefði verið, væri — og yrði um alla
framtíð pína og helvíti. Sigfús Jónsson
virtist einna skýrastur í kollinum þeirra
námsmanna Þetta var gott skaup
L'nin eru vaxtalaus í tuttugu ár; náms-
mennirnir virtust ekki meta það neins,
heldur einblíndu á verðtrygginguna
Vextir bara af einni milljón í tuttugu ár
nema á fjórðu milljón króna Þá vexti af
lánum þurfa landsmenn að greiða aðrir
en námsmenn. Mér er kunnugt um
námsstúlku sem unnið h^fur í sumar
fyrir á annað hundrað þúsund krónum
á mánuði, hún er nú í skemmtiferð á
suðurslóðum að eyða hýrunni Hún
hefur vel efni á því. Hún fer á ríkisfram-
færi í haust — og borðar frítt hjá
pabba og mömmu. Slík dæmi munu
vera býsna mörg, en aldrei verður í allt
séð Námslán eru mikil hjálp fólki utan
af landi — og var tími til kominn. En
námsmenn eru auðvitað fyrst og
fremst að læra fyrir sjálfa sig, hvað svo
sem þeir raula, sem best sést á því að
þeir mega ekki heyra nefnda neina
stýringu á námsbrautir svokallaðar
ofanfrá, vantar þó þjóðina t d fiski- og
matvælafræðinga öðrum fræðingum
fremur eins og sakir standa Jafnréttis-
krafa stúdenta er góðra gjalda verð og
sjálfsagt að stefna að henni en náms-
menn mega ekki gleyma því að þar
sem næst verður komist jafnrétti í dag
er einmitt meðal þeirra Ef einhvers-
staðar í þjóðfélaginu er útópiu að finna
— eða því sem næst — er hún til
húsa á háskólalóðinni Utan lóðarinnar
er Pétur með tvöföld og uppí tuttugu-
föld laun Páls. En þátturinn var ágætur
sem skemmtun
ENGAR LUKTIR
Sighvatur Bjarnason og Ellert
Schram gerðu sitt besta til að endur-
reisa virðingu alþingis, geðþekkir og
vel meinandi menn báðir tveir En
virðing alþingis verður aldrei söm og
áður fyrr en úrvalsmenn einir skipa
sætin þar Meinið er einmitt að þver-
skurður af þjóðinni situr þar, ekki
mannvalið Mig minnir að það hafi
verið Sighvatur sem vék að því hve
þingmenn úr dreifbýlinu létu sér
annara um þarfir umbjóðenda sinna en
þingmenn þéttbýlisins Fyrrnefndu
þingmennirnir ferðast um kjördæmi
sín og grennslast fyrir um hvar úrbóta
sé þörf, ganga þjónustureiðubúnir svo
að segja fyrir hvers manns dyr. Sig-
hvatur hafði lög að mæla Ég á heima í
Reykjaneskjördæmi, nánar tiltekið í
Vatnsendahverfi Kópavogs, og ég er
ekki enn farinn á sjá framan í neinn
þingmann kjördæmisins á þessum
slóðum, hvað þá að einhver þeirra hafi
knúið dyra hjá mér í liðveisluskyni Sá
þingmaður okkar sem það gerði myndi
trúlega hafa álitlegan fjölda atkvæða
upp úr krafsinu — og væri vel að þeim
kominn, svo þungur yrði honum róður-
inn fólkinu hér um slóðir til liðveislu
Ég myndi biðja hann um nokkrar
luktir, Reykjavíkurmegin Elliðavatns-
stíflunnar er Víðidalur, bækistöðvar
Fáks Ég fór þar um í gær og taldi
þrjátíu luktir í Víðidalnum einum,
sosum þrjátíu metrar á milli þeirra og
frá Selásnum og að Viðdalnum og ögn
fram fyrir hann taldi ég þrjátíu og átta
stykki, samtals sextíu og átta luktir og
ekki neinir forngripir, splunkunýjar,
sennilega fótóselluluktir sem kosta
fimmtíu þúsund krónur hver kominn
uppá staur og rekstrarkostnaður um
fjörutíu þúsund á ári per lukt í Selásn-
um, þar sem eru rúmlega tuttugu hús,
taldi ég tólf luktir, sem er vel viðun-
JÓNAS HARALZ ... „kemur
manni stundum alveg í opna
skjöldu, þegar hann fer að
fílósófera“
andi. Ég er ekki að telja eftir lýsinguna
handa Fáki. Besta vini mannsins er
ekki of gott að sjá fóta sinna skil þegar
hann prikar Viðidalinn með eiganda
sinn á bakinu — og sem bílstjóri er ég
guðslifandi feginn af þvi að reiðmenn
hafa yfirleitt ekki hugmynd um sjálft
grundvallaratriði umferðarreglna, þ e
hvorum megin vegarhelmings þeir eigi
að riða og stefna þóttafullir beint á
móti bílum, svo ójafn leikur sem það
nú er þegar hesti og bifreið lýstur
saman En i öllu Vatnsendahverfi
hundrað og fimmtíu manna byggð sem
heyrir undir Kópavog, því miður er
lýsingu ekki aðeins áfátt. Hún er alls
engin ekki ein einasta lukt Þrjátiu
ársbústaðir kúra þar í niðamyrkri veru-
legan hluta sólarhringsins í skamm-
deginu Menn geta svo gert sér í
hugarlund hvernig er að brjótast þessa
leið i hriðarveðrum vetrarins, ekki einn
Ijósastaur til viðmiðunar i iðunni.
Svona stendur Reykjavikurborg miklu
betur i stykkinu gagnvart skattþegnum
sinum en Kópavogur. Er þó skatt-