Morgunblaðið - 16.09.1976, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
23 áhorfendur keyptu
miða að leiknum í gær
í forsölunni á Akranesi
AKURNESINGAR voru langt frá
sfnu bezta ( Evrópuleiknum við
Trabzonspor frá Tyrklandi á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi.
Tyrkirnir fóru með öruggan sigur
af hólmi, unnu 3:1, og þó þetta
hafi aðeins verið fyrri leikur lið-
anna f keppni meistaranna, þá má
heita öruggt, að það verði tyrk-
neska liðið, sem haldi áfram (
keppninni.
Þetta var í fyrsta skipti sem
tyrkneskt knattspyrnulið leikur
hér á landi og það var greinilegt á
leik tyrkneska liðsins í gærkvöldi,
að þar fóru engir snillingar knatt-
spyrnusögunnar. Hins vegar var
frammistaða þeirra nægilega góð
til að liðið sigraði i leiknum og
það fór ekki á milli mála, að liðið
verðskuldaði sigurinn. Þeim hafa
eflaust fundizt aðstæður fram-
andi i þessum leik og höfðu á orði,
að leiknum loknum, að þeim hefði
fundizt hrollkalt að leika. Þeir
sýna væntanlega betri knatt-
spyrnu i leiknum á sinum heima-
velli i Trabzon, en í gærkvöldi
voru þeir þátttakendur í lélegasta
Evrópuleik í knattspyrnu, sem
undirritaður hefur séð.
Akurnesingar virtust algjörlega
áhugalausir i leiknum i gær, bar-
átta var aðeins í örfáum leik-
mönnum og sérstaklega stóru
nöfnin í liðinu voru heillum horf-
in, menn eins og Teitur, Árni og
Björn. Leyfðu Skagamenn and-
stæðingum sínum að leika þá
knattspyrnu, sem þeir vildu.
Tyrkirnir fengu að láta knöttinn
ganga með stuttum sendingum á
milli manna. Þeir voru fljótir og
höfðu góða knatttækni flestir
tyrknesku leikmennirnir og þvf
var enn ríkari ástæða til að taka
þá um leið og þeir fengu knöttinn,
en það gerðu Skagamennirnir alls
ekki. Höfðu menn á orði í gær-
kvöldi, að betri árangur hefði
náðst ef baráttulið eins og KR
hefði verið mótherji Trabzonspor.
Því er þó ekki að neita, að leik-
urinn í gærkvöldi bauð upp á
nokkur tækifæri, Sagamenn áttu
2 stangarskot, Tyrkirnir eitt,
Einar Guðleifsson hafði tvisvar
sinnum heppnina með sér er
hann varði eftir að Tyrkirnir
komust einir inn fyrir. Látum
tækifærin þó bíða og byrjum á
mörkunum:
0:1. Á 35. mínútu fyrri hálf-
leiksins gaf Ali Kemil Denici (nr.
9) vel fyrir markið frá hægri og
félagi hans Necmi Perikli var illa
valdaður, gnæfði hærra en allir
aðrir og skallaði glæsilega f netið
framhjá Einari Guðleifssyni.
Þessir tveir tyrknesku leikmenn
voru mjög ógnandi f leiknum og
AÐEINS 1026 áhorfendur
sáu leik íA og Trabzonspor
í Evrópukeppninni á
Laugardalsvellinum f gær-
kvöldi og er Ijóst, að Akur-
nesingar tapa miklum pen-
ingum á þátttöku sinni í
Evrópukeppninni að þessu
sinni. Mun láta nærri, að
tap þeirra sé um tvær
milljónir, en það vegur þó
upp á móti, að þeir gáfu út
vandaða leikskrá vegna
leiksins í gærkvöldi og veg-
ur hún talsvert upp á móti
leiknum í gærkvöldi og
kostnaði við ferðina til
Tyrklands.
Balciur Jónsson vallarstjóri á
Laugardalsvellinum sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi,
að það væri greinilega búið að
ofbjóða fólki með knattspyrnu í
Reykjavík að undanförnu. — Það
hefði verið nær að hafa þennan
leik á Akureyri, því þeir fyrir
norðan hafa ekki svo oft fengið
erlenda gesti í heimsókn á undan-
förnum árum, sagði Baldur.
Nú undanfarið hafa farið fram
á Laugardalsvellinum tveir lands-
„Vonbrigðin með
tapið í úrslitum
bikarkeppninnar
endurspegluðust í
þessum Evrópuleik"
— Vonbrigði okkar með tap-
ið f úrslitaleiknum f bikar-
keppninni á sunnudaginn end-
urspegluðust f þessum leik,
sagði Jón Gunnlaugsson, fyrir-
liði Akurnesinga, að loknum
leiknum f gærkvöldi. — Mér
fannst lið Tyrkjanna alls ekki
sterkt f heildina og t.d. lakara
en liðin frá Möltu og Kýpur,
sem við höfum leikið gegn
undanfarin ár.
Gunnar Sigurðsson formað-
ur Knattspyrnuráðs Akraness
var mjög óánægður með leik-
inn, er við ræddum við hann
að honum loknum. — Þú mátt
hafa það eftir mér, að Mike
Ferguson þjálfari liðsins á
mikinn þátt f þvf, hversu illa
okkur gekk f kvöld, sagði
Gunnar.
Jón Gunnlaugsson sagði hins
vegar, að hann vildi ekki
kenna þjálfaranum um tapið.
— Mike er ágætur þjálfari og
hann vill allt fyrir okkur gera,
sagði Jón. — Þvf er þó ekki að
neita, að árangurinn f sumar
hefði ef til ví11 orðið betri, ef
Mike hefði verið enn harðari
við æfingarnar, en ég held þó
ekki, að leikmennirnir séu al-
mennt neitt óánægðir með
hann sagði Jón Gunnlaugsson
að lokum.
—áij
Island -
Sviss í kvöld
1 KVÖLD fer fram f Laugardals-
höllinni seinni landsleikur ls-
lands og Sviss f handknattleik.
Hefst leikurinn kl. 20.30. Munu
liðin skipuð sömu leikmönnum
og léku á Akranesi f fyrrakvöld,
en þá sigruðu Svisslendingarnir
með 20 mörkum gegn 18, eftir að
staðan hafði verið 10—9 þeim f
vil f hálfleik. Má mikið vera, ef
fslenzka handknattleikslandsliðið
tekst ekki að hefna þeirra ófara f
leiknum f kvöld.
leikir, úrslitaleikur í bikarkeppni
og tveir leikir i Evrópukeppni f
knattspyrnu. Alls voru greiddar
rúmlega 16,2 milljónir í aðgangs-
eyri á landsleikina og úrslitaleik-
inn i bikarkeppninni. Á Evrópu-
leikina tvo komu hins vegar að-
eins rétt rúmar tvær milljónir I
aðgangseyri.
Áhuginn fyrir leiknum í gær-
kvöldi var í algjöru lágmarki og,
sagði Baldur Jónsson, að hann
myndi ekki eftir eins lélegum leik
á milli tslenzks og útlenzks liðs
hér á landi síðan 1948, eðs f 28 ár.
Þá benti Baldur á, að aðeins 23
áhorfendur hefðu keypt miða i
forsölunni, sem fram fór á Akra-
nesi undanfarna daga. —áij.
KNÖTTURINN siglir framhjá varnarvegg Tyrkjanna og yfir marklfnuna, eina mark Skagamanna í
leiknum f gærkvöldi er staðreynd. Arni Sveinsson sést fagna lengst til hægri. (Ijósm. Friðþjófur).
SKAGAMENN TÖPUÐU BÆÐI
í MÖRKUM OG MILLJÚNUM
Pétur Pétursson þrengir að Gtines markverði Trabzonspor.
þá sérstaklega Denici, sem er
geysilega fljótur leikmaður og
„tekniskur“. Átti hann reyndar
eftir að koma meira við sögu f
leiknum og var yfirburðamaður á
vellinum í þessum leik.
1:1. A 9. mínútu seinni hálf-
leiksins tókst Skagamönnum að
jafna og minúturnar fyrir og eftir
þetta mark voru þær beztu, sem
Skagamenn áttu í leiknum. Mark-
ið kom þannig, að dæmd var
óbein aukaspyrna á Tyrkina i
miðjum vítateignum, eftir að
markvörður þeirra hafði tekið of
mörg skref. Tók óratíma að fá
Tyrkina þá 9 metra f burtu, sem
lög gera ráð fyrir. Er það hafði
loksins tekizt gaf Jón Alfreðsson
stutta sendingu á Árna Sveinsson,
sem skaut viðstöðulaust á milli
varnarveggsins og markstangar-
innar hægra megin í netið.
Fallegt mark hjá Árna Sveins-
syni.
1:2. Þriðja markið i leiknum
kom síðan ekki fyrr en á 86. mín-
útu leiksins og þá með þeim
hætti, að vörn Akurnesinga var
f jörsamlega leikin sundur og sam-
an áður en Denizci sneri sér við á
vftapunktinum með knöttinn á
tánum og skaut föstu skoti í mark
Akurnesinga.
1:3. Tveimur mínutum fyrir
leikslok var knötturinn gefinn frá
miðjum vallarhelmingi Tyrkj-
anna yfir á miðjan vallarhelming
Akurnesinga. Hinn mikli sprett-
hlaupari Trabzonspor stakk
varnarmenn Akurnesinga af og
skot hans frá vftateigslfnu réð
Einar Guðleifsson ekki við. Var
þetta annað mark Denizci f leikn-
um og reyndar átti hann einnig
allan heiðurinn af fyrsta marki
Tyrkjanna.
lllllélllHlfihlt'——■
Texti: Águst I. Jónsson
Myndir: Friðþjófur
Helgason.
Eins og áður sagði voru góð
tækifæri í þessum leik, sem ekki
nýttust og það bezta, þegar Arni
Sveinsson átti þrumufleyg í mark-
stöng tyrkneska liðsins um miðj-
an seinni hálfleikinn. Skalf
ramminn um mark Tyrkjanna
góða stund á eftir, en það er ekki
nóg, ef knötturinn fer ekki inn
fyrir marklínuna. Þá átti Pétur
skot í stöng af þröngu færi, en
ekkert varð úr. Tyrkirnir komust
tvisvar einir inn fyrir vörn Akur-
nesinga, en brást bogalistin og
Einar náði að bjarnga í bæði
skiptin.
Bezti maður vallarins i þessum
leik var Tyrkinn Denizci. Af
Skagamönnunum komust þeir
bezt frá leiknum Einar Guðleifs-
son, Andrés Ölafsson, Jón Gunn-
laugsson og Pétur Pétursson.
Þessir leikmenn börðust þó að
minnsta kosti.
Dómari var Attley frá Irlandi
og stóð hann sig vel.
Stuðningsmenn
Vals stofna klúbb
VEGNA góðrar aðsóknar á knatt-
spyrnuleiki Vals f sumar hafa
stuðningsmenn Vals ákveðið að
stofna með sér klúbb. Markmið
þessa klúbbs verður að safna
stuðningsmönnum Vals saman á
Valsleikina heima og að heiman.
Fyrirhugaður er stofnfundur
fimmtudaginn 16. september kl.
20.00 f félagsheimili Vals að Hlfð-
arenda. Eru þar allir velkomnir.
Þeir sem ekki komast á fundinn,
en hafa áhuga á að gerast félagar,
eru beðnir að tilkynna þátttöku f
sfma 11134.
Akurnesingar unnu
Á UNDAN landsleiknum léku
Akurnesingar við sænska liðið
Bolton, sem er í annarri deild.
Leiknum lauk með sigri Akurnes-
inga 17—16. Þetta var nokkuð
skemmtilegur leikur og ekki
miklu lakari en sá sem á eftir var
leikinn. Akurnesingar • voru
nokkuð frískir f þessari „nýju
fþrótt" sinni og munaði þar mest
um Pál Björgvinsson, fyrrverandi
Vfking, en hann lék nú með Akur-
nesingum.