Morgunblaðið - 28.09.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1976
39
Reiðhjóli
stolið í
Miðbænum
Karlmannsreiðhjóli af gerðinni
Welamus frá Tékkóslóvakfu, var
stolið á gangstéttinni fyrir fram-
an Morgunblaðshúsið I gærdag
um kl. 18.
Ungur drengur, 12 ára gamall,
er eigandi hjólsins og notar hann
það við vinnu slna. Hjólið er
rautt, en á framhrettinu er blá
klessa. Hjólið er ekki með böggla-
bera, keðjukassann vantar, en á
stýrinu eru hvít handföng. Þeir
sem hafa orðið varir við hjólið eru
vinsamlega beðnir um að hafa
samband í síma 13317 eða við
rannsóknarlögregluna.
— Þörunga-
vinnslan
Framhald af bls. 40
öflunar reyndust mun lakar en
gert hafði verið ráð fyrir og senni-
lega verður handöflun þangs
bjargráðið ásamt prömmunum, en
llklega mun þetta mál ekki
skýrast fyrr en á næstu mánuð-
um, en við vonum fastlega að mál-
ið verði kannað til þrautar".
— Sætir Ford
Framhald af bls. 1
um það. Richard Cheney, starfs-
mannastjóri Hvíta hússins, sagði
blaðamönnum i gærkvöldi um
borð I einkaþotu forsetans að eng-
ar ráðagerðir væru uppi um að
spyrja saksóknara að því hvort
Ford sætti rannsókn I máli þessu.
Engin ástæða væri til að bera
fram slíka spurningu og þar að
auki hefði skrifstofa saksóknar-
ans ekkert samband haft við
starfsmenn Hvíta hússins vegna
málsins.
Ef W atergatesaksóknarinn
staðfestir að slik rannsókn sé I
gangi gæti það haft alvarleg áhrif
á kosningabaráttu forsetans og
gengi hans. Þótt aðstoðarmenn
forsetans segi opinberlega að alls
engar sannanir liggi fyrir gegn
forsetanum í sliku máli er talið að
þeir séu engu að siður áhyggju-
fullir yfir þvi að ásakanir af þessu
tagi geti skaðað forsetann einmitt
nú er hann sækir ört á keppinaut
sinn Jimmy Carter I skoðana-
könnunum. í skoðanakönnun
New York Times og CBS-
sjónvarpssamsteypunnar sem birt
var I dag kemur fram að 37%
spurðra telja að Ford hafi staðið
sig betur I fyrstu sjónvarpskapp-
ræðu þeirra Carters, en aðeins
24% telja að Carter hafi borið
sigur úr býtum. Þá kemur fram
að Ford hefur aflað sér meiri
stuðnings meðal utanflokkakjós-
enda en Carter það sem af er. Og I
nýjustu Louis Harriskönnuninni
kemur fram að Carter er með
50% fylgi en Ford 41%.
— Rhódesía
Framhald af bls. 1
gengið út frá þvf að heildaráætl-
unin sem Smith kynnti hefði þeg-
ar hlotið samþykki forseta Af-
rfkurfkja sem Kissinger hefði
ráðfært sig við áður en hann hitti
Smith 19. september. Hins vegar
sagði Rogers I kvöld að Kissinger
hefði ekki útrætt um uppbygg-
ingu bráðabirgðastjórnarinnar
við forsetana.
Rogers sagði að afstaða forset-
anna fimm frá Zamblu, Tanzaniu,
Botswana, Mozambique og Angóla
á fundinum i Lusaka fæli ekki I
sér synjun á þeim tillögum sem
lagðar hefðu verið fram. Þvert á
móti „gengu þeir að kjarna
þeirra, og grundvallarröð áfanga"
i átt til meirihlutastjórnar. Spurn-
ingin virðist þvi sú, að því er
stjórnmálaskýrendur segja, hvort
Smith hafi I raun og veru staðið í
þeirri trú að Afríkuþjóðirnar
hefðu þegar gengið að þeim skil-
málum sem fram koma í tillögum
þeim sem Kissinger lagði fyrir
hann. Háttsettar diplómatískar
heimildir i Pretóríu hermdu að
Smith kynni nú að notfæra sér
viðbrögð forsetanna fimm við
ræðu hans sem tylliástæðu til að
snúa sig út úr frekari sáttavið-
leitni. Væru ummæli hans um
áhrif Sovétrikjanna á forsetana
merki um slikt.
Forsetarnir lögðu fram gagntil-
lögu um áætlunina um valdatöku
meirihlutastjórnar blökkumanna
í Rhódesíu vegna þess að þeir
gætu ekki samþykkt þá túlkun
sem Smith lagði I hana. Einkum
er uppbygging bráðabirgðastjórn-
ar sem yrði við völd þar til meiri-
hlutastjórnin tæki við þeim þyrn-
ir I augum, en i henni yrðu áhrif
hvitra mun meiri, og m.a. hefðu
þeir verulegt neitunarvald innan
hennar.
Brezka ríkisstjórnin reyndi í
dag fyrir sitt leyti að halda sam-
komulagstilraunum áfram af
krafti og koma kyrrð á núverandi
ástand I Rhódesíu. Afriskir leið-
togar hafa sagt að áframhaldandi
sáttastarf væri nú í höndum
Breta. Forsetarnir fimm skoruðu
á þá að boða til stjórnarskrárráð-
stefnu um meirihlutastjórnina, og
hefur Anthony Crosland utanrík-
isráðherra samþykkt að verða við
þeirri áskorun. Þá fór Red Row-
lands, aðstoðarráðherra í brezka
utanríkisráðuneytinu, til Afriku í
kvöld til að ræða við afriska for-
seta um ráðstefnuna sem haldin
yrði utan Rhódesiu.
I Salisbury hafa ráðamenn lýst
vonbrigðum sinum með afstöðu
forsetanna fimm, sem m.a. sögðu
að áfram yrði háð skæruliða-
styrjöld í Rhódesíu unz lokatak-
marki yrði náð. Hins vegar fögn-
uðu þeir þeirri yfirlýsingu John
Vorsters, forsætisráðherra Suður-
Afríku, um að Smith hefðu „I
einu og öllu framfylgt samkomu-
laginu" sem náðist í viðræðum
Smiths, Vorsters og Kissingers I
Pretóriu. Lita menn I Salisbury á
þetta sem mikilvæga stuðningsyf-
irlýsingu við Rhódesiu.
I Lusaka hófust I dag viðræður
tveggja stórra fylkinga rhódes-
iskra þjóðernissinna, annars veg-
ar fulltrúa Joshua Nkomo, leið-
toga innanrikisarms Afriska þjóð-
arráðsins, og hins vegar Robert
Mugabe, hins róttæka foringja
12.000 skæruliða Rhódeslu. Þeir
Nkomo og Mugabe eru fornir
keppinautar en viðræður þeirra
stefna að myndun samstöðu milli
þessara helztu pólitlsku og hern-
aðarlegu leiðtoga þjóðernirsinns I
þeim viðræðum um bráðabirgða-
stjórn sem fyrir dyrum eru. Utan
við þessar viðræður standa svo
tveir aðrir helztu leiðtogarnir,
Abel Musorewa og Nbabadingi
Sithole.
— Umferðar-
sektir
Framhald af bls. 40
hraða þar sem leyfður er 45 km
hámarkshraði. Undantekningar
eru auðvitað þarna á, og komið
hefur fyrir að menn hafa verið
teknir á hraða, sem er vel yfir 100
km á klukkustund, þar sem leyfð-
ur er 45 km hámarkshraði. I slík-
um tilvikum eru ökumennirnir
oftast sviptir ökuleyfum slnum
samstundis, en lögreglan hefur
heimild til þess ef um vítaverðan
akstur er að ræða.
Sem fyrr segir fylgist lögreglan
einnig mjög vel með því að reglur
um stöðvunarskyldu og umferðar-
ljós séu ekki brotin. Sektir fyrir
sllk brot eru núna 6 þúsund krón-
ur en þær munu hækka verulega
einhvern tlma á næstu vikum,
eins og aðrar sektir við umferðar-
lagabrotum. Flokkar lögreglu-
manna eru á vakt við gatnamót I
höfuðborginni, og eru þeir sem
brjóta af sér teknir umsvifalaust.
Sektum er beitt, ef ökumenn
fremja brot, sem talið er skapa
hættu I umferðinni. Fjölmörg sllk
brot þekkjast önnur en þau sem
að framan er greint frá. Þannig
eru ökumenn sektaðir um 1600
krónur ef þeir fara ekki eftir
bannmerkjum, sem sett hafa ver-
ið upp I umferðinni og brjóta þar
með 38. grein hegningarlaganna.
— Litasjónvörp
Framhald af bls. 40
að ósekju, þar sem þeir hefðu
flutt tækin inn I góðri trú á
slnum tíma.
Rafn sagði ennfremur, að
ekki hefðu fengizt nein svör við
því hvað tæki við varðandi inn-
flutning á litsjónvarpstækjum
og þar væri allt I óvissu. Rafn
sagði, að áhugi væri fyrir tækj-
unum og dæmi væri um að fólk
væri á biðlistum eftir þessum
tækjum, er nú yrðu leyst út,
enda ekki óeðlilegt þegar engin
tæki væri að fá um langan tlma.
Rafn sagðist hins vegar sann-
færður um, að fljótræði hefði
verið að stöðva innflutning á
litsjónvarpstækjum þar eð
eftirspurn eftir þeim hefði ekki
verið slík heldur hefði mátt bú-
ast við að salan yrði hæg og
slgandi eftir því sem fólk teldi
sig þurfa að endurnýja eldri
tæki sfn.
I sama streng tók Halldór
Laxdal, forstjóri Radíóbúðar-
innar. Hann kvað ljóst, að fólk
sem nú væri að endurnýja eldri
tæki sln vildi fá litasjónvarp en
hins vegar væri ástæðulaust að
ætla að kaupæði gripi um sig á
litsjónvarpstækjum. Hann kvað
mikinn áhuga vera fyrir þeim
tækjum, sem nú ættu að seljast
en verzlun hans væri með
meirihluta tækjanna á sínum
vegum. Fólk hefði þegar pantað
mörg þessara tækja og dæmi
væri um að það væri þegar far-
ið að borga inn á þau. Halldór
sagði, að ákvörðun viðskipta-
ráðuneytisins um að stöðva inn-
flutning á litsjónvarpstækjun-
um myndi aðeins gera illt
verra, eins og jafnan væri þeg-
ar höft af þessu tagi væru sett
á. Búast hefði mátt við að jöfn
sala hefði orðið I litsjónvarps-
tækjunum eftir þvl sem fólk
hefði þurft að endurnýja eldri
tæki sín, en með stöðvun inn-
flutnings væri aðeins verið að
búa til vanda síðar meir, þvl að
þegar innflutningur væri aftur
leyfður mætti búast við að þá
væri mikil eftirspurn eftir
tækjunum og jafnvel að kaup-
æði gripi um sig.
— Norræn
ráðstefna
Framhald af bls. 1
hver I sínu lagi og væri stefna
ríkjandi stjórnar á hverjum
tima I samræmi við grundvallar
skoðanir eins flokks eða flokka
með áþekkar skoðanir. Janson
kvað lýðræði á Norðurlöndun-
um fremur einkennast af því að
fylkingar á öndverðum meiði
samræmdu skoðanir sínar og
störfuðu saman, þótt Sviþjóð
væri I hópi þeirra rikja þar sem
flokkaskil væru skörp, og um
stjórnarsamstarf hefðu ekki
verið að ræða, og sama væri
uppi á teningnum I Noregi og
Bretlandi. Dæmi um lönd þar
sem margir stjórnmálaflokkar
ættu jafnan aðild að rikisstjórn
væru Finnland og Austurrlki,
sem ættu það sammerkt að hafa
kommúnistaveldi að næsta ná-
granna. I máli Jansons kom
fram, að hann telur þróunina
yfirleitt á þá lund, að samstarf
sundurleitra stjórnmálaflokka
fari vaxandi.“
„Danski fhaldsmaðurinn Ib
Stetter var einn þeirra, sem tal-
aði á ráðstefnunni I dag, og
meðal þess sem hann sagði var,
að frávik stjórnmálaflokka frá
gurndvallarsjónarmiðum sín-
um, eins og oft væri óhjá-
kvæmilegt I samstarfi við aðra
flokka, stuðlaði oft að vantrú
kjósenda á þeim flokki sem
þeir fylgdu að málum. Jörgen
Schleimann, fréttastjóri danska
sjónvarpsins, lét I ljós þá skoð-
un sína, að lltt stoðaði að vera
að tala um lýðræði á ráðstefn-
unni I Kristiansand, nema
menn væru reiðubúnir að ræða
um leið öryggis— og varnar-
mál, þvl að forsenda lýðræðis
væri sú, að menn væru tilbúnir
að verja það.“
„Meðal annarra, sem til máls
tóku hér I dag„ hélt Ragnhildur
áfram, „var Magnús Kjartans-
son. Hann tók m.a. fram, að
hann væri lýðræðissinnaður
sósíalisti, en ekki kommúnisti,
og hann gerði sérstaklega að
umræðuefní efnahagslegt lýð-
ræði.“
— Á réttri leið
hissa ef landsliðsmönnum liðsins
fækkaði eitthvað þegar á liði Flest
mörk Vikings gerðu ólafur Einarsson 6
°9 Viggó Sigurðsson 3. H.G.
— Póst- og
símaumdæmi
Framhald af bls. 16
göngumálaráðuneytinu, og Hörð-
ur Sigurgestsson, rekstrarhag-
fræðingur. I október 1974 bætist
svo einn maður við, Jón Böðvars-
son, deildarstjóri I fjárlaga- og
hagsýslustofnun, og starfaði hann
með nefndinni sem ritari.
Nefndin hefur notið aðstoðar
ýmissa sérfróðra manna um þessi
mál og I því sambandi hafa 2
menn frá norsku simamálastjórn-
inni unnið með nefndinni nærri
frá upphafi. í samráði við þá var
síðan ákveðið að fá norska ráð-
gjafarfyrirtækið A. Habberstad i
Ósló til frekari aðstoðar. Þá naut
nefndin einnig þýðingarmikillar
aðstoðar fjölmargra starfsmanna
Pósts og síma.
Framhald af bls. 2
bifhjóls sem var ekið niður Frakkastfg.
ökumaður og farþegi köstuðust af hjólinu
og þegar að var komið lá farþeginn um 20
metra frá árekstursstaðnum, við hliðina á
hjólinu. Báðir voru fluttir á Slysadeild, en
meiðsli reyndust mun minni en ætla
mátti við aðkomu á slysstað.
Eins og svo oft áður varð ökumaður
bifreiðarinnar ekki hjólsins var fyrr en
áreksturinn varð.
Um kl. 13 urðu tvö óhöpp. Sendiferðæ
bifreið 6k á stóran stein, sem hafði fallið
af vörubifreið og ungur drengur á reið-
hjóli lenti á kyrrstæðri og mannlausri
bifreið. Drengurinn var fluttur á Slysa-
deild en meiðsli voru Iftil.
Kl. 17 varð árekstur með sfgildum
hætti. Bifreið var ekið hliðargötu að Háa-
leitisbraut, en þar var mikil umferð. Eftir
að hafa beðið nokkra stund við gatnamót-
in stöðvaði annar ökumaður bifreið sfna á
hægri akreininni og benti þeim sem beið
að aka yfir. Slfkum kostaboðum ber þó að
taka með mikilli varúð, þvf þegar bifreið-
inni var ekið fram fyrir þá sem beið kom
þriðja bifreiðin aðvffandi eftir vinstri ak-
reininni og afleiðingin var allharður
árekstur.
Nú þegar blaðið er að fara f prentun
standa málin þannig að óhöppin urðu 5,
en 11 f fyrra. Á síðasta ári hafði barn sem
varð fyrir bifreið og ökumaður f bifreið
sem ekið var aftan á hlotið meðferð á
Siysadeildinni en eftlr þennan mánudag f
ár var farþeginn á bifhjólinu sá eini sem
þurfti að fara f aðgerð, en samkvæmt
sfðustu upplýsingum viðbeinsbrotnaði
hann.
1 þessari viku hafa þvf orðið 11 óhöpp en
á sömu dögum f fyrra 13.
Undanfarið hafa slys áökumönnum bif-
hjóla og vélhjóla verið allt of mörg.
Mjög algengt er að ökumenn bifreiða
aka í veg fyrir hjólin, þar sem þau eru á
aðalbraut. Þess vegna viljum við f Slysa-
rannsóknadeildinni biðja ökumenn þess
að Ifta á hjólin eins og önnur ökutæki f
umferðinni og ætla þeim svipað rúm og
venjulegri bifreið.
Sérstaklega viljum við koma þvf til hjól-
reiðamannanna að fara aldrei af stað, án
þess að hafa hjálm á höfðinu og aka með
fullum ökuljósum allan sólarhringínn,
þvf meiðslin verða ekki minni eða létt-
bærari þó maður hafi verið f umferðar-
rétti.
— íþróttir
Framhald af bls. 19
sír.u Rétt er þó að geta þess að Bergur
Guðnason lék sinn fyrsta leik i langan
tima og stóð sig sæmilega Flest mörk
Vals gerðu þeir Jóhannes Stefánsson
og Steindór Gunnarsson 6 hvor Flest
mörk Leiknis gerðu Hafliði Pétursson 7
og Gunnar Örn Kristjánsson 4
IR-Víkingur 22—19.
ÍR-ingar sýndu mikla baráttu i þess-
um leik og verðskulduðu fyllilega sigur
og verður það að teljast mjög gott hjá
þeim þvi að Ágúst Svavarsson lék ekki
þennan leik vegna meiðsla. Það voru
gömlu kapparnir i liðinu sem stóðu sig
bezt að öðrum ólöstuðum, þvi að allir
börðust vel og gerðu sitt bezta Flest
mörk ÍR gerðu þeir Brynjólfur Markús-
son 9 og Vilhjálmur Sigurgeirsson 5.
Það var eins og Vikingar héldu að þeir
þyrftu ekkert að hafa fyrir sigri, barátt-
an var i lágmarki og leikur þeirra
fremur slakur. Ekki er ástæða til að
hæla nokkrum þeirra, það er hart að lið
með slikar stjörnur og Vikingur skuli
ekki geta sýnt betri leiki og ekki yrði ég
— Getur stytt....
Framhald af bls. 29
Jaques Chirac var sá sem leiddi
uppreisnina I gaullistaflokknum
til stuðnings Giscard gegn opin-
berum frambjóðanda gaullista til
forsetakjörs 1974, Chaban Del-
mas. Nú eru það stuðningsmenn
Delmas eins og Guichard, sem
leggjast á sveif með Giscard.
Óvlst er nú um pólitíska fram-
tið Chiracs. Eftir að hafa sundrað
Gaullistaflokknum einu sinni,
getur hann þá náð aftur tökum
slnum á flokknum nú þegar
bandalag hans við Giscard er far-
ið út um þúfur? Takist honum
það, mun hann þá beita flokknum
fyrir sig til að knýja fram kosn-
ingar í haust? Það var einmitt það
sem hann hugðist gera sem for-
sætisráðherra, en Giscard greip I
taumana.
Heldur er talið óllklegt að Chir-
ac nái verulegum tökum á flokkn-
um eða að hann stefni út I kosn-
ingaslag. 1 þeirri óvissu, sem nú
ræður, eiga gaullistar minni
möguleika á kosningasigri. Lfk-
legra er þvl að Chirac stefni að
þvl að vinna forsetaembættið eft-
ir nokkur ár ef svo fer, sem marg-
ir ætla, að Giscard verði að
hrökklast frá undan Vinstra-
bandalaginu.
VÉLAR,
SEM VIT ER í
Öll stig af rafreiknum
frá
Texas Instruments
stærstu
tölvuframleidendum
í heiminum í dag
ÞOR r
ÁPMÚLA 11, SÍMI 81500
MEKK
AStórglæsileg ný
skápasamstæða
með höfðingjasvip
HIISGAGNAVIRZI.IIN
KRISTIÁNS SIGGEIKSSONAK HF.
Lauflavcdi 13 Reykjavik simi 2587«