Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 Kristþór Alexandersson forstjóri — Minning Fæddur2.júlf 1904 Dáinn 8. sept. 1976 A morgni aldarinnar, er ís- lenska þjóðin sá hilla undir frjáls- ari og bjartari framtið, fæddist Kristþór í Ölafsvík á Snæfells- nesi. Þar bjuggu á blómaskeiði ævinnar foreldrar hans, Asdis Þórðardóttir, ættuð frá Rauðkolls- stöðum i föðurætt, en dótturdóttir Þorleifs frá Bjarnarhöfn; og Alexander Valentínusson, smíð- ur, fæddur að Kóngsbakka, en fóstursonur Jóns og Kristínar á Borgarholti. Fjölskyldan fluttist suður til Reykjavíkur þegar börn- in voru uppkomin. Kristþór varð síðastur þeirra til að kveðja þenn- an heim. Systkini hans voru Jón, útvarpsvirki hjá Ríkisútvarpinu, kvæntur Þórunni Jónsdóttur kennara, sem einnig er látin, og Aldfs, kona Þorsteins Hannesson- ar, forstjóra. Kristþór stundaði nám í Versl- unarskóla tslands, en nam siðan málaraiðn hjá Óswald Knudsen og einnig í Kaupmannahöfn. Allt lék í höndum hans, og með bjart- sýni og dugnaði stofnsetti hann ásamt slpum listfenga mági, Þor- steini Hannessyni, Raflampagerð- ina, og ráku þeir það fyrirtæki saman með myndarbrag í rúm- lega f jörutíu ár. Fyrri kona Kristþórs var Svein- björg Kristjánsdóttir, snæfellsk að ætt. Hún var hvers manns hug- ljúfi og sár var harmurinn, þegar hún dó eftir stutta sambúð, ásamt fyrsta barni þeirra nýfæddu. Sið- ari kona hans um sextán ára skeið var Ólöf Jónsdóttir, rithöfundur, ættuð úr Strandasýslu. Þau áttu saman glæsilegt og gestrisið heimili. Þar ólust upp börnin tvö, Björgvin Óskarsson, sonur Ólafar af af fyrra hjónabandi, sem nú er læknir i Svíþjóð, og Sveinbjörg, einkadóttir þeirra. Maður hennar er Gray Verdon frá Nýja-Sjálandi, og eru þau búsett í Köln í Þýzka- landi. Þar starfa þau bæði sem ballettdansarar vað Ríkisóperuna. Sveinbjörg hefur tekið sér lista- mannsnafnið Alexanders. Sonur þeirra er Simon Björgvin og var hann augasteinn afa á íslandi. Kristþór var félagi í Oddfellow- reglunni og varð honum vel til t Eiginkona min. móðir, tengdamóðir og amma okkar. GUÐRÚN JÓNASDÓTTIR, Kársnesbraut 18. Kópavogi, andaðist á Landspitalanum miðvikudaginn 1 5 sept Jón Júliusson, Stefán Jónsson Bára Leifsdóttir, og barnaböm. Móðirokkar ELÍN MELSTEÐ Freyjugötu 42 andaðistá Landspitalanum þriðjudaginn 14 þ.m. Inga Melsteð Borg Bogi Th. Melsteð Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, FRIÐRIK STEINSSON, fyrrv. skipstjóri, Hagamel 45, lézt í Borgarsjúkrahúsinu 1 5. september 1 976 Anna Guðmundsdóttir Birna Gunnhildur Friðriksdóttir Egill Jónsson og börn. Faðir okkar. t GEIR JÓNSSON, frá Bjargi, lézt i sjúkrahúsi Akraness 1 4 september Börnin. avrm. Móðir okkar og fósturmóðir, GUNNVÖR MAGNÚSDÓTTIR, StigahliS 36. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 17 septemberkl. 3 e h Guðný ÞórSardóttir SigríSur ÞórSardóttir GuSrún ÞórSardóttir Lára ÞórSardóttir Ragnhildur E. ÞórSardóttir Magnús ÞórSarson Gunnvör Valdimarsdóttir. ' n i mmmm vrm u > jmmammmmammmamtmmfmmmammL xmmnmmmj jc. -ttoh Útför ÁSGEIRS MAGNÚSSONAR framkvæmdastjóra Hrauntúni, GarSabæ sem andaðist 10 september s I verður gerð frá Dómkirkjunni föstu- daginn 1 7 september kl 1 3 30 Þeim sem vilja minnast hans er bent á liknarstofnanir. GuSfinna Ingvarsdóttir Dóra Ásgeirsdóttir Ingvar Ásgeirsson Pálina Ása Ásgeirsdóttir Halldóra Ásmundsdóttir vina þar sem annars staðar á lifs- leiðinni. Þrátt fyrir sorgir og and- streymi varðveitti hann sína léttu lund og trú á tilgang lífsins. Vinn- an var hans yndi, og svo lánsamur var hann að halda góðum starfs- kröftum, þar til heilsa hans brast skyndilega rúmum þrem vikum áður en hann lést. Við andlát Kidda, mins elsku- lega föðurbróður, leitar hugurinn til heamilis afa og ömmu, sem var okkar indæla athvarf með blóm- um skrýddum trjágarði, þar var líkanið af Borgarholti, sem Alex- ander afi smíðaði, og var það i augum barnanna hreint furðu- verk. Heim hjá foreldrum sínum man ég fyrst eftir mínum góða, glaða frænda, er hann hampaði mér smábarni. Ættingjar og vinir kveðja Krist- þór sorgbitnir með hjartans þökk og bæn. Guð styrki og blessi Sveinbjörgu, mann hennar og son. Erla Þórdis Jónsdóttir Hið hugblfða sumar með hverfula kynning, það hvarf svo fljótt. Og haustið er komið með klökknandi minning og kalda nótt (Fr.G.) Fáir eru vanari fréttum af landamærum lífs og dauða en ég. Samt fannst mér það algjör fjar- stæða þegar ég heyrði nafnið hans Kristþórs i andlátsfregnum útvarpsins eitt fegursta kvöldið um daginn. Við höfðum einmitt hitzt og kvaðzt á Lækjartorgi fyrir örfáum dögum, einmitt einn þennan sólbjarta óskadag þessa tárvota sumars. Og við minntumst hugþekkrar ferðar, sem við einu sinni fyrir fám árum áttum saman til Dan- merkur ásamt fleiri Oddfellow bræðrum. Þá var svo ljómandi haust, með öllum þeim litum, sem óskalöndin prýða, láð og lög, loft og stjörnur. Við ætlum til Rínar- landa að sumri, sagði Kristþór síðast orða á torginu sínu bjarta en dálítið tvíræða brosi og bætti + Systir okkar, SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, NorSurbrún 1. andaðist 14 þ m GuSrún GuSmundsdóttir, Karl GuSmundsson. við „Ungir skulum við alltaf verða“. Hér verður engin æviminning rituð en mér fannst ég ekki geta alveg staðið hjá steinþegjandi, þegar þessi leiðtogi minn og fyrsti bróðir og vinur í Oddfellow- reglunni var kallaður brott svo óvænt til ljósheima hins ósýni- lega. Mér finnst alltaf hafa verið svo bjart við braut hans, þessi tuttugu ár síðan við sáumst fyrst hér í borginni. Hann átti svo björt bros, bjartsýnan hug hlýtt og viðkvæmt hjarta. Mér fannst það engin hending að hann hafði valið ljósa- gerð og rafljósaiðnað að ævistarfi. Mér fannst litla búðin hans, sem stundum varð svo stór á horninu hjá Herkastalanum, vera sístreymandi ljósalind. Og þangað gat maður bókstaflega komið til að velja sér sólir og stjörnur, með alls konar skyggingum eins og örlagadaga lífsins Og kaupmaður- inn, ljóstendrarinn átti alltaf bros í augum og létt spaug á vörum og sendi glettnislega kveðju út úr dyrum, sem varð birta á braut. Það var líka fallegt heimilið hans og Olafar Jónsdóttur, skáld- konu. Þau áttu heima við Barma- hlið. Og hver kunni betur að skreyta með blómum og ljósum en Olöf. Hún lét blómin tala og hann lét ljósin brosa. Ég gæti aldrei gleymt hvað þarna var bjart, hreint og heillandi, ekki sízt þegar húsfreyjan las ljóð og við hlýddum á eins og hrifnir skóla- drengir .Hann var svo sæll á svipinn. En allt er í heiminum hverfult. Samt hættir hið góða og fagra ekki að vera tiL Seinna verður það bros gegn um tár. Og fermingarveizla Sveinbjargar i Oddfellow höllinni, einkadóttur- innnar ágætu sem siðan hefur haldið beina braut upp á tinda listar. Ég sá hana hefja sig tind af tind, en aðeins tilsýndar í blöðum, þvi ég varð bara gamli fermingar- faðirinn heima á íslandi. En gleði min var hrein yfir frægð hennar og heiðri. Allt eftir óskum I fermingarveizlunni, þar bar ekki skuggann á i balettsölum Mið- Evrópu. Samt var hún alltaf fyrst og fremst heillastjarna pabba og mömmu, bjartari stjörnum og sólum I litlu búðinni hans og fegri öllum fegurstu rósum á heimili hennar, Sveinbjörg Alexanders, ballettdansmærin Islenzka, sem með hóglæti og hljóðlátri list sinni bar hróður tslands um allar jarðir. Stjörnur hafa ekki hátt, þær skina bara og brosa. Þessar tvær konur, einkadóttir og eiginkona, vöktu alla tíð í vit- und hans og áttu nöfn sin á vörum hans. En samt urðu þær viðs- fjærri. En hver mælir firð Framhald á bls 22. t Konan mín, MARGRÉT AÐALSTEINSDÓTTIR. verður jarðsett frá Keflavikur- kirkju laugardaginn 18 septem- berkl 14 00 Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Magnús Sigurðsson. Jarðarför litlu dóttur okkar JÓNU SIGURÐARDÓTTUR, Ásmundastöðum. Ásahreppi sem andaðist af slysförum 12. september fer fram frá Kálfholtskirkju föstudaginn 1 7 september kl 2 siðdegis Nanna Björg Sigurðardóttir, SigurSur Garðar Jóhannsson. MMMMMMMMMM^MMHMMMMMMM^D^MMHMMMM^MMMMMMMMMU^HMMMMMMMMM^MMMMmJ t Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og virðingu við andlát og útför móður okkar JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR Læknum og starfsfólki á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar og Kristnes- hæli þökkum við frábæra umönnun. Sigurjón Jónasson, Bjamey Bjarnadóttir, Baldur Jónasson, Lára Árnadóttir fósturdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. — Held að Framhald af bls. 16 stendur höfum við lokað á laugar- dögum." Þá nefndi Kjartan, að það væri alltaf viss samkeppni milli litlu búðanna, hver og einn kaup- maður reyndi að vera með þær vörur sem erfitt væri að fá og um þær vörur væri eitthvert kapp- hlaup. Hann nefndi einnig dæmi um álagningu, að hún gæti verið allt frá 8 eða 10% upp I yfir 40%, en flestar vörutegundir hefðu 27—28% álagningu. Það gæfi því auga leið, að það væri erfitt fyrir þá að leggja út I mikinn kostnað til að selja vöru eins og t.d. smjör og smjörlíki, þar sem álagningin væri einna minnst á þær vöruteg- undir, aðeins einn kælir kostaði svo mikið, að það tæki mörg ár fyrir þá að selja þær vörur upp I það. — Skynsamlegt Framhaid af bls. 17. Mestur kostnaður við rekstur verzlunar I dag sögðu þeir að væri launakostnaður og þess vegna m.a. væri reynt að hafa verzl- anirnar sem stærstar til að nýting starfsmanna væri sem bezt. í verzlunum KRON starfa allt frá 4—5 manns upp I um og yfir 20 I Norðurfelli. Kostnaður við húsnæði, rafmagn og umbúðir væri og mikill og færi vaxandi og vaxtakostnaður væri einnig mikill. Erfitt væri fyrir fyrir- tækin að eignast sitt eigið fjár- magn I verðbólguþjóðfélagi. En hvað um framtíð litlu búðanna? Ingólfur sagði að eitt aðal- vandamálið hjá litlu búðunum væri það að vöruúrval væri slfellt að aukast og viðskiptavinir gerðu meiri og meiri kröfur um það svo verzlanir með lltið rúm gætu alls ekki fylgt þeirri þróun eftir. Þó sagði hann það álit sitt að þær myndu eflaust ekki hverfa með öllu heldur væri skynsamleg dreifing lítilla og stórra búða það sem koma ætti. Þess mágeta að lokum að fyrsta kjörbúð I Evrópu var KRON-búð og stóð hún á horni Garðastrætis og Vesturgötu I Reykjavlk. Hún var stofnuð árið 1942 en þá voru samgöngur miklu meiri við Bandaríkin en Evrópu og þetta kjörbúðafyrirkomulag var óþekkt i Evrópu þar til eftir siðari heims- styrjöld. Þessi fyrsta kjörbúð gaf þó eki góða raun og var henni breytt i venjulegt fyrirkomulag árið 1945 „og hefur hún því senni- lega verið á undan sinni samtíð" sagði Ingólfur Olafsson að lokum. kRóm WÚSGÖGN Grensásvegi 7, Reykjavik Pöntunarsímar: 86511 - 83360 Sendum gegn póstkröfu Nýkomið mikið úrval af amer- ískum áklæð- um Skilti á krossa Skilti og merki, sími 16480. Útfaraskreytmgar blómouol Groðurhúsið v/Sigtun simi 36770

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.