Morgunblaðið - 16.09.1976, Page 40
AtiGLÝSINííASÍMINN ER:
22480
2ítoreunbI(ií>i!>
JHor0unt>I«í>it)
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
Bullandi tap
á skákmótinu
„Tel ekki grundvöll vera fyrir
svona mót,” segir formaður T.R.
„ÞAÐ er náttúrulega ekki á
hreinu ennþá hvernig við förum
út úr þessu móti, en þó er Ijóst að 1
um bullandi tap verður að ræða.
fig reikna með að tapið verði á
aðra milljón, en hversu mikið á
aðra milljón kemur f Ijós sfðar f
vikunni." Þetta voru orð Guð-
finns R. Kjartanssonar, formanns
Taflfélags Reykjavíkur, þegar
Mbl. Ræddi við hann um Reykja-
vfkurskákmótið f gær.
Guðfinnur sagði, að það yrði
farið i að taka saman reikninga
síðar í vikunni og þá ætti málið að
komast á hreint, en margir reikn-
ingar væru ennþá ógreiddir hér
og þar. Guðfinnur sagði, að
áætlaður brúttókostnaður móts-
ins væri rúmar 5 milljónir. Sagði
hann Taflfélagið vera styrkt af
ríki og bæ um V4 milljón í ár og
einnig yrði fjárhæð til styrktar
mótinu á næstu fjárlögum, en
hún væri óþekkt ennþá. Aðsókn
sagði hann hafa verið lélega eða
180 manns að meðaltali á umferð,
og hrekkur þvi sú inntekt frekar
skammt.
Guðfinnur sagði, að það væri
skoðun sín að ekki væri unnt að
Framhald á bls 22.
Hækkar súpukjöt
um 100 kr. kílóið?
Nýtt verð á sauðfjárafurðum á mánudaginn
SEXMANNANEFND hefur sent
rfkisstjórninni tillögur sfnar um
nýtt verð á sauðfjárafurðum og
eru Ifkur á að þetta nýja verð
verði til umræðu á rfkisstjórnar-
fundi í dag en rfkisstjórnin verð-
ur að samþvkkja nýja verðið. Sex-
mannanefnd gerir tillögu um, að
nýja verðið taki ekki gildi fyrr en
á mánudag. I tillögum sexmanna-
nefndar er gert ráð fyrir, að út-
söluverð á súpukjöti hækki um
nálægt 15%, en verð á lærum og
hryggjum hækki nokkru meira.
Þessi prósentuhækkun á útsölu-
verðinu er þó við það miðuð, að
engar breytingar verið gerðar á
niðurgreiðslum sauðf járafurða.
Að sögn Gunnars Guðbjartsson-
ar, formanns Stéttarsambands
bænda, nemur hækkunin á verði
sauðfjárafurða til bænda 7.83%,
en hækkun á smásöluverðinu
verður verulega meiri vegna
áhrifa niðurgreiðslna, auk þess
sem slátur- og heildsölukostnaður
hækkar. Smásöluálagning og sölu-
skattur hækka einnig að krónu-
tölu. Aðspurður um, hvort verð á
gærum breyttist við þessa verð-
ákvörðun, sagði Gunnar, að verð á
þeim yrði óbreytt, en hann tók
fram, að allt væri í óvissu með
hvaða verð fengist fyrir gærurnar
á erlendum mörkuðum. Fram
kom, að enn hefur ekki fundizt
nein lausn til að bæta bændum
upp tjón þeirra vegna þess að
ekki fékkst fullt verð fyrir gær-
urnar frá sl. hausti.
Hvert kíló af súpukjöti, fram-
pörtum og síðum, kostar nú 584
kr. og kílóið af kótelettum kostar
720 krónur. Hækkun sú, sem til-
lögur sexmannanefndar gera ráð
fyrir svarar til þess að verð hvers
kílós súpukjöts hækki um nálægt
100 krónur.
Hjá Gunnari kom fram, að enn
hefur ekki verið gengið frá tillög-
um um nýtt verð á kartöflum, en
gera má ráð fyrir, að það verði
gert öðru hvorum megin við helg-
Hornafjörður:
Byssumaðurinn í 30 daga
varðhald og geðrannsókn
RANNSÓKN byssumálsins
á Hornafirði lauk í gær-
kvöldi. Friöjón Guóröðar-
son lögreglustjóri tjáði
Mbi. f gærkvöldi, að byssu-
maðurinn hefði þá um
kvöldið verið úrskurðaður
f allt að 30 daga gæzluvarð-
haid og gert að sæta geð-
heilbrigðisrannsókn á
tímabilinu. Á að flytja
manninn til Reykjavíkur í
dag.
Að sögn Friðjóns ber framburði
mannsins og framburði vitna ekki
saman i öllum atriðum. Telur
byssumaðurinn skotin hafa verið
færri en vitni segja. Maðurinn
hefur við yfirheyrslurnar neitað
því að hafa ætlað að vinna nokkr-
um manni mein með framferði
>nu heldur hafi hann aðeins
:að að ógna mönínurri með byss-
unni. Bæði vitni og maðurinn
sjálfur hafa sagt að hann hafi
ekki verið undir áhrifum ífengis
svo nokkru næmi þegar hann
framdi verknaðinn. Maðurinn er
24 ára og aðkomumaður á Horna-
firði.
I.jrtsm. Ól.K.M.
Þarna eru nokkrir keppendanna í nýafstöðnu Reykjavfkurmóti að
gæða sér á kræsingunum í veislu sem Menntamálaráðherra hélt þeim
til heiðurs. A myndinni má sjá (f.v.) Raymond Keene, Bretlandi,
Guðmundur Sigurjónsson, vinkona Vuckevic, Andrea Jónsdóttir vin-
kona Timmans, Jan Timman, Hollandi, Friðrik Olafsson og Banda-
ríkjamaðurinn Vukcevic. Sjá nánar viðtöl á bls. 2 og frétt á bls. 19.
Danmörk:
Sjö seldu
síld fyrir
31,1 m. kr.
MJÖG gott sídarverð fæst
nú dag hvern f Danmörku
og f gær seldu sjö fslenzk
veiðiskip þar sfld fyrir
samtals 31,1 milljón króna.
Skipin voru með 448,9 lest-
ir, og meðalverð pr. kíló
rétt um 70 krónur.
Skipin, sem seldu f gær, voru
þessi: Gullberg VE seldi 59,9 lest-
ir fyrir 4,1 millj. kr., meðalverð
kr. 69.00; Huginn VE seldi 72,9
lestir fyrir 5 millj. kr., meðalverð
kr. 69,33; Náttfari ÞH seldi 72,3
lestir fyrir 5,2 millj. kr., meðal-
verð kr. 69,17; Helga Guðmunds-
dóttir BA seldi 58,7 lestir fyrir 4
millj. kr., meðalverð kr. 69,46;
Vörður ÞH seldi 36,4 lestir fyrir
2,5 millj. kr.; meðalverð kr. 70,61;
Helga 2. RE seldi 63,3 lestir fyrir
4,4 millj. kr., meðalverð kr. 69,57;
og Skarðsvfk SH seldi 85,4 lestir
fyrir 5,8 millj. kr., meðalverð kr.
68,44.
Meira en hundrað skjálft-
ar mældust við Kröflu í gær
— Sterkustu skjálftarnir um 3,2 á Richterkvarða —
YFIR eitthundrað skjálftar
mældust á Kröflusvæðinu f gær
og er það f fyrsta sinn f langan
tfma, sem svo margir skjálftar
mælast þar. Meðalskjálftafjöld-
inn f Kröflu er nú farinn að nálg-
ast 100 á dag, en fyrir 2—3 vikum
var meðalskjálftafjöldinn um 60
á dag. Þetta kom fram þegar
Morgunblaðið ræddi við Valgarð
Stefánsson eðlisfræðing við
Kröflu f gærkvöldi. Að því er Val-
garður sagði virðist skjálfta-
fjölgunin nú tvöfaldast á 4—5
vikum og hann gat þess, að menn
við Kröflu fyndu stærstu kippina,
sem væru af stærðargráðunni 2,6
til 3,2 á Richterkvarða.
Valgarður sagði, að landrisið
héldi stöðugt áfram á svæðinu og
væri það mælt nákvæmlega á
hálfsmánaðarfresti, en auk þess
væri fylgzt náið með hallanum á
stöðvarhúsinu. Virtist landrisið
nú vera um 5,5 mm á dag, en
þegar það var mest var það um 6
mm á dag. Þá sagði Valgarður
aðspurður, að einhverjar smá-
breytingar virtust hafa orðið á
gashlutfallinu úr borholunum, en
niðurstöður á rannsóknum lægju
ekki fyrir.
Morgunblaðið spurði Valgarð
að lokum, hvort vísindamenn
óttuðust gos enn frekar á næst-
unni af völdum þessara auknu
jarðskjálftatíðni við Kröflu. Sagði
hann, að um það væru skiptar
skoðanir.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Ásgrfm Guðmundsson
jarðfræðing og sagði hann, að
báðir borarnir hefðu bilað i gær.
Jötunn bilaði í nokkra klukku-
tíma, en hann borar nú holu 7 og
Dofri var enn bilaður f gærkvöldi,
en hann er yfir holu 8. Er vart
gert ráð fyrir að Dofri komist f lag
fyrr en f dag.
Sprengju varpað að húsi lögregluþjónsins:
„Hart að fjölskylda manns geti
ekki fengið að vera í friði”
segir Daníel Snorrason lögregluþjónn á Skagaströnd
„Það er orðið anzi hart, þegar
fjölskylda manns getur ekki
fengið að vera f friði á meðan
maður er að sinna sfnum störf-
um, og ég veit varla, hvað svona
menn hugsa. Annars voru þeir
ekki meiri menn en það, að
þeir þorðu ekki að henda
sprengjunni inn um giuggann
nema þegar ég var að heiman,“
sagði Danfel Snorrason lög-
regluþjónn á Skagaströnd f
samtali við Morgunblaðið f
gærkvöldi, en aðfararnótt
þriðjudagsins var púður-
sprengju hendt ínn um þvotta-
húsglugga á heimili hans.
I húsinu voru þá kona Daní-
els, og tvö börn, 2ja og 5 ára,
auk þess sem hundur þeirra var
í þvottahúsinu. Konunni og
börnunum var óneitanlega mik-
ið um þetta og eru vart búin að
jafna sig og hundinum varð svo
mikið um þetta, að talið er, að
hann verði aldrei samur á eftir.
Á þriðjudagsmorguninn voru
tveir menn um tvítugt hand-
teknir á Skagaströnd og viður-
kenndu þeir verknaðinn eftir
nokkrar yfirheyrslur. „Það tók
smá tíma til að fá mennina til
Framhald á bls 22.
Skeiðará
byrjuð að
lemja vam-
argarðinn
SKEIÐARÁ heldur áfram að vaxa
hægt og bftandi, og f gær var áin
aðeins farin að renna meðfram
varnargarðinum norðan við stóru
brúna og berja hann. Þetta kom
fram, þegar Morgunblaðið ræddi
við Ragnar Stefánsson þjóðgarðs-
vörð f Skaftafelli í gær.
Ragnar sagði, að Sigurjón Rist
vatnamælingamaður mældi nú
rennsli f ánni af miklum krafti og
væri aðstaða til þess mjög góð,
þar sem nú væri hægt að mæla
rennslið beint af brúnni. Sam-
kvæmt mælingum Sigurjóns var
rennsli i Skeiðará 800 sekúndu-
lítrar i fyrradag, en I gær taldi
Ragnar, að vatnsrennslið gæti
verið að nálgast 1000 sekúndu-
litrann.
Sagði hann, að mjög sterk jökul-
fýla væri enn af vatninu, sérstak-
lega, þegar komið væri nálægt
því.