Morgunblaðið - 28.09.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.09.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1976 „Eyrsveitingar eru víst, iðju- samir flestir... ” 1 sögum og sögnum af Snæfells- nesi, sem Oscar Clausen safnaði og út kom árið 1968, segir Anna Thorlacius frá uppvaxtarárum sfnum I Grundarfirði, en hún fæddist þar um miðja sfðustu öld. Þá voru aðeins þrjú hús á Grund- arkambi, fbúðarhús og verzlun föður önnu, Jðns Danlelssonar og hús, sem Oddur Hjaltalfn læknir hafði látið gera. Þvf húsi hafði verið breytt f verzlun af Helga nokkrum þegar Anna var að alast upp. t endurminningum önnu kennir margra grasa um heimilis- hætti, gestakomur og hún segir frá ýmsum kynlegum kvistum, sem hún kynntist f bernsku. Þeirra á meðal var Sölvi Helga- son, sem eitt sinn var látinn vera f stofufangelsi hjá föður Önnu. Sölva Ifkaði vistin illa f Eyrar- sveitinni og átti til að lasta sveit- ungana. Eitt sinn sagði hann: Eyrarsveit þá verstu ég veit á Vesturlöndum, full er hún af fúlum öndum. En Jón Danfelsson varð fljótur til að svara fyrir sfna menn: Eyrsveitingar eru vfst, iðjusamir flestir, en friðland hjá þeim finna sfzt flökkusnatar verstir. „Varð þá Sölvi hljóður allt kvöldið, anga-greyið.“. Nóg að gera, en vantar fólk Nú er risið hið myndarlegasta þorp, í Grundarfirði, þar búa um 700 manns og einkunn Jóns kaup- manns fyrir iðjusemi Eyrsveit- inga virðist ekki óviðeigandi upp- haf. Þar er búið og byggt af rausn og að sögn Árna Emilssonar sveit- arstjóra skortir þar ekkert nema Árni Emilsson sveitarstjóri Formaður sjómanna- félagsins fólk til að taka til höndunum við uppbygginguna. „Árið 1940 voru íbúar Grundar- fjarðar aðeins 3.8% af íbúum í þéttbýli á Snæfellsnesi," sagði Árni. „1 Stykkishólmi voru þá 45%. Nú búa 23% þéttbýlenda í Grundarfirði — samsvarandi pró- senta á Stykkishólmi held ég hafi lækkað f sama hlutfalli. — Grundarfjörður var til forna kallaður Kirkjufjörður, en það nafn lagðist af snemma. Sjálft þorpið hét áður Grafarnes, eða allt fram yfir 1960.“ Fiskurinn virðist undirstaða at- vinnulífs? — „Já, rétt er það. Héðan eru gerðir út 13 eða 14 bátar auk skuttogarans Runólfs. Það er nú eini togarinn á öllu Snæfellsnesi. Hann eigum við að þakka ein- staklingsframtakinu einu saman eins og reyndar driftina í bænum yfirleitt. Nú, hér eru hraðfrysti- hús og saltfiskverkun, sem Kaup- félagið rekur. Frystihúsin eru Fiskverkunarstöð Júlíusar Gests- sonar og Aðgerðarhús Zophanius- ar Cecilssonar og svo er eitt í byggingu, sem líklega kemur til með að verka saltfisk. Þá er hér Verzlunarfélagið Grund og verzl- un kaupfélagsins. Hér er lítil tré- smiðja og vélsmiðja, sem reyndar stendur auð. Um iðnað er ekki að ræða, en uppbygging þess at- vinnuvegar er eiginlega eitt af okkar brýnustu verkefnum. Hér eru engir málarar, pípulagninga- menn — við höfum haft pípulagn- ingamann frá Selfossi hér í sumar og það er hart að sjá á eftir skött- unum hans í annað bæjarfélag. En skortur á iðnaðarmönnum kemur t.d. illa niður á bátunum, það þyrfti að vera öll þjónusta fyrir þá á staðnum. Það er feiki- nóg atvinna — vantar aðeins fólk- ið. — Húsnæðisskortur er tilfinn- anlegur, það eru 20 ný hús í bygg- ingu á Grundarfirði og nægir ekki til. Það er undarleg afstaða hús- næðismálastjórnar að vilja ekki hlynna að vaxandi samfélögum Nýbyggingar á Grundarfirði Vilborg og Hjördis. Sigurður eins og okkar. Engar leiguíbúðir koma til greina eða endurnýjun gamalla húsa. Þetta er stórmerki- leg afstaða." Hér er mikið byggt eins og þú segir — hvað um framkvæmdir á vegum hreppsins? „Við vorum í dag að hleypa vatni í nýja sundlaug og kennsla í sundi hefst nú 1 haust. Sundlaug- in er hluti af skóla- og íþróttahúsi. En það helzta verður að teljast stórkostlegar hafnarframkvæmd- ir, sem nú standa yfir. Sem stend- ur er verið að vinna að rfýjum viðlegukanti, sem væntanlega verður tekinn I notkun fyrir ára- mótin og verður þá öll aðstaða bætt til mikilla muna, því gamla höfnin er langt frá þvf að vera fullnægjandi. En það er dýrt að reka svona litið samfélag — það er til svona fyrir olíu og rafmagni, allt annað þarf að snapa lán í.“ — Hvað um þjónustu, t.d. lækna? „Læknir kemur hingað 2svar í viku og það er alveg viðunandi. Brýnast er að koma upp aðstöðu fyrir tannlækni á staðnum því eins og er þarf fólk að fara til Ölafsvíkur eða í Hólminn til tann- lækninga, sem er dýrt. Það myndi spara mikið að hafa aðstöðuna hér og fá tannlækni öðru hvoru til okkar.“ — Félagslíf? „Það er nú svo mikið, að það er varla tími til að stunda það allt. Hér er starfandi kvenfélag, Lions- klúbbur, ungmennafélag, stjórn- málafélög, verkalýðsfélag. Skák- áhugi er mikill, einkum í skólan- um. Knattspyrna er mest stunduð af íþróttunum. Og nú verður hægt að synda.“ — Að lokum, Árni, hefur þú alltaf átt heima í Grundarfirði? „Nei. En ég kom hingað 9 ára gamall og geri varla ráð fyrir að fara héðan aftur. Það er gott að vera í Grundarfirði, nóg verkefni og útlit fyrir vöxt þorpsins. Eins og ég sagði f upphafi, hér vantar aðeins rúm fyrir fleira fólk.“ Grundarfjörður, hafnarfram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.