Morgunblaðið - 16.09.1976, Page 27

Morgunblaðið - 16.09.1976, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 27 — Sjómanna- síðan Framhald af bls. 23 ísland virtist fremur vel séð hjá þessu fiskveiðifólki, sem þarna var samankomið, kannski hefur valdið því sá ótti, að við færum að braska við að færa útí fjögur hundruð mílur. Þegar okkur var stillt upp nokkrum blaðamönnum til myndatöku, vildu menn hafa Island i miðjunni, þvi að: He won the 200 miles for us Fáfræði Suður- Afríkanans Á fiskveiðiþingum þarf Island ekki að vera neinn tatari í grænum vagni. Hinsvegar geta blákaldar sögulegar stað- reyndir komið þeim Tnönnum á óvart, sem litið þekkja til sögu fiskveiða við Norður- Atlantshaf, og þeir gjarnan haldið að við tslendingar séum að ýkja hlut okkar, ef við rekj- um söguna. Það er að vonum að menn viti lítið um hvað gerist hér á þessu útskeri. Það er samt óhætt fyrir Islendinginn, sem eitthvað þekkir til sögunnar, að láta málin til sin taka, þegar umræðurnar snúast um tækni- lega þróun I fiskveiðum. Við megum ekki vera hræddir við það, þó að fáfróðu fólki finnist hlutur okkar óeðlilega stór — hann er það — og væni okkur um ýkjur. Margar nýjungar, sem aðrar þjóðir eru að eigna sér, hafa fyrst komizt i gagnið hjá íslenzkum fiskimönnum, sem eru mjög ótrauðir við að reyna nýjungar. Það mætti máski segja á stundum, að þeir væru full-nýjungagjarnir. í þessu efni getum við talið upp nokkr- ar nýjungar, sem aðrar þjóðir eigna sér, svo sem notkun sónars við fiskveiðar, notkun kraftblakkarinnar hér við Norður-Atlantshaf, dráttarkarl- inn fyrir lfnuna og lagnings- rennuna lika, að minnsta kosti var hún fundin upp hér, þóað verið geti, að það hafi gerzt um líkt leyti í Noregi. Rafmagns- AUGIÁSINGASÍMtNN ER: ^22480 I JR#r0tmhtehií> handfæravinduna vorum við fyrstir með, viranotkun við dragnót, sem nú er að ryðja sér til rúms, tókum við fyrstir upp, víraátaksmælirinn við togveið- ar var fundinn upp hér, þótt aðrir yrðu til að koma honum i notkun; ekki er óliklegt að við höfum orðið fyrstir til að nota pokagjörðina til að skipta með vörupoka, og flotvörpuna fund- um við upp. Flest af þessu er óumdeilanlegt, þó að þess beri jafnan að gæta, að hjá fiskveiði- þjóðum á líku þróunarstigi get- ur margt orðið samhliða í einangruðum sjávarplássum, þannig að ekki berast fréttir af nýjung fyrr en seint og um síð- ir. likt og gerðist með lagnings- rennuna, sem fundin var upp i Leirhöfn á Melrakkasléttu. Vini minum, Suður- Afrikumanninum, ritstjóra Shipping News and Fishing Industry Review i Cape Town, bráðskemmtilegum náunga, þótt nóg um afrek okkar Is- lendinga, þegar ég hafði tíundað þau vandlega og hon- um varð orði: — I did not know before I met you, that the world had been made in Iceland — (Ég vissi ekki fyrr en ég hitti þig, að heimurinn hefði verið búinn til á íslandi) — Ég svaraði eins og beint lá við: — Það er ekki okkur Islendingum að kenna. Við höf- um aldrei farið dult með það ... Einn íslandsmann Mikil eru handaverkin okkar mannanna, en meiri eru þó handaverk drottins og stórum skemmtilegri. Á sýningunni var mættur Jóhann J. E. Kúld rithöfundur. Þessi gjörvulegi háaldraði maður, fullur áhuga á því, sem þarna var að sjá, var sannkölluð Islandsprýði mikill að vallarsýn og ber sig vel og er kvikur í hreyfingum sem ungur maður. Hann vann bug á berkl- um, varð rammur að afli og manna heilsuhraustastur, var harður baráttumaður í verka- lýðsmálum án beizkju eða and- hælisháttar, heldur þvert á móti er hann tillögugóður og jákvæður í afs'töðu sinni til manna og málefna. Við fórum saman út á Mustadsbátnum að sjá linuvélina vinna. Það gekk vel að leggja og draga, ég held ein tvö bjóð, en það var ekki einn einasti tittur, ekki einu sinni krossfiskur eða konu- pungur, á línuna. Dauðari sjó hef ég aldrei verið með að leggja á. Vélin hafði þó beitt vel, meira að segja mjög vel. Ég þorði ekki að spyrja skip- stjórann, hvort niðurstöðurnar hefðu verið nógu langar, en bezt gæti ég trúað því, að línan hafi aldrei komið nálægt botni. Ég sá engin merki þess, og það veit ég, að ég ræð mig aldrei til linuróðra i Þrándheimsfirði. Það eru ekki allar þjóðir, sem geta státað af köllum eins og Jóhanni Kúld, sem bera með sér beztu þjóðareinkennin. En þeim fer nú fækkandi þessum kempulegu körlum alislenzkum I tali og háttum og framkomu allri. Við, semyngri erum, sker- um okkur ekki úr erlenda múgnum. Það er liðin tið, að hægt sé að þekkja íslending á langleið I mannhafi erlendis — nema þá fullan, en þá eru okkar menn lika auðþekktir Urvalsíbúð — hægstæð útborgun 3ja herb. íbúð á 2. hæð í Einhamarsblokk við Vesturberg. Stærð ca. 86 fm. íbúðin er 1 stór stofa, 2 rúmgóð svefnherb. eldhús og baðherb. þar sem gert er ráð fyrir þvottavél. Einstök útborgunarkjör. Kristinn Einarsson hrl. Sími 15522 og 10260 Búnaðarbankahúsinu v/Hlemm Sölustj. Óskar Mikaelsson, heimasimi 44800 KYNNIST OKKAR FRAMLEIÐSLU Onasse-sófasettið V, 1 Onasse-sófasettið er meira en óvenjulega glæsilegt og þægilegt sófa- sett. Það er sófasett, sem stenst allan samanburð. Kynnist okkar framleiðslu. VALHÚSGÖGN, Ármúla 4 Snyrtistofa Hárgreiðslustofa Fatapressa Til leigu er húsnæði fyrir ofangreinda starfsemi í verzlunarmiðstöð í Reykjavík. Tilboð sendist Mbl merkt: „Húsnæði — 6460" PLYMOUTH VALIANT DUSTER Hinn marg um talaði og efirsótti PLYMOUTH VALIANT DUSTER 2ja dyra er nú fáanlegur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara. í bílnum er glæsilegur „deluxe" útbúnaður, þ.á.m. litað gler, vinyl-þak, sjálfskipting og vökvastýri. Einnig eru fáanlegir DODGE DART SWINGER og DART SPORT. Hafið samband við umboðið, eða söluumboðið á Norðurlandi, sem er SNIÐILL h.f., Óseyri 8, Akureyri, sími 22255. Margra ára reynsla sannar að DODGE og PLYMOUTH eru einhverjir bestu bílar sem völ er á. Ifökull hf. ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK Sími 84366 mitupa barnamatur HRAUST OG ÁNÆGÐ BÖRN KÆRA MÓÐIR Fyrir utan sjálfa móðurástina er næringin mikilvægust til að barninu líði vel Milupa vftamínbættur barnamatur framleiddur úr völdu hráefni er ekki aðeins hollur, heldur einnig bragðgóður og umfram allt hand- hægur og drjúgur. Milupa hefir allt fyrir börnin frá fæðingu Milumil þurrmjólk inniheldur öll nauð- synleg vítamín Hún er seðjandi og auð- melt og fyrirbyggir meltingarlrufianir Þegar barnið er u.þ.b. 9 vikna gamalt nægir pelinn ekki lengur Hér býður Milupa uppá fjölbreytt úrval af barna- mjöli Miluvit hunangsmjöl. Miluvit „mit" mjólkurmjöl. 7 Korn flocken barnamjöl úr sjö korntegundum Milupa býður ennfremur upp á 12 teg- undir af gómsætu barnamjöli, blönduðu ferskum ávöxtum, t d perumiVbanönum Wblönduðum ávöxtum ☆ hnetum með súkkulaði Úr einum pakka fást margir skammtar af úrvals ávaxtamauki á hóf- legu verði Þetta er algjör nýjung sem vert er að reyna Bragðgott. seðjandi og styrkj- andi Þér getið treyst Milupa og verið vissar um að barn yðar fær það besta sem völ er á Milupa hálfrar aldar sérhæfing i barna- mat Dagstimpill og leiðarvísir á hverjum pakka tryggir ferska og góða vöru Biðjið um leiðbeiningabækling Fæst í næstu IMA matvöruverzlun. IMA verzlanir Arnarkjór Lækjarfit 7. Garðahr Ingólfskjör Grettisgotu 86. R Ásgeir Efstalandi 26, R ívar S. Guðm. Njálsgotu 26. R. Ásgeirsbúð Hjallabrekku 2. Kóp. Kaupgarður h.f. Smiðjuvegi 9. Kóp. Árbæjarkjor Kjartansbúð Efstasundi 27. R. BirgisbúS Ránargotu 1 5. R. Kjörbnr Þórsgótu 1 7, R. Borgarbúðin Urðarbraut 20. Kóp. Kjöt og Fiskur Seljabraut 54. R. Bústa&abú5in Hólmgarði 34, R. Kópavogur Borgarholtsbr. 6. R. Drlfa Hllðarvegi 53. Kóp. Langholtsval Langholtsvegi 1 74. Guðm Guðjónsson Vallargerði 4, Kóp Matval Þinghólsbraut 21. Kóp. Garðakjor Hraunbæ 102, R Sólver Fjolmsvegi 2. R Gunnarskjör Arnarhrauni 21. Hafnarf. Svalbarði Framnesvegi 44, R Hagabúðin Hjarðarhaga 47. R Sunnubúðin Mávahlið 26. R Heimakjor Sólheimum 23. R Solvabúð Hringbr 99, Keflavlk Hraunver Teigabúðin Kirkjuteig 19. R Iðufell Iðufelli 14. R Þingholt Grundarstig 2. R.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.